Dagblaðið Vísir - DV - 02.11.1984, Qupperneq 36
!
FRETTASKOTIÐ
Hafir þú ábendingu
eða vitneskju um
frétt — hringdu þá i
síma 68-78-58. Fyrir
SÍMINN
SEM
ALDREI
SEFUR
Sími ritstjórnar: 68-66-11. Auglýsingar, áskrift og dreifing, sími 27022.
hvert fréttaskot,
sem birtist eða er
notað i DV, greið-
ast 1.000 krónur og
3.000 krónur fyrir
besta fréttaskotið i
hverri viku,
Fullrar nafnleyndar
er gætt. Við tökum
við fréttaskotum
allan sólarhringinn.
Frjálst, ohaö dagblao
FÖSTUDAGUR 2. NÓVEMBER 1984
ISLENSKUR LÆKN-
IR A L0MA UNDA-
SJUKRAHUSINU
þar sem bavíanahjarta var grætt í bam
„Þaö eru ótal fréttamenn hér á
þönum í og umhverfis sjúkrahúsiö
og blaöamannafundir haldnir dag-
lega. Enda um fátt meira rætt í
bandarískum fjölmiðlum þessa
dagana,” sagði Snorri Olafsson
læknir en hann starfar á Loma
Linda-sjúkrahúsinu í Kalifomíu þar
sem læknar græddu nýveriö
bavíanahjarta í ungbarn sem gengur
undir nafninu Baby Fae. Snorri
hefur starfað viö sjúkrahúsiö í 3 ár
og fæst viö lyflækningar. Á hand-
lækningadeild sjúkrahússins vinnur
aftur á móti Doktor Daily sem á
heiðurinn af þessari stórmerku
hjartaígræöslu.
„Daily víkur ekki af deildinni allan
sólarhringinn, hann vill vera til taks
ef eitthvað fer úrskeiöis. Hann hefur
undirbúið þessa aögerð ákaflega vel
og aöeins beðiö eftir rétta tækifærinu
til aö framkvæma hana. Nú hefur
það verið gert og barniö, sem var
aðeins tveggja Vikna er Daily græddi
í þaö hjartað, braggast og er byrjað
aödrekka,” sagðiSnorri.
Doktor Daily ráögerir nú fjórar
Loma Linda-sjúkrahúsið i Kaii-
forniu þar sem bavianahjartað var
grœtt i Baby Fae. Á myndinni sést
aðeins hluti sjúkrahússins.
aðrar sams konar hjartaígræöslur og
dregur það ekki úr áhuga fjölmiðla.
Fréttamenn neyta allra bragöa til að
komast aö baminu, klifra upp um
sjúkrahúsveggina og liggja á glugg-
um en Baby Fae er vel gætt og kemst
enginn inn á deildina án sérstaks
vegabréfs. Að sögn Snorra Olafs-
sonar er hér um stórkostlegt læknis-
afrek aö ræða þar sem erfitt er aö
finna ungbörn sem hægt er aö taka
hjarta úr og græöa í aöra. Vonast
læknar til aö bavíanahjartaö vaxi
með Baby Fae í 8—10 ár en þá verður
aö skipta um á nýjan leik.
„Doktor Daily er talinn einn
færasti barnahjartaskurölæknir í
veröldinni og mótmælaraddir þær er
heyröust í upphafí eru aö mestu
þagnaðar,” sagði Snorri Olafsson aö
lokum.
-EIR.
Snorri Óiafsson á Ólafsfirði fyrir 4 érum þar sem hann var hóraðslæknir.
Seltjarnarnes:
Verkfallenn
Suðurlandsskjálftar:
I gærkvöldi slitnaöi upp úr viö-
ræöum milli bæjarstarfsmanna á
Seltjamarnesi og bæjaryfirvalda
eftir stuttan fund aöila. Bæjar-
starfsmenn gerðu kröfu um að fá
sama samning og geröur hefur ver-
iö viö Starfsmannafélag Reykja-
víkurborgar en því hefur verið
hafnaö. Það sem einkum hefur
staöið í vegi er hækkun um launa-
flokk eftir þriggja ára starfsaldur
sem samið var um hjá Reykja-
víkurorg.
Ekki hefur verið boöaöur annar
'fundur. ÖEF
„Ekki tökáaðspáí
GeirH. Haarde
í norska útvarpinu:
framhaldiö”
— segirRagnar
Stefánsson
Gengið fellt
nú og aftur
eftir áramót
„Svona hrinur hafa gengiö yfir áöur
og viö höfum ekki tök á aö spá í fram-
haldiö,” svaraði Ragnar Stefánsson
jaröskjálftafræöingur, aöspurður um
tvo Suöurlandsskjálfta í fyrrakvöld og
nótt. „Þaö hefur verið meiri hreyfing á
þessu svæði í heild nú en undanfarin
ár.”
Sagöi Ragnar að þaö mætti fara aft-
ur til ársins 1978 til aö finna sambæri-
legar hrinur á þessu svæöi. 1
fyrrakvöld um áttaleytið varö skjálfti
er átti upptök sín á Hengilssvæöinu.
Mældist hann 2,5 stig á Richters-
kvarða, síöari skjálftinn mældist 3 stig
og var hann um eittleytið aðfaranótt
fimmtudags. Sá skjálfti virtist hafa átt
upptök sín suövestur af eyjunni Árnesi
í Þjórsá. Fólk vaknaði upp við skjálft-
ann í nærliggjandi sveitum og bæjum.
Ragnar Stefánsson kvaöst hafa fengið
hringingar frá fólki í Reykjavík sem
fann síðariskjálftann.
-ÞG.
VISA
SENIJA ASÍ 0G VSÍ í DAG?
Um veröld alla.
LOKN
Loksins fengu þeir frítt
í múrínn/
Samninganefndir Alþýðusambands
og Vinnuveitendasambandsins komu
saman til fundar klukkan 10 í morgun.
Búist er viö aö samkomulag geti tekist
milli aðila í dag á svipuðum grundvelli
og um samdist við opinbera starfs-
menn.
Haft var eftir aöstoðarmanni fjár-
málaráöherra í fréttum norska út-
varpsins í fyrradag aö nauösynlegt
yröi aö fella gengi íslensku krón-
unnar strax eftir undirskrift
samninga og aftur eftir áramótin.
Fréttamaöur norska útvarpsins
sem staddur er í Reykjavik sagöi aö
Geir H. Haarde talaöi um 5% gengis-
fellingu nú og 10% eftir áramótin.
Ekki væri þó víst aö gengisfelling
þyrfti aö veröa svo mikil.
Um síðustu helgi var viðtal viö
Geir H. Haarde í norska útvarpinu.
Þar fullyrti hann að búið yröi aö
semja á Islandi eftir tvo daga og var
sannspár. Hann var spurður hvers
vegna hann væri svo viss. „Viö
skulum bara sjá til," svaraði hann.
-JBH/Akureyri.
Stelnn Stelnarr sagði að það að slgra heimlnn væri eins og að splla á spU, með spekingslegum
svip og taka í nefið. En þelr hafa ekkl sigrað heimlnn f þessari samnlngalotu varaformaður og
formaður Verkamannasambandsins, Karl Steinar Guðnason og Guðmundur J. Guðmundsson,
sem þama em að hugsa sitt næsta útspU. En „ ... þótt þú tapir það gerir ekkert ttt / þvf það er
nefnUega vitlaust gefið.” DV-mynd KAE.
Þegar liggur fyrir aö svonefnt tvö-
falt launakerfi verður afnumiö meö
flokkahækkunum og uppbótum í
áföngum á samningstímanum. Innan
ASI hefur verið lögð mikil áhersla á
kaupmáttartryggingu en ekki þykir
líklegt aö hún náist fram. Frekar er
talið aö samiö veröi um uppsagnar-
ákvæöi eöa endurskoöun eins og er í
samningi BSRB. Samninganefndir
ASI og VSI munu lítt hrifnar af aö
þurfa að fara í sama farið og BSRB en
aðrir leikir betri eru ekki taldir vera í
stöðunni. öEF
Byssuþjófar
fundnir
Rannsóknarlögreglan hefur haft
hendur í hári þeirra sem brutust
inn i verslunina Vesturröst og stálu
þaðan 10 byssum á dögunum.
Einn í hópnum er síbrotamaður
sem var sleppt úr fangelsi fyrir
nokkru en fór strax aö stela aftur
eftir að hann slapp út. Hann og fé-
lagar hans viðurkenndu m.a. inn-
brotið í Vesturröst og mörg fleiri.