Dagblaðið Vísir - DV - 04.03.1985, Side 9
DV. MÁNUDAGUR 4. MARS1985.
9
Útlönd
Útlönd
Útlönd
Útlönd
Harðorðar yfirlýsingar Mannróttindanefndarinnar um aðferðir Sovét-
manna gegn ibúum Afganistan vekja athygli vegna þess að yfirleitt þykir
ekki við hæfi að nota of sterkt orðalag hjá þeirri stofnun.
Sovétar í Afganistan:
Pyntingar, fjölda-
morð og aftökur
— segja Sameinuðu þjóðimar
Óskar Magnússon, DV, Washing-
ton:
Haröar ásakanir í garð Sovétríkj-
anna vegna innrásarinnar í Af ganistan
koma fram í nýrri skýrslu sem skýrt
var frá hér í Washington um helgina.
Skýrsla þessi er unnin á vegum
Mannréttindanefndar Sameinuðu
þjóöanna. Þykja ásakanirnar sýnu
alvarlegri vegna þess að Mannrétt-
indanefndin tekur alla jafna ekki svo
djúpt í árinni sem gert er í þessari
skýrslu.
Sovétmenn eru ekki nefndir á nafn í
skýrslunni en erlendar hersveitir
sakaðar um sprengjuárásir á þorp,
fjöldamorð og aftökur skæruliða sem
berjast gegn stjóminni. Fulltrúi
Bandarikjamanna í nefndinni segir að
þetta se í fyrsta skipti sem hulunni sé
raunverulega svipt af aðgerðum Sovét-
mannaí Afganistan.
I skýrslunni kemur meðal annars
fram að 360 manns hafi verið drepnir á
einum og sama deginum i árásum á
þrjú þorp í Afganistan.
Fyrir aöeins tæpum mánuði undirrit-
aði Afganistan samkomulag hjá
Sameinuðu Þjóðunum þar sem pynt-
ingar eru bannaðar. Þykir skýrsla
þessi ekki síður áhrifamikil fyrir það.
Treholt skrökvaði
um klámmyndimar
Var aldrei þvingaður af KGB
Frá Pétri Ástvaldssyni, fréttaritara
DV i Osló:
Arne Treholt endurtók margsinnis í
réttarhöldunum á laugardagað margt
af því sem fram kom í yfirheyrslunum
yfir honum fyrir ári hafi veriö hreinn
uppspuni.
„Eg skáldaði þvi miður ýmislegt
sem gaf til kynna að ég hefði verið
beittur þvingunum af KGB,” sagði
Treholt. Thor Aksel Busch saksóknari
minnti á að eftir handtökuna hefði
Treholt sagst vera hræddur um að KGB
myndi gera syni sinum eitthvaö til
miska ef hann héldi ekki áfram sam-
starfinu. Nú segist Treholt hafa sagt
þetta til að fá samúð leynilög-
reglunnar.
Samkvæmt upphaflegum framburði
Treholts segist hann hafa séð myndir
úr svallveislu í Moskvu hjá KGB-
manniniun Titov og sér hafi verið hót-
aðmeð þeim.
Þessa sögu ber Treholt nú aö hluta til
til baka. Hann hafi viljað láta í það
skína að KGB hafi þvingað hann en
staðhæfir nú að um slíkt hafi aldrei
verið aöræða.
Saksóknari hefur nú lokið yfir-
heyrslum sínum yfir Arne Treholt að
sinni en í dag mun Ulf Underland
verjandi hefja sína yfirheyrslu yfir
honum. Ekki er útilokað að vitna-
leiðslur geti einnig hafist í dag. Að
öllum líkindum veröur réttar-
höldunum siðan lokað síðar í þessari
viku og haldiö áfram fyrir luktum
dyrum.
Ellefu i snjóflóði
Ottast er að 11 hafi farist i snjóflóði i
Sviss. Atta lík hafa fundist og þriggja
manna er saknað. Hinir látnu voru
fimm Svisslendingar, tveir Þjóðverjar
og einn sem ekki er vitað hverrar
þjóðar var.
Lik þeirra fundust undir mörgum
tonnum af snjó sem steyptist yfir bíla
þeirra milli Zermatt og Taesch í suð-
vesturhluta Sviss.
Þetta er versta snjóflóðaslys í Sviss í
15 ár.
Iðnaðartaankinn
-núrtíma banki