Dagblaðið Vísir - DV - 20.11.1984, Side 19
DV. ÞRIÐJUDAGUR 20. NOVEMBER1984.
19
upp úr með það að nýi 626 væri besta
Mazdan f ram að þessu.
Billinn er hreint risastökk frá gamla
626 með afturdrifinu, nákvæmari, létt-
ari og sneggri í stýri, með sportlega og
skemmtilega aksturseiginleika. Með
því að breyta yfir í framdrif og þver-
stæða vél hefur rými innan i bílnum
stóraukist. Fjöðrunin er sportleg en
ekki nógu löng og hávaði frá vegi var í
meðallagi.
1 fimm dyra bílnum var fulllágt til
lofts en hins vegar hærra til lofts á
skottbílnum. Hér hafa Mazda og Toy-
ota farið aðra leið en Honda sem er
með fimm dyra bílinn (Shuttle) mun
hærri en hinar gerðimar. Það sýnist
manni vera eðlilegra, því að þeir sem
vilja fimm dyr sækjast líklega fremur
eftir góðu rými en þeir sem kaupa
hinar gerðirnar. f skottbílnum sem
leigubílstjórar nota er ágætt rými fyrir
fjóra og vel nægilegt fyrir fimm,
Coupé-gerðin er skemmtileg, með
102 hestafla, 1998 cc vél, sem gefur
hressandi spymu. 1 bilnum er búnaöur
sem spilar lag ef eitthvað hefur
gleymst, t.d. að loka dyrum. Þetta lag
fer fljótlega að verða leiðigjamt,
svona svipað eins og stúfurinn sem
leikinn var sem eina hljómlistin í
Ríkisútvarpinu i BSRB-verkfallinu. 1
Mözdunni, 'eins og í Camry, var spar-
neytnismælir sem var í mestum tengsl-
um við snúningshraða og sýndi því í
grófum dráttum hvort ekið var í rétt-
um gír, miðað við æskilega sparneytni.
1 Toyota er hins vegar spameytnis-
mælir sem hefur fylgni við það álag
sem sett er á vélina meö beitingu
bensíngjafarinnar.
Hvorugur „mælirinn” er einhlitur til
þess að sýna sparneytni. Á Mözdunni
getur maður staðiö í botni án þess að
„mælirinn” gefi eyðslufrekt aksturs-
lag til kynna en á Toyotunni er hægt að
þeyta bílinn á hámarkssnúningi í of
lágum gír, án þess að „mælirinn” hviki
frá því að sýna grænt, að allt sé í fína
lagi.
Sem sagt: bezta Mazdan hingaö til,
Kostir Mazda 626
fram yfir Toyota
Camry:
Sportlegri aksturseiginleikar.
Nákvœmari i stýri. öruggari
hegðun i beygjum við fulla
hleðslu.
Kostir Toyota
Camry f ram yf ir
Mazda 626:
Rúmbetri.
Mýkri fjöðrun.
Hljóðlátari ó malarvegi.
miðað við verð, skemmtilegir aksturs-
eiginleikar, gott rými en fulllágur frá
jörðu og með takmarkaða f jöðmn.
Toyota Camry
Sé gott rými í Mazda 626 er það enn
betra í Toyota Camry. Þetta er ein-
hver rúmbesti bíllinn í sinum stærðar-
flokki, einkum skottbillinn, en eins og á
Mazda 626 er lægra til lofts í fimm dyra
bilnum. I Camry róa þeir hjá Toyota á
svipuð mið og Mazda með sínum 626.
Báðir leita að lagi sem gefur minni
loftmótstöðu, undir 0,40, og hefur
Mazda tekist betur, ef marka má upp-
gefnar tölur. Vélar em 1,6, 1,8 og 2ja
lítra, álika aflmiklar og á Mazda 626.
Camry er 9 sentímetrum lengri á milli
hjóla. Hann er örlítið þyngri en einnig
heldur rúmbetri en 626. Hins vegar
fannst mér aksturseiginleikarnir ekki
alveg eins sportlegir og örvandi og á
626. Camry er að vísu mjög auðveldur í
akstri, léttur og sæmilega nákvæmur í
stýri, en fjöðmnin er mýkri en á
Mazda 626. Það gefur þægilegri akstur
við venjulegar aöstæöur en á 626 en á
vondum, holóttum malarvegi lemur
fjöðrunin í botn og reynist ófullnægj-
andi ef bíllinn er hlaðinn. Þá verður
einnig mjög lágt undir hann. Camry er
mjög hljóðlátur eins og fleiri Toyotur,
einkum á malarvegi; nokkrum desí-
belum hljóðlátari á mölinni en Mazda.
Enda þótt vélin vinni mjög vel og sé
viljug, heyrist grófur tónn í henni á
köflum við að þeyta hana. Ef til vill er
þetta meira áberandi fyrir þá sök hve
hljóölátur billinn er að öðm leyti; þá
sker vélarhljóðið sig meira úr en ella.
Bæði Camry og Mazda 626 hafa fengið
allgóða dóma austan hafs og vestan. í
vali bílablaðamanna Evrópu á „bíl
ársins” fékk Mazda 626 fleiri stig en
nokkur japanskur bíll hefur fengið i
þessu vali og bandariska timaritið
Consumer Guide taldi Camry vera
bestu kaupin í sínum flokki. Helsti
ókostur þeirra beggja á vondum,
íslenskum vegum er ófullnægjandi
fjöðrun og litil hæð frá jörðu þegar þeir
emfullhlaðnir.
Mazda hefur þó boöið upp á búnað,
þar sem breyta má mýkt höggdeyfa á
ferð, sem er þörf nýjung og kemur sér
vel, þegar vegur og hraði eru misjöfn.
Bílamir hneigjast til að verða ofstýrðir
(leita út að aftan) i kröppum beygjum
og er þetta einkum áberandi á Camry.
Báða þessa bíla er hægt að fá sjálf-
skipta og er hægt að finna mun á
skiptingunum sem f ellur í sama farveg
og annar mismunur bílanna að öðm
leyti: Skiptingarnar milli hraðastiga á
Toyotunni eru mýkri en á Mazda, en
hins vegar gefur skiptingin á Mazda
sportlegri spyrnu, til dæmis þegar
gefið er í og hraðinn aukinn.
Niðurstaða
Eins og oft vill verða er erfitt að
taka annan bilinn fram yfir hinn eftir
stutt kynni. Þar ráða smekkur og
þarfir hvers og eins mestu. Mazda 626
höfðar meira til akstursglaðra manna
meö sportlegum eiginleikum sínum án
þess að fómað sé neinu sem nemur
hvað snertir rými. Ein gerð hans er
með forþjappaðri vél (turbo), sem af-
kastar ca 125—130 DIN-hestöflum.
(Hún er 145 japönsk hestöfl.)
Það er 25 hestöflum meira en Camry
hefur flest. Hins vegar er Camry búinn
öllu kraftmeiri disilvél en 626. Camry
höfðar meira til þess að gera sem flest-
um til hæfis, vera hljóðlátur, sérlega
rúmgóður, þægilegur og skemmtilegur
í akstri án þess að fórna mýkt svo að
neinu nemur. Þessir tveir bílar standa
báðir vel að vígi í sinum verð- og
stærðarflokki þar sem er mjög mikið
úrval. Nægir aö nefna Nissan Blue-
bird, Mitsubishi Galantinn og Honda
Accord, svo að aðeins séu nefndir þeir
helstu japönsku.
NOKKRARTÖLUR: MAZDA626 TOYOTA CAMRY
Þyngd 945-1080 kiló 990-1125 kíló
lengd 4,43 m 4,40 m
breidd 1,69 1,69
hæð 1,36-1,39 1,37-1,39
hjólhaf 2,51 2,60
sporvídd 1,43 1,47/1,42
vélar 81,102,135 hö 90,105 hö.
innan- disil: ca 65 hö. disil: 73 hö
rými 8752 mm 9045 mm
eyðsla (102 hö) 6,3/8,2/9,8 (105 hö) 5,9/7,9/9,5
þvermól beygjuhrings 10,8 11,6
hámarkshraði (102 hö) 185km/klst (105 hö) 180 km/klst.
Setíð aftur i Mazda 626.
Fjárhagsáætíun
Reykjavíkurborgar 1985
Nú stendur yfir gerð fjárhagsáætlunar Reykjavíkurborgar
fyrir árið 1985. Athygli borgarbúa, svo og hagsmunasamtaka
(t.d. íbúasamtaka), er vakin á að óskir, tillögur og ábendingar
varðandi gerð fjárhagsáætlunarinnar þurfa að hafa borist
borgarráði fyrir 15. desember nk.
Borgarstjórinn í Reykjavik,
14. nóvember 1984.
Auglýsing
frá Laimasjóði rithöfunda.
Hér með eru auglýst til umsóknar starfslaun fyrir árið 1985
úr Launasjóði rithöfunda samkvæmt lögum nr. 29/1975 og
reglugerð gefinni út af menntamálaráðuneytinu 19. október
1979.
Rétt til greiðslu úr sjóðnum hafa íslenskir rithöfundar og
höfundar fræðirita. Heimilt er og að greiða laun úr sjóðnum
fyrir þýðingar á íslensku. Starfslaun eru veitt í samræmi við
byrjunarlaun menntaskólakennara skemmst til tveggja og
lengst til níu mánaða í senn.
Höfundur sem sækir um og hlýtur starfslaun í þrjá mánuði
eða lengur skuldbindur sig til að gegna ekki fastlaunuðu starfi
meðan hann nýtur starfslauna. Slík kvöð fylgir ekki tveggja
mánaða starfslaunum, enda skulu þau einvörðungu veitt
vegna verka sem birst hafa næsta almanaksár á undan.
Skrá um birt ritverk höfundar og verk sem hann vinnur nú
að skal fylgja umsókninni.
Umsóknum ber að skila á sérstökum eyðublöðum sem fást í
menntamálaráðuneytinu. Mikilvægt er að spurningum á eyðu-
blaðinu sé svarað og verður farið með svörin sem trúnaðar-
mál.
Umsóknir skulu sendar fyrir 31. desember 1984 til mennta-
málaráðuneytisins, Hverfisgötu 6, Reykjavík.
Reykjavík, 15. nóvember 1984.
Stjórn Launasjóðs rithöfunda
Vetrarvörn ESSO
býr bílinn þinn
undir veturinn
-ókeypis!*
Nýr þjónustuþáttur
Vetrarvörn ESSO er nýr þjónustuþáttur hjá benslnstöðvum ESSO
sem miðar að því að búa bflinn þinn sem best undir komandi vetur. Þessi
þjónusta er framkvæmd ákveðna daga og verður staður og stund auglýst
sérstakiega hverju sinni.
Skipuleg athugun
Vetrarvörn ESSO felur I sér eftirfarandi atriði:
1. mæla rafgeymi og athuga
viftureim
2. mæla loft (dekkjum
3. mæla frostlög
4. mæla olíuhæð
5. ath. frostvara á rúðusprautu
6. ath! rúðuþurrkur
7. ath! ísvara I benslni
8. setja Silikon á gúmmlkanta
(svo bflhurðir frjósi ekki).
9. setja rakavörn á rafkerfi
10. setja lásaúða á læsingar
* Þessi skipulega athugun er framkvæmd þér að kostnaðarlausu, þú
greiðir aðeins það efni sem þarf.
Láttu Vetrarvörn ESSO
hjálpa þór yfir það versta f vetur.
Cssój
OUUFELAGID HF
Þjónustubraut