Dagblaðið Vísir - DV - 01.02.1985, Qupperneq 7

Dagblaðið Vísir - DV - 01.02.1985, Qupperneq 7
DV. FÖSTUDAGUR1. FEBROAR1985. 7 Neytendur Neytendur Neytendur Neytendur Laugar í Suður-Þingeyjarsýslu ER DYRT AÐ FARA í HÉRAÐSSKÓLA? Töluvert hefur veriö rætt um héraös- skóla í landinu og jafnvel hefur komiö fram sú gagnrýni hvort þeir yfirleitt ættu rétt á sér. Héraðsskólamir í landinu eru átta talsins og eru aö Reykholti, Núpi, Reykjanesi, Reykj- um, Laugum, Laugarvatni, Skógumog Eiðum. Héraðsskólar eru alfarið ríkisreknir skólar nema hvaö nemendur borga mötuneytiskostnað. Ein undantekning er þó frá þeirri reglu: Þar sem 7. og 8. bekkir eru greiðir ríkið niöur matar- kostnaðinn sem nemur launum starfs- fólksins. Sjöundu og áttundu bekkingar greiða hins vegar hráefnis- kostnaðinn sem er um 60 prósent mötu- neytiskostnaðarins. Níundubekkingar og þeir nemendur sem eru í framhalds- deildum greiða hins vegar sjálfir allan matarkostnað, bæði hráefni og launa- kostnað. Neytendasíðan hringdi í alla héraðs- skólana til að athuga kostnaðarhliöar og annað fyrirkomulag. Skólastjórar héraðsskólanna voru sammála um að margt breyttist hjá nemendum við að fara aöheiman í slíka skóla. Nemendur eru tveir og tveir saman í herbergi en hafa jafnvel haft eigið her- bergi heima hjá sér. Þó þarf virkilega aö taka tillit til annarra í sambandi við almenna umgengni og kurteisi. Mikiö er lagt upp úr mætingum í tíma. Sér- stakur lokunartími er á heimavistum skólanna og er almenna reglan sú að lokað er klukkan 22 á virkum dögum nema ef bíókvöld eða annað slíkt er í gangi. Borgarbörn jafnt sem sveitabörn Héraðsskólar eru ekki einungis ætlaðir þeim nemendum sem búa í ná- grenni skólanna heldur geta alUr, hvaðan sem er af landinu, sótt um skólavist. I flestum héraðsskólunum eru borgarbörn meðal nemenda. „Ýmsar ástæður geta verið fyrir því aö nemandi kýs héraðsskóla fremur en þéttbýlisskóla,” sagði einn skólastjór- inn. „Héraösskólarnir mynda eins kon- ar miUistig mUU dreifbýUsskóla ó grunnskólastigi og framhaldsskóla í þéttbýli. Unglingamir læra að standa á eigin fótum,” sagöi skólastjórinn. „GaUinn er sá að menntakefið er ekki samræmt um allt land. Nemandi sem stundað hefur tU dæmis tveggja óra nám á verknámsbraut á Laugum getur farið til Akureyrar og haldið áfram þar ótrauður. Hins vegar getur nemandinn ekki fariö tU Reykjavíkur eða annað til aö halda sínu námi áfram vegna þess að skólakerfið hefur ekki veriðsamræmt. HéraðsskólamU- eru nauðsynlegir og jafnframt ódýr lausn ó fjarveru frá heimiU. Nemendur þeir sem eru í þétt- býU, í burtu fró heimilum sínum, þurfa í flestum tilfellum að leigja húsnæði dýrum dómum og elda ofan í sig sjálf- ir.” Hvað kostar? Kostnaöur við að fara í héraösskóla er nú á bUinu 40.000 tU 45.000 að sögn þeirra héraðsskólastjóra er neytenda- síðan haföi samband viö. Kostnaöur þessi nær einungis yfir matarkostnað en í flestum skólunum er miöað við 200 krónur á dag fyrir fullt fæði fyrir nem- andann. Innritunargjald er 500 krónur næralls staðar. Leiga fyrir herbergi er engin. Bóka- kostnaður er enginn fyrir 7. og 8. bekki grunnskóla en hins vegar þurfa 9. bekkingar og framhaldsdeUdir að greiða fyrir bækur. Ef nemendur fara í helgarfrí heima eru dregin 60 prósent af daggjaldi ef fjarveran nær sólár- hring. Yfir veturinn eru tvær annir og eru annaskipti undir ven julegum kringum- stæðum um óramót. Hins vegar tafði verkfalUö héraðsskólana um mánuð svo aö fyrri önnin var lengd fram til 25. janúar. Nemendur munu fá endurgreiddan hluta af matarkostnaði frá því í verk- faUinu — eða um 60 prósent. Þó að nemendur hafi ekki verið á vistunum í heUan mánuð var aUt starfsfólk mötu- neytanna á launum svo að það kemur í hlut nemendanna að greiða þau en þar sem hróefnið var ekki notað fá nemendur endurgreitt hráefnis- kostnaðinn —60 prósent. JI. |SS-LT® m KJOTMIÐSTÖÐIN Laugalæk 2, Simi 686511. GÓÐ KAUP. Medisterpylsa,nýlöguð,130,- Paprikupylsa, aðeins 130,90. Óðalspylsa 130,- Kjötbúðingur 130,- Kindakæfa 155,- Kindabjúgu 153,- Kindahakk 127,- 10 kg nautahakk 175,- Hangiálegg 498,- Malakoffálegg 250,- Spægipylsa í sneiðum 320,- Spægipylsa í bitum 290,- Skinka, álegg, 590,- Londonlamb, álegg, 550,- Beikonsneiöar 135,- Beikonstykki 125,- Verðið er langt undir heildsöiuverði. Gerið góð kaup. FÖSTUDAGSKVÖLD Smákaupmenn gefa endurskinsmerki Vegna nokkurra skrifa um endur- skinsmerki viU Samband hverfa- verslana koma á framfæri að hinar svoköUuðu K-verslanir gefa endur- skinsmerkin til viðskiptavina sinna. K-verslanir eru samband smárra kaupmanna og hafa þeir aUtaf svo- köUuð K-tilboð á hálfsmónaðar fresti eða svo. Um 45 verslanir eru í Sam- bandi hverfaverslana um allt land en flestar þeirra eru á höfuðborgar- svæðinu. JI. IJIS HUSINU ■ I Jli HUSINU OPIÐ í ÖLLUM PEILPUM TIL KL. 8 í KVÖLD JIS ÞORRAMATURINN 2 stærðir af þorrabökkum. í kjötborði: heitt saltkjöt, svið og rófustappa. JL—GRILLIÐ Grillréttir allan daginn. Jtéttir dagsins i hádeginu. Húsgagnadeild á tveimur hæðum. Raftækjadeild Ó2.hæð. Sólbaðstofa Siggu og Maddýjar, sími 22500. ^ Munið okkar hagstæðu greiðslu- skilmála Jli A A A A A A Jón Loftsson hf. Hringbraut 121 d) L_ E3 íj. U'EHLJOíJLi j [_ Cj £1 S C3 lJ @QQQlJ'jvJ-'J HHttlliriBaiiUMMtlÍllttlíi. Sími 10600

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.