Dagblaðið Vísir - DV - 08.03.1985, Qupperneq 15
15
DV. FÖSTUDAGUR 8. MARS1985.
nning
Menning
Menning
Tuuri sagðist hafa heyrt að sögur
hans liktust á köflum islendinga-
sögunum.
mínum. Tínánn í verksmiðjunni var
mikilvægur fyrir mig sem rithöfund.
En auðvitað skrifa ég ekki bara um
iðnað því öll reynsla er efniviður fyrir
rithöfunda.
Heimurinn er þannig í dag að þaö
sem skrifað er í einu landi getur
auðveldlega höfðað til manna á fjar-
lægum menningarsvæðum. Eg sæki
efni mitt til mannlifsins i Austurbotni i
Finnlandi en held þó að menn sem eru
ókunnugir þvi landsvæði geti skilið það
sem ég skrifa. Þótt ég þekki lítið til
íslensks mannlífs get ég notið
islenskra bókmennta. Það er svo
margt í reynslu manna sem er sam-
eiginlegt þrátt fyrirólíktumhverfi.”
Nú er sagt að verkum þínum svipi
til Islendingasagna. Er eitthvaö til í
því?
„Eg hef heyrt þetta. Eg hef lesið
nokkrar fomsagnanna en veit ekki
hvort það sem ég skrifa á eitthvað
skylt viö þær. Ef til viil er bent á þetta
atriöi til að betur gangi að kynna verk
mín hér á landi.”
Það hefur einnig veriö bent á að í
verkum þínum gæti áhrifa frá
rússnéskum nit jándu aldar höfundum.
„Allir flnnskir rithöfundar sækja
mikið til rússneskra bókmennta. A
síðari árum hefur t.d. Tshechov verið
mérmikilvægur.”
Eiga bókmenntaverðlaunin eftir að
hafa áhrif á feril þinn sem rithöfund-
ar?
„Þau skipta ekki það miklu máli að
ég breytist sem rithöfundur. En
verðlaunin hjálpa mér og valda því að
Verðlaunin hjálpa mér sem rithöf-
undi. DV-myndir KAE.
bækur minar fara víðar en ella heföi
orðið. Þau auðvelda mér einrug að
helga mig skriftum eingöngu. Þegar
ég var yngri gat ég unnið á daginn og
skrifað á kvöldin. Siðustu tvö árin hef
ég reynt að hafa ritstörf aö aðalstarfL
Verðlaunin auðvelda mér að halda þvl
áfram.” -GK.
Páll Guðmundsson
— að Kjarvalsstöðum
Páil Guðmundsson nefnist ungur
myndhöggvari sem um þessar
mundir sýnir 23 höggmyndir,
„höggnar í rautt og blátt grjót, en
það finnst í Bæjargilinu á Húsafelli”.
I sýningarskrá segir aö jarðfræðing-
ar telji þetta grjót einstætt og ekki að
finna annars staöar en í Bæjargili.
Grjót
Páll Guömundsson heggur beint í
grjótið fígúratífar myndir — andlit,
fætur, kindur og ljón — sem virðast
vaxa út úr efninu. I raun getum við
sagt aö listamaðurinn „lesi” út úr
náttúrunni myndir sem hann síðan
undirstriki — seiði fram — og geri að
veruleika fyrir hinn heföbundna list-
áhorfanda. En þetta samspil viö
náttúruna er afar viðkvæmt og lista-
maöurinn veröur ávallt að gæta þess
aö ganga ekki of nálægt steininum og
umbreyta honum ekki í einhverja
banala sjónblekkingu. Hér liggur
styrkur og gildi verkanna umfram
Myndlist
GunnarB. Kvaran
allt í efninu og vinnuaðferöinni.
Þetta kemur vel fram í verkum eins
og „Húsafellspresturinn” og
„Hrútur”, þar sem áhorfandinn les í
senn grjót og mynd. Form grjótsins
heldur sér í þessum verkum, enn-
fremur sem gróf áf erö eykur á virkni
efnisins. Aftur á móti í þeim verkum
þar sem listamaðurinn meitlar af
meiri nákvæmni, umbreytast verkin
aðeins í mynd af einhverjum manni
sem við getum nefnt ákveðnu nafni. I
þessum verkum er efnið dautt og
formiö hlutlaus burðargrind undir
hversdagslega sjónhverfingu.
Gottinnlegg
Þó svo að höggmyndir Páls
Guðmundssonar séu nokkuö misjafn-
ar að gæöum þá eru þær bestu gott
innlegg í NÝJA SKULPTURINN
sem einkennist einmitt af þessum
beinu og nánast „villtu” vinnubrögð-
um. Myndhugsun listamannsins
minnir því um margt á sambærileg-
ar tilraunir yngstu skúlptúr-
kynslóðarinnar erlendis, nema hvað,
myndir Páls virka fullkomlega per-
sónulegar vegna þess aö listamaður-
inn hefur greinilega ekki sótt í list-
timaritin heldur í islenska náttúru.
Og þvi skulum við hvetja listamann-
inn til aö efia tengslin við náttúruna,
'grjótið og þá myndfræði sem í berg-
inubýr.
„t rauninni getum við sagt að lista-
maðurinn „lesi” út úr náttúrunni
myndir sem hann síðan undirstriki
— seiði fram — og gerl að veruleika
fyrir hinn hefðbundna listáhorf-
anda.” DV-mynd Bj. Bj.
íslensk
höggmyndalist
Þessi sýning Páls er aðeins enn
einn vitnisburðurinn um uppgang
islenskrar höggmyndalistar. Það er
því ekki úr vegi að hvetja íslensk
listasöfn til að efna til yfirUtssýning-
ar á íslenskri höggmyndalist, t.d.
síðastUðna tvo áratugi.
GBK
Dunlopillo
®
LYSTADÚN
Dugguvog 8 — 10
Sími 84655
Vellidan í svefni er vörn gegn bakverkjum.
STABIFLEX rúmbotninn og LATEX dgnan frá
Lystadún er rétta lausnin.
Aflur fyrr bölvaði maflur bakverkjum i hljófli. Nú reyna menn afl
finna lausn ó vandamólinu.
STABIFLEX rúmbotninn og LATEX dýnan lœkna ekki öll mein.
En vifl höfum orfl sórfrœflinga og þúsunda ánœgflra viflskiptavina
um allan heim fyrlr því afl STABIFLEX rúmbotn og LATEX dýna
bœfli hindra og draga úr verkjum og eymslum i baki.
Þau eru ekki mörg vandamólin sem þú loysir sofandi en hór hefur þú
undantoknlngu.
Eigum ó lager rúmbotna í stœrðum
200 x 70
200 x 75
200 x 80
200x85
200 x 90
Sendum í
póstkröfu hvert
á land sem er.
SKATTEFTIRLIT
Lausar eru til umsóknar stöður eftirlitsfulltrúa á skatt-
stofum í Reykjanesumdæmi og Norðurlandsumdæmi
eystra. Umsækjendur þurfa að hafa góða þekkingu á
bókhaldi og skattskilum eða hafa lokið embættisprófi í
lögfræði eða viðskiptafræði. Umsóknir berist fjármála-
ráðuneytinu fyrir 29. mars nk.
Reykjavík, 22. febrúar 1985.
Fjámiálaráfluneytið.
Fjallaskór
Sántim kr. 2.514, stearflir 38-47 - Oetz kr. 1.748, stœrflir 38-46 -
Flims kr. 1.896, stœrðir 38—46 — Achensee kr. 1.545, stœrflir 36—
46 - Softy kr. 1.744, steerflir 36-46 - Retz kr. 997, steerðir 38-46
- Retz Kinder kr. 830, steeröir 30-35.
PÓSTSENDUM SAMDÆGURS.
FÁLKINN*
SUÐURLANDSBRAUT 8 SlMI 84670