Dagblaðið Vísir - DV - 08.03.1985, Síða 28
40
DV. FÖSTUDAGUR 8. MARS1985.
Peningamarkaður
Innlán með sérkjörum
Alþýðubankinn: Stjornureikningar eru
fyrir 15 ára og yngri og 65 ára og eldri.
Innistæður þeirra yngri eru bundnar þar til
þeir verða fullra 16 ára. 65—75 ára geta losað
innstæður með 6 mánaða fyrirvara. 75 ára og
eldri með 3ja mánaða fyrirvara. Reikning-
ai nir eru verðtryggðir og með 8% vöxtum.
Þriggja stjörnu reikningar eru með hvert
innlegg bundið í tvö ár. Reikningarnir eru
verðtryggðir og með 9% vöxtum.
Lífeyrisbók er fyrir þá sem fá lífeyri frá líf-
eyrissjóöum eða almannatryggingum.
iunstæður eru óbundnar og óverðtryggðar.
Vextireru31% ogársávöxtun31%.
Sérbók fær strax 3!.%nafnvexti 2% bætast
síðan við eftir tiverja þrjá mánuði sem
innstæða er óhreyfð, upp í 36% eftir níu
mánuði. Arsávöxtun getur orðið 37.31%
Innstæður eru óbundnar og óverðtryggðar.
Búnaðarbankinn: Sparibók með sérvöxtum
er óbundin 35% nafnvöxtun og 35% árs-
ávöxtun sé innstæða óhreyfð. Vextir eru
færðir um áramót og þá bornir saman við
vexti af þriggja mánaöa verðtryggðum reikn-
ingum. Reynist ávöxtun þar betri er mismun
bætt viö.
Af hverri úttekt dragast 1.8% í svonefnda
vaxtaleiðréttingu. Sparibókin skilar hærri
ávöxtun en almenn sparisjóðsbók á hverju
innleggi sem stendur óhreyft i tvo mánuði eða
lengur.
Iðnaðarbankinn: A tvo reikmnga i
bankanum fæst IB-bónus. Overðtryggðan 6
mánaða reikning sem ber þannig 36%
nafnvexti og getur náð 39.24% ársávöxtun. Og
verötryggðan 6 mánaöa reikning sem ber
3.5% vexti. Vextir á reiknmgunum eru bornir
saman mánaðarlega og sú ávöxtun valin sem
reynist betri. Vextir eru færðir misserisiega,
30. júní og 31. desember.
Landsbankinn: Kjörbók er óbundin með
35% nafnvöxtum. Vextir eru færðir um ára-
mót. Eftir hvern ársfjórðung eru þeir hins
vegar bomir saman við ávöxtun á 3ja mánaða
verðtryggðum reikningum. Reynist hún betri
gildir hún umræddan ársfjórðung.
Af hverri úttekt dragast 2.1% i svonefnda
vaxtaleiðréttingu. Kjörbókin skilar hærri
ávöxtun en almenn sparisjóösbók á hverju
innleggi sem stendur óhreyft í tvo mánuði eða
lengur.
Samvinnubankinn: Innlegg á Hávaxta-
reikning ber stighækkandi vexti. 24% fyrstu 2
mánuöina, 3. mánuðinn 25.5%, 4. mánuðinn
27%, 5. mánuöinn 28.5%, 6. mánuöinn 30%.
Eftir 6 mánuði 31.5% og eftir 12 mánuði
32.5%. Sé tekið út standa vextir þess tímabils
það næsta einnig. Hæsta ársávöxtun er
35.14%.
Vextir eru bornir saman við vexti á 3ja og 6
mánaða verðtryggðum sparireikningum. Sé
ávöxtun þar betri er munurinn færður á Há-
vaxtareikninginn. Vextir færast misseris-
lega.
Utvegsbaukinn: Vextir á reikningi með
Ábót er annaðhvort 2,75% og full verðtrygg-
ing, eins og á 3ja mánaða verötryggðum
sparireikningi, eða ná 34,6% ársávöxtun, án
verðtryggingar. Samanburður er gerður
mánaðarlega, en vextir færðir í árslok. Sé
tekið út af reikningnum gilda almennir spari-
sjóðsvextir, 24%, þann almanaksmánuö.
Verslunarbbnkinn: Kaskó-reiknmgurinn er
óbundinn. IJm hann gilda fjögur vaxtatímabil
á ári, jsnúar—mars, apríl—júní, júlí—
september, október—desember. 1 lok hvers
þeirra fær óhreyfður Kaskó-reikningur vaxta-
uppbót sem miðast við mánaðarlegan út-
reikning á vaxtakjörum bankans og hag-
stæðasta ávöxtun látin gildþ. Hún er nú ýmist
•á óverðtryggðuin 6 mán. reikningum með
30% nafnvöxtum og 33.5% ársávöxtun eða á
verðtryggðum 6 mánaða reikningum með 2%
vöxtum.
Sé lagt inn á miðju tímabili og inn stxða
látin óhreyfö næsta tímabil á eftir reiknast
uppbót allan sparnaðartímann. Við úttekt
feliur vaxtauppbót niður það tímabil og vextir
reiknast þá 24%, án verðtryggingar.
tbúðalánareikningur er óbundinn og með
kaskó-kjörum. Hann tengist rétti tii lántöku.
Sparnaður er 2—5 ár, lánshlutfall 150—200%
miðað við sparnað með vöxtum og
verðbótum. Endurgreiðslutími 3—10 ár.
Utlán eru með hæstu vöxtum bankans á
hverjum tíma. Sparnaöur er ekki bundinn við
fastar upphæðir á mánuði. Bankinn ákveður
hámarkslán eftir hvert sparnaðartímabil. Sú
ákvörðun er endurskoðuð tvisvar á ári.
Sparisjóðir: Vextir á Trompreikningi eru
stighækkandi. 24% fyrstu þrjá mánuðina, 4.—
6. mánuð 27%, eftir 6 mánuði 31.5% og eftir 12
mánuði 32.5%. Arsávöxtun 35.1%. Sé tekið út
af reikningi á einhverju vaxtatimabilinu,
standa vextir þess næsta timabil. Sé
innstæða óhreyfð í 6 mánuði frá innleggsdegi
er ávöxtun borin saman við ávöxtun 6
mánaða verðtryggðs reiknings. Sú gildir sem
betri reynist.
Rikissjóður: Spariskirteini, 1. flokkur A,
1985, eru bundin í 3 ár, til 10. janúar 1988. Þau
eru verðtryggð og meö 7% vöxtum,
óbreytanlegum. Upphæðir eru 5.000,10.000 og
100.000 krónur.
Spariskírteini með vaxtamiðum, 1. flokkur
B 1985, eru bundin í 5 ár, til 10. janúar 1990.
Þau eru verðtryggð og með 6.71 vöxtum.
Vextir greiöast misserislega á tímabilinu,
fyrst 10. júlí næstkomandi. Upphæðir eru 5,
10 og 100 þúsund krónur.
Spariskirteini með hreyfanlegum vöxtum
og vaxtaauka, 1. flokkur C 1985, eru bundin til
10. júlí 1986, í 18 mánuði. Vextir eru
hreyfanlegir, meðaltal vaxta af 6 mánaða
verðtryggðum reikningum banka með 50%
álagi, vaxtaauka. Samtals 5.14% nú.
Upphæðir eru 5,10 og 100 þúsund krónur.
Gengistryggð spariskírteini, 1. flokkur SDR
1985, eru bundin til 10. janúar eða 9. apríl 1990.
Gengistryggmg miðast við SDR-reiknimynt.
Vextir eru 9% og óbreytanlegir. Upphæðir eru
5.000,10.000 og 100.000 krónur.
Spariskírteini ríkissjóðs fást í Seðla-
bankanum, hjá viðskiptabönkum, spari-
sjóðum og verðbréfasölum.
Útlán lífeyrissjóða
Um 90 líféyrissjóöir eru í landinu. Hver
sjóður ákveður sjóðfélögum lánsrétt, lána-
upphæðir, vexti og lánstíma. Stysti tími að
lánsrétti er 30—60 mánuðir. Sumir sjóðir
bjóða aukrnn lánsrétt eftir lengra starf og
áunnin stig. Lán eru á bilinu 144.000—600.000
eftir sjóðum, starfstíma og stigum. Lánrn eru
verðtryggð og með 5—8% vöxtum. Lánstími
er 15—35 ár eftir sjóðum og lánsrétti.
Biötími eftir lánum er mjög misjafn,
breytilegur milli sjóða og hjá hverium sióði
eftiraðstæðum.
Hægt er að færa lánsrétt þegar viðkomandi
skiptir um lífeyrissjóð eða safna lánsrétti frá
fyrri sjóðum.
Nafnvextir, ársávöxtun
Nafnvextir eru vextir í eitt ár og reiknaöir í
einu lagi yfir þann tíma. Reiknist vextir oftar
á ári verða til vaxtavextir og ársávöxtunin
veröur þá hærri en nafnvextirnir.
Ef 1.000 krónur liggja inni í 12 mánuöi á
24,0% nafnvöxtum verður innstæöan í lok
þess tíma 1.240 krónur og 24,0% ársávöxtun í
því tilviki.
Liggi 1.000 krónur inni í 6+6 mánuöi á 24,0%
vöxtum reiknast fyrst 12% vextir eftir sex
mánuðina. Þá er innstæðan komin í 1.120
krónur og á þá upphæð reiknast 12% vextir
seinni sex mánuðina. Lokatalan veröur
þannig kr. 1.254.40 og ársávöxtunin 25,4%.
Dráttarvextir
Dróttarvextir
I mars eru dráttarvextir 4%. Dráttarvextir
á ári reiknast 48%, dagvextir eru því 0.1333%.
Vísitölur
Lánskjaravísitaian
fyrir mars 1985 er 1077 stig, en var 1.050 stig í
febrúar. Miðað er við 100 í júní 1979.
Byggingarvísitalan
fynr fyrstu þrjá mánuði ársins er 185 stig.
Hún var 168 stig siðustu þrjá mánuöi ársins
1984. Miðað er við 100 í janúar 1983.
VEXTIR BANKA OG SPflRISJÓÐA (%)
INNLAN með SÉRKJ0RUM SJA sérusta liil iiiiiniÍMi li >s
innlAn överðtrycgð
SPARISJ0OSBÆKUR Úbundnmtaða 24D 244) 244) 245 245 245 245 245 245 245
SPARIREIKNINGAR mánaóa uppsögn w 285 274) 275 275 275 275 275 275 275
6 mánaóa uppsögn 38J 39J 304) 315 365 31,5 315 305 315
12 mánaða uppiögn 324) 3445 324) 315 325
IB mánaóa uppiögn na WA 37A
SPARNAÐUR - UNSRÍTTUR Sparað 3-5 mánuói 274) 275 275 275 275 275 275
Spanð fi mán. og maái 31.5 305 275 Z75 315 305 305
MNUNSSKlRTEMI Ti 6 mánaða 324) 34.8 304) 315 315 31.5 325 315
TÉKKAREIKWNGAR Avfunaraimingar 224) 224) 185 115 195 195 195 195 185
Hlauparaðmingar 194) 164> 185 115 195 125 195 195 185
innlAn verðtryggð
SPARIREIKNINGAR 3p mánaða uppsöp 44) 44> 25 05 25 15 2.76 15 15
6 mánaða uppsögn BÆ 84) 35 35 35 35 35 25 35
INNLAN gengistryggð
GJALOEYRISREIKNINGAR Bandarfkjadolarar 95 95 15 85 7.5 75 7.5 75 85
Starfingspund 10,0 95 105 115 105 105 105 105 8.5
Vsstur þýsk mörk 44) 45 45 65 45 75 45 45 45
Oanskar krónur 10,0 95 105 141 105 105 10.0 105 8.5
útlAn överðtryggð
ALMENNIR VlXLAR (forvaxtx) 3141 315 315 315 315 315 315 315 315
VIOSKIPTAVlXUR (forvflxtir) 324) 325 325 325 325 325 325 325 325
ALMENN SKULOABRÉF 344) 345 345 345 345 345 345 345 345
VKJSKIPTASKULDABRÉF 354) 355 355 355 355 355
HLAUPAREIKNINGAR Yfirdráttw 324) 325 325 325 325 325 325 325 325
útlAn verðtryggð
skuidabrEf Að 2 1/2 ári 44) 45 45 45 45 45 45 45 45
Langrí an 2 1/2 ár 54) 55 55 55 55 55 55 55 55
útlAn til framleiðslú
VEGNAINNANLANDSSOLU 244) 245 245 245 245 245 245 245 245
VEGNA ÚTFLUTNMGS SOR raðmimynt. . j Mj 95 w 85 95 II , 05 95 95
í gærkvöldi______ I gærkvöldi
Fjölbreytni á rás 2
Nú hefur rás eitt fengið verðuga
samkeppni á fimmtudagskvöldum.
Rás tvö er nefnilega farin að færa sig
upp á skaftið. Olikt öörum út-
sendingartímum er dagskrá hennar
þessi kvöld mjög f jölbreytt og ætti að
höfða til f lestra aldurshópa.
1 gærkvöldi hófst hún að vanda á
kynningu á vinsældalista rásarinnar
þar sem hinn ágæti útvarpsmaöur
Ásgeir Tómasson lék tíu vinsælustu
lögin þessa vikuna. Hlustendur velja
þennan lista með því að hringja og
greina frá þremur bestu lögunum að
þeirra mati en þar sem áhangendur
vissra hljómsveita virðast lang-
samlega duglegastir að kveða sér
hljóðs hefur listinn ekki gefið vís-
bendingu um raunverulegar
vinsældir. Þannig er vinsælasta lagið
á Islandi hin ævaforna lumma, Save
a prayer, með þjóðlagasöngv-
urunum í Duran Duran. Þaö er ljóst
aö gera þarf breytingar á þessu
vinsældavali ef mönnum er á annaö
borð ætlað að taka eitthvert mark á
því.
Annar þáttur Þriðja mannsins
kom næstur og ef að líkum lætur á
þessi yfirheyrsla þeirra Ingólfs Mar-
geirssonar og Arna Þórarinssonar
yfir þekktu fólki í þjóðlífinu eftir að
njóta mikilla vinsælda. Þaö er kær-
komin breyting að hlýða á eitthvað
Friðrik Ólafsson
skrifstofustjóri:
Útvarps-
dagskráin
hef ur
skánað
annað en tónlist á dagskrá rás-
arinnar. Guðrún Helgadóttir
alþingismaður var kokhraust að
vanda í gærkvöldi og lét þá félaga
ekki vaða ofanísig.
Svavar Gests var sjálfum sér líkur
í Rökkurtónum, trúr sinni kynslóð og
loks klykkti Vernharður Linnet út
með nammigotti fyrir djassgeggjara
í skemmtilegri upprifjun á tón-
leikum Chet Baker í Gamala bíói
fyrr ívetur.
Flestir ættu að hafa fundið
eitthvað viö sitt hæfi, ja, nema ef
vera skyldu þungarokksaödáendur.
Það verður víst að haf a það.
-Jón Karl Helgason.
Eg fylgist með sjónvarpinu eins og
kostur er og þar er ýmislegt áhuga-
vert á dagskrá þess. Helst finnst mér
dagskránni ábótavant um helgar
þegar flestir gefa sér tíma til að
horfa á sjónvarpið. Það mætti til
dæmis vanda betur val á kvik-
myndunum sem sýndar eru. Astæða
þessa getur hugsanlega verið fjár-
skortur.
I útvarpinu hlusta ég á fréttir og
ýmis fróðleg erindi. Mér finnst dag-
skrá þess hafa farið skánandi undan-
farin ár og góðir þættir verið gerðir
um ýmislegt úr sögu landsins og at-
buröi sem hafa sögulegt gildi.
Rás 2 stendur fyrir sinu. Þar
virðist sjóndeildarhringurinn vera
að stækka því auk tónlistarinnar
hefur verið tekin upp viss umfjöllun
um þjóölífið.
Ölöf Halldórsdóttir lést 1. mars sl. Hún
fæddist þann 9. mars 1896 í Neðri-Miö-
vík, Aðalvík í Sléttuhreppi. Foreldrar
hennar voru hjónin Halldór Theófílus-
son og Kristjana Jónsdóttir. Olöf giftist
Sigurði Hallvarðssyni en hann lést árið
1977. Þeim hjónunum varð sex barna
auðiö. Otför Ólafar veröur gerð frá Bú-
staðakirkju í dag kl. 15.
Anna Guöbrandsdóttir Kroeger frá
Loftsölum andaðist 5. þ.m. á heimili
sínu í Sarasota, Florida.
Kári Guðjónsson rafvirki, Hagamel 28,
andaöistö.mars.
Sigrún Jónasdóttir frá Húsavík,
Klapparstíg 4 Njarövík, sem andaðist
2. mars síðastliðinn, verður jarðsungin
frá Y-Njarðvíkurkirkju laugardaginn
9. mars kl. 16.
Guðmundur G. Hagalin rithöfundur
verður jarðsunginn frá Reykholts-
kirkju í Borgarfiröi laugardaginn 9.
mars kl. 14. Rútuferð frá Umferðar-
miðstöðinni í Reykjavík kl. 11 f.h.
Nói Bergmann, Tacoma Washington,
lést 2. marssl.
Eilífur Óiafsson, Nýbýlavegi 36 Kópa-
vogi, lést 19. febrúar 1985. Utförin hef-
ur farið fram í kyrrþey.
Guðni Þorsteinsson múrarameistari,
Selfossi, verður jarðsunginn frá Sel-
fosskirkju laugardaginn 9. mars kl.
13.30.
Einar Þór Agnarsson, Smyrilsvegi 29,
verður jarðsunginn frá Fossvogs-
kirkju í dag kl. 15.
Sturla Steindór Steinsson, Suðurgötu 4,
veröur jarðsunginn frá: Fossvogs-
kirkjuí dagkl.
Afmæli
70 ára er í dag, 8. þ.m., Kári tsleifur
Ingvarsson trésmiður, Heiðargerði 44
Reykjavík. Hin síðari ár hefur hann
verið húsvörður hjá Landssíma Is-
lands. Kona hans er Margrét Stefáns-
dóttir. Þau eiga þrjú börn.
Tilkynningar
Gullúr tapaðist
á Laugaveginum
Á fimmtudaginn sl. tapaðist tölvugull-
úr fyrir framan tískuverslunina 17.
Drengimir tveir sem gáfu sig fram í
versluninni eru vinsamlegast beönir
aö hringja í síma 667239 eftir kl. 19 eða í
síma 17015 á daginn. Fundarlaun.
Tölvur '85
Dagana 7,—10. mars næstkomandi
verður haldin tölvusýning í anddyri
Laugardalshallar. Hún ber nafniö
Tölvur ’85 og er í umsjá félags
tölvunarfræðinema við Háskóla
Islands.
Þetta er í annað sinn sem félagið
stendur fyrir slíkri sýningu en fyrir
tveimur árum var haldin tölvusýning á
vegum þess sem þótti takast mjög vel.
Fjölmörg fyrirtæki taka þátt í sýning-
unni og munu þau bjóða upp á margt
nýtt og fróðlegt.
Bryddað verður upp á þeirri nýjung að
sett verður upp örtölvuver með einka-
tölvum sérstaklega fyrir sýningar-
gesti. Þar geta þeir sest niöur og próf-
að sjálfir hinar ýmsu tölvutegundir og
hugbúnaö. Samfara örtölvuverinu
verður sýnt það nýjasta af skákfor-
ritum.
1 tengslum við sýninguna verður staðið
fyrir fyrirlestrahaldi. Mun hver dagur
hafa sína yfirskrift, þ.e. hvern dag
sýningarinnar verður tekið fyrir
ákveðið efni og reynt að gera því
nokkuðgóðskil.
Hundur í óskilum
Hjá Dýraspitalanum er í óskilum
gulur, íslenskur hundur sem fannst
hjá BSI að kvöldi 5. mars. Eigandinn
er vinsamlegast beðinn að vitja hans.
Síminn h já Dýraspítalanum er 76620.
Dekkja
útsala
Eigum yfir 100
notuð vörubfladekk
í stærðunum 1100 x 20 og
1000 x 20. Nylon, radial
á mjög góðu verði.
250
kaldsóluð radíaldekk
af ýmsum stærðum
og gerðum á hreint hlægi-
legu verði, komdu og
skoðaðu um leið nýja
verkstæðið
- við skiptum um fyrir þig
á staðnum.
Kaldsóiun hf.
Dugguvogi 2. Sími: 84111
Sama húsi og Ökuskólinn.