Dagblaðið Vísir - DV - 14.11.1984, Blaðsíða 12

Dagblaðið Vísir - DV - 14.11.1984, Blaðsíða 12
12 DV. MIÐVKUDAGUR14. NOVEMBER1984. Útgáfufélag: FRJÁLS FJÖLMIDLUN HF. Stjórnarformaaurogútgáfustjóri: SVEINN R. EYJÓLFSSON. Framkvæmdastjóri og útgáfustjóri: HÖRÐUR EINARSSON. Ritstjórar: JÓNAS KRISTJÁNSSON og ELLERT B. SCHRAM. Aðstoöarritstjórar: HAUKUR HELGASON og ELÍAS SNÆLAND JÓNSSON. Fréttastjórar: JÓNAS HARALDSSON og ÓSKAR MAGNÚSSON. Auglýsingastjórar: PÁLL STEFÁNSSON og INGÓLFUR P. STEINSSON. Ritstjórn: SÍÐUMÚLA 12—14. SÍMI 686611. Auglýsingar: SÍOUMÚLA 33. SÍMI 27022. Afgreiðsla, áskriftir, smáauglýsingar, skrifstofa: ÞVERHOLTI11. SÍMI 27022. Sími ritstjórnar: 686611. Setning, umbrot, mynda-og plötugerð: HILMIR HF., SÍDUMÚLA 12. Prentun: Árvakur hf., Skeifunni 19. Áskriftarverð á mánuði 275 kr. Verð í lausasölu 25 kr. Helaarblað 28 kr., 7 NT reynirkönnun NT birti í fyrradag niöurstöður skoöanakönnunar, sem þaö blað hefur gert. NT segist nota þar hinar löngu viöur- kenndu aðferðir skoðanakannana DV. Urtakið hafi verið 600 manns eins og í DV-könnunum og hafi verið jöfn skipting milli kynja og jöfn skipting milli höfuðborgar- svæðis og landsbyggðar. Skoðanakannanir DV njóta mikils trausts almennings, enda hafa þær gefizt bezt þeirra skoðanakannana, sem hér hafa verið gerðar. Það segir enn nokkuð um þetta traust, að keppinauturinn NT skuli leggja allt kapp á að menn trúi, að hann noti að- ferðir DV. Sá er ljóður á ráði NT, að blaðið er í augum al- mennings flokksmálgagn Framsóknarflokksins. NT- menn hafa lítillega reynt aö hafa sérstööu. Þeir hafa skammað Sjálfstæðisflokkinn, að því er virðist í óþökk forystu Framsóknar. En NT undirstrikar alltaf, að það blað sé skrifað fyrir hönd framsóknarmanna, enda megininntakið í gagnrýni blaðsins, að forysta Fram- sóknar eigi að herða sig og gera meiri kröfur til sam- starfsflokksins eða fara úr ríkisstjórn. NT verður ekki talið annað en blað Framsóknar. Flokksmálgögn geta ekki gert skoðanakannanir á sama veg og óháðir fjöl- miðlar. Þegar fólk er spurt um skoðanir á vegum flokks- málgagns, skila stuðningsmenn þess flokks sér betur og einhverjir, sem eru í vafa, hneigjast til að mæla eins og þeir telja, að viðmælandinn vilji. Þetta er auðvitað geysilegur skekkjuvaldur í skoðanakönnun. Með þessu er að sjálfsögðu ekki verið að segja, að flokksmálgagn geti ekki staðið heiðarlega að skoðanakönnun. Því fylgir bara þessi ákveðna skekkja. Enda fór svo, að NT fékk út mikla fylgisaukningu Framsóknarflokksins, ef litið er á niðurstöður síðustu DV-kannana um miöjan október og í september. NT fær meira að segja þá niðurstöðu, að Framsóknarflokkurinn hafi unnið mikið fylgi síðan í kosningunum í fyrra, þvert á niðurstöður allra annarra kannana á kjörtímabilinu, bæði DV- og Hagvangskannana. Þetta er ekki einleikið og skýrist af eðli spyrjandans, flokksmálsgagnsins NT. Ekkert gefur til kynna, að Framsóknarflokkurinn hafi unnið mikið fylgi síðustu vikur. Ríkisstjórnin hefur ekki lagt fram neitt nýtt í efna- hagsmálum. Kannanir höfðu áður sýnt mikið tap Fram- sóknar, og er líklegast, að flokkurinn hafi engan veginn komizt úr þeim öldudal. Annað einkenni á skoðanakönnun NT er, hversu miklu minna fylgi Alþýðubandalagið fær en í síðustu tveimur DV-könnunum. Skoðanakannanir DV höfðu sýnt, að Alþýðubanda- lagið hafði bætt við sig fylgi á óróatímum undanfarnar vikur. Fylgi þess var meira en í síðustu kosningum. Auðvitað kann eitthvað að hafa dregið úr fylgi Al- þýðubandalags, þar sem öldur hefur nokkuð lægt eftir kjarasamningana. En líklegast er, að það sé skekkja í könnun NT, þegar útkoman er, að Alþýðubandalagið hafi tapað þriðjungi fylgis á einum mánuði. Kannski má hafa eitthvert gagn af skoöanakönnunum NT, en það yrði þá fyrst og fremst með því að bera niður- stöður næstu könnunar NT saman við þessar niðurstöður. Þá mætti ætla, að skekkjuþátturinn væri svipaður, svo að ráða mætti í hreyfingar á fylgi flokka. En það þjónar litlum tilgangi að draga ályktanir af samanburði könnunar NT og síðustu kannana DV. Haukur Helgason. „Það var banabrti þessarar ríkisstjómar, að hún þorði akki að laggja til atiögu við fjérhagsiaga endur- skipulagningu sjávarútvagsins, sem engin leið er að skjóta á frest lengur." Hvers vegna eru launin svona lág? Hvers vegna eru lifskjör á Islandi orðin hin þriðju lægstu í Evrópu? Hvers vegna geta íslenzkir atvinnu- vegir ekki greitt laun, sem ncgja til framfærslu meðal f jölskyldu? Of lítil framleiðni, segja atvinnu-. rekendur; þeir hinir sömu og bera ábyrgð á offjárfestingu fyrirtækja sinna. Þjóðin eyðir um efni fram, segja stjórnmálamenn kerfisflokk- anna, sem hafa sólundaö takmörk- uöu fjárfestingarfé og dýrkeyptum erlendum lánum í tóma vitleysu. Hver ber ábyrgðina? Enginn. En hvererskýringin? Launin eru svona lág, m.a. vegna þess Að ofstórumhlutaþjóðarteknahef- ur of lengi verið variö í fjárfest- ingu. Að of stór hluti teknanna fer í að standa undir afborgunum og vöxtum af skuldum. Að eigendur fyrirtækja keppast við aö fjárfesta til þess að geta dregiö vexti af skuldum frá sköttum og tryggt peningana í eignum, sem hækka í verði. Að stjórnmálamenn kerfisflokk- anna hafa gerzt skömmtun- arstjórar fjármagnsins til þess að kaupa sér vinsældir og áhrif í kjördæmum sínum — en án allrar ábyrgðar. Að innflutningsverð til Islands er allt að fjórðungi hærra en annars staðar á Norðurlönd- um. Að orkuverðið er, vegna offjár- festingar og lélegrar nýting- ar, orðið hið hæsta á Norður- löndum. Að nýting á h'úsnæði, vélum og tækjum er allt of lítil. Að offramleiðsla landbúnaðar- afurða kostar skattgreiðend- ur stórfé á ári hverju. Að fjárfesting í nýjum skipum er dýrari en svo, að hún geti skilað sér, jafnvel við met- afla. Að frystiiönaðurinn er í kreppu vegna vaxandi eftirspumar á ferskum fiski á beztu mörkuðum. Að innflutningsverð á olíu er ca. 30—40% dýrara en í sam- keppnislöndum. Aö vaxtapólitík núv. ríkisstjórn- JÓN BALDVIN HANNIBALSSON, ÞINGMADUR FYRIR ALÞÝDUFLOKKINN ar —10—17% raunvextir um- fram verðbólgu — hækkar fjármagnskostnað fyrirtækj- anna, sem velt er út í verð- lagið, án þess að efla spari- fjármyndun. Að sölumennska og markaðs- öflun útflutningsatvinnuveg- anna erímolum. Aö hin erlenda skuldabyröi neyðir stjórnvöld til að binda gengið fast, sem verkar sem skattlagning á sjávaraútveg- inn og veldur viðskiptahalla, vegna ódýrs innflutnings. Þegar spurt er: Hvers vegna geta framleiðslu- og útflutningsatvinnu- vegimir ekki greitt mannsæmandi laun? svara málsvarar ríkisstjórn- arinnar: Viö höfum orðið fyrir áföll- um sem við ráðum ekki við: Minnk- andi afli, óhagstæðari aflasamsetn- ing, sölu- og greiðsluerfiðleikar á er- lendum mörkuðum. En þá er spurt á móti: Hvers vegna var ástandið litlu skárra 1982, þegar afli var í hámarki og sterkur dollar skilaði miklum g jalaeyristekj- um? Svarið er, að vandamál sjávar- útvegsins stafa ekki aðeins af óhag- stæðum ytri skilyrðum. Hluti sjávar- útvegsins hefur þegar sligast undan drápsklyfjum erlendra skulda. Lán- in voru notuð til off járfestingar, sem skilar engum arði og fyrirtækin fá dcki undir risið. Það var banabiti þessarar ríkisstjórnar, að hún þorði ekJd að leggja til atlögu við fjárhags- lega endurskipuiagningu sjávarút- vegslns, sem engin leið er að skjóta á frestlengur. Það var rétt ráðstöfun að afnema með lögum sjálfvirkt víxigengi verð- lags og launa, sem fólst í gamla vísi- tölukerfinu. Alþýðuflokkurinn studdi þá aðgerð. En hann lagði á þaö ríka áherzlu, að rætur verðbólgunnar iægju viðar: í pólitisku skömmtunarkerfi á lánamarkaði, i hripleku skattakerfi, i hinum dýru fjárfestingarmistökum, óhag- kvæmni innflutningsverzlunar og dýrum aðföngum framleiðsluat- vinnuveganna, misráðinni óbyggða- stefnuo.s.frv. Reynsla nágrannaþjóðanna kennir okkur, að mannsæmandi laun ein sér þurfa ekki aö vera verðbólguvaldur. Yfirborganir á frjálsum markaði, raunveruleg markaðslaun, sanna það enn frekar. Það er of dýr fjár- festing, léleg nýting fjármagns og fastafjármuna, bágborin stjórnun og úrelt stjórnkerfi á lánsfjármarkaði, sem stendur nýjum vaxtargreinum fyrir þrifum, þrýstir lífskjörunum niður, setur stööuga pressu á gengi krónunnar og veldur þar með lát- lausum verðbólguþrýstingi. Af þessu þurfum við að læra. Jón Baidvin Hannibaisson. QP „Reynsla nágrannaþjóðanna kennir okk- ur, að mannsæmandi laun ein sér þurfa ekki að vera verðbólguvaldur. Yfirborganir á frjálsum markaði, raunveruleg markaðslaun, sanna það enn frekar.”

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.