Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 14.11.1984, Qupperneq 11

Dagblaðið Vísir - DV - 14.11.1984, Qupperneq 11
DV. MIÐVKUDAGUR14. NOVEMBER1984. 11 !m—" i — 1 MILLJÚN DV-mynd Bj.Bj. Starfsmenn álversins giaðlegir á svip, enda búnir að framleiða milljón tonn af áli. [ J j 1 l d Milljón tonn hjá álverinu Áldropinn sem fyllti milljónasta tonnið af áli hjá álverinu í Straumsvík draup úr einu álkerinu sl. fimmtudag. „Það er auðvitað ekki hægt að segja til um það nákvæmlega hvaöa dropi gerði milljónasta tonnið en viö vitum aö það gerðist einhvern tíma á fimmtudag og þá héldum við hátíð,” sagði Jakob Möller, aðstoðarforstjóri álversins, þegar DV ræddi við hann. Hátiöahöld i tilefni af milljónasta tonninu munu standa i nokkra daga. Jakob sagði að 700 manns ynnu hjá fyrirtækinu og ekki væri hægt að vera með veislu nema fyrir 250 manns í einu auk þess sem mikið væri um vakta- vinnufólk. -EH Gleraugun hrannast upp! Rætt við Helga Baldursson um gler augnasöf nun Lionsmanna Það hefur víst ekki farið framhjá neinum aö þessa dagana safna Lionsmenn gömlum gleraugum til útflutnings. Ekki er þó nýr útflutn- ingsatvinnuvegur að fæðast heldur flokkast þetta undir góðgerðarstarf- semi. Arlega halda þeir hjá Lions þjónustudag þar sem allir reyna að iáta eitthvað gott af sér leiða. í ár varð aö ráöi að stilla saman kraftana og gera veglegt átak á einu sviði. Og söfnun á gleraugum fyrir sjóndapra á Sri Lanka varð fjrir valinu. Upp- haflega átti söfnunin að hefjast 8. okt. en verkfallið raskaði því. Formaður Söfnunarnefndar er Helgi Baldursson. DV tók hann tali til að forvitnast um söfnunina. Helgi sagði að þegar frá fyrsta degi heföi söfnunin gengið mjög vel um allt land. „Ég geri mér vonir um að ekki safnist færri en 40.000 gleraugu,” sagði Helgi,” og ef reiknað er með að stykkið kosti 2.000 kr. þá ætti þetta að gera 8 milljonir.” Það sem genr gleraugnasendingar til Asíulanda nauðsynlegar er að víða þar um slóðir er giáka landlægur sjúk- dómur. Svo er t.d. á Sri Lanka. Gler- augun héðan fara á sjúkrastöö þar sem einkum er fengist við þennan sjúkdóm. Að öllum jafnaði þurfa þeir sem lækningu fá að nota gleraugu eftir aðgerðina en það er oft undir hælinn lagt hvort þeir hafa efni á að eignast þau. Okeypis gleraugu eru því í mörgum tilvikum kærkomin. Á Sri Lanka fara augnlæknar yfir gler- augun og sjá til þess að hver fái gler- auguvið hæfi. Sjálfur sagðist Helgi eiga fern gleraugu sem komin eru úr umferð og þau fara öll. Helgi er formaður Lionsklúbbsins Ægis í Reykjavík. Hann er kennari að mennt en hefur um árabil fengist við innflutning á pappírsvörum. Eiginkona hans er Guðbjörg Marteinsdóttir og eiga þau þrjú böm. Selfoss: Hjálmar Þorsteinsson með málverkasýningu Hjálmar Þorsteinsson hélt nýlega málverkasýningu í Safnahúsinu á Sel- fossi. Aðsókn var góð en sýningin stóð yfir í tvo daga. Eg veit ekki hvað mikið seldist af málverkum hins mikla lista- manns. Ég álykta aö Hjálmar eigi mikla möguleika á listabrautinni. Yfir 30 málverk voru á sýningunni og marg- ur sýningargesturinn var heillaður af verkum hins yfirlætislausa lista- manns. Verðið var frá 38 þúsundum og niður í 12 þúsund og þótti fólki það frek- ar dýrt því rammarnir, sem voru utan um málverkin, voru lítilf jörlegir. Auk þess vom nokkrar vatnslitamyndir smáar frá 12 þúsund og niður í 300 krónur. Enda finnst öllum allt dýrt nú í stjómleysinu og verðbólgunni og sláturtíðinni. Regína Thorarensen Selfossi. „Endurskin” í Austurstræti Skemmtilegt „endurskin” var í veðurblíðunni í Austurstræti síðastlið- inn föstudag er Eurocard gaf veg- farendum endurskinsmerki fyrir vet- urinn. Alls var þúsund merkjum dreift og kunni fólk þessu hið besta. Nokkrir báðu um fleiri en eitt, „systir og bróðir ættu nef nilega ekkert merki”. Eurocard fékk þrjá menntskælinga til aö dreifa merkjunum. Ohætt er að segja að kiæðnaður menntskælinganna hafi vakið athygli. Þeir voru með pípu- hatta og bám spjöld í bak og fyrir. MIÐ BJOÐUNv METRINUI BYRGINN jinmuEsrone Sagt er að allir tali um veðrið, en enginn geri neitt í því.Við hjáBRIDGESTONEget- um að vísu ekki gert neitt við veðrinu, en við bjóðum stóraukið öryggi í vetrarakstri með hinum heimsþekktu ÍSGRIP vetrar- hjólbörðum. ÍSGRIP hjólbarðarnir eru úr sérstakri gúmmíblöndu, sem harðnar ekki í kuldum, þeir haldast mjúkir og gefa því einstaklega góða spyrnu í snjó og hálku. Tryggðu öryggi þitt og þinna í vet- ur, keyptu BRIDGESTONE ÍSGRIP undir bílinn — þeir fást hjá hjólbarðasölum um land allt. Sérlega hagstætt verd. BlLABORG HF Smiöshöföa 23 sími 812 99 ISGRIP

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.