Dagblaðið Vísir - DV - 01.02.1985, Síða 16

Dagblaðið Vísir - DV - 01.02.1985, Síða 16
16 DV. FÖSTUDAGUR1. FEBRUAR1985. Hvafl ætlar þú afl gera um helgina? Siguröur Guðjónsson, vélstjórl að Geit- hálsi: Eg verð að vinna um helgina. Eg vinn vaktavinnu og þarf þar af leiðandi oft að vinna um helgar. Ingibjörg Jónsdóttir húsmóðlr: Eg ætla að vera heima hjá manninum mínum og slappa af í rólegheitunum. Guðrún Magnúsdóttir nemi: Eg fer í afmæli um helgina. A laugardaginn fer ég í barnaafmæli og á sunnudaginn í fullorðinsafmæli. Árni Hrafnsson sjómaöur: Eg verö að vinna um helgina. Fer í kvöld út á sjó. Eg finn ekkert fyrir þvi að vinna um helgar. Úlöf Hannesdóttir húsmóðir: Eg fer á þorrablót heima hjá mér á laugardag- inn og á sunnudaginn fer ég í sólarkaffi hjá Norðfirðingafélaginu þannig að nóg verður að gera h já mér. Spurningin Haukur Friðriksson bakarameistarl: Eg verð að vinna um helgina við bakst- urinn. En ég ætla líka að reyna aö taka það rólega og borða vel. Lúsarlaun í fiskvinnu Bónuskona skrifar: Hvenær ætla frystihúsaeigendur og jafnvel þjóðin öll að fara að meta störf fiskvinnslufólks og sjómanna? Gerir fólk sér yfirleitt grein fyrir því að undirstaða þjóðfélagsins byggist á störfum þessa fólks? Nú er flótti úr þessum störfum. Er einhver hissa á því? Eg er bónuskona i frystihúsi og ég segi fyrir mig að mælirinn er aö verða fullur hjá mér. Alltaf sömu lúsarlaunin. Eg hef góðan bónus en samt næ ég ekki sömu launum og fólk fær í byrjunarlaun í öörum greinum. Það er meira að segja betur borgað aö pressa nærbuxur af varnarliðs- manni uppi á flugvelli heldur en aö vinna við undirstöðuatvinnugrein okkar Islendinga. Er ekki eitthvað bogið við þetta? Eg hugsa aö margir viti ekki hvað það er að vinna í bónus í frystihúsi. Eg hef heyrt suma segja að það þurfi ekki að hugsa í þessari vinnu. Hvem- ig skyldi ganga að selja fiskinn á þeim mörkuðum þar sem samkeppn- in er mjög hörð ef ekki væri nein hugsun hjá þeim sem hann vinna? Fyrir þá sem ekki vita ætla ég að upplýsa að þetta er þrælavinna. Standa í sömu sporum allan daginn og djöflast. En þú veröur aö passa nýtinguna og eins gott aö taka alla ormana úr og beinin annars verð- urðu að gjöra svo vel að vinna þaö allt upp aftur því eftirlitið er strangt. Þaö eru ekki allir sem þola svona álag og ílengjast þess vegna ekki. Reyna frekar að £á einhverja létta vinnu og betur borgaða sem von er. En svo eru það konurnar sem þrauka og eru orönar þrautþjáifaðar i öllu sem snertir fisk. Þær eru líka að flýja úr fiskinum í önnur léttari störf. Hverjir eiga þá að vinna fiskinn? Eigum við ekki bara aö hætta að veiða fisk og setjast í einhvem skrif- stofustólinn? Ætli fáist ekki gott verð fyrir pappíra úti í Bandaríkjunum? Þá væri farið að miða allt við pappir enekkifisk. Mánaðarlaun í frystihúsi eru 12.842 krónur en umsamin lágmarkslaun eru 14.075 krónur. Hvemig semja þessir menn? Þeir sem vinna í bónus verða því að fá rúmlega 60 kr. á dag í bónus til þess að ná lágmarkslaun- um. Það er eins með uppsagnarfrest- inn sem við fáum. Ein vika, takk. Þó að þú sért búinn að vinna hjá sama atvinnurekanda í 10—20 ár skiptir það ekki máli! I samningum segir að segja megi fólki upp með viku fyrir- vara ef hráefnisskortur sé fyrir- sjáanlegur. Hvers konar samningar eru þetta? Það fólk sem kosið er til að semja fyrir okkur hefur tekist þaö heldur brösuglega. Er ekki hægt að fá almennilegan mannskap til aö semja fyrir okkur. Frystihúsaeig- andinn getur sagt þér að fara heim eftir viku ef honum hentar betur að selja fiskinn óunninn úr landi, en svo ef hagstæðara er að vinna hann í hús- unum þá þarf aö drífa þetta af, fá bara undanþágu hjá verkalýðsfélag- inu fyrir fólkið tU að vinna langt fram eftir nóttu því forða verður hrá- efninu frá skemmdum! Þeir hafa þetta aUt í hendi sinni. Það er bara eitt sem þarf. Samtök fiskvinnslu- fólks. Aö lokum vU ég segja þetta: Al- þingismenn! Hvernig væri að fara að vinna fyrir kaupinu sinu og koma svoUtlum jöfnuði á í þjóðfélaginu? Ein reið. Bónuskona spyr alþingismenn: „Hvernig vœri að fara að vinna fyrir kaupinu sínu og koma á svolitlum jöfnuði i þjóðfólaginu?" Lesendur Lesendur Lesendur Lesendur Hvers vegna ekki Whaml-hátíð? — Duran-Duran flytur kraftmikla og ferska tónlist, segir aðdáandi. Niður með Wham! 6509-6463 skrifar: Hvernig væri aö halda Wham!-hátíö á einhverjum skemmtistaðnum, t.d. Traffic. Eg veit um marga krakka sem hafa áhuga á þannig hátíð. Fyrir stuttu voru haldnar tvær Duran-Duran hátíð- ir. Sú fyrri var í Safari en hin síðari í Traffic. Eg veit ekki hve margir komu í Safari en í Traffic voru rúmlega 400 manns. Þetta er mikill fjöldi en ég er viss um að fleiri kæmu á Wham!-hátíð vegna þess að Wham! er best. Það ættu allir að vita sem hlusta á vin- sældalista rásar 2. Þess vegna vil ég æ-------------->- Hverjir eru bestir? Auðvitað félag- arnir í Whaml Bilelgandi skrifar: Eg hef oft rekið augun í skrif ein- staklinga á lesendasiðum dagblaöanna varðandi slaka þjónustu bifreiöaverk- stæða eða þá okur þeirra. Finnst mér yfir höfuð alltof lítið gert af því aö les- endur láti í ljós ánægju sína með það sem vel er gert og á ég þá ekki frekar við um bifvélaverkstæði en annað. Fyrir skömmu lenti ég í vandræöum með bifreiö mína og þurfti aö leita á náðir verkstæðis sökum þess að kunn- áttuleysi mitt varðandi bílaviðgerðir er svo að segja algert. Eg valdi Bif- reiðaverkstæði Asgeirs Kristófersson- hvetja alla Wham!-aðdáendur til að skrifa í blaðið svo að verði úr þessu. ar sem er að Armúla 24. Viðgerðin tók stuttan tíma, að því er mér fannst, og greinilegt var, þegar ég sá reikning- inn, að ekki voru óheiðarlegheit í heiöri höfð varðandi kostnað við viðgerðina. öll framkoma starfsmanna verkstæð- isins var til svo mikillar fyrirmyndar að ég hef aldrei kynnst ööru eins og hef ég þó oft þurft að leita á náöir verk- stæða með bifreið mína. Vil ég að end- ingu þakka starfsmönnum verkstæðis- ins fyrir frábæra þjónustu og eitt er víst að þegar næst bilar hjá mér fer ég með bílinn minn í Ármúlann jafnvel þótt ég gæti gert við hann sjálfur. Duran-Duran aðdáandi skrlfar: Þaö er alveg merkilegt hvað tónlist- arsmekkur sumra getur verið lélegur. Ekki alls fyrir löngu skaut upp kollin- um hljómsveit sem nefndi sig Wham! Margir ruku upp til handa og fóta meö stórar yfirlýsingar um að þetta væri svo sannariega besta hljómsveitin sem lengi hefði heyrst til. Svo gerir fólk sig að bjánum með því að heimta plaköt, hátíðir, heilu þættina í útvarpi og sjón- varpi með þessum fyrirbærum. Sannleikurinn er sá að hljómsveitin Wham! er hrútléleg! Hún hefur ekkert nýtt fram aö færa. Þessi lög sem heyr- ast þessa dagana í útvarpi og eiga að teljast ný láta i eyrum eins og margút- þynnt tugga. Maður fær velgju þegar maöur heyrir þessa súkkulaðimúsík sem ekkert á skylt við sköpun. Má ég þá heldur biðja um Duran- Duran. Það er hljómsveit sem veldur engum vonbrigðum. Þar er á ferðinni kraftmikil músík, alltaf eitthvaö nýtt og ferskt. Þeir liggja ekki á sköpunar- gáfunni, piltarnir í Duran-Duran. Hljómsveitin hefur svo sannarlega hitt í mark hér á landi. Þaö sýnir stór hóp- ur aðdáenda. Væri óskandi að útvarp og sjónvarp kæmu enn frekar til móts við þennan hóp en oröið er og flyttu lög hljómsveitarinnar eins oft og kostur er. Stöndum saman, Duran-Duran aðdá- endur! Fyrirmyndarþjónusta Skafti Jónsson hringdi: anir á vélinni og þvott sem eyöilagð- Eg vil lýsa ánægju minni með ist. Þetta kalla ég fyrirmyndarþjón- fyrirmyndarþjónustu sem ég fékk ustu sem sjálfsagt er að þakka rétt hjá umboðinu fyrir Völund þvotta- eins og þegar kvartað er vegna vélar. Umboðið bætti skilvíslega bil- slæmrar þjónustu. Frábærþjónusta hjá Bifreiðaverkstæði Ásgeirs Kristóferssonar

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.