Dagblaðið Vísir - DV - 02.11.1984, Síða 11
DV. FÖSTUDAGUR 2. NOVEMBER1984.
11
Hór sóst sams konar vól og notuð verOur i KúbuflugiO. Ljósm. Baldur Sveinsson.
ARNARFLUG TEKUR AÐ
SÉR LEIGUFLUG TIL KÚBU
Flugfélagið Arnarflug hefur gert
samning við ítölsku ferðaskrifstofu-
keðjuna Mondadori um leiguflug með
ítalska ferðamenn milli Italiu og Kúbu.
Fyrsta ferðin í leiguflugi þessu var
farin þann 26. október sl. og áætlaðar
eru 3 ferðir í viku. Amarflug leigir
Boeing 707 farþegaþotu til þessa
verkefnis en vélin var notuð i píla-
grímaflugi Amarflugs í haust. Þess
má geta að í vébnni eru tæki til kvik-
myndasýninga og mun þetta vera í
fyrsta sinn sem slíkur búnaöur er
notaður í flugvél sem rekin er af ís-
lensku flugfélagi. Um samnings-
gerðina að hálfu Amarflugs sá Halldór
Sigurðsson deildarstjóri. Samningur-
inn er til eins árs en þó uppsegjanlegur
ámiðjutímabili.
Heildarvelta þessa verkefnis nemur
um 400 milljónum króna.
MIÐ BJOÐUNv
METRINU
BYRGINN'
JmuuESTonE
Sagt er að allir tali um veðrið, en enginn
geri neitt í því.Við hjá BRIDGESTONEget-
um að vísu ekki gert neitt við veðrinu, en
við bjóðum stóraukið öryggi í vetrarakstri
með hinum heimsþekktu ÍSGRIP vetrar-
hjólbörðum. ÍSGRIP hjólbarðarnir eru úr
sérstakri gúmmíblöndu, sem harðnar
ekki 1 kuldum, þeir haldast mjúkir og gefa
því einstaklega góða spyrnu í snjó og
hálku. Tryggðu öryggi þitt og þinna í vet-
ur, keyptu BRIDGESTONE ÍSGRIP undir
bílinn — þeir fást hjá hjólbarðasölum um
land allt.
Sérlega hagstætt verð. .
ISGRIP
BÍLABORG HF
Smiöshöföa 23 sími 812 99
Styrkir til náms í Sambands-
lýðveldinu Þýskalandi
Þýska sendiráðið í Reykjavík hefur tilkynnt íslenskum
stjómvöldum að boðnir séu fram eftirtaldir styrkir handa
Islendingum til náms og rannsóknastarfa í Sambandslýðveld- .
inu Þýskalandi á námsárinu 1985—86:
1. Fjórir styrkir til háskólanáms. Umsækjendur skulu hafa
lokið a.m.k. tveggja ára háskólanámi.
2. Nokkrir styrkir til að sækja þýskunámskeið sumarið 1985.
Umsækjendur skulu hafa lokið eins árs háskólanámi og
hafa góða undirstöðukunnáttu í þýskri tungu.
3. Nokkrir styrkir til vísindamanna til námsdvalar og
rannsóknastarfa um allt að fjögurra mánaða skeið.
Umsóknir um styrki þessa skulu sendar menntamála-
ráðuneytinu, Hverfisgötu 6,101 Reykjavík, fyrir 1. desember
nk. Sérstök umsóknareyðublöð og nánari upplýsingar fást í
ráðuneytinu. 31. október 1984.
Menntamálaráðuneytið.
Styrkir til há-
skólanáms í Sviss
Svissnesk stjórnvöld bjóða fram í löndum sem aðild eiga að
Evrópuráðinu átta styrki til háskólanáms í Sviss háskólaárið
1985—86. Ekki er vitað fyrirfram hvort einhver þessara
styrkja muni koma í hlut Islendinga. Styrkimir eru eingöngu
ætlaðir til framhaldsnáms við háskóla og eru veittir til 9
mánaða námsdvalar. Nauðsynlegt er að umsækjendur hafi
nægilega þekkingu á frönsku eða þýsku og þurfa þeir að vera
undir það búnir, að á það verði reynt með prófi. Umsækjendur
skulu eigi vera eldri en 35 ára og hafa lokið háskólaprófi áður
en styrktímabil hefst. — Umsóknir um styrki þessa skulu
sendar menntamálaráðuneytinu, Hverfisgötu 6, 101 Reykja-
vík, fyrir 1. desember 1984 á tilskildum eyðublöðum, sem þar
fást.
31. október 1984,
Menntamálaráðuneytið.
AUGLÝSING
til söluskatts- og
vörugjaldsgreiðenda
Viðurlög vegna vangoldins söluskatts fyrir septembermánuð
og 17% vörugjalds vegna ágústmánaör verða reiknuð að
kvöldi föstudagsins 2. nóvember nk. Skýrslueyðublöð vegna
þessara gjalda hafa verið póstlögð. Þar sem ekki er tryggt að
skýrslumar berist gjaldendum fyrir ofangreint tímamark
vegna mikiila anna við póstdreifingu, er vakin athygli á því að
skýrslueyðublöð þessi liggja frammi hjá öllum skattstjórum
og innheimtumönnum ríkissjóðs.
Þeir gjaldendur sem ekki fá póstsend skýrslueyðublöð og hafa
ekki tök á að verða sér úti um þau hjá skattstjóra eða
innheimtumanni fyrir ofangreint tímamark skulu senda
greiðslur án skýrslu til viðkomandi innheimtumanns ásamt
skýringu á því hvað sé verið að greiða. Skýrslur frá þeim sem
senda greiðslu með þessum hætti verða síðan að berast
innheimtumanni fyrir 10. nóvember nk.
Fjármálaráðuneytið, 31. okt. 1984.
Læknisbústaður
í Bolungarvík
TUboð óskast í innanhússfrágang læknisbústaðar í Bolungar-
vik.
Bústaðurinn er nú tilbúinn undir trésmíði. Innifalið í verkinu
er allt sem til þarf að fullgera húsið að innan, þar með talin
tæki og rafmagnsofnar svo og málun utanhúss.
Verkinu sé að fuilu lokið innanhúss 1. apríl 1985 en utanhúss 15.
júní 1985.
Otboðsgögn verða afhent á skrifstofu vorri, Borgartúni 7 í
Reykjavík, og hjá bæjarstjóranum í Bolungarvík gegn 5.000
kr. skilatryggingu.
Tilboð verða opnuð hjá Innkaupastofnun ríkisius þriðjudaginn
20. nóvember 1984 kl. 11.00.
INNKAUPASTOFNUN RÍKISINS
BORGARTÚNI 7 SÍMI 26844 PÓSTHÓLF 1441 TELEX 2006