Dagblaðið Vísir - DV - 01.02.1985, Blaðsíða 15
DV. FÖSTUDAGUR1. FEBRUAR1985.
15
með hinum nýja sið koma bisness-út-
varp meö miklum auglýsingum, popp-
útvarp með fréttatiningi inn á milli eða
hvað? Allt verður að borga sig — meiri
peninga, peninga.
Nú þótti heittrúuðum hugsjóna-
mönnum og frelsisboðendum mál aö
láta til skarar skríða. Allt klárt þegar
Ragnhildur kallaði i bátana með út-
varpslagafrumvarpið afgreitt og
frelsið innsiglað.
Var fremstur í flokki frdsismanna
Olafur Hauksson, ritstjóri Samúeis.
Fyrir nokkrum árum boðaði Ölafur rit-
stjóri í blaði sinu: „Hyllir undir útvarp
Samúel”. Loks var hin stóra stund
runnin upp. En hvað skeður? Olafur
nær ekki kosningu í stjóm útvarpsfé-
lagsins. Stóreignamenn tóku öll völd
og lögðu á borð með sér 4—5 milljónir.
„Stórfyrirtæki „stálu” islenska út-
varpsfélaginu” (DV).
Það gleöur gamlan útvarpsnotanda
(neytenda á nút.máli) hversu fjár-
hagur Utvarps/Sjónvarps hefur
batnaö í seinni tiö. Enginn barlómur
lengur og um 50 millj. komnar í rás 2,
fastráöinn fréttamaður í Khöfn þó
annar sé þar fyrir, þrír morgunpóstar
(að nokkru plötusnúðar) og þrir kvöid-
póstar. — Undirritaður er ekki mjög
dómbær á rás 2. Hefur nokkrum
sinnum heyrt rás þessa í rútum, en þar
tilheyrir að hafa útvarp á fullu eöa vel
það, og mun þetta eiga að vera
döprum, en hamingjusömum far-
þegum til upplyftingar. Er við hæfi aö í
hvert sinn hefji rás 2 útvarp með lagi
og söng rásarstjórans „A puttanum”
og endi á „Ég fer í fríið” — og veri það
frí sem lengst.
Stór áfmgi
„Þetta er „afar stór áfangi”,” er
haft eftir fv. útvarpsstjóra við hátíð-
lega athöfn er rás 2 tók til starfa.
Njóti hann nú vel og lengi eftir farssdt
starf. — En sumir menn kunna aldrei
gott aö meta og hafa vérið að hnjóöa i
„óskabarnið” i lesendabréfum vegna
lélegs málfars svokallaðra stjómenda.
Þingmenn sumir eru heldur ekki
ánægðir; kalla þó ekki allt ömmu sína.
M.a. komst Eiður Guðnason útvarps-
HARALDUR
GUÐNASON,
FYRRV. BÓKAVÚRÐUR,
VESTMANNAEYJUM
ráðsmaður svo að orði í þingræðu: „Nú
á undanfömum vikum og mánuöum
með tilkomu annarrar útvarpsrásar,
rásar 2, sem svo hefur verið nefnd,
hefur að nokkm keyrt um þverbak
Og mönnum sýnist að nú væri mælirinn
fullur, þar sem ambögurnar hafa
óspart riðið húsum.”
Annars sýnist sæmilega séö fyrir
rokki, poppi og þungarokki og mdda-
rokki á rás 1, svo nokkuö sé nefnt af
„hljómlistinni”. Sumir segjast spila
ruddarokkið með blöðrupoppsivafi.
Þessi glaðningur Ríkisútvarps er ætl-
aður unga fólkinu. Mikil er umhyggjan
fyrir þeim ungu í landinu og er það veL
Það fer minna fyrir efni handa hinum
öldruðu, enda ekki hæfir i skoðana-
kannanir Rikisútvarpsins. Þar væri þá
heist að nefna kvöldvökurnar, sem
hafa þó sett ofan síðan þær vom einu
sinni í viku og þá lengi. —
Morgunþætti vil ég leggja niður.
Þulir sjái um morgunútvarp eins og
áður var. Enn síður mundi ég sakna
siðdegisþátta. Mörg samtölin litið
áhugaverð og verða leiðigjörn: Vanda-
mál þar og hér, fyrirtæki í vanda, afla-
brestur, vantar styrki o.s.frv. En það
er fróðlegt að vita hvað Ljónin leggja
sér til munns á sælkerakvöldum og um
„tóna hafsins” í Nausti. — Að lokum:
Eru „okkar menn” æviráðnir?
Um sjónvarp vil ég fátt segja. En
merkilegt finnst mér hvaö hægt er að
velja leiðinlegar kvikmyndir oft. Jóla-
myndin best þó sænsk sé. Augiýsingar í
jólakauptíö eru náttúrlega plága sem
við eigum að umbera vegna
Mammons. En þeir sem hrella okkur
svo herfilega eiga að borga helmingi
meira. „A döfinni” er eiginlega
ókeypis auglýsingar.
En hverjir fá nú næst viðurkenning-
arbréf frá útvarpsráði fyrir bestu aug-
lýsingarnar? Kannski hinar „frá-
bæm” og „smekklegu” auglýsingar
ríkissjóðs verði fyrir valinu, Háskóla-
happdrættið eða e.t.v. innheimtudeild
sjónvarps. Eða hringleikahús barn-
anna?
Norska sjónvarpið er næsta yfirhell-
ingin að sögn. Um þá uppákomu er
ekkiannaöaðsegjaenþetta: „Frestur
eráillu bestur”.
Um leið og komnar verða hér 10—15
„frjáisar” útvarps/sjónvarpsstöðvar,
hver með 5—10 þús. poppplötur,
hvemig eigum við þá að njóta herleg-
heitanna? Kannski 20 á toppnum á
hverri rás? Nú em 3 RUV-rásir, hver
ofaníannarri (sjónvarpmeðtalið).
Þá höfum við fengið nýjan útvarps-
stjóra. Veri hann velkominn. Okkur er
sagt að valinn hafi veriö hæfasti um-
sækjandinn og hafi þó hinir verið
hæfir. Ekki er aö efa aö Markús örn sé
hæfur en hitt vefst fyrir manni hvemig
ráðherra veit fyrirfram hver er gæf-
astur meðal hæfra. Og svo hitt, að
M.Ö.A. skyldi sækjast eftir því að
verða yfirstjómandi einokunarstofn-
unar — að hans dómi.
Löngu er vitað að ráðningar í hin
æðstu embætti svokölluð eru pólitísk-
ar. Ráðherrar vilja sjáifsagt skipa
hæfa menn í embætti en fyrst og síðast
þarf flokksskírteinið að vera klárt og
kvitt I samstjómum ræður kvótaskipting-
in, shr. bankastjórar nýráðnir.
Fyrst og síðast: Otvarpsráð burt,
póiitisku varðhundana, kosnir eftir
kvótaáalþingi.
Haraldur Guðnason.
VIÐ RÝMUM
VEGNA FLUTNINGA
TEPPABÚDIN
SÍÐUMÚLA 31
GERIMAX
GERIMAX
NÝTT
blAtt
GERIMAX
inniheldur
25% meira
gegn þreytu og streitu.
GERIMAX
GERIMAX
GINSENG
auk dagskammts
af vítamínum
og málmsöltum.
örvar hugsun og eykur orku.
GERIMAX
gerir gott.
Fœst í apótekum.
J
Nauðungaruppboð
annað og sföasta á hluta f Lindargötu 12, þingl. eign Baldurs Hólmgeirs-
sonar og Þuriöar Vilhelmsdóttur, fer fram eftir kröfu Gjaldheimtunnar í
Reykjavik og Árna G. Finnssonar hrl. á eigninni sjálfri mánudaginn 4.
febrúar 1985 kl. 11.30.
Borgarfógetaembættið I Reykjavik.
SMÁMJGLÝSINGAR DV
MARKAÐSTORG
TÆKIFÆRANNA
Þú átt kost á aö kaupa og selja
allt sem gengur kaupum og söíum.
Bara aö nefna paö í smáauglýsingum DV,
hinu ótrúlega markaöstorgi tækifæranna.
Markaöstorgiö teygir sig víöa. Þaö er sunnanlands
sem noröan, vestan sem austan, í bátum sem flug-
vélum, snjóbílum sem fólksbílum, hvarvetna er DV lesiö.
Einkamál. Já, þaö er margt í gangi á markaöstorginu,
en um hvaö er samiö er auövitaö einkamál hvers og eins.
Sumir borga meö fínpressuöum seölum.
Menn nýkomnir úr banka? Þarf alls ekki aö vera.
Gætu hafa keypt straubretti á markaðstorginu daginn áöur.
Smáauglýsingar DV eru markaöur meö mikinn mátt.
Þar er allt sneisafullt af tækifærum.
Þaö er bara aö grípa þau.
Þú hringir...
Við birtum...
Það ber árangur!
Smáauglýsingadeildin er í Þverholti 11.
OpiÖ: Mánudaga-föstudaga, 9.00—22.00
laugardaga, 9.00—14.00
sunnudaga, 18.00—22.00
Frjálst.ohað dagbiað
ER SMÁAUGLÝSINGABLADID