Dagblaðið Vísir - DV - 08.03.1985, Qupperneq 3

Dagblaðið Vísir - DV - 08.03.1985, Qupperneq 3
DV. FÖSTUDAGUR 8. MARS1985. 3 Brestur i þver- pólitísku sam- starfí kvenna I dag er alþjóðlegur baráttudagur kvenna. Undir kjörorðinu „Tökum saman höndum” verður baráttufundur kvenna í Háskólabíói í kvöld. Til þess fundar boðar ’85 nefndin, samstarfs- nefnd um lok kvennaáratugar Samein- uðu þjóðanna. Þverpólitískt samstarf 23 kvenna- samtaka hófst á síöasta ári. Hafinn var undirbúningur að framkvæmdum sem fram eiga að fara á þessu ári. Þar ber hæst sameiginlegt átak þrjá daga á árinu, þ.e. 8. mars, 19. júní og 24. október, útgáfu bókar og listahátíðar. En samstarf þessara rúmlega tuttugu aðila gekk ekki upp. Samtök kvenna á vinnumarkaðnum settu sem úrslitakost á undirbúningsfundi í síð- ustu viku að skæruliöi frá Nicaragua Gladys Baez yrði ræðumaður á fundin- um í kvöld. Fundurinn er helgaður jafnréttisbaráttu kvenna á Islandi, fyrir betri launakjörum sem öðrum. Þótti meirihluta nefndarmanna skæru- liði frá Nicaragua ekki eiga heima á þessum fundi íslenskra kvenna. Því komst brestur í hið þverpólitíska sam- starf kvenna. Samtök kvenna á vinnumarkaðnum efna til fundar í Félagsstofnun stúdenta í kvöld og er heiðursgesturinn skæruliðinn Gladys. Sérframboð kvenna og Kvennafylking Alþýðubandalagsins standa aö þeim fundi með Samtökum kvenna á vinnu- markaðnum. Nitján kvennasamtök standa að fundinum í Háskólabíói og verður dag- skráin mjög f jölbreytt. I anddyri bíósins verður kynning á starfsemi félaganna sem að fundinum standa. -ÞG Deilumarum 8. mars: Harmað að rang- færslum var beitt Framkvæmdanefnd ’85 nefndar hefur sent frá sér bréf vegna meintra rangfærslna forsvarsmanna Samtaka kvenna á vinnumarkaði sem komið hefur fram í blöðum. I því bréfi er greint frá því að 28. ágúst sl. hafi verið ákveðið að 8. mars skyldi vera einn þeirra daga á þessu ári sem aðildarfélögin sameinuðust um. Þeim aðilum sem standa aö fundinum í Félagsstofnun átti því að vera fullljóst hvað til stóð. Það er rangt, segir nefndin, sem haldiö hefur verið fram að fram- kvæmdanefndin hafi lagt fram full- mótaöa dagskrá sem ekki hafi fengist hnikað til. Samtök kvenna á vinnu- markaði lögöu fram fimm tillögur um breytingar á dagskránni, fallist var á fjórarþeirra. Fullyrðingu um að ágreiningur hafi fyrst og fremst verið um það hvort dagurinn skyldi vera baráttudagur eða ekki er algerlega vísaö á bug af '85 nefndinni. Urslitaatriðið að Gladys Baez flytti ávarp er eina atriðið sem ekkivarfallistá. Orðrétt í bréfinu segir: „Það er rangt sem haldið er fram í einu dag- blaðanna, að f jögur samtök hafi dregið sig út úr samstarfinu um 8. mars fund- inn vegna þess að framkvæmdanefnd- in varð ekki við múlaleitan Kvenna- framboðs um frestun á fundi ’85 nefndar. Þegar bréf Kvennaframboðs barst Skæruliðinn Gladys Baez við komuna tU tslands sl. sunnudag. Segja má að samstaða islenskra kvenna til sameiginlegs baráttufundar hafi strandað á ávarpi skæruUðans. DV-mynd GVA nefndinni 3. mars, var ljóst að 3 samtök höfðu ákveðiö að standa aö sér- stökum fundi í Félagsstofnun stúdenta. Þá var búið að taka endanlega ákvörð- un um að halda fundinn í Háskólabíói og sá framkvæmdanefndin þvi enga forsendu fyrir því að breyta þar um.” Framkvæmdanefndin harmar það að forsvarsmenn ábyrgra félagasam- taka skuli beita fyrir sig rangfærslum eins og gert hef ur verið. t framkvæmdanefndinni eiga sæti Elín Pálsdóttir Flygenring, Lára V. Júlíusdóttir, Maria Pétursdóttir, Jóhanna Sigurðardóttir og Sólveig Olafsdóttir. -ÞG „Get ekki annað en mælt götumar” — athvarf fyrir ungmenni er lent hafa í ógæf u fíkniefnaneyslu „Það er ömurlegt að standa á Umferðarmiðstöðinni og taka á móti barni sínu sem er að koma úr meöferð. Þá sér maður aðra krakka sem eiga enga aö ráfa eina síns Uðs frá rútunni niður á Lækjartorg,” sagöi kona á fundi áhugafólks um fíkniefnavamir sem haldinn var í Reykjavík fyrir skömmu. Á fundinum voru um 100 manns en tilgangur hans var að gangast fyrir stofnun félags til hjálpar þeim ung- mennum sem lent hafa í ógæfu fíkniefnaneyslunnar. Mun félagið að öUum Ukindum beita sér fyrir því að komið verði á laggirnar athvarfi fyrir ungmenni sem eiga við þetta böl að stríða. „Eg er alkóhóUsti og fyrrverandi dópisti,” sagði einn er sté í pontu á fundinum. „Þeir sex mánuðir sem Uönir eru frá því ég kom úr meðferð haf a ekki verið neinn dans á rósum. Ég hef flækst miUi skemmtistaðanna í leit að félagsskap en þar á ég ekki heima. Á kaffihúsunum sitja gömlu kunningjarnir og dUa undir borðin, þar vil ég heldur ekki vera. Því get ég ekki annað en mælt göturnar. Eg styð hugmyndir um stofnun svona athvarfs innilega.” Fundarmenn voru sammála um að hefjast handa hiö fyrsta, það væri ekki eftir neinu að bíöa. -EIR Kære nordiske venner Her er en mand, der har meget at lære. . . Han hedder Bertel Haarder og er í denne uge blandt deltagerne í Nordisk Ráds mode í Reykja- vík. Her har han bidraget til debatten um fælles nordiske initiativer í anledning af det internationale ungdomsár. Til daglig er Bertel Haarder minister for undervisning og uddannelse í Danmark. Derfra kender vi hans politiske praks- is. Han har nylig demonstreret, hvad han mener om FN's Ung- domsár: Han foretrækker at for- ringe uddannelsesmulighederne í Danmark, f. eks. gegnnem nedlæggelse af 720 udannelses- pladser alene ved pædagog- seminarierne. Derfor, nordiske venner: Lyt ikke til den danske undervisn- ingsminister. Lad ikke hans model fá mindste indflydelse pá jeres ungdoms- og uddannelses- politik. — Fortæl í stedet Bertel Haarder um jeres egne systemer og erfaringer. Giv ham gode rád om, hvordan et velfærdssam- fund bor behandle sine born og unge. Han har uendelig meget at lære. Seminarielærerforeningen i Danmark Kæru norrænu vinir Hér er maður sem á enn margt ólært. Hann heitir Bertel Haarder og er í þessari viku meðal þátttakenda á þingi Norðurlandaráðs í Reykjavík. Hér hefur hann lagt sinn skerf í umræðurnar um norrænt frumkvæði í tilefni alþjóðlegs æskuárs. Dags daglega er Bertel Haarder menntamálaráðherra í Danmörku. Þaðan þekkjum við pólitíska afstöðu hans. Hann hefur fyrir skömmu sýnt í verki allt sitt á æskuári Sameinuðu þjóðanna: Hann kýs að draga úr menntunar- möguleikum í Danmörku, til dæmis með því að leggja niður 720 skólasæti í barnakennaraskólum. Norrænu vinir: Hlustið þess vegna ekki á danska menntamálaráðherrann. Látið ekki fordæmi hans hafa nein áhrif á æsku- og menntamálastefnu ykkar. Skýrið í staðinn Bertel Haarder frá ykkar eigin kerfi og reynslu. Verið honum ráðhollir um hvernig velferðarþjóðféiag eigi að sjá fyrir þörfum barna og unglinga. Hann á óendanlega margt ólært. Félag barnakennara í Danmörku.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.