Dagblaðið Vísir - DV - 02.11.1984, Page 14

Dagblaðið Vísir - DV - 02.11.1984, Page 14
14 DV. FÖSTUDAGUR 2. NOVEMBER1984. Spurningin Átt þú myndbandstæki? Elnar Eiríksson skrifstofumaður: Nei, ég á ekki myndbandstæki enda er ég algerlega á móti slíku. Fer frekar í bíó ef mig langar aö sjá kvikmynd. Kari Söivason, starfsmaöur OLÍS: Eg á aö vísu ekki tæki sjálfur en hef endram og eins tækifæri til að horfa á svoleiðis. Þaö var góð afþreying i verkfallinu. Guðrún Einarsdóttlr, starfsmaður DAS: Nei, myndbandstæki á ég ekkert' en ég horfi stundum á myndbönd engu að síður. Þetta er ágætis afþreying. Kristín Ottesen forstöðumaður: Nei, ég hef ekki nokkum áhuga á sliku og hef reyndar takmarkaðan áhuga á sjónvarpi lika. Eg á góöar bækur sem ég les. Sigurjón Antonsson sjómaður: Tæki á ég ekkert enda hef ég mjög tak- markaða möguleika á aö horfa á slikt. Guðný Guðmundsdóttir húsmóðir: Nei, ég á ekki myndbandstæki sjálf en á kost á aö horfa á slikt. Eg reyni helst að sjá eitthvað í léttum dúr. Lesendur Lesendur Lesendur Lesendur Villuráfandi? „Ráðamenn, snúið frá villu ykkar” Guðjón V. Guðmundsson sjúkraliði skrifar: Þjóðfélagið þolir ekki að fólk fái kjarabætur sem neinu nemi segja ráðamenn. Þúsundir manna eiga áfram að sætta sig við 12—17 þúsund kr. mánaðarlaun og helst þyrfti að lækka þau eins og fjármálaráðherr- ann komst að orði í sjónvarpi eitt sinn. En sá maður hefur gengið lengst í ósvífninni gagnvart launa- fólki og maður er satt að segja alveg agndofa yfir ýmsu er þessi maður lætur frá séra fara bæði í ræðu og riti. Nei, þjóðfélagiö þolir ekki aö almúginn hafi mannsæmandi laun en þjóðfélagið þolir að greiða fjármála- ráöherranum 80—90 þúsund kr. á mánuði og níu félögum hans sömu- leiðis. Þjóðfélagið þolir aö kosta undir þessa herramenn bifreiöar og sérstaka menn til að aka þeim svo og alls konar fríðindi. Þetta er bilun. Þjóðfélag sem ekki getur greitt venjulegu launafólki hærri laun en raun ber vitni er sjúkt og islenskt þjóðfélag er fársjúkt. Bruðlið, óstjómin og ranglætið blasir við, það bókstaflega hrópar til manns úr öllum áttum. Þessu er hægt að breyta og því verður breytt og það starf hefst þegar að loknum næstu alþingiskosningum. Launafólk er varla í vafa lengur hver höfuðóvinur þess er. Nú er kjarabarátta og það er víst meira en nóg fyrir okkur launamenn að einbeita kröftum okkar á þeim vígstöðvum. Viö höfum sett fram mjög hógværar kröfur um kjara- bætur, raunhæfar kjarabætur, en ekki eitthvað sem tekiö verður fljót- lega aftur. Það er nóg komið af slíkum samningum í gegnum tiðina. Ráðamennirnir þrjóskast viö og halda áfram að berja höfðinu við steininn en þeir munu brátt finna að haldi þeir slíku áfram enn um sinn, þá hljóta þeir að meiða sig. Þeir úthúða launafólki á allan hátt, segja að við látum forystumenn okkar spila með okkur og aö viö séum að lama þjóðfélagið af tómum óþverra- skap. Sumir þeirra ganga jafnvel svo langt að kalla okkur kommúnista eða álíka ónöfnum. Þetta mun aðeins þjappa okkur enn betur saman og vita skulu þessir vesælu menn að við stöndum fast að baki forystumanna BSRB. Auðvitað era í okkar hópi einhverjir ofstækis- fullir menn, öfgamenn, er aðhyliast þann hrylling sem kommúnismi heitir. Það er t.d. vægast sagt grát- broslegt aö sjá Jón Múla viö verk- fallsvörslu og jafnhörmulegt aö sjá formann láglaunamannafélags eins og sjúkraliöa standa upp fyrir Þor- steini Pálssyni og klappa honum lof i lófa. Þeim forherta íhaldsmanni sem Reagan og Thatcher standa vart á sporði. Maöur átti að sjálfsögðu ekki von á öðru en ísköldum kveðjum frá íhaldsöflunum og þá á ég auðvitað einnig við litla íhaldið, þ.e.a.s. framsóknarlubbana. En aö fá kveöjur eins og það sem birtist í DV þann 25. okt. sl. eftir Magnús Bjarnfreðsson, sem maður hélt að tilheyrði launafólki, kom al- gerlega úr óvæntri átt. Þessi nefnda grein er alveg forkastanleg og ég vona bara að sem flestir lesi þennan þokkapistil mannsins. Það er eins og þar stendur: „Lengi skal manninn reyna”. Ráöamenn, snúið frá villu ykkar meðan enn er tími til. Góðir tónleikar Leo Smith Stella Aðalsteinsdóttir hringdi: Eg vil mótmæla gagnrýni þeirri um Leo Smith og tónleika hans hér sem Eyjólfur Melsted skrifar í DV þann 24. október sl. Eg fór á tónleikana sem hann hélt með strengjasveitinni í Norræna húsinu og einnig á tónleikana á Borginni. Eg hafði mjög gaman af tónleikunum og fékk ekki betur séð en aðrir áhorfendur skemmtu sér hið besta. Eg sá líka Eyjólf Melsted fara af tónleikunum áður en þeir voru búnir og er því hissa á að lesa „einna já- kvæðasta gagnrýni” hans um þaö sem hann missti af. Einnig er ég hissa á lof- inu sem Stefán Stefánsson fékk þvi mér finnst hann greinilega ekki finna sig i þeirri tónlist sem þarna var leikin. Eg hef ekki hlustaö mikið á svona tón- list en fékk tækifæri til þess þarna í Norræna húsinu. Þetta var framandi tónlist og var mjög gaman að heyra eitthvað nýtt og ferskt. Mér finnst skína í gegn hjá Eyjólfi Melsted óbeit og fyrirlitning á nánast ókunnri tónlist og finnst það litillækka hann mjög og bera vitni um smáborg- aralega fastheldni og kredduskap. Loks vil ég þakka mjög gott fram- tak Grammsins og annarra sem að þessum tónlistaruppákomum stóðu en án þeirra hefði jasslíf hér verið litlaust íár. Umræddur Leo Smith. Strætisvagnar óþarfir Vestri segir strætisvagna óþsrfa i Reykjavik. Sumir vagnanna eru reyndar iíka orOnir vægast sagt þreytulegir. Vestri skrifar: Það hefur verið einkar merkilegt að fylgjast með viðbrögðum fólks og að- stæöum þeim sem skapast höföu i verkfallinu. I heild má segja að slaknað hafi ör- lítiö á þeirri spennu sem einkenndi is- lenskt þjóöfélag (sem sumir eru þó famir að kalla „þjóffélag”) öðrum fremur. Sú spenna sem hér viðgekkst var engu lík og hraði og djöfulæöi hefur sett sipð á umgengnishætti og þjónustu hvers konar. — Þetta allt er nánast óþekkt fyrirbæri í öðrum löndum. Meira að segja í henni Ameríku, en Islendingar sem ekki hafa þangað komið halda aö spenna sé einkenni þjóðlífs þar, er fólk afslappað og viðmót til hvers annars meö allt öðrum og betri hætti en hér á landi. En það er þetta með verkfallið og af- leiðingar þess. Eitt af því sem fólk hér á höfuðborgarsvæðinu varð að venjast er að strætisvagnar voru ekki í um- ferð. En eru viðbrigðin mikil? — nánast hefur ekki verið á það minnst í fréttum að það valdi borgarbúum baga þótt vagnar gangi ekki. Og á fjölfömum götum, svo sem Miklubraut og annars staðar, þar sem ætla mætti að fólk væri að rölta á milli borgarinnar og úthverfanna — sést varla sála, — það eru einfaldlega allir í einkabilum! Og þannig virðist það vera um alla borg. Varla sést maður á ferli á tveimur jafnfljótum, nema í versl- unarhverfum. Þar er allt við það sama, allar verslanir fullar og bif- reiðar bíða eigenda sinna við allar gangstéttir eða uppi á þeim. Og hvað með það? Allir ánægðir að geta loks' fengið að athafna sig, án afskipta hins opinbera, geta lagt bílum sfnum, án þess að vera hundeltir af þjónum hins opinbera, sem auðvitað eru í hálf- gerðri atvinnubótavinnu við að hengja sektarmiða á bifreiðar. Og hvað varðar strætisvagnaferðir, mætti borgin áreiðanlega athuga sinn gang alvarlega eftir þá augljósu staðreynd að borgarbúar eru ekki eins háðir þeim og sumir vilja vera láta. Það mætti t.d. notast við miklum mun minni bifreiðir, t.d. 15—30 manna vagna og þá eingöngu milli afskekkt- ustu hverfa og miðborgar, og þá á morgnana, um miðjan dag og aftur um og eftir lokunartíma verslana á kvöld- in.Þaðmyndinægja. Strætisvagnar í höfuðborginni eru i raun óþarfir. Það sýnir reynslan okkur frá verkfallsdögum 1984. — Og auðvitað er mun fleira í kerfinu sem mætti missa sig.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.