Dagblaðið Vísir - DV - 04.03.1985, Blaðsíða 22

Dagblaðið Vísir - DV - 04.03.1985, Blaðsíða 22
22 DV. MÁNUDAGUR 4. MARS1985. r AEROBIC — Konur! Konur! Hressandi námskeið er að hefjast í leikfimi í líkamsræktar- stöðinni Orkubankanum, Vatnsstíg 11. • Ath. Aðgangur í þrektæki er innifalið í verðinu. • Tímapantanir í síma 21720. STÆRÐ: hæð 710 mm Sýnishorn á staðnum. breidd dýpt 763 mm 533 mm ÞYRILL SF., Hverfisgötu 84, sími 29080. Skór f rá Nýjasta línan í ökklaskóm Leðurskór með nýju sniði Litur: svartur. Kr. 2.286,- Laugavegi 11, R, Sími 21675. Franskar kartöflur á veitingastað. Veitingamenn vilja frekar þær erlendu. Er verið að kasta 10 milljóna króna kartöflu- niðurgreiðslunni á glæ?: Veitingahúsin kaupa aðallega innfluttar franskar kartöflur „Eru miklu boðlegri,” segir yf irmatreiðslumaður Hótel Esju—„Neytendur vilja fyrst og f remst góðar kartöf lur” „Þetta er alveg óskiljanlegt. Þaö virðist endalaust hægt að hlaupa undir bagga með þessum mönnum,” sagði Magnús Magnússon hjá Garra hf., einu stærsta innflutningsfyrirtækinu á frönskum kartöflum hérlendis, um samþykkt Sjálfstæðisflokksins um að greiða niður kartöflur til kartöfluverk- smiðjanna tveggja. Samkomulag þingflokksins felst í því að kartöflur til kartöfluverksmiðj- anna verða greiddar niður um 12 krónur kílóið, og verði þær niður- greiðslur í sex mánuði, eða til 1. september næstkomandi. Rætt er um að þetta hafi í för með sér 10 milljóna króna útgjöld ríkissjóðs. En er verið að kasta þessum 10 milljónum króna á glæ? Því er nefni- lega haldið fram að samkeppnisgrund- völlur verksmiðjanna hafi lítið skánaö. Hvers vegna? Jú, þær séu ekki meö eins góðar kartöflur og innflutnings- fyrirtækin. „Neytendur vilja fyrst og fremst góðar kartöflur. Þeir sækjast eftir gæöunum. Þess vegna eru innfluttu kartöflumar meira seldar,” segir Magnús hjá Garra hf. Hann virðist hafa nokkuð til síns máls. Markaðurinn fyrir frönsku kartöflumar er fyrst og fremst á veitingahúsunum, þau eru langstærsti markaöurinn. Og veitingahúsin kaupa miklu frekar innfluttar kartöflur. „Minna af smælki og rusli" Við spuröum Kristján Sigurbjöms- son, yfirmatreiðslumann á Hótel Esju, hver skýringin væri. „Við kaupum þær innfluttu frekar einfaldlega vegna þess að þær eru betri, betur flokkaðar, og í þeim er minna af smælki og rusli. Þær koma betur út, þó kílóið af þeim sé dýr- ara. Þærnýtastbetur.” Kristján sagði ennfremur að þær innfluttu væru kannski ekki bragð- betri, slíkt væri lika ávallt smekks- atriöi hvers og eins. En þær eru miklu boðlegri. Ég hef rætt þessi mál við forsvars- menn kartöfluverksmiðjanna tveggja en því miður hafa verksmiðjumar enn ekki náð að bæta úr þessum vankönt- um,” bætti Kristján við. Nú er taliö að til séu um 18 þúsund tonn af kartöflum í landinu. Almennt er talið að niðurgreiðslumar auki sölu verksmiðjanna tveggja nokkuð. Þó engan veginn nægilega til að eyða kart- öflufjallinu. Annaö kemur líka til. Hjá forráðamönnum verksmiðjanna gætir nefnilega ákveðins ótta um að innflytjendumir lækki veröið á frönsku kartöflunum í kjölfar niðurgreiðsl- anna. Þannig virðist 70% tollur og 24% vörugjald, sem lagöist á um siöustu áramót, og nú niðurgreiðslur, ekki ætla að vemda innlendu framleiðsluna nægilega. Metuppskera í Evrópu Til að átta sig betur á verði innfluttu kartaflanna, þá var metuppskera í Evrópu á síöasta ári. Framboðið jókst gíf urlega og verö kartaflanna lækkaöi. „Auövitað ætti þetta einnig að vera svona hérlendis,” segir Magnús Magnússon hjá Garra hf. Kílóið af kartöflunum til erlendu verksmiðjanna kostar um 3 kr. en kílóið til íslensku verksmiðjanna hefur kostað 23 kr. og lækkar væntanlega niður í um 11 krónur eftir niður- greiðslumar. En hvað segir varaformaður Sjálf- stæðisflokksins, Friðrik Sophusson, um samkomulag þingflokksins. Er hann ánægður? „Það voru skiptar skoðanir um þetta mál innan þingflokksins. En það var leyst. Og þegar menn leysa mál þurfa allir að slá af sínum kröfum. Sjálfum finnst mér hægt að fallast á tíma- bundnar niðurgreiðslur við svona aðstæður.” Um hvað var svo deilt á þingflokks- fundinum? Sumir þingmenn flokksins vildu fara sömu leið og framsóknar- menn og banna innflutning á kartöflun- um, þegar islenska framleiöslan væri svona mikil. „Meirihluti þingflokksins var á móti þessu, bann kom alls ekki til greina,” sagði Friörik. -JGH. Kartöfluiðnaður hér á landi. Hann nýtur mikillar tollverndar og vœntanlega einnig tiu milljóna króna niö- urgraiðslustyrks.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.