Dagblaðið Vísir - DV - 08.03.1985, Qupperneq 9
DV. FÖSTUDAGUR 8. MARS1985.
Útlönd
Útlönd
Útlönd
Koivisto f stríöi
við sjónvarpið
Frá Gunnlaugl A. Jónssyni, fréttarit-
ara DV í Svíþjóð:
Mauno Koivisto Finnlandsforseti á
nú í stríði við ríkisfjölmiöla í Finn-
landi. Koivisto krefst þess að starfs-
reglum útvarps og sjónvarps verði
breytt á þann veg að þessum f jölmiöl-
um sé ekki heimilt að nota viðtöl viö
hann sem eru meira en sólarhrings-
gömul nema að fengnu leyfi skrifstofu
hans.
Fjölmiðiarnir mótmæla og segjast
ekki vilja þola slika ritskoðun.
„Koivisto getur auðvitað sniðgengið
útvarp og sjónvarp ef honum sýnist
svo en hann getur ekki sagt okkur fyrir
verkum á þennan hátt,” sagði tals-
Gro Harlem Brundtland á Norðurlandaráðsþingi:
Ekkert bann við
kjamorkuskipum
við Noregströnd
Gró Harlem Brundtland, fyrrum for-
sætisráðherra Noregs, sagði í gær að
hún myndi ekki fylgja fordæmi Nýja-
Sjálands og banna bandarískum
skipum sem geta borið kjamavopn að
leggja að í norskum höfnum.
Brundtland er formaður Verka-
mannaflokksins og er talinn líklegur
sigurvegari í kosningum sem fara
fram í september. Hún sagði að það
væri skilningur á því milli Noregs og
NATO að ætlast væri til að þau skip
sem kæmu í hafnir í Noregi væru ekki
með kjamavopn. Engar sérstakar
staðfestingar væm nauðsynlegar.
En Bmndtland sagði að heimurinn
mætti búast viö síauknum merkjum ó-
þreyju ef sambúö stórveldanna batn-
aði ekki verulega á næstu árum.
Gro Harlem Bmndtland er nú á
þingi Norðurlandaráðs í Reykjavík.
maður finnska sjónvarpsins í viðtali
við sænska útvarpið nú i morgun.
Koivisto kom fram í finnsku sjón-
varpi í einkaeign í fyrrakvöld og gagn-
rýndi ríkisfjölmiðlana þaðan. Ástæðan
er sú að ríkisrekna sjónvarpsstöðin
haföi birt hluta af gömlu viðtali við
Koivisto og slitið ummæli hans þar úr
samhengi þannig að þau fengu aðra
merkingu en þeim var upphaflega ætl-
að að hafa, að því er Koivisto segir.
Þá hefur tengdasonur Koivistos ver-
ið milli tannanna á fjölmiölamönnum
að undanförnu og á það vafalaust sinn
þátt í óánægju forsetans. Dagblöð í
Finnlandi hafa flest furðað sig á kröfu
Koivisto og mörg þeirra gera grín að
viökvæmni hans.
Þó virðist nú sem samkomulag hafi
tekist í deilunni og er það þó ákaflega
loðið. Helst er að sjá að hvor um sig
haldi fast við meginatriðin í fullyröing-
um sínum.
Annars vegar er sagt í samkomulag-
inu að engar sérstakar reglur gildi um
stöðu forsetans gagnvart útvarpinu.
En Koivisto hafði haldið því fram að
svo hefði verið frá forsetatíð Kekkon-
ens.
Koivisto Finnlandsforseti vill hafa
hönd í bagga með fréttum sjónvarps-
ins um hann sjálfan og forseta-
embættið.
Hins vegar segir í þessu dularfulla
samkomulagi að það sé ósk forsetans
aö fá fyrirfram að vita af fréttum er
fjalla eiga um hann. Talsmenn útvarp
vildu áður líkja þeirri kröfu við heimt-
ingu á ritskoðun.
Umsjón:
Þórir Guðmundsson og
GuðmundurPétursson
„Útdauð
réttindr
Alþjóðablaðastofnunin, IPI,
gagnrýndi fjötra sem frétta-
mönnum eru settir víðs vegar um
heim á fundi sem lauk í fyrradag.
Stofnunin lagði að Suður-Afríku og
Chile að létta hömlum á fjöl-
miðlum, bað Filippseyjastjórn að
leysa úr haldi blaðamann sem
hefur verið í fangelsi í níu ár og
gagnrýndi leyniskjalalög Bret-
lands harðlega.
Fundurinn byrjaði á mánudag á
því að forstjóri stofnunarinnar,
Peter Galliner, sagði að málfrelsi
væriaðverða „útdauðréttindi”.
Kaupahéðinn
ísteininn
Sovétkona sem stundaði verslun
með erlendan vaming sem hún
keypti af erlendum ferðamönnum
og seldi aftur á margföldu verði
hefur verið dæmd í níu ára fang-
elsi. Konan stundaði verslun sína í
Lvov.
Unglingablaðiö Komsomolskaya
Pravda sagði í gær að jafnvirði
fimm milljóna króna — ógurleg
upphæð á sovéskan mælikvarða —
hefði verið gert upptækt hjá henni.
Sósíalismi með
fögruandliti
Kínverjar héldu glimmersmurða
fegurðarsamkeppni í Canton í
íburðarmiklum samkomusal lúxus-
hótels í borginni til að velja herra
og frú Canton á miðvikudag. Þetta
var fýrsta samkeppnin þessarar
tegundar síðan byltingin var gerð
fyrir tæpum 40 árum.
Átta hundruð valdir áhorfendur
mættu á staðinn og keppninni var
sjónvarpað um borgina þrátt fyrir
ótta um að miðstjórnin í Peking
kynni að aflýsa keppninni.
Dagblaðið Kína í dag hafði eftir
einum keppendanna: „Sósíalism-
inn þarfnast lika fégurðar.”
Nú eru nær allir námamenn snúnir aftur til vinnu, en sjö þúsund þeirra halda þó áfram verkfalli sinu til
stuðnings þeim sem hafa verið reknir.
Sjö þúsund enn
í námaverkfalli
Leiðtogar breskra námamanna
lofuðu því í gær að halda áfram bar-
áttu sinni gegn lokun náma, þrátt fyrir
að nú sé árslöngu verkfalli þeirra lok-
ið.
Leiðtogarnir samþykktu við at-
kvæðagreiðslu að halda áfram 16
mánaða yfirvinnubanninu, og að
þrýSta á áð 700 nátnamenn, sem voru
reknir fyrir ofbeldi í verkfalls-
vörslunni, verði endurráðnir. Þeir
ákváðu einnig að setja upp sérstakan
sjóð fyrir þá, fái þeir ekki vinnu á ný.
Kolaráðið, sem rekur námurnar,
sem eru allar í ríkiseign, hyggst loka
fjölda náma sem ekki eru lengur
arðbærar, til að minnka hið mikla tap í
rekstri þeirra., Ráðið sagði að 96
prósent námamanna væru nú við
vinnu.
Um 7.000 hafa enn ekki snúið til
vinnu. Þeir vilja þannig styðja þá 700
námamenn sem voru reknir. Talið er
að verkfall námamanna hafi kostað að
minnsta kosti þrjá milljaröa
sterlingspunda, eða sem svarar um 120
miljörðum íslenskra króna.
Mazda
626 '79, '80, '81, '82, '83,
'84.
323 '80,'81,'82, '83, '84.
929 '80, '81,'82.
Honda
Accord '79, '80, '81, '82.
Civic '80, '81, '82.
Quintet '81, '82, '83.
Toyota
Corolla '80, '81, '82.
Tercel 4x4 '83, '84.
Cressida '78, '80, '81.
Subaru
1600cc-1800cc '80, '81,
'82, '83, '84.
Hatchback '81, '82.
Fiat
127 '79, '80,'81,'82, '83.
Panda '81, '82, '83.
Uno '83, '84.
Lada
Fólksbílar '81, '82, '83.
Sport '78, '79, '80, '81.
Jeppar
og
4x4
Toyota Hilux '80, '81,
'82.
Suzuki Fox '81, '82, '83,
'84.
Isuzu Trooper '81, '82.
Opið laugardaga
kl. 10-18.
BÍLASALAIM
BUK
Skeifunni 8
Simi 68-64-77
; 'é s æt? f r; sasi s