Dagblaðið Vísir - DV - 08.03.1985, Side 16
16
DV. FÖSTUDAGUR 8. MARS1985.
Spurningin
Kaupirðu oft plötur?
Helena Jónsdóttir nemi: Nei, mjög
sjaldan.
Auöbjörg Jónasdóttir förðunarstúlka:
Nei, ég geri ekki mikið að því að kaupa
plötur.
Óiafur H. Kárason: Nei, ég kaupi
aldrei plötur.
Guðleifur R. Kristjánsson verslunar-
maður: Nei, aldrei.
Ásta Jónsdóttir hásmóðir: Nei, þaö
kemur nú ekki oft fyrir.
Sigrún Guðmundsdóttir myndhöggv-
ari: Nei, það kemur ekki oft fyrir nú
orðið. En ég gerði meira að því hér
einu sinni.
Lesendur Lesendur Lesendur Lesendur
Steindórsplanið við Hafnarstræti.
Steindórs-
stööinni
veröi
fokað
Skjöidur Eyfjörð leigubílstjóri
hrlngdi:
Mánudaginn 4. febrúar birtist grein í
DV um „væringar meöal leigubíl-
stjóra” í Reykjavík. Langar mig til aö
taka eftirfarandi fram vegna þessa
máls.
Umrædda laugardagsnótt fannst
okkur leigubílstjórum sendibílstjór-
arnir frá Steindórsstööinni fara mjög
freklega inn á okkar starfssvið og
brjóta þar með lög. Gengu þeir svo
langt aö bíöa í röðunum fyrir utan
samkomuhúsin og taka þar farþega.
Þessir menn hafa einungis leyfi til
flutninga á pökkum en ekki farþegum
og einn þeirra sem fékk afgreiðslu á
Steindórsstööinni er meira aö segja
leyfislaus meö öllu. Við króuðum þann
bílstjóra af ítrekað og kölluöum á lög-
regluna og var hann kæröur fjórum
sinnum þessa nótt. Loks lokaði lögregl-
an bíl hans inni en maðurinn náði sér
þá í sendibíl og hélt áfram uppteknum
hætti.
Okkur leigubílstjórum er mjög þungt
í skapi vegna þessa máls. Viö krefj-
umst þess aö borgaryfirvöld og sam-
göngumálaráöuneytiö láti þaö til sín
taka og að Steindórsstöðinni verði end-
anlega lokað.
Rokká
rásinni
Iron-man skrifar:
Mig langar til aö spyrja forráða-
menn rásar 2 hvort þeir hafi heyrt
minnst á tónlistarstefnu þá er nefnist
þungarokk. Eg held ekki en ef svo er af
hverju er þaö þá aldrei spilaö á rás-
inni? Þaö er til skammar aö sniöganga
þessa tónlist eins og gert er. Jafnvel
Siguröur Sverrisson, forsprakki
þungarokksklúbbsins á sínum tíma,
spilar næstum því aldrei þungarokk í
morgunþætti sínum. Einstaka jákvæð-
ur punktur hefur þó litið dagsins ljós
s.s. kynningar Rokkrásarinnar á Deep
Purple og Led Zeppelin, sem voru til
fyrirmyndar.
Mér þætti tilvalið aö hafa þunga-
rokksþátt á dagskrá rásar 2 eins og
þar eru nú reggíþáttur, þáttur um tón-
list 5. áratugarins, íslenska tónlist,
kristilega popp- og soultónlist, o.s.frv.
, FÁNÝTT,
UTVARPSRAÐ
Eitthvað á þessa leiö hljóðaöi frétt
i dagblaði fyrir stuttu. Ennfremur
sagöi í fréttinni um bókun útvarps-
ráðs aö „staöreyndin væri, aö kann-
anir hvarvetna erlendis sýndu ótví-
rætt að þessir þættir væru meöal
langvinsælasta efnis hjá öllum þorra
almennings, og mætti daglega lesa
áskoranir til sjónvarpsins í lesenda-
bréfum dagblaöa hér að hafnar yrðu
útsendingar á einhverjum af þessum
þáttum. — Bókunin frá útvarpsráöi
væri því tilkomin til aö knýja á, hvaö
þessum málum viöviki”!
Sem sagt — útvarpsráö var að
rumska nú, í mars 1985, þegar allir
hafa löngu afskrifaö sjónvarpiö hvað
þessa þætti varðar, enda allflestir
fengiö videotæki og horfa nú á alla
þessa þætti, án tilverknaðar sjón-
varpsins.
tltvarpsráöi hefði verið nær aö
rumska fyrr. Nú er þaö oröiö of
seint; þessir þættir eru löngu komnir
í umboössölu til einkaaöila hérlendis,
þar sem íslenska sjónvarpið virtist
ekki hafa áhuga.
Og sjónvarpið viröist enn engan
áhuga hafa á einu né neinu, sem er
flokkað undir skemmtiefni. Sl.
sunnudagskvöld var dagskráin enn
eins léleg og hún getur verið: Sjón-
varp næstu viku — Stiklur —
Finnsk sjónvarpsmynd í þremur
hlutum og jazz i Gamla bíói — síðan
fyrir tveimur árum.
Sjónvarpiö er nú aö senda til út-
landa mannskap til að gera viötals-
þátt um rithöfund og heimspeking.
Þaö á að vera liður í andlitslyftingu
sjónvarpsdagskrár. — Otvarpsráð
ætti að gera bókun um að láta kanna
kostnað vegna gerö þessa þáttar.
Sannleikurinn virðist vera sá að
svokölluð lista- og skemmtideild
stendur ekki undir nafni og viröist
stjórnað af þröngsýni og and-
bandariskum áhrifum. — Utvarps-
ráð hefur þar ekkert aö segja, enda
fánýtt með öllu, og óþarft.
Sjónvarpsnotandi skrifar:
Margt er nú hægt aö segja um sjón-
varpið og dagskrá þess, og fátt gott.
Stærsta glappaskot þess hefur þó
sennilega veriö, þegar þaö ákvaö,
eða þeir tveir aðilar sem sagöir eru
ráöa á lista- og skemmtideildinni
(sér er nú hver skemmtunin!), að
klippa á sýningu Dallas-þáttanna,
þrátt fyrir itrekaðar áskoranir um
hiö gagnstæða.
Og nú loksins, hinn 1. mars 1985, er
aö renna upp fyrir útvarpsráöi aö
þættirnir Dallas, Falcon Crest og
Dynasty séu nú liklega þaö vinsælir
hjá almenningi að óhætt sé að sam-
þykkja „bókun” ráösins þess efnis,
aö farið sé fram á við stjórnendur
lista- og skemmtideildar sjónvarps-
ins, aö þeir geri nú þegar gangskör
aö fá til sýninga einhverja af þessum
geysivinsælu þáttum.
Sjónvarpsnotandi telur útvarpsráð óþarft og bókun þess um Dallas,
Falcon Crest og Dynasty koma allt of seint. Á myndinni sjást stjörnurn-
ar úr Dynasty.
Fólk í
hjólastólum
Kona hringdi:
Hjólastólakeppnin í Laugardalshöll-
inni vakti mann til umhugsunar um
málefni þeirra sem eru bundnir við
hjólastóla. I framhaldi af því langar
mig til að spyrja af hverju það er ekki
gert ráö fyrir aðstöðu fyrir hjólastóla
viö tröppurnar sem er verið að byggja
bak viö Hugvísindahús Háskólans.
Fatlaðir eiga erindi þarna inn og þaö
er sjálfsagt aö taka tillit til þeirra.
Ragnar Ingimarsson hjá Háskólanum:
Þaö er svo mikil hæö þarna viö þess-
ar tröppur aö það er nánast ógerningur
að koma þar viö skábraut. Afturá móti
er gert ráð fyrir greiðri Ieiö fyrir hjóla-
stóla ef farið er út á Sturlugötuna og
síðan til baka með húsinu aö aðalinn-
ganginum.
Stigar aru erfiður farartálmi fyrir
fólk í hjólastólum.
KOTDNGSHATTUR
ISLENDINGA
Ámi hringdi:
Eg hef nú ekki mikið vit á tónlist en
alltaf hef ég þó jafngaman af því aö
hlusta á góða söngvara syngja hvort
sem er í óperum eða einsöngslög. Eg
hlustaði nýlega á útsendinguna frá
Englandi þar sem aöstandendur tón-
leikahússins tilvonandi stóðu fyrir tón-
leikum og hafði út af fyrir sig af því
ágæta skemmtun. Þama var mjög
hæft tónlistarfólk á ferð.
Eitt var það þó sem mér gramdist
mjög við allt þetta. Mér finnst óþarfi
að viö Islendingar séum að stofna til
einhverra fjáröflunartónleika úti í
heimi með ýmsum erlendum lista-
mönnum. Ef við viljum byggja tón-
leikahöll þá getum viö og eigum aö
fjármagna hana sjálfir úr eigin vasa
en ekki ganga bónarveg annars staðar.
Eg get ekki varist því að finna fyrir
einhverjum kotungshætti í þessu öllu
saman.
Nálar-
stungu-
læknir
óskast
Ragna skrifar:
Eg er í smávanda. Mig vantar nefni-
lega nafn á einhverjum lækni sem
leggur stund á nálarstungur. Eg er bú-
in að spyrjast fyrir hér og þar en ekk-
ert gengur.