Dagblaðið Vísir - DV - 04.03.1985, Qupperneq 37
DV. MÁNUDAGUR 4. JVIARS1985.
37
Jón Helgi Hðlfdónarson vifl hinn nýja likbíl.
Útfararþjónusta Suðurlands
Oft hafa ráöandi menn á Suðurlandi
talað um að koma á hinni sjálfsögöu út-
fararþjónustu og komast yfir góðan
lfkbfl. Því oft er erfitt að fá bíla þegar
mikið er að gera hjá vöru- og sendi-
ferðabilum. Nú hefur hinn dugmikli
maður, Jón Helgi Hálfdánarson, keypt
failegan likbíl með drifi á öllum hjól-
um. Hann segir þetta vera einkafyrir-
tæki þeirra hjóna.
„Við seldum heimilisbílinn okkar til
að geta klofið það að kaupa líkbílinn,”
sagði Jón Helgi. „Það hefur alltaf
verið mitt áhugamál aö sjá um útfar-
ÍT.” Regina/-EIR.
Framsóknarfélag Reykjavíkur:
ALFREÐ FORMAÐUR
Kristinn Finnbogason í stjórninm
Alfreð Þorsteinsson hefur tekið við
formennsku í Framsóknarfélagi
Reykjavíkur. Gerðist það á fundi fé-
lagsins í siðustu viku. Aðrir í stjórn
voru endurkjömir að því Undanskildu
að einn nýliði tók þar sæti, Kristinn
Finnbogason.
„Þetta var mjög friösamur fundur.
Fráfarandi stjóm var búin að gera
tillögur bæöi um formann og aðra
stjómarmenn og voru þær tillögur
samþykktar samhljóða. Ekkert mót-
framboð kom til formanns eða
stjómar,” sagði Alfreð Þorsteinsson í
samtaliviðDV.
— Það vekur athygli að þið Kristinn
skuliö vera komnir þaraa inn. Er það
einhvers konar „come back” hjá
ykkur félögunum?
„Nei, nei, ekkert slíkt. Við höfum
unnið meira og minna innan flokksins i
áratugi.”
— Þýðir þetta að annar ykkar eða
báðir munið fara í framboð fyrir
flokkinn næst?
„Það er ekki á döfinni, ennþá,” sagði
Alfreð Þorsteinsson.
Aðrir i stjóminni eru Ásta
Ragnheiður Jóhannesdóttir, Pétur
Sturluson, Valur Sigurbergsson, öm
Erlendsson og Jónas Guðmundsson.
Stjómin á eftir að koma saman til
fundar til að skipta frekar með sér
störfum.
-KÞ.
KALEVALA í VATNSMÝRINNI
í tilefni af því að 150 ár eru liðin frá
útkomu finnska Kalevalakvæðabálks-
ins efnir Norræna húsið til sýninga,
tónleikahalds og annarra kynninga.
Hótíðahald þetta dreifist einkum á
mars og apríl. I anddyri og í bókasafni
verður bókasýning. I tónleikasal verða
litskyggnusýningar þar sem m.a.
verða sýnd verk eins þekktasta málara
Finna, A.G. Kallela, en hann málaði
mikið af myndum er byggðu ó Kale-
vala.
Elias Lönnrot, lœknirinn er ferð-
eflist um austurhórufl Finnlands og
safnaði þjóðkvœðum; úr þvi varfl
Kale valaljófibólkurinn.
í mars verður væntanlega opnuð
sýning með Kalevala-Koru skarti og í
apríl efnir Háskóli Islands til málþings
um kvæðin og verður það gert i sam-
vinnu við Norræna húsið.
Það var finnski læknirinn Elias
Lönnrot, sem feröaöist um Finnland,
einkum austurhéruðin, og safnaði
finnskum þjóðkvæðum. Bjó hann þau
til útgáfu og gaf þau út í fyrsta sinn
árið 1835. Kalevala er hetjukvæði þar
sem segir frá Vainamöinen, Hmarin-
en, Lemminkainen og öðrum sagna-
persónum.
Karl Isfeld sneri nokkrum hluta
þessara kvæða á islensku og komu þau
út í tveimur bindum, fyrra bindið 1957
ogsiðarabindiöl962. -eir.
anngrbaberölunín
ÁMÁLAÐUR STRAMMI
Frá Royal
Samspil
stærð: 55 x 70 cm
verð án garns kr.
1.482,-
verð með garni kr.
2.237,-
Paris í Frakklandi
, nýkomið mikið úrval mynda,
hér eru tvær þeirra.
HAUSTÁST
stærð: 55 x 70 cm
verð án garns kr.
1.482,-
verð með garni kr.
2.282,-
Póstsendum. Snorrabraut 44. Sími 14290 Pósthólf 5249.