Dagblaðið Vísir - DV - 08.03.1985, Blaðsíða 8

Dagblaðið Vísir - DV - 08.03.1985, Blaðsíða 8
8 DV. FÖSTUDAGUR 8. MARS1985. Útlönd Útlönd Útlönd Útlönd p Persaflóastríðið: Obreyttir borg- arar aðalskot- mörk herjanna Bardagar hafa verulega harðnað í stríði Iraka og Irana. Báðir aðilar skjóta nú sprengjum á borgir hins. Ibúar í irönsku borginni Basra segja að tvö eða þrjú fallbyssuskot Irana falliþarámínútu. Skothríðin á Basra, sem er hafnar- borg nálægt Persaflóa, hefur veriö linnulaus frá í gærdag. Ekki er vitað ummannfall. Irakskar herflugvélar fóru 257 árás- arferðir gegn Iran í gær en ekki er vitað nákvæmlega hvað þær réðust á. Það eru flestar árásarferðir þeirra á einum degi síðan stríðið byrjaði fyrir fjórum oghálfuári. Iranir segja að í gærmorgun hafi átta flugskeyti Iraka sprengt upp spítala í Dezful í suðvesturtiluta írans og tvo skóla. Þeir sögðu aö fimm manns að minnsta kosti hefðu látist og 70 særst. Einnig hefðu Irakar varpað sprengjum á Abadan olíuhreinsunar- stöðvamar sem þegar var nær búið að leggja í rúst. Irakar sögöu aö árásirnar á Abadan og Dezful sýndu bara örlítinn hluta árásargetu þeirra. Iranar sögðust myndu sprengja upp hvern sentímetra Basra borgar í hefndarskyni. I Basra býr ein milljón manna. Þessar árásir á borgaraleg skot- mörk eyðileggja alveg níu mánaöa gamalt samkomulag stjórna þessara landa aö forðast slikar aðgerðir. Olof Palme, forsætisráöherra Svíþjóðar, sem hefur gengið milli hinna striöandi aðila, sagði í gær aö þetta samkomulag hefði bjargaö lifi milijóna manna og bað heri landaima aö reyna að hemja sig. ■m ■ ■ > Svartur reykjarmökkur rís frá olíutönkum sem Íranar hafa sprengt upp í Basra. Ekki er vitað um hve margir hafa látið lífið i sprengjuárásunum gegn borg- inni, en þeir eru margir. Treholt fær blóm og konfekt frá aðdáendahópnum Frá Jóni Einari Guðjónssyni, fréttarit- ara DV i Osló: Tekið hefur verið eftir því i Noregi hve miklu hressari Arne Treholt hefur verið undanfama daga en vikuna áður. Þetta er talið stafa ekki síst af því að hann fær mikiö magn gjafa frá mönnum, um 15 bréf á dag, blóm og konfekt. Þetta tekur hann með sér í fangaklefann á kvöldin eftir réttar- höldin. I gær gerðist það í málinu að tveir af þremur sérfræðingum sem verjendur höfðu beðið um að yrðu skipaöir sér- legir sérfræðingar í málinu voru sam- þykktir sem slíkir. Það var sækjandi sem bað um að þeir yrðu skipaöir. Taliö er að þaö sé til þess aö auka traust dómara. Þessir tveir sérfræðingar eru ungir menn, um fertugt og hafa annað sjónarmiö varðandi leyniskjöl en þeir sérfræðingar sem fyrir eru. Þeir eru aðallega embættismenn og hemaðar- sérfræðingar sem taldir eru lita há- tíðlegri augum á gildi leyniskjalanna. Hlutverk sérfræðinganna er að segja til um hvort leyniskjölin sem Treholt lét Sovétmenn fá hafi varðað öryggi Noregs og stefnt því í hættu. Treholt hefur verið hraustlegri undanfarið en fyrstu daga róttarhaldanna. í g»r vann hann stórsigur þegar tveir nýir sárfræðingar voru skipaðir til aðstoðar dómurum. Ferðir til Sovétríkjanna Flogið föstudaga og sunnudaga til Kaup- mannahafnar með Flugleiðum og síðan með Aeroflot til Moskvu/Leningrad eftir því hvaða ferð er valin. Um er að velja 41 ferð til Sovétríkjanna. Aldrei meira úrval. Hægt að skreppa vikuferð til Leningrad og Moskvu fyrir kr. 24.135,-, 2 vikur til Sochi/Jalta, baðstrandarstaðanna, með viðdvöl í Moskvu verð kr. 27.478, 2 vikur með Síberíu-járn- brautinni allt til Khabarovsk á Kyrrahafs- ströndinni með viðkomu í Leningrad, Moskvu og Irkutsk, 22 daga ferð til Japan um Síberíu i flugi, lest og skipi, þar af vika í Japan, verð kr. 65.926,- og er þá fátt eitt talið. Flug/járnþrautir/skip, gisting og matur innifalin. Góð Intourist hótel, leiðsögn danskra fararstjóra. Upplýsingar og bæklingar á ferðaskrifstofu okkar. 0 FERÐASKRIFSTOFA KJARTANS Gnoðarvogi 44,104 Reykjavík S 68-62-55 Hvergi bólar á Tsémenkó Konstantín Tsérnenkó missti af hefðbundnum baráttufundi sem haldinn var daginn fyrir alþjóðlegan kvennadag i dag. Hann hefur verið veikur í rúma tvo mánuði. Fréttamenn tóku eftir því að Gor- batsév, sem talinn hefur verið líklegur eftirmaður Tsémenkós, trónaði milli forsætisráöherrans Thikonovs og utan- ríkisráðherrans Gromykos á fundinum í Bolshoi leikhúsinu. Taka þeir það sem enn eitt tákn þess að hann sé fastur í sessi sem krónprins Kreml- verja. Samkvæmt venju á leiðtogi Kommúnistaflokksins að mæta á þessa hátíð í BoIshoL En hann hefur verið heilsulaus síðan um áramót og grunur leikur á aö þær tvær myndir sem hafa verið birtar af honum síðan þá hafi verið teknar inni í s júkrahúsi. ferð til Reagans Mubarak Egyptalandsforseti fer af staö til Bandaríkjanna í dag, þar sem hann hyggst reyna að fá Reagan for- seta tilað fallast á friðartillögur sínar. Þær byggjast á samkomulagi sem Jór- danar og Frelsissamtök Palestínu, PLO, náðu nýlega um að semja sam- eiginlega við Israelsmenn, fáist þeir að samningaborðinu. Mubarak ætlar að reyna aö telja Bandaríkjaforseta trú um að þetta sé gullið friöartækifæri. Nú þurfi bara að fá Israelsmenn að samningaborðinu. Samkvæmt tillögum Mubaraks myndu Bandaríkjamenn fyrst ræöa við sameiginlega nefnd Jórdana og Palestinumanna en Israelsmenn myndu koma síðar inn í viðræðumar þegar þær fara að komast á skrið. En Bandaríkjamenn neita aö ræða beint við PLO nema samtökin viðurkenni tilvist Israelsríkis. Ymislegt bendir til að samtökin séu ekki langt frá að gera það. Mubarak er ó leiðinni til Frakk- lands, Bandarikjanna og Bretlands og hittir Reagan á þriðjudag. Mubarak í friðar-

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.