Dagblaðið Vísir - DV - 08.03.1985, Blaðsíða 5
DV. FÖSTUDAGUR 8. MARS1985.
5
Leit tollgæslunnar í skipi dregst á langinn og ber ekki árangur:
Er ríkissjóður
skaðabótaskyldur?
— vísbending til tollgæslunnar gæti haft úrslitaþýðingu
íslíku máli
Stórleit tollgæslunnar um borð í ms.
Alafossi hefur vakiö upp spurninguna
hvort ríkissjóður sé skaðabótaskyldur
ef leit í skipi dregst á langinn og ber
ekki árangur. Ljóst er nefnilega að
hver dagur er dýrmætur og skipafélög
verða fyrir milljónatjóni raskist
áætlanir skipanna verulega.
Við leituðum til Gunnlaugs Claessen
ríkislögmanns og spurðum hvort
dómur lægi fyrir þar sem skipafélagi
hefðu verið dæmdar bætur vegna tjóns
sem það hefði orðið fyrir vegna leitar
tollgæslunnar.
„Það er enginn dómur fyrir slíku og
ég minnist þess reyndar ekki að
fordæmi sé til fyrir því að skipafélag
hafi farið í mál vegna leitar tollgæsl-
unnar.”
— Nú hefur tollgæslan heimild í
lögum til að banna skipi aö koma að
landi og skipverjum að fara í land á
meðan verið er aö leita. Getur skipa-
félag yfirhöfuðfariðímálvegnaþess-
arar heimildar í lögum?
„Það liggur ljóst fyrir að menn hafa
farið fram á bætur ríkissjóðs, til dæmis
vegna handtöku, gæsluvarðhalds og
likamsleitar þegar ljóst hefur þótt að
meiri líkur væru fyrir sakleysi þeirra
heldur en sekt.
Nýlegt dæmi er um þetta í Geirfinns-
málinu þar sem augljóst sakleysi var
fyrir hendi. Þar var spumingin ekki
hvort ríkið ætti að greiða skaðabætur
heldur hve mikið.
En varðandi kröfu vegna leitar toll-
gæslunnar tel ég ekki rétt að tjá mig
um að svo stöddu, enda hefur ekkert
tilefni gefist til þess þar sem slik krafa
hefur aldrei komiö f ram. ”
Gunnlaugur taldi ennfremur aö
kæmi til svona máls myndi sú vísbend-
ing sem tollgæslan heföi um að smygl
væri í ákveðnu skipi vega þungt á
metunum þegar dómur væri kveðinn
upp.
Þá má hafa það i huga aö skipver jar
gætu þurft aö greiða skipafélagi sínu
skaðabætur ef skipafélagið færi i mál
við þá vegna leitar tollgæslunnar sem
heföi tekið langan tíma og boríö
áranguraðlokum, smygl fundist.
-JGH
Tollgæslan grandskoðaði gámana
úr Álafossi i gær.
DV-mynd S
Hvað sögðu viðskiptavinir Eimskips?
„Sumir famir
að ókyrrast”
Hvemig kemur löng leit tollgæsl-
unnar i skipi niöur á viöskiptavinum
skipafélagsins sem á skipið? Hvað
sögðu viöskiptavinir Eimskips sem
áttu vörur um borð í Alafossi þegar
ljóst var að skipiö var að tef jast vegna
leitarinnar?
Þórður Sverrisson, aðstoðarfram-
kvæmdastjóri hjá Eimskip: „Nokkrir
þeirra voru farnir að ókyrrast sem
skiljanlegt er. Um borð í skipinu voru
vörur eins og ávextir sem mikilvægt
var að skipa fljótt upp við komu skips-
ins.
Og í þessu tilfelli stóð til að skipa
ávöxtunum upp á þriðjudag. Þeir áttu
síðan að vera komnir í verslanir á
föstudag, fyrir helgarverslunina.
Við skulum gá að því að pantanir
kaupmanna hafa breyst á undanförn-
Hvaða dóm
fá smyglarar?
Viðurlögin eru
sektirog
upptaka
smyglvam-
ingsins
— um 30 til40þúsund
kr. sekt vegna smygls
á myndbandstæki
„Viðurlögin eru sektir og upptaka
smyglvamingsins,” sagöi Hjörtur
Aðalsteinsson, aðalfulltrúi í Sakadómi
Reykjavíkur, er hann var inntur eftir
því hvaða viðurlögum væri beitt þegar
maður yrði uppvís að smygli.
„Við ákvörðun sektar vegna smygls
á áfengi og tóbaki er útsöluverð
áfengisins hjá ÁTVR höfð til
hliðsjónar. Hvað myndbönd snertir eru
þau opinber gjöld sem ríkið hefði tapað
höfðtilhliðsjónar.
Svo ég nefni tölur þá er algeng sekt
fyrir smygl á myndbandstæki svona 30
til 40 þúsund krónur. Auk þess kemur
til upptöku tækisins,” sagði Hjörtur.
-JGH
um árumvið breytta tækni skipafélag-
anna.
Hjá okkur eru tii dæmis allar tíma-
áætlanir mjög nákvæmar og lögð er
áhersla á að þær standist fullkomlega.
Þetta, auk tíðari ferða, hefur haft það í
för með sér að kaupmenn hafa birgð-
ir sínar í lágmarki til að losna við
óþarfa birgðakostnað.
Tafir skips í nokkra daga vegna
leitar toligæslunnar getur þvi fljótlega
leitt til vöruskorts hjá viðskiptavinum
okkar.”
-JGH
Glœsilegu
belgísku
svefnherbergis-
húsgögnin
úr kirsu-
berjaviði
nýkomin aftur.
AM.CUOUt:
Jón Loftsson hf.
Hringbraut 121
Sími 10600
Húsgagnadeild
- Sími 28601
J! annprb ab erö lun tn
Snorrabraut 44.
Sími14290
VÆRÐARVOÐIR
NR. 1 PARIÐ
150 x 200 CM, KR.
1.174,-
-.5 ' : mflgsmm i !
NR 2TRÚÐUR NR.3SARA NR.4CLADIA
150 x 200 1.174,- CM, KR. 150 x 200 1.174,- CM, KR. 150x200 1.174,- CM
180 x 220 1.512,- CM, KR. 180 x 220 1.512,- CM, KR. 180 x 200 1.512,- CM
Póstsendum.
Pósthólf 5249.