Dagblaðið Vísir - DV - 08.03.1985, Side 10

Dagblaðið Vísir - DV - 08.03.1985, Side 10
10 DV. FÖSTUDAGUR 8. MARS1985. Útlönd Útlönd Útlönd Útlönd Jardskjálftamir hindra efnahagsbatann í Chile Hinn geysiharði jarðskjálfti, sem iagði þúsundir bygginga í rúst á helsta iðnaðarsvæði Chile, þýðir aö þarlendir þurfa aö ganga í gegnum ennþá meira harðræði á komandi ár- um en þegar var ljóst. Fyrir var búið að vara fólk við að ár þrenginga væru framundan vegna mikilla efna- hagsörðugleika. Jafnvel áður en búið er að reikna út hvert tjónið er vegna þessa mesta jarðskjálfta í Chile í 25 ár, segja hag- fræðingar að Chilestjórn verði aö herða belti landsmanna jafnvel meir en stjómin var búin að semja um viö Alþjóöa gjaldeyrisvarasjóðinn aö gera þyrfti. Þeir samningar tókust ekki fyrr en rétt í síðasta mánuði. Vitað er um að minnsta kosti 145 manns sem fórust í skjálftunum. Um 2.000 manns særðust. Fleiri en 200.000 manns eru nú heimilislaus vegna hörmunganna. En fyrir utan það er ljóst aö stórkostlegar viðgerð- ir á vegum, jámbrautarteinum, brúm og öðrum mannvirkjum munu kosta of fjár og koma niður á fram- þróun í landinu. Þróunar/and Chile er þróunarland með minni þjóðartekjur en jafnvel Mexíkó. Uti- standandi erlend lán eru svo mikil að megnið af gjaldeyristekjum landsins fer í að greiða vexti af þeim. Það flytur út mikið af hráefnum og fær ekki hátt verð fyrir, eftir kreppu undanfarinna ára á Vesturlöndum. Stjórnin segir að 20.000 hús hafi gjöreyðilagst í skjálftunum, og lík- lega þy rfti að rífa 40.000 í viðbót. Mikiö af hinum mikilvægu útflutn- ingsvörum, ávöxtum og kopar, var lokaö inni í höfnum San Antonio- og Valparaiso-borga. „Allt er þetta mikiö högg fyrir áætlanimar sem þeir höfðu komið sér saman um Alþjóða gjaldeyris- varasjóðinn, IMF,” sagði einn stjómarerindreki sem sérhæfir sig í efnahagsmálum. „Þeir verða aö eyða meiri peningum eftir þetta og þeir verða aö fá meira lánað hjá bönkunum.” Biöja um meira Fjármálaráðherra Chile, Heman Buchi, haföi áætlaö að fara til • Bandaríkjanna í dag, en hann varð aö fresta f erðinni þangað til um helg- ina. I Bandaríkjunum ætlaði hann að ræða við gjaldeyrissjóðinn og við- skiptabanka Chile. Heimildir innan stjórnarinnar segja að hann hyggist afla sér grein- argóðrar skýrslu um ástandið eför skjálftana og biðja alþjóðapeninga- markaði um aukaaðstoö. Buchi var ráðinn fjármálaráö- herra i síðasta mánuði. Margir sáu ráðningu hans sem teikn þess að nú ætti aö fara að herða beltin og minnka lántökur. Þess í stað verður hann aö hef ja tímabil sitt i embætti tilaðfá aukin lán. Hann samdi við gjaldeyrissjóðinn um aö sjá til þess að fjárlagahalli Chile í ár verði ekki meiri en þrjú prósent af innanlandsframleiðslu Chile. I fyrra var þessi halli 4,8 pró- sent. En nú segja hagfræöingar að engin von sé til að sú áætlun standist. „Þó ætlunin hafi verið áður að hafa minni halla hjá því opinbera, þá er ljóst að þessi halli verður nú meiri,” sagði Patricio Meller, hagfræðingur hjá rannsóknarfyrirtæki í efnahags- málum, sem hefur aðsetur i Santi- ago. Eyðileggingin, sem skjálftinn olli, sérstaklega í höfnum landsins, gæti aftur skaðaö þá stefnu stjórnarinnar aö auka útflutning til aö borga vexti af erlendum lánum. Bucchi haföi spáð að vömskiptajöfnuður yrði hag- stæður um einn milljarð dollara á þessu ári, miðað við aöeins 300 milljón dollara í fyrra. Samtals em skuldimar 18,5 milljarðar, svo ljóst er að ekki veitir af. En jarðskjálftamir komu á versta tíma. Nú er ávaxtauppskeran í full- um gangi. Af ávöxtunum einum fá Chilebúar 300 milljónir dollara í út- flutningstekjur á ári. Rene Benavid- es, talsmaöur útflytjendafélags Chile, segir að einungis þriðjungur hinna 46 milljón kassa af ávöxtum, sem flytja átti út í ár, sé farinn úr landi. Afganginn átti að senda í gegn- um San Antonio og Valparaiso. „Annaðhvort komast þessir ávext- ir út úr landi eða við missum alger- lega útflutninginn,” sagði Benavid- es. KoparferiUa Kopariðnaður landsins, sem færir Chile næstum helming útflutnings- tekna þess, hefur einnig fariö illa út úr skjálftunum. Hið ríkisrekna koparfyrirtæki Empresa Nacional de Mineria, sem kaupir eir frá litlum námum og framleiðir um 10 prósent af fullunn- inni koparframleiðslu Chile, sagði viöskiptavinum sínum að það gæti ekki staðið við skuldbindingar sínar á næstunni. Viðgerðir á einu kopar- bræöslu fyrirtækisins munu taka aö minnsta kosti mánuö. Stærsti koparframleiöandi heims- ins, Codelco, sem framleiðir um 80 prósent af koparframieiðslu Chile, á við framleiðsluvandamál að stríða á framleiðslustöðvum sínum í E1 Teni- ente og Andina. Og útflutningurinn frá báöum þessum stöðvum fer fram í gegnum San Antonio, sem nú er löskuð eftir skjálftana. Ernesto Ayala, forseti iðnrekenda- sambands Chile, segir aö einungis 60 prósent framleiðslufyrirtækja séu nú í gangi í miðhéruðum Chile, þar sem langmest framleiöslan fer f ram. New York borgar Heimildarmenn innan trygginga- félaganna segja að það séu stór al- þjóðafyrirtæki sem muni þurfa að bera mestan kostnaöinn vegna tryggingakrafna þeirra sem hafa orðið fyrir skaöa vegna skjálftanna. Tryggingafyrirtækin í Chile endur- tryggi flestar sínar tryggingar. „Það er flest tryggt í Valparaiso og Santiago. Menn í New York og London þurfa að punga út miklum fjárhæðum,” sagði einn heimildar- maður. Hann giskaði á að alls næmu skemmdir vegna jarðskjálftanna 300 milljónum dollara. Eitt fyrirtæki heföi þegar sótt um 80 milljónir í tryggingafé vegna skemmda. Umsjón: Þórir Gudmundsson LAUGARDAG A 10-14 SUNNUDAG iBGSff*-- M 14-17 Háteigsvegi 3 Sími 27344 ^Jeidhús meö 12 mánaða

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.