Dagblaðið Vísir - DV - 13.03.1985, Blaðsíða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 13.03.1985, Blaðsíða 4
4 DV. MIÐVIKUDAGUR13. MARS1985. Umsóknir bændanna íÞykkvabæ: Búmarksnefnd skoðar málið „Þaö er ekki til neitt svar viö um- sóknum kartöflubænda um búmark. Vitaskuld verður aö skoöa mál hvers einstaklings fyrir sig,” sagöi Ingi Tryggvason, formaður Framleiöslu- ráös landbúnaöarins, er DV ræddi viö hann um umsóknir kartöflubænda í Þykkvabænum. Ingi sagöi að bændurnir heföu sótt um ótiltekið búmark í kjöt- og mjólkur- framleiðslu. Ekki væri vitaö hversu mikiö magn væri um aö ræöa því þaö kæmi ekki fram í umsóknunum. Marg- ir umræddra bænda heföu þegar bú- mark þótt þeir notfærðu sér þaö ekki allir. Aðspurður hvort hinir, sem ekk- ert búmark hefðu, fengju jákvæöar undirtektir Framleiösluráös viö um- sóknum sínum kvaöst Ingi ekkert vilja fullyrða um þaö. Víst væru erfiðleikarí kartöflubúskap um þessar mundir. En ekki væri síöur þröngt í framleiöslu á heföbundnum búvörum. ,,Þaö eru uppi skoöanir um aö þaö þurfi aö verða breytingar í kartöflu- ræktinni,” sagöi Ingi. „Þaö er mikil áhætta samfara henni. Þær raddir eru auövitað til sem segja aö ráöið sé aö f jölga kartöflubændum en aö hver um sig sé ekki eingöngu háöur þeirri fram- leiöslu. Þetta er viöhorf sem hefur full- an rétt á að vera tekið til athugunar.” Varöandi umsóknir kartöflubænd- anna í Þykkvabæ sagöi Ingi aö bú- marksnefnd myndi taka þær til meö- ferðar. Renna þyrfti sem traustustum stoðum undir afkomu þessara manna. Hins vegar væri þröngt um fjármuni til framkvæmda í landbúnaöi og erfiðleik- ar í framleiöslu á nefndum búvörum. -JSS Stúlkurnar sem slógu íslandsmetið í snú snú. Óvenjulegt íslandsmet: HOPPUÐU OG SNERU í 24 KLUKKUTÍMA Stúlkur úr tveimur 12 ára deildum í Seljaskóla í Breiöholti tóku sig til um helgina 2.-3. mars og geröu atlögu aö mjög svo óvenjulegu og frumlegu Is- landsmeti. Var hér um „snú snú” aö ræöa. Islandsmetið áttu unglingar á Akur- eyri og var það24 klukkustundir og var takmarkið aö slá þaö. Hópurinn hófst handa kl. 9 á laugardagsmorguninn og linnti ekki látunum fyrr en metiö var slegið og gott betur kl. 11 á sunnudag- inn. Var þá búið aö hoppa stanslaust í 26 klukkustundir. Þaö var því ánægöur en þreyttur hópur sem hélt heimleiðis með Islandsmet í f arangrinum. Forráðamenn Breiðholtsútibús, Bjarni Magnússon, til vinstri, og Brynjólfur Helgason, á meðal frækinna sigurvegara Seljaskóla og Langholtsskóla eftir að verð- laun höfðu verið afhent. Á stærri myndinni sjáum við hluta þátttak- enda með viðurkenningarskjöl sin. Ljósm. KAE. Hátt íþrjú hundruð þátttakendur íLandsbankamótinu: UÐ SEUASKÓLA SIGRAÐI Breiöholtsútibú Landsbanka Is- lands hélt, í samvinnu við körfu- knattleiksdeild ÍR, fjölmennt körfu- knattleiksmót um helgina. Að sögn Brynjólfs Brynjólfssonar, skrifstofustjóra hjá Breiðholtsútibúi, var keppnin sniðin fyrir alla ellefu ára bekki í grunnskólunum í Breið- holti, bæöi stelpur og stráka, og var hverri bekkjardeild heimilt aö senda eins mörg fimm manna keppnislið og hver vddi. Þetta er annað skiptiö sem þetta mót er haldiö og í ár voru þátttakendur um 270. Keppt var í íþróttahúsi Fellaskóla og var keppnin með útsláttarfyrir- komulagi. Eftir mikla og spennandi keppni stóö liö frá Seljaskóla uppi sem sigurvegari, sigraði jafnaldra sina frá Langholtsskóla í skemmti- legum úrslitaleik. IR var löngum með mikið íþróttastarf í Langholts- hverfi og þótti því hæfa að bjóða Langholtsskóla aö vera meö í keppn- inni. Eftir líf lega keppni var öllum þátt- takendum boðið upp á veitingar hjá landsbankamönnum og hverjum þátttakanda veitt viðurkenning. hhei. ENGIN VIÐBRÖGÐ FRÁ KALEVISORSA — við afsökunarbeiðni Jóns Baldvins Engin viðbrögð hafa enn borist frá Kalevi Sorsa, forsætisráöherra Finn- lands, vegna afsökunarbeiðni Jóns Baldvins Hannibalssonar, formanns Alþýðuflokksins. Ummæli Jóns Baldvins um „finn- landiseringu” móðguðu sem kunnugt er finnska forsætisráðherrann sem jafnframt er formaður finnska jafn-. aðarmannaflokksins og mætti hann ekki í veislu, sem Alþýðuflokkurinn hélt jafnaðarmönnum á Noröur- landaráðsþingi, af þeim sökum. Ástæðan fyrir fjarveru Sorsa úr veislunni uppgötvaöist ekki fyrr en hann var farinn aftur til Finnlands. Um hádegisbil á fimmtudegi sendi Jón Baldvin síðan afsökunarbeiðni til finnska forsætisráöherrans með telexskeyti. I gær höfðu engin við- brögð borist frá honum viö afsökun- arbeiðninni þar sem Jón Baldvin lof- ar meðal annars að nota ekki aftur þetta orð, „finnlandisering.” Jón Baldvin Hannibalsson sagði í samtali við DV í gær að hann gerði ráð fyrir svari frá Kalevi Sorsa og hefði reyndar reiknaö með að það kæmistrax. ÖEF ídagmælir Dagfari í dag mælir Dagfari I dag mælir Dagfari SOVÉSKT KVIKMYNDAEFTIRLIT í þessari viku er haldin Tarkofskí hátíð i Háskólabíói en þar eru sýndar kvikmyndir eftir sovéska kvik- myndagerðarmanninn Tarkofskí, sem mun sjálfur koma hingað til Iands af þessu tilefni. Tarkofskí er landflótta Rússi. Eins og aðrir þeir sem eitthvað geta í því landi neyddist hann til að flýja ættjörð sina þegar list hans gekk á skjön við flokkslínuna en eins og allir vita nær frelsi listamannsins í sæiuríki öreiganna jafn langt og smekkur flokksins leyfir. Sá sem ekki dansar á fiokkslinunni er ekki sannur lista- maður að mati æðsta ráðsins og er þá annaðhvort sveigður inn á linuna, rekinn í gulagið eða hrakinn úr landi. Tarkofskí er í síðastnefnda hópnum og má vist þakka fyrir. Hinsvegar náði manngæska æðsta ráðsins ekki til barna hans sem hafa ekki fengið fararleyfi frá sæluríkinu. Nokkrir góðviljaðir menn hér heima hafa viljað lýsa stuöningi við Tarkofskí í baráttu hans við að heimta börn sín úr helju sælunnar og þess vegna er kvikmyndahátíöin haldin. Einn hinna góðviljuöu manna er Thor Vilhjáimsson rithöfundur, sem lét þess getið í sjónvarpsviðtali á dögunum að hann talaöi frönsku og væri vinur Tarkofski af því hann kynni iika frönsku. Thor hefur hins- vegar átt fleiri vini þótt þeir mæli ekki á franska tungu og einhvern veginn hefur manni skilist að rit- höfundurinn hafi alla tíð haft hinar mestu mætur á sóvétskipulaginu og að minnsta kosti hefur hann verið óspar við hverskonar liðveislu þegar handbendi kommúnismans hafa þurft að punta sig með íslenskum listamönnum. Gengur venjuiegu fólki stundum erfiðiega að skilja þær þverstæður sem koma fram í þeim lífsskoöunum kommúnískra lista- manna að þykjast styðja frjálsar listir en gerast á sama tíma máis- varar þess þjóðskipulags sem hneppir ýmist frelsi iistamannsins í fjötra eða rekur þá úr iandi. Þetta hefur þvælst fyrir fleirum en Dagfara og skal ekki orðiengt hér, nema hvað svo brá við þegar Thor Vilhjálmsson hafði sett hátíðina i Há- skólabíói að sovéska sendiráðið í Reykjavík krafðist stöðvunar á sýn- ingunni og hótaði málssókn ella. Nú er það kunnugt að sovéska sendi- ráðið hefur hér her af fólki sem enginn veit hvað hefur fyrir stafni. Ljóst er þó að það les bíóauglýsingar og er auk þess í beinu sambandi við Moskvu með myndarlegum skyggni á Túngötunni. Hefði maður haldið að Sovétmeon fögnuðu því þegar rússneskar bíómyndir eru sýndar í íslenskum bíóum, ekki síst þar sem sendiráðið heldur því fram að Sovét- stjórnin eigi sýningarréttinn af myndunum. En það er nú öðru nær. Hótanir sendiráðsins hljóta að vera öllum bíóáhugamönnum hvatning til að leggja leið sína vestur í Háskólabíó til að skoða það sem Sovétstjórnin vill ekki leyfa öðrum að sjá. Það hlýtur lika að vera nokkur fróðleikur fyrir kommún- istana i listamannastétt að sjá með eigin augum þá list sem kostar menn bæði fjölskyldu sina og ættjörð. Ef frelsið er það dýru verði keypt að þeir verði að fiýja land til að njóta þess þá er það einnar bíóferðar virði, fyrir hina sem hafa bæði bíóin og fjöiskylduna. Sem betur fer þurfa íslendingar ekki að biðja æðsta ráðið í Kreml um leyfi til að fara í Háskólabíó, ekki heldur Thor né allir hinir listamenn- irnir sem við önnur tækifæri hafa vegsamað Sovétstjórnina af þjónkun við kommúnismann. Satt að segja mundi heldur enginn amast við sendiráðsfólkinu sovéska ef það vildi skoða það sem það má ekki sjá. Dagfarl.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.