Dagblaðið Vísir - DV - 14.11.1984, Qupperneq 9
DV. MIÐVIKUDAGUR14. NOVEMBER1984.
9
Útlönd
Útlönd
Utlönd
Utlönd
■, -»«JÍ
Fjöldamorðin í flóttamannabúðum Palestínuaraba í Vestur-Beirút 1982 eru ekki liðin mönnum úr minni og
málaferli eru i New York út af blaðaskrifum vegna rannsóknar á morðunum.
Sharon i meið-
yrðamálaferium
Þaö er búist viö Ariel Sharon, fyrr-
um varnarmálaráöherra ísraels, í
vitnastúkuna í dag í meiðyrðamáli
sem hann rekur í New York. Hann vill
reka af sér allan áburö um aö hafa bor-
iö ábyrgö á fjöldamorðunum 1982 í
flóttamannabúðum Palestínuaraba í
Vestur-Beirút.
Krefst hann 50 milljón dollara
miskabóta af tímaritinu „Time”, en í
skrifum sínum um máliö haföi tímarit-
iö getiö leynifundar þar sem Sharon
átti aö hafa rætt „þörfina á hefnd fyrir
fjölskyldu hins myrta forseta, Bashir
Gemayel”.
Yfir 500 flóttamenn í Sabra- og
Shatila-búöunum í V -Beirút voru my rt-
ir af sveitum kristinna Líbana, tveim
dögum eftir morðiö á Gemayel.
Tímaritið fullyrti að fyrir luktum
dyrum hinnar opinberu rannsóknar
Israelsmanna á málinu og ábyrgö ísra-
elskra valdamanna og herforingja
heföi þessi leynifundur Sharons veriö
tekinn fyrir og oröaskipti rakin.
Yfirvöld í ísrael hafa ekki viljaö
opinbera þennan þátt rannsóknarinnar
en Sharon, sem nú er iönaöarráöherra,
mun ætla að leiða fram vitni, sem lesiö
hafa skýrsluna, og bera að skrif
„Time” séu tilhæfulaus.
Lögmaöur Sharons sagði réttinum í
gær aö „Time” heföi í reynd boriö
skjólstæðingi hans á brýn aö hafa lagt
á ráðin um f jöldamorðin.
Israelska rannsóknarnefndin, sem
f jallaöi um f jöldamoröin á sínum tima,
komst aö þeirri niöurstööu aö óbeint
bæri Sharon ábyrgö á þeim meö því aö
láta sér sjást yfir þessa hættu þegar
líbönsku sveitunum var hleypt inn í
flóttamannabúöirnar.
Sharon hefur lagt íbúöarhús sitt og
aörar eignir allar aö veöi fyrir kostn-
aði af málarekstrinum.
Ariel Sharon var varnarmála-
ráðherra ísraels örlagaárið 1982
og varð að víkja úr embætti,
dreginn tíl „óbeinnar óbyrgðar"
en höfðar meiðyrðamól gegn
„Time".
Um 20 þúsund störf-
uðu við marijúanað
— Stærsta fíkniefnamál sem sögurfara af
Lögregla og herþyrlur leituðu um
alla eyðimörkina í Chihuahua í norður-
hluta Mexíkó aö fleiri fíkniefnaverk-
smiðjum en hald hefur verið lagt á átta
þúsund smálestir af marí júana.
Leysti lögreglan úr þrælahaldi um
fimm þúsund kotunga sem tældir höföu
verið til starfa á þrem afskekktum bú-
görðum við þurrkun og pökkun í
marijúanaframleiðslunni og síðan
haldiö að verkinu undir byssuk jöftum.
Þessar átta þúsund smálestir heföu
skilað af sér f jögurra milljaröa dollara
verömæti ef þær heföu komist á fíkni-
efnamarkaöinn í Bandaríkjunum.
Lögreglan hefur fundiö víöáttumikl-
ar ræktunarekrur, þurrkunar- og
pökkunarverksmiðjur og þrjátíu vöru-
bíla miðstöð. Tíu menn hafa verið
handteknir (þar af sjö menn úr
öryggislögreglunni) en lögreglan kom
aö hinu ánauðuga starfsliöi yfirgefnu.
Sagöi þaö að verkstjórar þeirra heföu
forðaö sér í sömu mund sem lögreglan
var komin á slóðina.
Svo mikiö haföi veriö útplantað af
maríjúana á ökrum að næg atvinna
var fyrir 20 þúsund kotbændur.
Hin ánauöuga starfslið haföi búiö við
illan kost og þröngan og reyndist við
aðkomu lögreglunnar vera vannært.
Fjórír blaða-
menn fórust
Fjórir virtir blaðamenn á Irlandi
fórust meö lítilli flugvél sem hrapaöi í
úrhellisrigningu í skógi einum á Suður-
Englandi í gærkvöldi. Flugmaðurinn
og allir átta farþegar vélarinnar fórust
þegar hún rakst á f jall hjá Eastbourne
sem er miöja vegu milli Frakklands og
Irlands.
Njáll Hanley, ritstjóri útbreiddasta
síðdegisblaös Irlands, The Evening
Herald, var meðal f jórmenninganna.
Ferðalag þeirra stóö í sambandi viö
árlega hefö sem er aö fara til Frakk-
lands og ná fyrstu vínunum úr Beaujo-
lais-uppskeru hvers árs og flytja meö
sértil Dublinar.
Meö vélinni var einnig eigandi flug-
félagsins, sem leigöi vélina til ferðar-
innar.
FIB-maður njósnaði
fyrir Rússana og stal
Fyrrum erindreki alríkislögreglunn-
ar, FBI, sem ákærður var á dögunum
fyrir njósnir í þágu Sovétmanna, hefur
nú ennf remur veriö ákæröur fyrir f jár-
drátt og fyrir aö selja upplýsingar úr
skýrslusafni FBI.
Richard Miller var staöinn aö því aö
selja sovéskumhjónum, semtalineru
erindreka KGB-leyniþjónustunnar
sovésku, leyndarmál. Þau hafa veriö
öll þrjú í varðhaldi síöan 2. október.
Sovéska frúin haföi dregið Miller,
sem er átta bama faðir, á tálar en síö-
an komið honum í samband viö eigin-
manninn, sem bauð honum háar
greiöslur fyrir leyndarmál FBI, en
Miller haföi veitt fjölskyldu sinni
meira en hann haföi efni á og var í fjár-
kröggum.
HJÓNABAND ÖNNU
OG MARKS BLAÐA-
MÁLBRETA
Anna Bretaprinsessa var á 11.
brúðkaupsafmæli sínu víös fjarri
eiginmanninum og er það þriöja áriö
í röö sem þau eru aðskilin þann dag.
Anna var á Englandi að góðgerðar-
störfum fyrir fatlaða veöreiðaknapa
en Mark Philips höfuösmaöur var 13
þúsund mílur í burtu á Nýja-Sjálandi
við opnun þjálfunarbúöa fyrir
hindrunarstökk. — Hin tvö árin hefur
Anna verið í Ástralíu á brúðkaupsaf-
mæli sínu.
Ensku blöðin velta þessum hlutum
mikiö fyrir sér og geröu mikiö veður
úr þegar hjónin bjuggu á ólympiu-
leikunum í Los Angeles síöasta sum-
ar hvort í sínu hótelinu.
Talsmaöur Buckingham-hallar
ber á móti öllum orörómi um kala í
hjónabandinu og segir aö þvert á
móti hafi þau Mark og Anna reynt aö
flýta skyldustörfum sínum svo aö
þau geti hist í Dubai í lok mánaöar-
ins.
Anna, sem í eina tíö var gagnrýnd
nokkuð fyrir að vera einræn og treg
til þess að gegna opinberum skyld-
um, hefur seinni árin gerst mjög
aðsópsmikil í ýmissi góögeröarstarf-
semi og opinberum störfum.
Brúökaupsafmæli hennar ber upp
á 36 ára afmælisdag Karls Breta-
prins á morgun.
Mark Philips, Anna prinsessa og böm þeirra.