Dagblaðið Vísir - DV - 01.02.1985, Side 36

Dagblaðið Vísir - DV - 01.02.1985, Side 36
FRETTASKOTIÐ SÍMINN SEM ALDREI SEFUR Sími ritstjórnar: 68-66-11. Auglýsingar, áskrift og dreifing, sími 27022. Hafir þú ábendingu eða vitneskju um frétt — hringdu þá i síma 68-78-58. Fyrir hvert fréttaskot, sem birtist eða er notað i OV, greið- ast 1.000 krénur og 3.000 krónur fyrir besta fréttaskotið i hverri viku. Fullrar nafnleyndar er gætt. Við tökum við fréttaskotum allan sólarhringinn. FÖSTUDAGUR 1. FEBRÚAR 1985. Þegar sjúkralið kom á staðinn lá farþeginn meðvitundarlítill á götunni en ökumaður kraup máttfarinn við hlið hans. EH DV-mynd S. Hljóp f rá læknum á sokka- leistunum Haröur árekstur varö milli tveggja bíla, Volkswagen Golf og Isuzu pall- bíls, viö Sætún skammt frá gatnamót- um Kleppsvegar og Laugamesvegar laust f yrir klukkan tíu í gærkvöld. Voru ökumaöur og farþegi annarrar bifreiöarinnar fluttir á slysadeiid Borgarspítalans. Þeir eru grunaöir um að hafa verið ölvaðir. Skipti það eng- um togum að þegar komiö var undir læknishendur strauk ökumaðurinn af sjúkrahúsinu. Hljóp hann út á sokka- leistunum og hvarf út í náttmyrkrið. Taldi lögreglan víst að maöurinn hefði náð í leigubíl fyrir utan. Areksturinn atvikaðist þannig að bíl- amir óku eins og þeir væru í kapp- akstri, austur Sætún, hvor á sinni ak- reininni. Missti ökumaður Golf-bifreið- arinnar vald á henni og rakst utan í hinn. Lenti bíllinn síðan upp á umferð- areyju og á ljósastaur. Draga varð Golf-bifreiðina burt meö kranabíl. -EH. Frá og með 1. febrúar er áskriftar- verð DV kr. 330,00 á mánuði. Verð blaðsins í lausasölu er óbreytt. Frá sama tíma er grunnverð auglýsinga kr. 198,00 hverdálksentímetri. Bílstjórarnir aðstoða SSJlDIBíLjRSTÖÐin LOKI Dýr verður Dorette ÖM Bflainnf lutningur Mótorskips í rannsókn: Framkvæmdastjóri i gæsluvarðhaldi Framkvæmdastjóri Mótorskips hf. var í gær úrskurðaður í fimm daga gæsluvarðhald vegna meintrar fölsunar á reikningum fyrirtækisins og tollalagabrota. Var gerð húsrann- sókn hjá fyrirtækinu í gær og í kjölfar þess var framkvæmdastjór- inn handtekinn. Ríkisendurskoðun hefur haft máUð til rannsóknar að undanfömu. Það var kært til ríkissaksóknara og rann- sóknarlögreglunni fengið málið. Fyrirtækið Mótorskip flytur inn bifreiðar frá Þýskalandi, m.a. af tegundinni Toyota. Hefur Mótorskip haft samvinnu við fyrirtæki í Þýska- landi vegna bUainnflutningsins. Samkvæmt heimildum DV er hér um umfangsmikið fjársvikamál að ræða, þar sem stórar f járhæðir komi við sögu. -EH. Gengið frá búningunum fyrir ferðina til Frakklands. DV-mynd KAE Nýir búningar til landsliðsins Halldór Einarsson hjá HENSON, Flugleiðir og DHL, hraðþjónusta á islandi, hafa gengist fyrir þvi að senda nýja búninga til islenska lands- liðsins i handknattleik sem nú keppir i Frakklandi. DV skýrði frá því i gær að hluta af hvitu búningum landsliðsins hefði verið stolið í London þar sem landsliðið millilenti á leið sinni til Frakk- lands. Þrátt fyrir nokkra leit fundust búningarnir ekki. _sk. Ríkisst jórn og þingf lokkar: Mikil fundahöld um tillögumar ,,Þá verður nú aðalumræðan,” sagði Matthías Á. Mathiesen viðskiptaráð- herra í morgun í viötali við DV. Á ríkis- stjórnarfundi í dag verða hinar marg- nefndu efnahagstUlögur „aðalumræð- an”. Þrír ráðherrar sátu f und með forsæt- isráðherra í gær þar sem fjallað var um efnahagsmáUn. I hádeginu sátu ráðherrar Sjálfstæð- isflokksins fund og þar var þetta nýj- asta afkvæmi ríkisstjómarinnar til umræðu. Búist er við helgarfundum um tiUögumar því stefnt er að því að leggja þær fyrir fundi stjómarflokk- anna á mánudag. Ýmsar vangaveltur hafa verið uppi um þetta vinnuplagg forsætisráðherra. Sumir heimildarmenn DV segja að málið snúist eingöngu um hvemig eigi að hrinda í framkvæmd þeim hlutum sem löngu em ákveönir. Að standa við gefin loforð. -ÞG/HERB. Dorette í skaðabótamáli: „Fyrir hvað?” MálaferU söluaðila íslenskrar uUar- vöru í Bandaríkjunum hafa tekið á sig furðulega mynd. Ámi Egilsson og eig- inkona hans, Dorette, krefjast nú hárra skaöabóta, rúmlega 20 mUljóna doUara, af Sambandi íslenskra sam- vinnufélaga, Alafossi, Pólarprjóni, Hildu, Otflutningsmiðstöö iðnaðarins, Paul Johnson, tJlfi Sigurmundssyni og Jens Pétri Hjaltested. .Jfyrir hvað?” spurði Pétur Eiríks- son, framkvæmdastjóri Alafoss, í morgun. Ekki er nema von að Pétur spyrji því að Alafoss, og reyndar einn- ig Sambandið og Pólarprjón, kannast ekki við að hafa höfðað mál gegn fyrir- tæki Arna og Dorette, né að hafa veitt öðrum aðila umboð til málaferla. Þaö er vegna meintrar málshöfðun- ar íslensku fyrirtækjanna sem hjónin vestanhafs höfða nú gagnmál. Paul Johnson, lögfræðingur í Chi- cago og ræðismaður Islands, höföaði mál gegn fyrh-tæki hjónanna, að því er hann taldi, í umboði íslensku fyrirtækj- anna. -KMU. MANNSHVARFIÐ: Málið vekur mikla f urðu Leitin að Hafþóri Haukssyni ber enn engan árangur. Þykir hvarfiö mjög einkennilegt. Að sögn var Haf- þór bæði reglusamur og í góöu and- legu jafnvægi. Vekur furðu að jeppa- blfreiðin sem Hafþór ók skuli ekki koma i leitimar. Aö sögn lögreglu er ekkert sem gefur til kynna að hér sé á f erðinni sakamál. Greint var frá því í DV í gær að sést heföi til Hafþórs á Snæfellsnesi. Töldu nokkrir bæjarbúar í Olafsvík sig hafa séö piltinn þar um slóðir. Kona á pósthúsinu sá ungan mann klæddan leðurjakka sem henni þótti svipa tU Hafþórs. Þá tók starfs- maöur á hótelinu eftir sama manni. Haft var samband við lögregluna. Var máliö undireins kannað. Kom þá í ljós að viðkomandi maöur, sem líkt- ist Hafþóri svo mjög í útliti og klæöa- buröi, er Bolvíkingur sem var i heim- sókníOlafsvik. Margir hafa komið að máli við lög- regluna vegna hvarfsins. Að sögn lögreglu getur minnsta vísbending komið þeim á sporið. Leitin að Hafþóri heldur áfram. Eins og fram hefur komið í fréttum telja vitni sig hafa séð jeppabifreiö Hafþórs á ferð um Borgarfjörð daginneftiraðhannhvarf. -EH.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.