Dagblaðið Vísir - DV - 14.11.1984, Side 14

Dagblaðið Vísir - DV - 14.11.1984, Side 14
14 DV. MIÐVIKUDAGUR14. NOVEMBER1984. | Lausstaða § Íara Norræna Sumarháskólans í Álaborg (hlutastarf). X r háskóla, reynsla í stjómun og þekking á störfum Norr- p imarháskólans er skilyrði. fjj marfrestur rennur út 30. nóv. f iingar í síma 29447 á kvöldin. 8 íslandsdeild Norræna Sumarháskólans. rf Innkaupastjórar —TRÉKLOSSAR Til sölu 1.100 pör af tréklossum á hagstæðu veröi og mjög góðum kjörum. Uppl. í síma 29888. Menning Menning Menn ANDANS MENN Egg-Jeikhús sýnir í Nýiistasafninu SKJALDBAKAN KEMST ÞANGAÐ LÍKA. Höfundur og leikstjóri: Ární Ibsen. Leikmynd og búningar: Guörún Erla Geirsdótt- ir. Lýsing: Árni Baldvinsson. Leikhljóð og tónlist: Lórus Grímsson. Einkamál skálda eru heillandi fyrir lesendur sem veröa handgengnir skáldskapnum, forvitnin um höfund- inn, upphafsmann og skapara ljóös, leiks og sögu, rekur margan til nánari kynna við samtíð hans, daglega háttu, hugmyndir og persónuleg skjöl. Oftast eru gögnin tiltæk í einhverju formi, viðtölum, ævisögum, yfirlitsgreinum — sárasjaldan gefst tækifæri til að rýna beint í frumheimildir, rekja sög- una með persónulegum viötölum við vini, kunningja og ættingja herra eða frú X. Sá sem einu sinni er kominn út á Leiklist Páll B. Baldvinsson þá braut á sér ekki undankomu auöiö, fylgja skáldsins eltir hann með sífelld- um áminningum: hvar var hann það voriö, hvers vegna varð ekkert úr þeirri hugmynd, þessi frumdrög sem enn eru til benda til aö stoffið haf i verið gott? Stundum gerist þaö aö leikskáld semja sjónleiki á grundvelli rannsókn- ar á högum skálda, yfirleitt um stutt skeið í ævi þeirra: dvöl landflótta Evrópuskálda í Hollívúdd stríösár- anna, Rimbaud og Verlaine á ferð og flugi, Halldór Laxness í L.A., fyrra hjónaband TS. EBot, Tjekov á taí við sjálfan sig, Getrud Stein hugsar upp- hátt, svo nokkur nærtæk dæmi séu nefnd. Þessir sjónleikir standa alla- jafna í skugga viðfangsefnisins, sára- sjaldan tekst þeim sem um pennann heldur að gera úr þjóösögum og skjal- festum lýsingum persónur sem standa og hugsa holdi klæddar samkvæmt lög- málum leiksins. Þetta er ofur skiljan- legt, virðing og ást í skáldinu heftir og varnar höfundinum að gera það sem hugmyndaflugið á að gera, fái það sjans, leika lausum hala. Esra og William Arni Ibsen hefur til þessa einbeitt sér að æfingum og tilaunum í kveðskap Nauðungaruppboð sem auglýst var í 72., 74. og 77. tbl. Lögbirtingablaðs 1984 á Laugarnes- vegi 13, þingl. eign Valdimars Jörgensen o.fl., fer fram eftir kröfu Gjaldheimtunnar í Reykjavík á eigninni sjálfri föstudaginn 16. nóvem- ber 1984 kl. 14.30. Borgarfógetaembættið í Reykjavík. Nauðungaruppboð sem augiýst var í 72., 74. og 77. tbl. Lögbirtingablaðs 1984 á Laugarnes- vegi 82, þingl. eign Kristjáns Kristjánssonar, fer fram eftir kröfu Gjaldheimtunnar í Reykjavík á eigninni sjálfri föstudaginn 16. nóvem- ber 1984 kl. 14.15. Borgarfógetaembættið í Reykjavík. Nauðungaruppboð sem auglýst var í 72., 74. og 77. tbl. Lögbirtbigablaðs 1984 á Mjóuhlíð 2, þingl. eign Olafs Arnarsonar o.fl., fer fram eftir kröfu Skúia J. Pálma- sonar hrl., Péturs Guðmundarsonar hdl., Ölafs Gústafssonar hdl., Gjaldheimtunnar í Reykjavík, Sigurðar I. Halldórssonar hdl. á eign- inni sjálfri f östudaginn 16. nóvember 1984 kl. 11.15. Borgarfógetaembættið í Reykjavík. Nauðungaruppboð sem augiýst var 140., 43. og 46. tbl. Lögbirtingablaðs 1984 á Dragavegi 6, þingl. eign Katrínar Hallgrímsdóttur, fer fram eftir kröfu Guðjóns Á. Jónssonar hdi. á eigninni sjálfri föstudaginn 16. nóvember 1984 kl. 16.30. Borgarfógetaembættið í Reykjavík. Nauðungaruppboð sem auglýst var í 72., 74. og 77. tbl. Lögbirtingablaðs 1984 á hluta í Grenimel 9, þingl. eign Jóhanus Þorgilssonar, fer fram eftir kröfu Helga V. Jónssonar hrl. á eigninni sjálfri föstudaginn 16. nóvember 1984 kl. 10.45. Borgarfógetaembættið í Reykjavík. Nauðungaruppboð sem auglýst var í 72., 74. og 77. tbl. Lögbirtingablaðs 1984 á hluta í Boðagranda 7, þingl. eign Hrafns Sigurðssonar, fer fram eftir kröfu Útvegsbanka tslands og Hafsteins Sigurðssonar hrl. á eigninni sjálfri föstudaginn 16. nóvember 1984 kl. 10.30. Borgarfógetaembættið í Reykjavík. Nauðungaruppboð sem auglýst var í 72., 74. og 77. tbl. Lögbirtingablaðs 1984 á hluta í Hraunbæ 20, þingl. eign Guðna Guðmundssonar, fer fram eftir kröfu Jóns Steinars Gunnlaugssonar hrl. og Sigríðar Thorlacius hdl. á eign- inni sjálfri föstudaginn 16. nóvember 1984 kl. 13.30. Borgarfógetaembættlð í Reykjavík. Nauðungaruppboð sem auglýst var í 72., 74. og 77. tbl. Lögbirtingablaðs 1984 á Langholts- vegi 51, þingl. eign Óla H. Sveinbjörnssonar o.fl., fer fram eftir kröfu Gjaldheimtunnar í Reykjavík á eigninni sjálfri föstudaginn 16. nóvember 1984 kl. 14.45. Borgarfógetaembættlð í Reykjavík. GÓDUR GESTUR Tónlistardagar Dómkirkjunnar, Orgeltónleikar Jörgens Ernst Hansen 10. nóvember. Efnisskrá: Dietrich Buxtehude: Prelúdia og fúga íg-moll; H.O.C. Zinck: Meinen Jesu lass ich nicht og Allein Gott in der Höh sei Ehr; Felix Mendelssohn — Bartholdy: Sónata nr. 3 í A-dúr, Úr hryggðar djúpi hátt til þín og Prolúdía og fúga í c-moll; Niels W. Gade: Þrjú kóralforspil; Johann Sebastian Bach: Liebster Jesus wir sind hier, Passacaglia og fúga í c-moll. Gestur Tónlistardaga Dómkirkj- unnar að þessu sinni var organisti Hohnens-kirkju í Kaupmannahöfn, Jörgen Emst Hansen. Holmens Kirke er ein af höfuðkirkjum Kaup- mannahafnar og eins og alkunna er hýsir þessi kirkja, sem í upphafi var helguð flotanum og reist var snemma á sautjándu öld, grafir ekki ómerkari manna en Tordenskjölds og Niels W. Gade, svo aö dæmi séu nefnd. Stór hluti efnisskrárinnar var helgaöur þeim Gade og tónskáldi Tónlistardaganna, Felix Mendels- sohn Bartholdy. Vel er þaö viðeig- andi að spyröa þá kaman á efnisskrá því samstarf þeirra var með ágætum. Það var Mendelssohn sem gerði þennan danska rómantíker þekktan um víða veröld — frumflutti fyrstu sinfóníu hans og gerði hann að aöstoðarstjómanda sínum hjá Gewandhaushljómsveitinni. Tónlist Eyjólfur Melsted Alþjóðlegt með dönsku ívafi Leik sinn hóf Jörgen Emst Hansen með öðmm Dana — þeim ágæta Dietrich Buxtehude sem fæddur var í Helsingjaborg og starf- aði bæði þar og á Helsingjaeyri þótt mest sé af honum gumað meðal þýskra og af störfum hans í Liibeck. Þannig var efnisvaliö næsta alþjóð- legt en með greinilegu dönsku ívafi. Ég veit ekki hvort það er réttlátt að segja aö það sama gildi um flytjandann en mér fannst það og meina það alls ekki neikvætt. Jörgen Ernst Hansen væri kannski réttast lýst sem snyrtimenni við orgelið. Hann registreraði til dæmis alls ekki svo sterkt þótt verkefnin byðu upp á það á stundum. Hann er kannski vanur þvi aö geta látið kirkjuna sjálfa um að bera óminn frá orgel- inu, en þaö er nokkuð sem Dóm- kirkjan okkar blessuð gerir ekki til- takanlega vel. En þótt fyrirganginn skorti hjá Jörgen Emst Hansen þá skortir ekki þróttinn í leik hans. Hann hefur sérstæðan stíl og leggur sinneiginn.sjálfstæða skilningíþau verk sem hann leikur. Jörgen Emst Hansen var góður gestur, en ég hefði fremur kosið aö fá að heyra hann leika á betra hljóöfæri og í órýmra húsi. EM. Ríkisstjómin á að sitja til loka kjörtímabilsins Til hvers er leiksýningin „Van- traust á rikisstjórnina”? Þaö var vitað að tiliaga um vantraust yrði felld með 35—37 atkvæðum gegn 23. Samt er verið að taka upp dagskrá í hljóövarpi heilt kvöid til að opinbera skrípaleikinn! Sjaldan hefur verið meiri ástæða til að skora á ríkisstjórn í þessu landi að sitja áfram en þegar stjórnar- andstaðan situr í sárum, samanbrot- in og trausti rúin, eins og nú er raun- in. Það er staðreynd að engin ríkis- stjórn á Islandi, frá stofnun lýðveldisins, hefur veriö jafnómak- lega ásökuð og enginn staðist jafn- hatramma árás frá andstæöingum og sú sem nú situr. — En and- stæðingamir standa nú uppi — eða réttara liggja flatir, smánaðir og yfirgefnir. Hugmynd drepin í fæðingu Þegar stjómarandstöðuflokkarnir sáu hvert stefndi, en þaö var í þann mund aö fyrir endann sá á verkfall- inu og útséð var að ekki myndi tak- ast að fella ríkisstjórnina, sem var öðrum þræði tilgangur hins langa verkfalls, — þá kepptust forystu- menn stjómarandstöðuflokkanna um að koma því að við fjölmiðla, að stjórnarflokkarnir óskuðu eftir utan- aðkomandi „styrk” með aöild eins eöa fleiri stjómarandstöðuflokka. Auövitaö lét forysta hvers stjómarandstööuflokks fyrir sig liggja að því að það væri einmitt aðild, ,hans” sem óskað væri eftir. Um leið og fjölmiðlar fóru hins vegar að kanna máliö, með beinum viðtölum viö „forystumennina”, kvaö við allt annan tón, að sjálf- sögöu, og sögöu ýmist að „alls engar viðræður hefðu átt sér stað” eöa sneru upp á sig og sögðu sem svo, að þaö kæmi aldrei til greina að styrkja núverandi stjórn með „sinni” aðild! Þetta sjónarspil kom gleggst fram í viðtali við formann Alþýðuflokks- ins sem neitaði því að viðræður hefðu farið fram um aöild hans, hvað þá meira. Sannleikurinn var hins vegar sá að allir stjómarandstöðuflokkarnir, hver fýrir sig, heföu gefið aleigu sína (sem auðvitað er ekki fyrir hendi) til að geta tekið sæti í núver- andi ríkisstjóm. Engin þörf Þótt segja megi aö frá pólitísku sjónarhorni hefði svo sem komiö til greina að bjóða einum stjómarand- stöðuflokkanna aðild aö ríkisstjórn, ekki til þess að styrkja hana, heldur fremur í likingu við það aö stórt bú ræður til sin unglinga til aö létta undir með búskapnum, — þá er ekki umauöugangaröaðgresja þarsem varla er um neinn flokk að ræða utan stjómar sem slægur er í. Alþýðuflokkurinn er sem deyjandi stjarna þar sem enginn hefur fasta búsetu lengur en til skamms tíma í senn og sem krefst þess að for- maður víki. Alþýðubandalagið er sá flokkur sem enginn heilvita stjórnmálamaö- ur getur lagt til að taki sæti í ríkis- stjórn eftir afskipti þess flokks af iðnaðar- og orkumálum og hafandi lagt til atlögu við launþega ekki sjaldnar en fjórtán sinnum með kaupskerðingu á valdaferli sínum. Og hver þekkir stefnumál Banda-

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.