Dagblaðið Vísir - DV - 14.11.1984, Blaðsíða 5

Dagblaðið Vísir - DV - 14.11.1984, Blaðsíða 5
DV. MIÐVKUDAGUR14. NOVEMBER1984. 5 Verðlagsráð ákveður sig ekki: TOMBÓLUVERÐ A SÍLD TIL FRYSTINGAR Mjög mikil óánægja er meöal út- gerðarmanna, sjómanna og ann- arra, sem byggja stœ-an hluta af af- komu sinni á síldveiðum með þá ákvörðun Verðlagsráðs að gefa ekki upp neitt verö á síld til f rystingar. Að sögn útgeröarmanns, sem við töluðum við í gær, er ástandiö út af þessu nú þannig að frystihúsin greiða eins konar tombóluverö fyrir þá síld sem bátamir koma með. Sé eitt verð í þessu frystihúsi og síðan annaö í því næsta, og þó nokkur mun- ur á verði eftir því í hvaða sjávar- plássi sé landað. Eftir því sem við komumst næst í gær mun hæsta verð greitt fyrir sild til frystingar vera það sama og greitt var í fyrra samkvæmt ákvörðun Verölagsráðs þá. Síðan mun verðið fara lækkandi eftir því hvar er landað og hvaða frystihús kaupir. Segja sjómenn og útgerðarmenn, sem við töluðum við, að það sé hreinn skandall hjá Verðlagsráði að neita aö ákveöa lágmarksverð núna. Eru ýmsar ástæður gefnar upp vegna þessa en engin skýring hefur samt enn verið gefin. Talið er að Verðlagsráð hafi klofnað í málinu og geti því ekki komið sér saman um verð. Er fullyrt að fulltrúar kaup- enda í ráöinu séu þar á öndverðum meiði. Einnig er sagt að ástæðan sé sú að ef ráðið gæfi upp þaö verð sem það teldi rétt sigldu aliir bátar í land og sjómenn gengju frá borði. Verðið væri það lágt sem greiða ætti fyrir síld til frystingar. -klp- Davíð Oddsson borgarstjóri klippir á þráð og opnar þar með Gullinbrú sem auðvelda mun íbúum nýja hverfisins í Grafarvogi að komast heim og að heiman. Þá stgttist leiðin upp á sorphauga Regkvíkinga einnig til muna. DV-mgnd GVA Nýirmjöl- tankar Frá Elínu Oddsdóttur, Patreks- firði: Mikil umsvif hafa verið hjá Fiskimjölsverksmiöjunni Sval- barða síðan loðnuvertið byrjaði. Nýlega voru teknir í notkurn mjöl- tankar sem taka 1200 tonn af mjöli. Þeir eru til mikilla bóta fyrir Vest- firöinga, sérstaklega vegna þess að þeir blanda öllu mjöli saman. Utkoman verður þvi jafnara óg betra mjöl. Það er búið að landa tæplega 6000 tonnum af loðnu hér og búið aö skipa út og selja 800 tonn af mjöli og 600 tonn af lýsi tii Fær- eyja og Bretlands. 1 Hraðfrystihúsi Patreksfjarðar gengur aUt af gömlum vana. Togarinn er í slipp og verður þar næsta hálfa mánuð- inn. Bátar hafa aflað vel en kvótinn er að verða búinn. TU gamans má geta þess að aUtaf vantar fólk í pökkun og snyrtingu hjá hraðfrystihúsinu. Birgöasöfnun hefur verið lítil aö sögn forráða- manna frystUiússins. Einnig kom þar fram aö mjög góður afU hefði verið á línu undanfariö. I fiskverkunarstöðinni Odda hefur aUt verið með eðUlegum hætti og nóg af fiski tU saltfiskvinnslu og bátar fiskað vel. Það eina sem er að þar er að kvótinn er að verða bú- inn. -EH ÁrshátíðKASK íSindrabæ Frá Júlíu Imsland, Höfn, Hornafriði: Starfsmannafélag KASK hélt árshátíð sína um síðustu helgi í Sindrabæ. Þarna var sitthvað tU skemmtunar meðan menn gæddu sér á ljúffengum mat sem Þórir Matthíasson matreiöslumaður sá um. Kaupfélagið veitti tveim mönnum, sem unnið hafa hjá félag- inu í 40 ár, og 11 sem verið hafa í 25 ár, verðlaun fyrir langa og dygga þjónustu. Verðlaunin voru ein mánaðarlaun og merki KASK sér- staklega hannað og gert af þessu tUefni. Einnig var Asgrími HaU- dórssyni, fyrrverandi kaupfélags- stjóra, veitt sérstök viðurkenning fyrir mikU og vel unnin störf og að öUu þessu loknu var dansað fram eftir nóttu. Haft var á orði að aldrei heföi verið svo fjölmennt boröhald í Sindrabæ og sýnir það að gamla góða máltækið þröngt mega sáttir sitja sannaðist þama vel hjá Fram- sókn. -EH Kennarar vilja 40% hækkun til viðbótar — samkvæmt kröfugerð um sérkjarasamninga sem nú liggur fyrir Kröfugerðin sem fulltrúaráð Kenn- arasambandsins samþykkti um helg- ina um sérkjarasamninga fyrir grunn- skólakennara felur í sér um 40% kaup- hækkun. I kröfugerðinni er farið fram á að byrjunarlaun grunnskólakennara með kennsluréttindi hækki úr 18.700 krónum á mánuði í 26.400 krónur og byrjunarlaun kennara sem hafa 150 stig í menntun verði 25.500 krónur í stað 18.000 króna eins og nú er. Þá er gerð krafa um að skólastjórar taki laun eftir 32. til 35. launaflokki eða hafi sem svarar 33.500 til 37.200 krónur á mánuði. Skólastjórar taka nú laun eftir sjö launaflokkum og eru byrjunarlaun samkvæmt 19. launaflokki eða 21.500 krónur. I kröfugerðinni er einnig farið fram á aö fleiri kennurum verði gefinn kostur á orlofi en nú er og jafnframt verði starfandi kennurum gert kleift að sækja framhaldsnám á starfstíma skólanna. Lögð er áhersla á að löggjöf um lögvemdun starfsheitisins kennari verði samþykkt á yfirstandandi þingi. Þá fer Kennarasambar.dið fram á að fá fullan samnings- og verkfallsrétt sem gildi um öll atriöi kjarasamninga. Sérkjarasamningum verður sam- kvæmt lögum að vera lokið innan sex vikna frá því að aðalkjarasamningur er samþykktur ella er þeim vísað til úrskurðar kjaranefndar sem einnig hefur sex vikur til að kveöa upp úr- skurð. Kennarasambandið hefur hótað að beita hópuppsögnum til stuðnings kröfum sínum. Þegar er hafin söfnun uppsagna i grunnskólum og eiga þær að liggja fyrir eigi síðar en 24. þessa mánaðar. I september síðastliönum gáfu margir kennarar skuldbindandi yfirlýsingar um uppsagnir í þessu skyni. Valgeir Gestsson, formaður Kennarasambandsins, vildi ekki gefa upp um hve mikinn fjölda væri að ræða. En hann sagði að ef þessar yfirlýsingar grunnskólakennaranna stæðust þá gæti þetta orðið raunhæf aðgerð. ÖEF Elliheimilið á Hðfn 10 ára Frá Júlíu Imsland, Höfn, Hornafirði: Nýlega hélt elli- og hjúkrunarheimil- iö á Höfn upp á tíu ára afmæli sitt. Af því tilefni var þar opið hús og öllum sem komu boðið upp á kaffi og kökur og að skoöa húsakynni. Oskað var eftir tillögum um nafn á heimilið og bárust allmargar. Á elliheimilinu eru nú 42 vistmenn, þar af tveir sem verið hafa frá byrjun. Þama er einnig til húsa fæðingarheimili staðarins og hefur fæðst 21 barn á’árinu. Forstöðukona er Amalía Þorgrímsdóttir. -EH

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.