Dagblaðið Vísir - DV - 14.11.1984, Blaðsíða 13

Dagblaðið Vísir - DV - 14.11.1984, Blaðsíða 13
DV. MIÐVIKUDAGUR14. NOVEMBER1984. 13 ---- t^.tSiKn>r Þegar litli maðurinn varð stór STRAUMHVÖRFIN Loksins! Loksins var spyrnt við fæti og það svo um munaði. Nú er ljóst að launafólk getur staöið saman og sigrað ef félögin láta reyna á það. Nú hafa margir launamenn endur- heimt sjálfsvirðinguna. Bókagerðarmenn riðu á vaðið Forysta bókagerðarmanna lét ekki halda sér uppi á kjaftasnakki um ekki neitt eins og kollegar þeirra í ASI-félögunum. Bókagerðarmenn kröfðust launahækkana sem nægðu til að ná aftur kaupmættinum sem samið var um fyrir 2 árum en rænt síðan með ólögum. VSI-herrunum þótti þetta fádæma frekja og vísuðu kröfunum á bug. Bókagerðarmenn svöruðu með verkfalli strax. Þeir neituöu aö selja vinnuaf 1 sitt áfram á útsölu. Þeir höguöu sér eins og frjáls- um mönnum sæmir. Verkfallið varð langt og strangt. Hluti félagsmanna (of litill hluti) lagði hart að sér við framkvæmd verkfallsins en meirihlutinn var heima eða í annarri vinnu. Það var veiki hlekkurinn. Það vantaði t.d. krafta til aö kynna málstaðinn betur með dreifibréfum, fundum o.þ.h. En samstaðan var góð þegar á reyndi. Tillaga um að gefast upp í miöju kafi var kolfelld. Bókagerðarmenn náðu ekki tak- w „Bókagerðarmenn náðu ekki takmarkinu nema að hálfu leyti, en þeim tókst að sprengja kaupránsáætlanir ríkisstjórnarinnar í tætlur, skattalækkunarsjónhverfingin þar meðtalin.” Þorvaldur örn Árnason LlFFRÆDINGUR, STARFAR HJÁ MENNTAMÁLARÁÐUNEYTINU. markinu nema að hálfu leyti, en þeim tókst að sprengja kaupráns- áætlun ríkisstjómarinnar i tætlur, skattalækkunarsjónhverfingin þar meðtalin. Það var mikilvægur sigur fyrir þá og allt launaf ólk. Svo vöknuðu opinberir starfsmenn Þeir vöknuðu við vondan draum. Eiginlega martröð. Kaupiö dugði ekki Iengur fyrir nauðþurftum. Störf þeirra voru vanvirt, bæði með orðum en þó ekki síst með hálftómum launa- umslögum. Sjálfsvirðingu margra var misboðið. Hjá sumum var heils- an að bresta undan vinnuálagi og áhyggjum. Enginn möguleiki á að betla yfirborganir. Ekki einu sinni hægt að svik ja undan skatti þó menn vildu! Framundan blasti við enn meiri eymd. Forstöðumenn ríkisstofnana voru einnig í miklum vandræðum. Þeir fengu ekki hæft fólk til starfa fyrir þau laun sem í boði voru og misstu unnvörpum reynda starfsmenn yfir til einkarekstursins. Skólastjórar úti á landi stóðu á kaupfélagströppunum og reyndu að plata einhver ung- menni til að gerast kennarar hjá sér. Það þurfti augljóslega að gera eitthvað. Settar fram kröfur BSRB kraföist aldrei aukins kaup- máttar, heldur aöeins sama kaup- máttar og samiö var um fyrir 2 árum, en var síðan rænt með bráöa- birgðalögum þessarar ríkisstjórnar og þeirrar næstu á undan. Þetta þýddi reyndar 30% kauphækkun og segir það sína sögu um hve kaup- ránið var orðið mikið. Sú kauphækkun kostaði rikissjóð milljarð, minna en lögboðnar skatta- lækkanir sem atvinnurekendur hafa þegar fengið og miklu minna en það sem svikið er undan skatti. Með þessari hækkun hefðu t.d. kennarar og fóstrur jafnvel náð þriðjungi af því sem ráðherrar og forstjórar hafa ítekjurnú! „Þvílík heimtufrekja,” sögðu hinir digru viðsemjendur. „Réttast væri að lækka við ykkur launin, þið gerið hvort eð er ekki neitt. Fáið ykkur bara aöra vinnu ef ykkur lika ekki launin. Við ætlum hvort eð er að leggja ríkisbáknið niður. Við viljum einkaskóla og einkasjúkrahús þar sem hver greiðir fyrir sig. Skítt með það þótt einhverjir fátæklingar deyi á sjúkrahúströppunum. Það þykir jú alveg sjálfsagt fyrir westan.” Sumt af þessu sögðu þeir bara hver við annan og gættu þess að litlu mennimir hey rðu það ekki. Sáttasemjarinn fer á kreik Hinn hlutlausi sáttasemjari ríkis- valdsins kom nú á vettvang og hugðist skakka leikinn. Hann lagði fram hlutlausa sáttatillögu sem var 4% hærra en tilboð hinna digru ríkis- burgeisa en 25% lægri en kröfur litlu mannanna í BSRB. Sem sagt mjög hlutlaus sáttatillaga. Báðir deiluaðiiar felldu þessa sáttatillögu. Þeim digru fannst allt of rausnar- lega boðið. Litlu mennimir sáu að þrátt fyrir þennan rausnarskap myndi martröð þeirra halda áfram. Nú stefndi allt í voðalega verk- fallsorrastu. Þannig orrustu háir enginn að gamni sínu, allra síst litlu mennirnir í BSRB. I næsta þætti segir frá sjálfri viðureigninni. Þorvaldur Öm Árnason. PÓUTÍSKUR SKOLLALEIKUR Sama gamlan tuggan Nú þegar opinberir starfsmenn hafa samiö og hinu langa prentara- verkfalli er lokið og fjölmiðlarnir komnir í gang, þá geysast þeir fram á völlinn, peninga-pabbar landsins og veifa framan í fólkið verðbólgu- druslunni, sem er reyndar löngu sprungin blaðra. Við sem heima sitjum, grípum um höfuðið — ætla þeir virkilega að byrja á þessum skollaleik einu sinni enn? Jú, svo sannarlega — og þeir hafa f engu gleymt. Verðbólgu- samnmgar — atvinnuleysi — stopp. Og við sem vorum svo bláeyg að imynda okkur að mennirnir myndu þroskast — f jarri fer því. Skollaleikur I flestum fjölmiðlum var fjallað um samningana. Fréttamenn fóru á stúfana og auðvitað var spurt: eru þetta verðbólgusamningar? Verður þessu velt út í verðlagið? Og forkólf- ar auðvaldsins settu upp föðurlegan svip og svöruöu á innsoginu: Já, þetta era verðbólgusamningar og bættu viö, það er engin spuming um það, hvort þessu verði velt út í verð- lagið, heldur: hvort þetta velti ekki út í verðlagið? Og þá er öllum að sjálfsögðu ljóst, að þama er á ferð- inni eitthvað, sem enginn ræður við. Verðbólgudraugurinn er mættur, hann er eins og vindurinn — enginn veit hvaðan hann kemur, eða hvert hann fer — enginn ræður við hann. Hver stjómar þessu landi? Stjómar verðbólgan ríkisstjórninni, eða ríkis- stjómin verðbólgunni? IMógir seðlar Viö sem heima sitjum, förum að velta því fyrir okkur, hvort það geti virkilega verið, að við séum búin að skapa okkur þannig þjóðfélag, að við ráðum ekki ferðinni lengur — heldur einhver utanaðkomandi öfl. Hvort það kerfi, sem við búum við, sé til fyrir okkur, eða hvort við séum til fyrirkerfið? Flestum er þó ljóst að peningar eru til í landinu og einhvers staðar koma þeir frá. Það er líka ljóst, að feikilegt f jármagn er í Reykjavík — það leynir sér ekki. Við horfum á hallirnar rísa: banka, verslanir, skrifstofuhallir; og ekkert er skorið við nögl í þeim framkvæmdum. Hvaðan kemur allt þetta fé, í allan þennan hégóma — sem við höfum fyrir augunum daglega? Kjallarinn ekki hægt að borga mannsæmandi laun í landinu, vegna þess að pening- ar eru ekki til, segja ráðamenn þjóðarinnar — en það er lygi. Það eru til nógir seðlar; það er hins veg- ar pólitísk ákvörðun, hvemig þjóðar- tekjunum er skipt. Það er pólitísk á- undirstöðuatvinnuvegunum; sjávar- útvegi og landbúnaði, sem aftur leiðir til þess, að heimilin í landinu líða skort. Yfirbygginguna verður að minnka og óþarfa milliliði verður að uppræta, svo hægt verði að borga fólkinu mannsæmandi Iaun. Þetta er A „Verðbólgudraugurinn er enginn yfirskil- W vitlegur veruleiki, sem enginn ræður við og allri skuld er hægt að skella á — hann er hægt að kveða niður.” JÓNAS FRIÐGEIR ELÍASSON VERKAMAÐUR Siðlaus pólitík Sjávarútvegurinn er á hausnum, landbúnaöurinn er á hnjánum og heimilin í landinu á vonarvöl. Þaö er kvörðun að borga ekki mannsæm- andi laun í landinu. Það er pólitisk á- kvörðun, að beina fjármagni í rang- ar og óarðbærar fjárfestingar. Það er siðlaust að leggja peninga í hé- gómlegar hallir á meðan fólkið í landinu hefur ekki fyrir nauðþurftum. Röng skipting Flestum hlýtur að vera ljóst, að yfirbygging kerfisins er orðin alltof mikil — það er alltof mikið tekið frá hægt. Verðbólgudraugurinn er enginn yfirskilvitlegur veruleiki, sem enginn ræður við og allri skuld er hægt að skella á — hann er hægt aðkveða niður. Ef ekki verður ráðist í að uppræta þessa röngu skiptingu þjóðar- teknanna og kerfið lagað að okkur, í staöinn fyrir að laga okkur að kerf- inu — þá endar það með því að kerfið étur okkur, eins og ormurinn í ævin- týrinu forðum. Jónas Friðgeir Eliasson.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.