Dagblaðið Vísir - DV - 02.11.1984, Síða 6

Dagblaðið Vísir - DV - 02.11.1984, Síða 6
6 DV. FÖSTUDAGUR 2. NOVEMBER1984. Neytendur Neytendur Neytendur Neytendur Vikuleg verökönnun DV: Kostar minna en fyrir 8 mánuöum Að þessu sinni var kannað verð i finun verslunum í Reykjavík. Viö völd- um níu vörur til aö kanna verð á í þess- um verslunum. Þessar vörur voru reyndar valdar af handahófi úr verð- könnun sem Verðlagsstofnun gerði á tímabilinu 20. febrúar til 2. mars sl. vetur. Það var reyndar mjög yfirgrips- mikil könnun og voru alls kannaðar 100 vörutegundir. Að þessu sinni litum við á verð hjá fjórum af þeim fimm versl- unum sem voru í þessari verðkönnun Verðlagsstofnunar. Þessar verslanir voru: Hagkaup, Vörumarkaðurinn, Mikligarður, JL-húsiö. Þá kom í ljós aö verölag í Miklagarði og Hagkaupi var svipað, en þó hafði Mikligarður vinn- inginn. Vöruverð í Vörumarkaöinum og JL-húsinu var einnig svipað og um 5% hærra þar en í hinum tveimur fyrmefndu verslunum. Glæsibær var ekki með í könnun Verðlagsstofnunar í vetur. Allar þess- ar verslanir, nema Glæsibær, hafa stórmarkaðsbrag á sér. Verð fyrir 8 mánuðum Nú eru liönir um 8 mánuðir frá því að verðkönnun Verölagsstofnunar var gerð. Það er því fróölegt að líta á hversu miklar verðbreytingar hafa orðið á þessum vörum frá þeim tíma. Fyrst skulum við þó athuga saman- lagt verð nú og þá. I ljós kemur aö á öll- um stöðunum hefur verðið lækkað.. Lægsta samanlagða verð er í Hag- kaupi og hæsta verðið er í JL-húsinu. Munurinn á hæsta og lægsta verðinu er þvíum4,8prósent. Sveif/ukennt verð á sykri Verðið á sykri hefur í öllum verslun- um lækkað, þó mismunandi mikiö. Heimsmarkaösverð á sykri hefur hækkaö og er Mikligarður byrjaður að selja á því verði. Flestar hinar versl- anirnar eru með sykurinn á gamia verðinu. 1 Hagkaupi er sykurinn skammtaður og er mest hægt að kaupa 10 kg. Astæðan var að fyrirsjáanlegt sykurhallæri var vegna verkfallsins en einnig mun ástæöan hafa verið sú aö smákaupmenn voru byrjaðir að kaupa sykur hjá Hagkaupi til sölu í sínum eig- in verslunum því verðið þar er nú und- ir því verði sem heildsalar selja á. Svona ástand mun einnig hafa rikt i öðrum verslunum. Hrísgrjón Verðið á River rice hrísgrjónum hefur hækkaö i flestum stööum, en þó lækkað örlitiö í Miklagarði. I Glæsibæ var tvenns konar verð og var verðið á nýrri sendingu komið upp í 25.15 kr. Spaghetti /ækkar Frá þvi fyrir 8 mánuöum hefur spaghettiverðið lækkaö og því ber auð- vitað að fagna. Þegar verðkönnun Vikuiegar verðkannanir DV Við á Neytendasíðunni höfum nú ákveðið að byrja aftur með reglulegar vikulegar verðkannanlr. Flesta rekur líklega minni tO að i fyrra birtust vikulega verðkannanir hér á siðunnl. Við teljum mikilyægt að gerðar séu slíkar verðkannanir. Þær veita kaupmönnum aðhald og fyrst og fremst upplýsa þær lesendur um vöruverð sem verður tO þess að auka verðskynið. En meira og betra verðskyn meðal neytenda hlýtur að vera grundvaOaratriði þegar stöðugt er verið að gefa álagningu á vörur og þjónustu frjálsa. Þessar vikulegu verðkannanir DV verða ekki einungis kannanir á verð- lagi matvara. Við komum tfl með að kanna verð hinna óiíku vöruflokka og einnig verð á þjónustu. Við tökum gjarnan við ábendingum frá lesendum og óskum eftir góðu samstarfi við þá og elnnlg þá sem ákveða verð á vörunni og þjónustunni. -APH. Upplýsingaseðill til saman6uiðar á heimiliskostnaði Hvað kostar heimilishaldið? Vinsamlega sendið okkur þennan svarseðil. Þannig eruð þér orðinn virkur þátttak- andi i upplVsingamiðlun meðal almennings um hvert sé meöaltal heimiliskostnaðar fjölskvldu af sömu stærð og yðar. Þar að auki eigið þér von um að fá nvtsamt heimilis- tæki. Nafn áskrifanda . Heimili Siníi Fjöldi heimilisfólks Kostnaður í október 1984. Matur.og hreinlætisvörur kr. Annaö kr. Alls kr. I mmm Últi r m 1 « WM JERRHI Bl 4 lífcJl "■™ ' R J ■ HAGKAUP/ VÖRUMARKAÐUR MIKLIGARÐUR JL-HUSIÐ GLÆSIBÆR Skeifunni Ármúla 30—10 30—10 30—10 30—10 30-10 Sykur 23,80—7,2 27,20-1,8 28,90-1,05 23,50—9,9 24,35 Riverrice454 g 20,40+0,6 20,30 +0,80 20,40 —0,55 24,05 +3,5 22,10/25,15 Salt, lkg,Katia 16,70—0,05 Spaghetti 16,60-0,8 16,65 sama 17,20 sama 18,80 Honning, 33,80—7,95 500 g 32,60—10,8 33,80 -8,25 34,80-8,15 34,00 Tómatsósa Libbys, 567 g 32,95—sama 32,60 -0,35 32,95 — sama 35,40—1,7 33,40 Súinep, 22,200 g 16,40+0,90 FiskiboUur, Ora, 15,90 — sama 16,40+1,15 15,89 +0,10 16,10 1/2 dós 28,60+1,45 Majónes, 28,60 +0,95 28,65 +0,70 31,10 +0,90 31,10 Gunnars,250ml 22,75+0,85 22,60 -0,25 22,70 +0,80 23,90 +2,15 22,90 Hrökkbrauð, Korni, flatbröd 27,85+1,7 30,00 +2,0 30,05 +5,95 27,55 -0,90 27,60 Svali, 1/41 5,90+0,80 6,90 +1,60 6,10 +1,00 6,90 +1,40 6,10 Samtals. 229,15—1,70 233,3 —8,65 236,2—1,25 240,25—12,60 236,45 X Fyrir aftan bverja töiu er skráð bversu miklar verðbreytingar hafa orðið frá þvi Verðlagsstofnun gerðl ver könnun fyrir 8 mánuðum. Verðlagsstofnunar var gerð var verð á þessari pakkningu og tegundum al)s staðar meira en 40 krónur. Tómatsósa, sinnep og fisk - boiiur í dós Tómatsósan og sinnep virðast hafa haldist nokkurn veginn í sama veröinu þessa 8 mánuöi og hlýtur það að vera fagnaðarefni fyrir þá fjöbnörgu pulsu- aödáendur sem hér á landi eru. En á þessu sviði virðist vera mikil verðsam- keppni og ekki ósjaldan sem maður sér uppstilltar tómatflöskur á tilboði. 1 Miklagarði var þessi tómatsósa á tilboösverði en ekki var hægt að sjá að hún væri á tilboðsverði í Hagkaupi. Hún var einnig á tilboösverði í Vöru- markaöinum og kostar þar 32,60 kr. En það er athyglisvert að í Miklagarði og Hagkaupi er sama verð. Við skulum ekki fjölyrða um þetta mál en það er vert aö hafa í huga þegar gengið er i gegnum matvöruverslanir með fjöl- breyttum vörum og tilboðsvörum stillt upp með jöfnu millibili að ekki er allt gull sem glóir. Tilboð getur verið mis- vísandi eða villandi. Stundum er hægt aö kaupa aðra jafngóða vöru á mun betra verði og einnig getur verið að til- boðið sé hreint ekkert „tilboð”. Fiskbollumar standa fyrir sínu og hafa hækkaö örlítið á flestum stöðun- um. Svalinn Verð á hinum umdeilda svala hefur hækkaö í öllum verslununum. En á ein- um svala munar þó einni krónu í Hag- kaupi og JL-húsinu. Það er einnig algengt að sjá svala á tilboðsverði. Og í Miklagarði og í Glæsibæ var svalinn á tilboðsverði. En það er eitt sem kaupmenn ættu aö vanda sig betur við og eru það verö- merkingar á þessum drykk og öðrum svipuöum. I Vörumarkaöinum og JL- húsinu var þeim nokkuð ábótavant. Verðkönnun DV Við látum svo lesendum eftir að rýna nákvæmlega í verðtöfluna. Við minnum á að varasamt getur verið að draga of miklar og víðtækar ályktanir út frá þessari könnun. Þetta eru bara níu vörutegundir. En það breytir samt ekki þeirri staðreynd að samanlagt verð þeirra hefur lækkað í þessum verslunum og eru það ágætisfréttir. En það er að sjálfsögöu aðrar vörur sem hafa hækkaö í verði á þessum tíma og komum við að því síðar. APH Það var dós, dós, fiskibolludós.. . Verð á þeim hefur öriitið hækkað frá því fyrir 8 mánuðum. D V-myndir Bj. Bj.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.