Dagblaðið Vísir - DV - 04.03.1985, Blaðsíða 50
50
DV. MÁNUDAGUR 4. MARS1985.
Sambandsskuldabréf in að sel jast upp:
Skuldabréf fyrírtækja renna út
Skuldabréfaútboð Sambands greinilegahrifiðmarkaðinn.50minj. sögn dr. Sigurðar B. Stefánssonar, dag bauð Skeifan 15 hf. út 22—23 Að því er Sigurður tjáði DV er
islenskra samvinnufélaga hefur króna bréf eru að verða uppseld, aö hagfræðings í Kaupþingi hf. 1 fyrra- milljóna bréf, sem renna strax út. skuldabréfasalan á markaðnum aö
langmestu leyti byggð á fyrirtækja-
bréfum. Þau eru með mismunandi
háum ársarði. Ársávöxtun SlS-bréf-
anna er 10,7% en Skeifubréfanna
13%. Það er algeng ávöxtun, en hún
getur orðið hærri. Skeifan 15 hf. er
meöal annars eigandi hússins sem
Hagkaup leigir og verslar í.
-HERB.
Húsavík:
Sýning64
listamanna
A sl. ári var Æskulýössamband
kirkjunnar 25 ára og sumarbúðir ÆSK
við Vestmannsvatn 20 ára. I tilefni af
afmælum þessum var ákveöið að gera
endurbætur á húsnæði sumarbúðanna
og er áætlaður kostnaður 700 þúsund
krónur. Til fjáröflunar fyrir verkefni
þetta gekkst Gunnar Rafn Jónsson
læknir á Húsavík fyrir sölusýningu á
verkum 64 listamanna i Safnahúsinu á
Húsavík nú um helgina.
Listamennimir hafa allir gefið verk
sín til styrktar málefninu.
Gunnar, sem unnið hefur lengi ötul-
lega að æskulýðsmálum kirkjunnar,
sagðist mjög þakklátur listamönnun-
um og einnig f jölmörgum einstakling-
um og fyrirtækjum sem styrkt hafa
þetta framtak. Sýningunni lýkur
klukkan 22 í kvöld, mánudagskvöld.
-EH.
Hveragerði:
Hreppsnefnd-
in ósammála
Gísla á Grund
Gísli Sigurbjörnsson, forstjóri
Dvalarheimilisins Áss í Hveragerði,
vlll gefa hjálparsveit staðarins 100
ferm hús undir starfsemi hennar. Gisli
hefur stutt hjálparsveitina um árabil.
Aösetur hjálparsveitarinnar er nú i
húsi í miðjum bænum. Gefandinn
hefur óskað eftir því að fyrmefnt hús
veröi byggt viö það gamla. Við hliöina
á núverandi húsi er auð lóð og ekkert
virðist vera því til fyrirstöðu að þar
verði byggt.
Nú víkur sögunni til hreppsnefndar.
Þar hefur því alfarið verið hafnað að
fyrirhugað hús verði byggt. Þar er
ekki gert ráð fyrir því að hús þessarar
tegundar standi. Hins vegar hefur
hreppsnefndin boöiö hjálparsveitinni
lóö eöa jafnvel lóðir annars staðar. Og
að hún geti fengið lóð endurgjalds-
laust.
Gísli Sigurbjörnsson, sem vill gefa
húsiö, er á móti því að þaö verði byggt
annars staðar en við það gamla. Og
þar við situr nú. Hann segir aö ef sveitin
eigi að byggja nýtt hús verði það allt of
dýrt fyrir hjálparsveitina. Hann telur
upplagt aö byggja þama i miðbænum
og segist jafnframt ekkert skilja í þess-
ari vitleysu sem upp er komin í málinu.
-APH.
Athugasemd
IDV á f immtudag var stutt viðtal við
Sigríði Dúnu Kristmundsdóttur alþing-
ismann, en í fyrradag var frumvarp
hennar um átak í dagvistarmálum til
umræöu í efri deild Alþingis. Þar sagði
aö þetta tiltekna þingmál væri annaö
þingmálið af þingmálum Samtaka um
kvennalista sem afgreiðslu hefði feng-
ið. Það er rétt, en í fréttinni stóð „sem
afgreitt hefði verið úr nefnd og
samþykkt”. Þetta frumvarp var af-
greitt úr nefnd en ekki var einhugur i
nefndinni um fjáröflun til átaks í dag-
vistarmálum.
Samþykkt var frumvarpið ekki, því
var vísað til ríkisstjómarinnar, þar er
framtið þess óráðin.
Hj á embætti skattrannsóknarstjóra er unnið
í þágu þeirra sem hafa framtalið í lagi
Þarer unnið
fyrir þig
Það er sjálfsagður réttur allra heiðarlegra skattgreiðenda að eftirlit sé haft
með þeim sem reyna að brjóta lög og svíkja undan skatti. Hjá embætti
skattrannsóknarstjóra vinna sérfróðir menn með aðstoð nýjustu tölvutækni
við slíkt eftirlit.
Hluti starfs þeirra felst í fyrirbyggjandi aðgerðum - heimsóknum í fyrirtæki
vegna almenns eftirlits og til ráðgjafar.
Með fjölgun starfsmanna og tölvuvæðingu má nú fara yfir margfalt fleiri
framtöl og reikninga á mörgum sinnum skemmri tíma en áður. Samanburður
allra fyrirtækja í sömu starfsgrein er fljótlegur. Til dæmis tekur aðeins
skamma stund að sjá hvernig hlutfallið milli heildarveltu og skattskyldrar
veltu lítur út í rekstrarreikningi fyrirtækis.
Skattrannsóknarstjóri skal hafa meö
höndum skatteftirlit og rannsóknir. Hann
skal fylgjast með eftirlitsstörfum
skattstjóra, leiðbeina um eftirlitsaðgerðir og
veita þeim upplýsingar um atvinnugreinar,
atvinnuvegi eða önnur atriði sem þýðingu
hafa við skatteftirlit. Skattrannsóknarstjóri
getur hafið rannsókn á hverju því atriði er
varðar skatta, lagða á samkvæmt lögum.
FJARMALARAÐUNEYUÐ