Dagblaðið Vísir - DV - 01.02.1985, Blaðsíða 8
8
DV. FÖSTUDAGUR1. FEBRUAR1985.
Útlönd
Útlönd Útlönd Útlönd
TREHOLT GÆTIFENGIÐ
20 ÁRA FANGELSI
Jón Einar Guðjónsson, Osló:
Ame Treholt getur fengið frá 19
mánaða til 20 ára fangelsi ef hann
verður dæmdur fyrir þær njósnir sem
hann er ákærður fyrir að hafa stundað.
1 gær birti ríkissaksóknari í Noregi
aðeins hluta úr ákæruskjalinu sem lagt
verður fram í réttarhöldunum gegn'
Arne Treholt.
Það sem vakti mesta athygli í gær
Treholtsréttarhöldin
íkapalsjónvarpi:
Fjöl-
miðla-
sirkus
Jón Einar Guðjónsson, Osló:
Þegar hafa fleiri en 100 blaða-
menn sótt um aö fá að vera við-
staddir réttarhöldin yfir Arne
Treholt. Meðal þeirra er fréttarit-
ari TASS. Greinilegt er að Moskvu-
herrar vilj a fá að fylg jast vel með.
Vandamál er hins vegar að
réttarsalurinn í Osló Tinghus tekur
ekki nema 90 manns. Verður því að
vinsa einhverja úr. Dómararnir
óska eftir að öryggislögreglan fái
að velja þá sem fái aðgangskort inn
í réttarsalinn. Þetta telja norsku
blaöamannasamtökin fráleitt.
Norska ríkisútvarpiö ætlar sér að
fylgjast vel með. Það hefur tekið á
leigu hús við hliðina á dómshúsinu.
Þar er nú verið að innrétta upp-
tökuherbergi fyrir sjónvarp og út-
varp.
Til að sem flestir geti fylgst með
réttarhöldunum er ætlunin aö sýna
réttarhöldin í beinni útsendingu í
kapalsjónvarpi í nálægum sölum.
Rúmur þriðjungur þeirra fjöl-
miðlamanna sem sótt hafa um
aðgang að réttarsalnum kemur frá
erlendum f jölmiðlum.
var að ríkissaksóknarinn lofar aö öll
ákæruatriði muni vera gerö opinber í
upphafi réttarhaldanna 25. febrúar.
Aður höfðu margir búist við að hluta
ákærunnar yrði haldið leyndum fyrir
fjölmiðlum.
Lögfræðingur Treholts sagði í gær-
kvöld að þessi ákvörðun ríkissaksókn-
ara í gærkvöld væri mjög ánægjuleg. I
sama streng tóku þekktustu laga-
prófessorar Noregs. Þeir bentu á að
hætta væri á að fólk liti svo á að
Treholt væri þegar dæmdur. Réttar-
höldin væru nánast sýndarmennska.
Til að sýna að Treholt fái réttláta
meðferð sé mikilvægt að eins mikið og
mögulegt er af réttarhöldunum fari
framfyrir opnum dyrum.
Fréttatilkynning ríkissaksóknara í
gær staðfestir að Treholt málið er
umfangsmesta njósnamál Noregssög-
unnar. Hann er ákærður fyrir að hafa
njósnað fyrir Sovétríkin síðastliðin 10
ár, frá 1974 til 1984. Hann er ákæröur
fyrir að hafa gefið Sovétmönnum
upplýsingar sem honum var trúað
fyrir í störfum sinum. Og einnig fyrir
að láta af hendi upplýsingar sem hann
aflaði sér utan vinnutíma.
Hann er einnig ákærður fyrir að hafa
gefið Irökum upplýsingar á árunum
1981 til 1983.
ÞRIÐJUNGUR
GEGN
SAMN-
INGIVIÐ
SPÁN
Stjórnarandstöðuflokkur sósíal-
ista á Gíbraltar segist hafa safnað
undirskriftum rúmlega þriðjungs
Gíbraltarbúa gegn fyrirhuguðum
samningi við Spán. Samningurinn,
sem Bretar hafa gert við Spán-
verja, kveður á um að Spánn opni
landamærin við Gíbraltar og endi
þannig umsátursástand um kletta-
eyjuna sem hefur varað í 16 ár. I
staðinn lofa Bretar að taka upp við-
ræður um hver skuh hafa eignar-
rétt yfir eyjunni.
Jose Bossano, leiðtogi sósíalista,
sagði að 9.426 manns hefðu undir-
ritað mótmælaskjal gegn samn-
ingnum. Á Gíbraltar búa um 25.000
manns.
Samningurinn á aö ganga í gildi
næsta þriðjudag.
Varar
við
árás
Gervihnötturinn sem geimskutl-
an Discovery er nú að koma á
braut um jörðu með mikilli leynd
er líklega sérhannaður til að vara
Bandaríkjamenn við líklegri kjam-
orkuárás Sovétmanna.
Sérfræðingar segja aðhnötturinn
geti greint eðli þeirra skeytasend-
inga sem fara fram milli Moskvu
og stjómstöðva hersins. Hann gæti
til dæmis greint þaö ef óvenjumikið
er um skeytasendingar sem gætu
verið fyrirboðar yfirvofandi árás-
ar. Eins ef senditækin eru stillt á
bygljulengdir sem búið er að taka
frá til notkunar á stríðstímum.
Þetta skýrir ef til vill hvers
vegna slík ógurleg leynd hvílir yfir
þessum hnetti.
Spar-
neytnir
Ford-
bílar
Ford-bílaframleiðendurnir kynntu
núna í vikunni tvo nýja bíla af meðal-
stærð sem þeir vonast til að muni veita
öðrum bandarískum og japönskum
bilaframleiðendum samkeppni í meiri
spameytni og þó vel rúmir.
Segja þeir að Ford Taurus og Mer-
cury Sable, sem báðir eru framdrifs-
bilar og hafa verið í hönnun síðustu
fimm árin, verði 25% spameytnari en
þær árgerðir sem nú eru á götunni.
Koma þeir í bílaverslanir síðar á þessu
ári þar vestanhafs og munu kosta í
Bandaríkjunum 8.200 dollara til 12.200
dollara eftir því hve mikið af aukahlut-
um er keypt með þeim.
Ford vonast til þess að nýju bílamir
höfði til ungra fjölskyldumanna jafnt
sem eldri, sem eru raunar stærri við-
skiptahópurinn að öllu jöfnu.
Treholt i vörslu lögreglumanna í Noregi. Hluti ákœrunnar gegn honum var
birtur í dag.
Miklar deilur um
DEW-ratsjárstððvar
Erling Aspelund, New York:
Miklar deilur eiga sér nú stað á
kanadíska þinginu um stjömustriös-
áætlun Reagan-stjórnarinnar.
Undanfama daga hefur stjóm
Brians Mulroney forsætisráðherra
verið ásökuð um að vilja ekki viöur-
kenna eða leiða hjá sér þann mögu-
leika að Kanadamenn verði látnir taka
þátt í áætluninni.
I gær bað John Tumer fyrrum for-
sætisráðherra varnarmálaráðherrann
John Coates um annaðhvort að stað-
festa eða vísa á bug blaðafregnum
þess efnis að væntanlegur samningur
Kanada og Bandaríkjanna um aö
endurnýja DEW ratsjárkeðjuna, sem
teygir sig yfir Alaska, Norður-Kanada
og Grænland, gæti leitt til þess í
framtíðinni að Kanada ætti hlut að
stjörnustríðsáætlun.
„Við eigum í samningum um
viðvörunarkerfi, ekki vopnakerfi,”
svaraði Coates reiðilega.
„Þetta er ekki hluti af stjörnustriðs-
áætluninni.”
Vamarmálaráðherrann var þá
spurður hvort hann vissi í raun og vem
hvað Bandaríkjamenn ætluðu sér.
Svaraði hann því til aö slík spurning
væri sér móögandi og ásakaði Tumer
um „að reyna að rugla og hræða kana-
dískuþjóðina.”
Axworthy lávarður, þingmaður
Frjálslynda flokksins, hélt því fram í
ræðu á þinginu í gær að Bandaríkja-
menn undirbyggju nú stórfelldar
breytingar á hemaðarstöðu sinni á
norðurslóöum.
Hann spurði hvernig stjórnin hygðist
bregðast við þessu og hvatti til þess að
samningur um endurnýjun DEW-
kerfisins yrði ekki undirritaður fyrr en
meira væri vitað um hvað sh'k endur-
nýjun kostaði og hvað hún hefði í för
meðsér.
Undanfarið hefur verið rætt um að
endumýjunin muni kosta 1,2 milljarða
Bandarikjadala og að Kanada og
Bandaríkin myndu skipta þessu jafnt
með sér en samkvæmt varnarsamn-
ingi Kanada og Bandaríkjanna eiga
Kanadamenn aðeins að greiöa 10
prósent af útgjöldum við sameiginleg-
ar vamir landanna tveggja.
ÚTSALA ÚTSALA ÚTSALA
ÖLL HÚSGÖGN Á HÁLFVIRÐI
í
Mjög gott úrval af reyrhúsgögnum
á>rtrið
Auöbrekku 9, Kópavogi
sími 46460
Sendum í póstkröfu
opið laugardaga frá 10-
Sunnudaga frá 14—16
Sendum í póstkröfu.
-16