Dagblaðið Vísir - DV - 04.03.1985, Blaðsíða 16
16
DV. MÁNUDAGUR 4. MARS1985.
Spurningin
Styður þú kennara
í kjarabaráttu
þeirra?
Anna Kristjánsdóttir vinnur á skrif-
stofu: Já, ég styö þá í þeirri baráttu
alveg hikstalaust.
Páll Helgason trésmiður: Ég styö
bæöi baráttu kennara og baráttu-
aöferöir þeirra.
Aðalsteinn Pétursson verslunar-
stjóri: Eg hef bara ekki kynnt mér
málið nægjanlega til að geta tekið af-
stöðu.
Páll Halldórsson afgreiðslumaður:
Ég styö alla til bættra kjara, hverjir
sem hlut eiga aö máii.
Þórunn Þorkelsdóttir húsmóðir:Já,
ég geri þaö aö mestu leyti en er ekki
alveg sátt viö þær aðferöir sem þeir
beita.
Hrefna Friðgeirsdóttir bókari: Já, ég
geri þaö nú reyndar en er ekki fyllilega
sátt viö þær leiðir sem þeir fara í
henni.
Lesendur Lesendur Lesendur Lesendur
FYRIRMYNDARRÍKIÐ
Sundurlyndi íslendinga stingur bréfritara í augun.
Gunnar M. Gunnarsson kennari
skrifar:
Viö Islendingar erum stoltir af
þjóö okkar, í þaö minnsta segjumst
vera það. Við viljum aö aörir fái þá
mynd af okkur aö viö séum ein órofa
heild.
Nú er þessi „órofa heild”aö gliðna.
Ástæðan er peningar, þetta fyrir-
bæri, sem stjómar lífi somra, eyði-
leggur lif annarra, en sem allir verða
að hafa eitthvað af til aö framfleyta
sér í okkar nútímaþjóðfélagi. Hér er
ég aö tala um laun manna. Laun
þiggja menn fyrir vinnu sína. Þeir
sem vinna vel, eru samviskusamir
og vinna fyrir góöan vinnuveitanda
fá oft greitt vel. Þaö er mjög gott, og
eðlilegt, finnst mér. Hins vegar
virðast þessi atriði ekki skipta neinu
lengur, þvi launamál á tslandi eru
komin í ákveöinn farveg sem ekki
verður losnað úr. Ákveönar stéttir
hafa komiö sér vel fyrir og berjast
síðan meö kjafti og klóm til þess að
halda sínum stað. Þetta vitum viö
öll. Við vitum þaö líka aö hæstu laun
eru meira en tíföld lægstu laun.
Hugum nú aö ööru. Tortryggni
manna og stétta é milli er orðin
meinsemd í samfélagi okkar. Um
það þarf ekki aö hafa langt mál, en
viö skulum líta á nokkur dæmi um
„athugasemdir” sem viö öll
þekkjum: „Þessir iðnaöarmenn eru
nú meiri svikaramir. Ekki er nóg
með að þeir tvöfaldi laun sín meö
uppmælingu, heldur vinna þeir allt
sem þeir geta í svartri vinnu, og
svíkja svo heila klabbiö undan
skatti! ”, eöa: „Læknamafían kann
nú sitt i peningamálunum. Þeir
standa vaktir og aftur vaktir, og ef
þeir eru nógu hátt settir eru þeir á
bakvöktum allan ársins hring án
þess að þurfa aö sinna þeim. Svo
hiröa þessir menn eitt til tvö hundruö
þúsund i laun á mánuði!”. Þennan
þekkjum við líka öll: „Þessir
kennarar, þetta eru ekkert nema
kommúnistar og letingjar sem nenna
ekki aö stunda neina ærlega vinnu.
Og svó liggja þeir í sumarfríi í þrjá
mánuði á launum!”. Svo er þaö
þessi: „Þaöer eðlilegt aðþaðsé yfir-
fuilt í lagadeild Háskólans. Þar biða
menn í röðum eftir því aö læra aö
svíkja undan skatti og dreymir ullar-
frakka og Range Rovera!” Og
sjómennimir, sem mest afla i
þjóöarbúið, fá líka sinn skammt:
„Þessir andskotar moka upp loðnu í
fimm, sex mánuöi á ári og lifa svo
eins og greifar á ráöherralaunum! ”
Fróðir menn segja að þessi vit-
leysa öll eigi rætur sínar aö rekja til
stríösáranna. Þá hafi Islendingar
lært að svíkjast um. Um það get ég
ekki dæmt, en hitt veit ég, aö þaö er
eitthvað mikiö aö. Engan þekki ég
sem svíkst um við vinnu sína, en ég
veit vel aö 230 þúsund manna
samfélag getur vel séö til þess aö
allir hljóti réttlát laun fyrir vinnu
sína. Ég veit líka aö Islendingar vilja
búa saman í bróöerni, í staö þess aö
láta peninga, nú eöa skort á þeim,
tvístra liðinu. Málin, eins og þau eru
í dag, eru hins vegar hnútur sem
menn höggva ekki á inni í stofu
heima hjá sér. Hér kemur til kasta
ráðamanna. Véfréttir úti í heimi
hafa spáð því aö um aldamótin næstu
veröi Island „Fyrirmyndarríkiö”.
Látum nú þessa spá endilega rætast.
Til þess þarf svolitla uppstokkun
sem stjómvöld veröa að stýra, en ef
þjóðin vill er þetta vel hægt. Þá
þurfum viö ekki að lita undan þegar
bamabörnin og bamabamabörnin
vilja horfast í augu viö okkur.
Bandarísk radsjérstöð í Alaska.
Andstaða gegn ratsjárstöðvum:
Einskorðast ekki
við kommúnista
Henný Bæringsson skrifar:
Ég vil leiörétta þann misskilning
sem kom fram hjá Alfreð Jónssyni,
fyrrum oddvita í Grímsey, í frétt í DV
þann 16. febr., þar sem hann hélt því
fram aö allir sem væm á móti ratsjár-
stöövum væru kommúnistar. Ég hef þá
trú aö það hljóti aö finnast fólk í öllum
stéttum og stjómmálaflokkum þessa
lands sem setur öryggi íslands ofar
öryggi USA.
Stórfurðulegt
réttarkerfi
Kona hringdi:
Ég var að lesa frétt í DV þar sem
segir frá íslendingi sem er búinn aö
sitja inni í spönsku f angelsi núna í hálft
ár án þess aö mál hans hafi veriö tekið
fyrir. Ég á bara ekki eitt einasta orð til
að lýsa furöu minni á þessu máh.
Maðurinn er einasta grunaöur um
innbrot en ekkert hefur þó sannast á
hann. Ég skil bara ekki hvernig svona
nokkuð getur viðgengist. tsland hefur
að mínu mati það mikil viðskipti og
samband viö Spán að einhverjar
reglur ættu aö gilda, þannig að slíkt
gerist ekki. Aö öðrum kosti má fólk
hugsa sig tvisvar um áöur en þaö
feröast þarna suöur eftir. Það getur
falUð grunur á þaö og það verið hand-
tekið án þess að þaö fái nokkra björg
sér veitt, nema þá meö fjárútlátum.
„Allt láta íslendingar
bióðasér”
Kristín hringdi:
Nú get ég ekki lengur orða bundist
yfir sögunni sem nú er á kvöldin í
útvarpinu. Hvílík þvæla. Svo ekki sé
talað um sjúklegt kynferðisröfl sem aö
öUu jöfnu á aö vera fallegt. Erum viö
Islendingar virkilega svo fátækir í
anda aö við þurfum að hlusta á annaö
eins og Morgunverð meistaranna?
Mér fannst GísU Rúnar ágætur í
kaffibrúsaköUunum en þetta finnst
mér ekki vera hans rétti vettvangur.
Þaö viröist sem allir geti farið með
hvaö sem er í útvarpið og lesið þaö
upp. Mér fyndist réttast að komiö yröi
upp kassa líkt og er í Hyde Park og þar
gæti fólk staðið upp og sagt áUt sitt.
Já, allt láta Islendingar bjóöa sér.
Howard-Jones-hátíð
1920—1511 hringdi:
Ég hef áhuga á að fá Howard Jones
hátíð í Traffic. Howard Jones er alveg
jafnvinsæU og Duran Duran og Wham!
i heimalandi sínu og lög hans eru ofar-
lega á vinsældarUstum þar sem og hér
á landi.