Dagblaðið Vísir - DV - 02.11.1984, Side 25

Dagblaðið Vísir - DV - 02.11.1984, Side 25
DV. FÖSTUDAGUR2. NOVEMBER1984. 29 Smáauglýsingar Menning Menning Menning Heimsins réttist rugl Leiklistarskóli íslands — Nemendaleikhús. Iðnaöarhúsnæði óskast 150—200 ferm, 3—4 metra lofthæð, fyrir vélaviðgeröir. Æskilegur leigu- tími 1—2 ár. Uppl. Ami eða Guð- mundur í símum 10331 og 39002. Spákonur Les íbollaoglófa, alla daga og um helgar. Uppl. í síma 38091. Spákona. Hef góða gáfu og hæfileika. Margra ára reynsla. Spáið í að reyna. Sími 32967.200 kr. Geymið auglýsinguna. Skemmtanir | Þau sjö starfsár sem diskótekið Dollý hefur starfað hefur margt gott drifið á dagana sem hefur styrkt, þroskað og eflt diskótek- ið. Njóttu þess meö okkur. Tónlist fyrir alla. DiskótekiðDollý, sími 46666. Enn eitt haustið býður Diskótekið Dísa hópa og félög velkomin til samstarfs um skipulagn- ingu og framkvæmd haustskemmtun- arinnar. Allar tegundir danstónlistar, samkvæmisleikimir sívinsælu, „ljósa- sjó” þar sem við á. Uppl. um hentug salarkynni o.fl. Okkar reynsla (um 300 dansleikir á sl. ári) stendur ykkur til boða. Dísa, sími 50513, heima. Ýmislegt | Oska eftir skiptum á Austin Allegro.árg. ’78 og sólar- lampa. Uppl. í síma 99-3261. Fjáröflun—félagasamtök. Hef mjög góða fjáröflunarhugmynd fyrir félagasamtök. Hentar vel fyrir hvers konar samtök sem starfa að líknarmálum. Getur gefið allt að 7— 800 þús. í hreinan hagnað. Hafið samband við auglþj. DV í síma 27022. H—509. Glasa- og diskaleigan, Njálsgötu 26. Leigjum út allt til veislu- halda. Opiö mánudaga, þriöjudaga, miðvikudaga og fimmtudaga frá kl. 10—12 og 14—18. Föstudaga frá kl. 14— 19, laugardaga kl. 10—12. Sími 621177. Húsaviðgerðir Húseigendur athugið. Tökum að okkur alhliða viðgerðir á húseignum, svo sem sprunguviðgerðir, múrviðgerðir, uppsetningar á rennum, þak- og veggklæðningu, gler- isetningar, málun og nýsmiðar. Viður- kennd efni, vanir menn. Sími 617275 og 42785. Einkamál Oska að kynnast konu á aldrinum 60—70 ára með vináttu í huga. Þær sem hafa áhuga sendi bréf til DV fyrir 10. nóv. merkt „Kynning ’84”. „Haust -84 30” Hvað varð um þig? Þú mættir gjama senda mér nokkrar línur. Ef þú hefur tapað heimilisfanginu sendu þá til DV merkt „Vetur 84 30”. BE. Hreingerningar Tökum að okkur að hreingera fyrirtæki, stigaganga og íbúðir. Hreinsum teppi. Unnið um nætur ef óskað er. 25 ára starfsreynsla Þorsteinn. Sími 28997 eftir kl. 18. íslenska verkþjónustan sf. auglýsir. Höfum opnað hreingeminga- þjónustu. Gerum hreinar stofnanir, íbúðir, stigaganga, skip og fl. Pantanir í símum 71484 og 10827. Hreingemingar ó íbúðum og stigagöngum. Einnig teppa- og húsgagnahreinsun. Fullkomnar djúp- hreinsivélar með miklum sogkrafti sem skila teppunum nær þurrum. Sér- stakar vélar á ullarteppi og bletti. Ath., er með kreditkortaþjónustu. Sími 74929. Tökum að okkur hreingerningar á íbúðum, stigagöngum og fyrirtækj- um. Vanir menn, vönduð og ódýr vinna. Uppl. í síma 72773. Þvottabjöm. Nýtt. Bjóðum meðal annars þessa þjónustu: hreinsun á bílasætum og teppum. Teppa- og húsgagnahreinsun, glugga- þvott og hreingemingar. Dagleg þrif á heimilum og stofnunum. Sjúgum upp vatn ef flæðir. Sími 40402 eða 54043. Þrif, hreingemingarþjónusta. Hreingemingar og gólfteppahreinsun á íbúðum, stigagöngum og fl., með nýja djúphreinsivél fyrir teppin og þurrhreinsun fyrir ullarteppi ef með þarf. Einnig húsgagnahreinsun. Vanir og vandvirkir menn. Sími 77035. Bjami. Þrif, hreingemingar, teppahreinsun. Tökum að okkur hreingemingar á íbúðum, stigagöngum og stofnunum, einnig teppahreinsun með nýrri djúp- hreinsivél sem hreinsar með góðum árangri. Vanir og vandvirkir menn. Símar 33049 og 667086. Haukur og Guð- mundur Vignir. Gólfteppahreinsun, hreingerningar. Hreinsum teppi og húsgögn með há- þrýstitækjum og sogafli, erum einnig með sérstakar vélar á ullarteppi, gefum 3 kr. afslátt á ferm í tómu húsnæöi. Ema og Þorsteinn, sími 20888. Hreint og klárt, Laugavegi 24. Fataþvottur, þvegið og þurrkað samstundis — sjálfsafgreiðsla og þjónusta. Opið alla daga til kl. 22. Sími 12225. Hreingeraingafélagið Snæf ell, Lindargötu 15. Tökum að okkur hrein- gerningar á íbúðum, stigagöngum og skrifstofuhúsnæöi, einnig teppa- og húsgagnahreinsun. Otleiga á teppa- og húsgagnahreinsivélum, vatnssugur og háþrýstiþvottavélar á iðnaöarhúsnæði. Pantanir og upplýsingar í síma 23540. Ásberg. Tökum að okkur hreingemingar á íbúðum, fyrirtsekjum og stigagöngum, einnig teppahreinsun. Vönduð vinna, gott fólk. Sími 18781 og 17078. Hólmbræður — Hreingemingastööin. Hreingemingar og teppahreinsun á íbúðum, stiga- göngum, skrifstofum o.fl. Sogaö vatn úr teppum sem hafa blotnað. Sími 19017. Garðyrkja Garðeigendur-húsfélög. látið helluleggja eða lagfæra stéttar ykkar fyrir veturinn. Set hitarör (snjóbræðslukerfi) undir stéttar, sé þess óskaö. Hjörtur Hauksson skrúö- garðyrkjumeistari, sími 30348. Túnþökur—Kreditkortaþjónusta. Til sölu úrvals túnþökur úr Rangár- þingi. Aratuga reynsla tryggir gæðin. Fljót og öragg þjónusta. Veitum Euro- card- og Visa-kreditkortaþjónusta. Landvinnslan sf., símar 78155 á daginn og 85868 og 99-5127 á kvöldin. Sveit Ung kona með bam óskar eftir ráöskonustöðu í sveit á Suðurlandi. Er vön sveitalífinu. Uppl. í sima 92-1576. Kennsla Tónskóli Emils. Kennslugreinar: píanó, rafmagnsorgel, harmóníka, gítar og munnhrapa. Allir aldurshópar. Innritun daglega i simum 16239,666909. Tónskóli Emils, Brautarholti 4. Grænfjöðrungur eftir Carlo Gozzi. Leikgerð: Benno Benson. Þýðing: Karl Guömundsson. Loikstjóri: Haukur J. Gunnarsson. Leikmynd: Guðrún Sigríður Haraldsdóttir. Grímur: Dominiquo Poulain. Búningar: Dominique Poulain og Pórunn Sveinsdóttir. Lýsing: David Walters. Tónlist: Lárus Halldór Grlmsson. Frumsýning f Lindarbæ 2. nóvember. Frumsýning í gærkvöldi á fyrsta verkefni Nemendaleikhússins í vetur var ánægjuleg fyrir margar sakir: meistaraleg þýðing Karls Guð- mundssonar ein sér hefði dugaö til að gera kvöldið minnisstætt, leiftrandi fyndni textans og takmarkalaust hugarflug þessa snillings geta hrært dauöan mann til hláturs, máttlaus má sá munnur vera sem ekki getur komið einhverju af því bullandi skopi til skila; krakkamir í fjórða og síð- asta bekk Leiklistarskólans gerðu stórum betur, þau skildu að í munni þeirra var spriklandi skáldskapur, guð gefi fleirum slíkan texta til að kjamsa á, og voru þess fyllilega um- komin að gera úr honum lifandi leik. í upphafi. . . Feneyingurinn sem skrifaði þennan ævintýralega skopleik, Gozzi, var fyrir margar sakir merki- legur frömuður. — og afturhalds- maður í ítölsku leikhúsi átjándu ald- ar. Oþarfi er að rekja feril hans á þessum blööum, en honum auðnaðist aö skila samtima sínum sérstæöum og persónulegum skáldskap og seinni tíma mönnum drjúgu efni til endurvinnslu og umsköpunar, marg- ir páfar og prelátar evrópskrar leik- listar hafa dustað rykið af stykkjum hans og gert úr þeim minnisvarða glæstrar sköpunargleði þar sem fögnuður og lifsandi tróna efstir. Og sannur vitnisburður um þess háttar umsköpun er sýningin í gærkvöldi. ÞaðerBenno Benson, virtur leikhús- maður í Evrópu, sem hefur búið þessa gerð leiksins eftir forskrift Gozzi. Og Haukur J. Gunnarsson stýrir hópnum. Gamall stíll og nýr I sýningunni er sú leið valin að grípa til frjálsrar stílfærslu í leik, það hentar þessum hóp vel og stælir hann, blandan er samsett af melodramatískum tilþrifum úr nitjándu og átjándu aldar stil, ýkjum þöglu myndanna, „lazzi” eða leik- brögðum „commedia dellarte” og persónutúlkun meö raunsæjum svip. Þessi blanda rennur léttilega niður. A köflum gætir endurtekninga í hreyfingum og stundum fórnar leik- stjórinn hreyfingu á kostnaö mynd- rænnar smekkvisi sinnar, en aldrei erþaðtilvansa. Sýningunni er líka búinn einstak- e. lega fagur umbúnaöur af litlum efn- um, leikmynd Guörúnar, grímur og búningar Dominique og Þórunnar, tónlist Lárusar að ógleymdri lýsingu David Walters, allt hjálpaöist að til að gera sýninguna að veislu fyrir augað þó einfaldleikinn væri ævin- lega haföur aö leiðarljósi. Fugl í hendi ... Efni leiksins er við umhugsun of flókið til það megi rek ja í stuttu máli, en hér er allt samið eftir formúlum ævintýranna, Bensson ku hafa bætt og styrkt nokkuð eiginleika per- sónanna og gætir þess einkum framan af. Gozzi var móralisti og leyfði sér að gagnrýna tískuheim- speki síns tíma. Sú gagnrýni hittir Leiklist Páll B. Baldvinsson enn í mark og skemmtu gestir Nemendaleikhússins sér konunglega i gærkvöldi yfir háði hans um sjálfs- elsku og eigingirni, sem upphaflega var beint gegn upplýsingunni og for- kólf um hennar, en í leikgerð Bensons verður þessi sjálfselska forsenda ástar á öðrum og um leið drifkraftur sem fleytir persónunum áfram að settu marki, gerir þær mannlegar og kunnuglegar, og leggur leikendum á herðar þann þunga bagga „að vinna fyrir álitinu — bjakk” eins og segir í leiknum. Heimamenn og gestir Tveir gestir eru i sýningunni komnir úr Þjóðleikhúsinu og Iðnó til aö létta undir nýliðum í stétt sinni — verður að óska forráðamönnum leik- húsanna til hamingju með þetta lán sem ég trúi að verði öllum til góðs þegar fram líða stundir. Það veitir nýliðunum aðhald og styrkir þá í alvarlegum vinnubrögðum, gefur gestunum kost á nýbreytni og rennir stoöum undir innilegra samband milli skólans og leikhúsanna — bara Leikfélag Akureyrar mætti njóta þessa samstarfs líka. Þau Ragnheiður Steindórsdóttir og Jón Hjartarson nutu sín vel í þessum hópi, vitaskuld mátti greina í leik þeirra meiri samfellu, þéttari tök á persónum og fágaöri leik en hjá nemendunum sem enn þurfa aðydda sín stílvopn, rödd og líkama. Báðir gestirnir sýndu á sér hliðar sem undirritaður hefur allavega ekki séö áþeim tilþessa. Hlutverkaskipan innan nemenda- hópsins gerir þeim misjafnt undir höfði, erfitt er að meta breidd Þrastar Gunnarssonar eftir þessa sýningu, en þrennt má nefna sem hann gerði ágæta vel: hann flaug fagurlega af Kynjafjalli, hann hnípti vel í heimsóknum sínum til drottningarinnar kviksettur undir eldhúsvasknum og var dásamlega heiður prins í leikslok. Systkinin, sem eru ung borin út, léku Þór Tulinius og Alda Arnar- dóttir. Þau vom skemmtilega sjálf- birgingsleg i garöi fóstra sins og fóstru, innilega rugluö þegar velgengnin steig þeim til höfuðs og sannfærandi í ást sinni. Sviptingar í lífi systkinanna leggja parinu flókna persónuþróun á herðar og um miðbik leiksins fataðist þeim nokkuö flugið rétt um stund, hjá honum þegar styttansem Renso elskar fær mál og henni þegar er Barbarína fer bróður sínum til hjálpar. Fósturforeldra þeirra, jarðbundið fólk komið af besta aldri, léku Rósa Þórsdóttir og Einar Jón Briem. I þeirra hlut komu groddahlutverkin, stór barmur og breiður rass, ýkjur og offors, og bæði sinntu sínu af smekkvísi og tilþrifum. Kóngafólkið léku þau Barði Guðmundsson og Kolbrún Erla Pétursdóttir og fóru bæði á kostum. Kolbrún er reyndar sá kraftur af þessum hópi sem hélt stöðugt karakternum gegnum alla sýninguna, illskulega norn af gamla skólanum og bjó persónunni svipbrigði sem vom nokkuð fá en samfelld og vel unnin. Þá er ótalinn Jakob Þór Einarsson í tveim rullum, skáldi og mynda- styttu. Hvort tveggja snoturlega unnið. Það sem helst má finna að þessum hópi era laus tök á texta sem á köflum, stöku stað væri nær að segja, hljómar nokkuö lestrarlega, en yfir þá bletti skyggir góður og jafn árangur í smekklegri og skemmti- legri sýningu. Eins og segir í leikn- um: „Hvaðsemergeturgerst”.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.