Dagblaðið Vísir - DV - 14.11.1984, Page 2
2
DV. MIÐVIKUDAGUR14. NOVEMBER1984.
Sjóefnavinnslan:
„Getum ekki leyft okkur þennan
munað þóttgimilegt kunni að vera”
segir Sverrir Hermannsson iðnaðarráðherra
„Mér svelgdist illilega á þegar ég
fékk svörtu skýrsluna 28. ágúst
síðastliðinn,” sagði Sverrir
Hermannsson iðnaðarráðherra í
samtali við DV. Hann var spurður
um skýrslu þá sem Iðntæknistofnun
Islands hefur skilað um Sjóefna-
vinnsluna á Reykjanesi. Ráðherra
hefur skipaö tvo menn í stjórn fyrir-
tækisins og kvaðst hann bíða eftir
niðurstöðum stjórnarinnar um
framtíð Sjóefnavinnslunnar (SEV).
Það undrar marga að erlend lán
skyldu hafa verið tekin til að standa
undir tilraunaverksmiðju þessari á
Reykjanesi en lántökur eru 75%
stofnkostnaðar við 8 þúsund tonna á-
fanga.
Söluverðmæti ársframleiðslu nú
er í kringum 10 milljónir krónur fyrir
um 6—8 þúsund tonn af salti.
Kostnaðurinn við verksmiðjuna er
274 milijónir, þar af er verkfræði- og
hönnunarkostnaður um 55 milljónir
króna.
Afuröir verksmiðjunnar eru
fisksalt og nokkur aukaefni, svo sem
kalsíumklóríð, sem fyrirtækið
hyggst seija Vegagerö ríkisins ef
verð og gæði verða samkeppnisfær.
Áætlað hefur verið að selja Áburðar-
verksmiðju ríkisins kali, eitt auka-
efna sem framleitt er í verk-
smiðjunni. Bæði ríkisfyrirtækin
bjóða út kaup á þessum aukaefnum.
Verð á flestum afurðum SEV hefur
lækkað síðan sjö ára áætlun var
gerð.
Lög um sjóefnavinnslu voru
samþykkt á Alþingi vorið 1981 en þar
var ríkisstjórninni heimilaö að beita
sér fyrir stofnun hlutafélags er reisi
og reki sjóefnavinnslu á Reykjanesi.
Þetta var í ráöherratíö Hjörleifs
Guttormssonar. En forsögu sjóefna-
vinnslunnar má rekja tii fyrstu at-
hugana allar götur til fimmta ára-
tugar þessarar aldar. Undirbúnings-
félag um saltverksmiðju á Reykja-
nesi var stofnaö árið 1977. Því var
farið að reisa og reka tilrauna-
verksmiöju fyrir salt úr jarðsjó og
kanna m.a. markaðsmöguleika
saltsins á fiskverkun.
„Þetta hefur ekki allt verið til
einskis,” sagði Sverrir Hermanns-
son ennfremur um „tilraunastarf-
semina.” ,,Síldarsaltendur í Grinda-
vík og fleiri hafa sagt mér að saltið
sé afbragðsgott tilsöltunarenþaðer
gerlafrítt Við lokum engum dyrum.
Og eitt er mikilvægt líka, þarna
hefur verið borað eftir jarðhita og
risin 0,5 megavatta aflstöð sem ég
hef hvatt til að verði nýtt af Hita-
veitu Suðurnesja. En það kann að
vera aö við getum ekki leyft okkur
þennan munað meö sjóefna-
vinnsluna þótt gimilegt kunni aö
vera,”sagöiráðherrann. -ÞG.
Saltaðí
síðustu
tunnumar
Allri síldarsöitun lauk endan-
lega í gær eftir því sem við kom-
umst næst. I fyrrakvöld var búið að
salta í 237 þúsund tunnur á landinu
og átti þá aðeins eftir að saita í ör-
fáar tunnur til að búið væri að fylla
upp í alla samninga og kvóta. Með-
talin voru sérverkuð flök fyrir Sví-
þjóö og síld sem á að fara á innan-
landsmarkaö hér. Var talið að lokið
yrði við þessar síðustu tunnur í
gær. -klp-
Erlendum
farþegum
fækkaðium
100% i
október
Þótt slökkviliðið í Hafnarfirði sé vei æft er það samt of fáliðað og tækjabúnaður þess mætti vera fullkomnari að margra áliti.
DV-mynd GVA.
Slökkviliðið í Hafnarfirði:
Enginn stigabfll og of fáir á vakt
— segja íbúar og óska eftir úrbótum
Fjölmargir íbúar í Hafnarfirði og
Garðabæ hafa látið í ljós miklar
áhyggjur með útbúnað slökkviliðsins í
Hafnarfirði og mannfæð liðsins þar.
Hefur bæjarstjórnin í Hafnarfirði
þegar fengið að heyra um þetta en ekk-
ert hefur enn verið gert í málinu.
Það sem veldur fólki hvað mestum
áhyggjum er að slökkviliðið í Hafnar-
firöi á ekki einn einasta stigabíl í sín-
um flota en samt em þegar komin
mörg háhýsi í Hafnarfirði og í Garða-
bæ. Er það til dæmis kaupfélagsblokk-
in í Hafnarfirði og stórhýsi í Garðabæ
sem upphaflega átti aö vera 9 hæðir en
mun nú vera komið í 11 hæðir.
Slökkviliðið mun hafa aögang að
stigabíl Rafmagnsveitu Hafnar-
fjarðar, en hann er með körfu sem
menn telja aö muni gera lítið gagn ef
bjarga þyrfti fólki í snarhasti úr háum
húsum.
Þá finnst mörgum vera of fámennt
á vöktum slökkviliðsins ef eitthvað
kæmi fyrir, t.d. að kvöldi eða nóttu.
Þrír menn munu þá vera á vakt í einu í
stöðinni og sinna þeir einnig sjúkra-
flutningum. Ef um flutning er að ræða
fara tveir af þessum mönnum af stöö-
inni og er þá aðeins einn eftir til að
gæta allra starfa þar. Finnst mörgum
það vera mikið óöryggi aö ekki skuli
vera minnst f jórir menn á vakt í einu
þar eins og t.d. í Árbæjarstöö slökkvi-
liðsins í Reykjavík.
Svæðið sem slökkviliöið í Hafnar-
firöi hefur á sinni könnu er Hafnar-
fjöröur, Garðabær og Álftanes. Þarna
búa um 20 þúsund manns.
Samkvæmt skýrslum útlend-
ingaeftirlitsins komu til landsins í
október 7.913 farþegar, þar af 2.128
erlendir. Þetta eru nokkru færri
farþegar en í október í fyrra en þá
voru farþegar alls 9.954, þar af 4200
útlendingar eða tvöfalt fleiri en í
ár.
Frá áramótum hafa komið til
landsins alls 157.119 farþegar og er
það aukning sem nemur rúmlega
13 þúsund farþegum sé boriö sam-
an samatímabilfyrirári. .gy
Bílainnflutn-
inguríár
Alls hafa verið fluttar inn frá
áramótum og til septemberloka
5.632 nýjar fólksbifreiðir skv.
skýrslum Hagstofu Islands. Mest
hefur veriö flutt inn af Fiat Uno,
Subaru og Daihatsu Charade eða
alls um 1100 bifreiðir.
Innfluttir notaðir bílar það sem
aferárinuerualls293talsins. -EH
Mikið atvinnuleysi
herjar á Eyrarbakka
Frá Magnúsi K. Hannessyni,
Eyrarbakka:
Töluvert mikið hefur verið um
atvinnuleysi á Eyrarbakka síðustu
sex vikur. Um síðustu mánaðamót
voru 66 skráðir atvinnulausir og er
það nokkuð hátt hlutfall af vinnandi
mönnum í þorpinu. Þá er rétt aö taka
fram að hér er aöeins um 20 fyrir-
vinnur að ræða eða þá sem afla einir
tekna heimilisins.
I október voru atvinnuleysis-
dagarnir hér 1233 og það er versti
október síðasta áratug. Þetta er þó
örlítið að lagast aftur því fyrir
hálfum mánuði kom hingaö nýr
bátur sem Hraðfrystistööin keypti
norðan úr Eyjafirði. Hefur báturinn
stundað línuveiðar síðan hann kom
hingaö og fiskað alveg þolanlega, 4
tonn í róðri að jafnaði. Verið er aö
kanna möguleika á því að kaupa
fleiri báta því að þetta atvinnuleysi
er fyrst og fremst vegna hráefnis-
leysis hjá Hraðfrystistöðinni.
-EH
Atvhinuástand á Eyrarbakka er bágboriö vegna hráefnisskorts í Hraðfrysti-
stöðinni.