Dagblaðið Vísir - DV - 04.03.1985, Side 2
2
DV. MÁNUDAGUR 4. MARS1985.
Norðuriandaráðsþing sett í dag
Þing Noröurlandaráðs, það 33. t röðinni, varður sett i dag i Þjóðleikhúsinu. Karin
Söder hefur verið forseti ráðsins sl. ár. í dag verður Páll Pétursson kosinn forseti til
eins árs.
Tæplega átta hundruð manns koma hingað til íslands vegna þingsins, sem mun
vera fjölmennasti hópur manna í kringum Norðurlandaráðsþing hingað til.
í gœr kom hópur þátttakenda til landsins og tóku blaðamenn DV nokkra þeirra tali
á Keflavíkurflugvelli. Viðtölin fara hór á eftir.
-ÞG/APH.
Lennart Bodström, utanríkisráð-
herra Sviþjóðar.
Lennart Bodström,
utanríkisráðherra
Svíþjóðar:
„Sá engan
kafbát”
„Nei, ég sá engan kafbát á leiðinni
hingað. Ég hef bara séð kafbáta þar
sem þeir eiga að vera,” sagði Lennart
Bodström, utanríkisráðherra Sví-
þjóðar, er hann var spurður hvort
hann hefði séð kafbáta á leiðinni. Bins
og kunnugt er hefur hann átt í vök að
verjast vegna ummæla um kafbáta við
strendurSvíþjóðar.
— Hefur Norðurlandaráð enn
einhverju hlutverki að gegna?
„Það er áhugavert að þegar ég hef
verið á ferðum í Austur-Asíu hef ég
oröið var við áhuga manna þar á að
stofna samtök landa, sem þar liggja.
Þar er mikill áhugi fyrir því að kynnast
starfsemi og uppbyggingu Norður-
landaráðs. Ég hef reynt að útskýra
fyrir mönnum þar að norrænt sam-
starf hefur þróast frá grunni í gegnum
að fólk hittist, félög og samtök.
Stjórnmálasamstarfið hefur síðan
komið eftir á og vaxið án nokkurrar
þvingunar.”
— Hvert er stóra máhð, að þínu
mati, á þessu þingi?
„Það er erfitt fyrir mig að dæma um
það, því hér verða til umfjöllunar
fjölmörg mikilvæg málefni. Það mál
sem ég kem til með að fylgjast sér-
staklega með er samstarf Norðurland-
anna á sviði þróunarhjálpar. Við
höfum átt mjög gott samstarf á því
sviði, sérstaklega í sambandi við
Afríkulöndin.” -aph.
Anker Jörgensen,
formadur danska
Jafnaðarmanna-
flokksins:
Engin
afskiptasemi
af innanríkis-
málum héma
„Um þetta hef ég það að segja að
þegar systur- eða bróðurflokkur minn
á Islandi hefur svo ekki verður um
villst skipt um skoðun í þessu máli, þá
finnst mér sjálfsagt að ég taki þátt í
málinu þó að aðrir flokkar eöa hópar
standi bak við það. Einnig er ég sömu
skoöunar í þessu málefni.
Hins vegar er það svo að milU líkra
flokka er það óskrifuð regla að maður
eigi ekki að ganga þvert hvor á annars
stefnu,” sagði Anker Jörgensen, fv._
forsætisráðherra, um viðbrögð Jóns
Baldvins Hannibalssonar vegna þátt-
töku hans á fundi hér á landi um kjarn-
orkuvopnalaust ísland. Anker átti aö
vera einn ræðumanna á þessum fundi,
sem haldinn var í gær. Hann komst
reyndar ekki á hann vegna seinkunar á
flugi, Jón Baldvin, flokksbróðir Ank-
ers, telur þetta vera óskiljanlega af-
skiptasemi af innanríkismálum Islend-
inga.
— Jón Baldvin segir þetta vera
óskiljanlega afskiptasemi í þér?
„Ég verð að segja aö ég tel þetta
ekki vera afskiptasemi. Ég hef gengið
út frá því að verkalýðshreyfingin
standi á bak viö þau sjónarmið sem
átti að túlka á þessum fundi.”
— En ætlar þú að hitta Jón Baldvin
aðmáU?
„Ja, ég geri ráö fyrir að ég komist
ekki hjá því. Ég hef reyndar engar sér-
stakar óskir þess efnis, en býst við því
að ég ræði við hann.”
APH.
Anker Jörgensen, formaður
Jafnaðarmannaflokksins í Dan-
mörku.
Olof Palme, forsætisráðherra Sví-
þjóðar.
Olof Palme,
forsætisráðherra
Svíþjóðar:
„Tímamóta-
þing”
„Þetta Norðurlandaráðsþing verður
mjög þýðingarmikið,” sagði Olof
Palme, forsætisráðherra Svíþjóðar,
við komuna til Islands í gær. Þetta er í
sjöunda eða áttunda skiptið sem Olof
Palme kemur til Islands. Síðast var
hann hér á ferð í desember.
„Ég býst við að þingið núna marki
tímamót fyrir norræna sam-
vinnu,” sagði forsætisráðherrann
ennfremur. Þau málefni sem verða
efst á baugi eru atvinnu- og efnahags-
þróun á Norðurlöndunum.
Olof Palme fer héðan aftur í fyrra-
málið.
-ÞG.
flokksins í Noregi og fyrrverandi
forseti Norðurlandaráðs.
Jo Benkow,
þingmaður norska
Hægriflokksins:
Munum ræða
um sjávar-
útvegsmál
„Ég tel aö Norðurlandaþing sé mikil-
vægur fundarstaöur fyrir þá stjórn-
málamenn sem eru í forystu á Norður-
löndum.
Nú getur þaö haft mikla þýðingu
fyrir okkur Norömenn að hitta Islend-
inga. Við höfum margt að tala saman
um, ekki síst málefni i tengslum við
sjávarútvegsstefnu landa okkar. Þetta
atriði þingsins verðum við þvi að vona
að sé jákvætt aukahlutverk þess,”
sagöi Jo Benkow, formaður norsku
fulltrúanna á Norðurlandaþingi. Hann
er einnig fyrrverandi formaöur Hægri-
flokksins þar.
Hann sagði að umræðan um sjávar-
útvegsmál ætti ekki heima á þinginu
sjálfu. Hins vegar væri það ljóst að
hlutaðeigandi aðilar ættu eftir að hitt-
ast.
„Við getum útskýrt okkar sjónarmið
og það er mun betra að hittast augliti
til auglitis.”
— Svo þú ætlar að ræða niður-
greiðslu til sjávarútvegsins í Noregi?
„Ég ætla að minnsta kosti að kynna
mér þessi mál á islandi. En um hvað
þessar umræöur verða hef ég enga
skoðunáennþá.” APH.
Rolf Presthus, fjármálaráðherra
Noregs.
Rolf Presthus,
fjármálaráðherra
Noregs:
Stærsta skref
í tugi ára
„Mikilvægasta málið á þessu þingi
verður líklega umræðan um samstarf
Noröurlandanna á sviði efnahagsmála
sem fjármálaráðherrar Norðurland-
anna samþykktu á fundi sínum í
Helsingfors í janúar.
Ef þetta á eftir að fá jákvæða um-
fjöllun á þinginu tel ég að þetta eigi
eftir aö verða eitt það stærsta þróunar-
skref í norrænni samvinnu sem hefur
verið stigið í tugi ára,” sagði Rolf
Presthus, fjármálaráðherra Noregs,
um hvað væri mikilvægasta málefni
þings Norðurlandaráðs að þessu sinni.
— Hyggst þú hitta fjármála-
ráöherra okkar, Albert Guðmundsson,
aðmáli?
„Já, það er ljóst að þegar ég er á
íslandi, þá mun ég hitta Albert
Guðmundsson fjármálaráðherra, sem
ég reyndar þekki frá öðrum norrænum
fundum sem við höfum setið.”
-APH.
Kalevi Sorsa, forsœtisráðherra
Finnlands.
DV-mynd GVA.
Kalevi Sorsa:
forsætisráðherra
Finnlands:
Opnar leiðir
fyrir Finnland
„Norðurlandaráð gegnir mikilvægu
hlutverki fyrir okkur Finna,” sagði
Kalevi Sorsa, forsætisráöherra Finn-
lands, er hann var spuröur hvort Finn-
land nyti góðs af samstarfi Norður-
landanna.
„Ég tel að Norðurlandaráð geti opn-
að leiðina að umheiminum bæði að
öðrum iönríkjum og að þróunarlöndun-
um. Frá okkar bæjardyrum séð tel ég
að þetta samstarf geti opnað marga
möguleika fyrir Finnland.”
— Hvað telur þú vera eitt af mikil-
vægustu málum komandi þings?
„Eitt af stóru málunum fyrir okkur
er samstarfið við löndin á þurrkasvæð-
um Afríku. Við leggjum mikla áherslu
á þaö mál.
Svo eru það að sjálfsögðu fjölmörg
önnur mál sem eru mikilvæg.”
APH.
Antti Tuuri rithöfundur,
bókmenntaverðlauna-
hafi Norðurlandaráðs:
„Það verður
stórstund”
„Ég tók dóttur mína Hönnu með í
þetta skiptið til Islands,” sagði Antti
Tuuri, finnski rithöfundurinn á Kefla-
víkurflugvelli í gær. Hann var greini-
lega ekki aö koma til tslands í fyrsta
skipti því hann nefndi marga staði sem
hann ætlar að sýna dóttur sinni. Meðal
annars stendur til að þau fljúgi til Vest-
mannaeyja.
„Það verður stór stund,” svaraði
Antti Tuuri, aðspurður um athöfnina ,í
Antti Tuuri rithöfundur.
Háskólabíói á þriðjudagskvöld. Þá
mun hann taka á móti bókmennta-
verðlaunum Norðurlandaráðs fyrir
bók sína Ostbotten.
„Það verður ánægjulegt að taka á
móti verðlaunum hér,” sagði hann.
Fyrsta bók Antti Tuuri í íslenskri
þýðingu er væntanleg á markaðinn á
þessu ári.
-ÞG
Karin Södar, fráfarandi forseti
Norðurlandaráðs.
Karin Söder, forseti
Norðurlandaráðs:
„Gaman að
vera komin
aftur
til ísiands”
Karin Söder, forseti Norðurlands-
ráðs, var tekin tali á Keflavíkurflug-
velli í gær. Sérstök leiguflugvél kom
rétt eftir hádegi í gær með 180 Svía
sem sitja Norðurlandaráðsþing, flestir
fram á föstudag.
„Þingið hér í Reykjavík verður afar
mikilvægt og það er gaman að vera
komin eina ferðina enn til Islands,”
sagði Karin Söder, forseti ráðsins og
fyrrverandi utanríkisráðherra. Hún
nefndi þýðingarmikil mál sem til um-
ræðu verða á þinginu, svo sem sam-
göngu- og viðskiptamál, sem að
hennar mati eru þýðingarmikil.
Karin Söder mun dvelja hér fram á
föstudagskvöld, en þinginu verður
slitið um miðjan dag á föstudag.
-ÞG
Christian Christensen,
umhverfismálaráðherra
Danmerkur:
„Mikilvægar
umræður um
hðfuðmálin tvö”
„Ég vænti mikilvægra umræöna um
höfuðmálin tvö sem verða hér til um-