Dagblaðið Vísir - DV - 13.03.1985, Page 5

Dagblaðið Vísir - DV - 13.03.1985, Page 5
DV. MIÐVIKUDAGUR13. MARS1985. 5 Bjórfrumvarpiö ætti að komast ígegnum þingið: Eins atkvæðis meirí- hluti i efri deildinni DV kannar afstöðu þingmanna til bjórmálsins Umræða um bjórinn sterka í þjóðfé- laginu er að verða eins og sagan enda- lausa. Frumvarpið um breytingar á áfengislögunum var lagt fram á haust- dögum. Nú er það í nefnd, allsherjar- nefnd neðri deildar Alþingis. I fyrra var eitt „bjórfrumvarpið” svæft í þeirri nefnd. Margur er orðinn óþolinmóður eftir því að línur skýrist í bjórmáium þjóð- arinnar. Á meðan drekkur þjóðin létt- an bjór, blandaðan brenndum vínum en er meinað að drekka sterkan bjór nema örfáum „útvöldum”, farmönn- um og ferðamönnum. Við gerðum skoðanakönnun um bjór- inn á meðal þingmanna sem um þessar mundir sitja á Alþingi Islendinga en þeirra er valdið. Sextíumenningarnir á Alþingi hafa ekki allir gert upp hug sinn í bjórmál- inu. Sautján eru ennþá óákveðnir í af- stöðu til breytinga á áfengislöggjöfinni í þá veru að leyfa bruggun áfengs öls hér á landi. Tuttugu og sjö þingmenn hafa svarað jákvætt, spurðir um af- stöðu til frumvarpsins. Sextán svöruðu neitandi. I sameinuðu þingi er staða því þann- ig: 27 meö bjórnum. 16 á móti bjórnum. 17 óákveðnir eða svara ekki. Forsætisráðherra hefur boðað blaða- mönnum ákveðnar vinnureglur. Þær skal í heiðri hafa. Þar er um svokallað- an millilínulestur að ræða. Á ýmsum tungum Með þeirri „ríkisskipuöu” aðferð höfum viö fundið fimm jákvæða ein- staklinga í hópi hinna óákveðnu og „svara ekki” hópnum. Þeir hafa á hin- um ýmsu tungum tjáð okkur að þeir væru að linast í andspyrnunni gegn bjórnum. Einn svaraði: „mér þykir góður bjór”, annar svaraði: „já og Nokkrir sýningargestir að tafli við tölvur. Tölvusýningin: HVITIRIDDARINN VANN SKÁKMÓTIÐ Nemendur við tölvufræðideild Há- skóla tslands stóðu fyrir tölvusýn- ingu í anddyri Laugardalshallarinn- ar um helgina. Ymis fyrirtæki á tölvumarkaðinum voru með sýning- arbása og kynntu vörur sínar eða þjónustu, daglega voru haldnir fyrir- lestrar um tölvuvæðingu og tölvu- mál, auk þess sem gestum gafst kostur á að kynnast starfsemi og getu þessara töfratóla. A sýningunni fór fram skákmót, allsérstætt. Annars vegar tefldu gestir viö frægt skákforrit, White Knight, á Acom Electron tölvu og höfðu stundarfjórðung til að máta tölvuna. Hún fékk hins vegar að hugsa sig um í 10 sek. fyrir hvern leik. A annan tug manna bar þannig sigurorð af tölvunni um helgina. Verður dreginn úr nöfnum þeirra einn vinningshafi og hlýtur hann að sjálfsögðu Electron tölvu í verölaun. Hins vegar vom mismunandi skák- forrit látin tefla sín á milli. Urslita- viðureign í þeirri keppni varð hörku- spennandi þar sem fyrrnefnt White Knight forrit atti kappi við QL-chess forrit á Sinclair QL tölvu frá Heimii- istækjum. Fyrstu viðureign hugbún- aöanna lauk með jafntefli en í ann- arri viðureign þeirra tókst White Knight að sigra, væntanlega með kóngsbragði og eitruðu peði. Aðsókn að sýningunni var góð, á bilinu þrjú til fimm þúsund manns, aö sögn aðstandenda. Vonast þeir til að sýning sem þessi geti orðiö árleg- ur viðburöur í framtíðinni. -JKH Frjálsar eldspytur Efri deild Alþingis hefur samþykkt að afnema einokun ríkisins á vindl- ingapappír og eldspýtum. Eitt mótat- kvæði var við atkvæðagreiðsluna, frá Sigríði Dúnu Kristmundsdóttur, þing- manni Samtaka um kvennalista. Ástæðan fyrir mótatkvæðinu er tekju- tap ríkissjóð. Fjárhags- og viðskiptanefnd, sem fjallaöi um málið, ræddi þetta frum- varp til laga á tveimur fundum og mælir hún með því að frumvarpið verði samþykkt, Sigríður Dúna Krist- mundsdóttir með fyrirvara. Ragnar Arnalds hafði einnig fyrirvara á af- stöðu sinni til samþykktar frumvarps- ins, sem er sá að það hafi ekki í f ör með sér tekjutap fyrir ríkissjóð. Frumvarp þetta um breytingu á lögum nr. 63/1969 (um verslun ríkisins með áfengi, tóbak og lyf) var flutt af Karli Steinari Guðnasyni og Eiði Guðnasyni, þingmönnum Alþýðu- flokksins. Tekjur af eldspýtum til ríkisins munu hafa verið 10 milljónir kr. á ári. Því tekjutapi verður aö líkindum mætt með tollatekj um. -ÞG nei” um afstöðu til bjórsins. Það fara engar sögur af flokksböndum þess þingmanns. Sem ég hef verið að paufast við að kanna hugarheim sextíumenninganna á þingi til mjaðarins, hafa þeir hver af öðrum komið og leitað fregna. Hvernig gengur, er bjórinn kominn í gegnum neðri deildina? „Heyrðu, það er efri deildin sem allt veltur á — hver er staðanþar?” Eitt atkvæði í efra Þar eru „hrein já” ellefu talsins. Fimm „hrein nei” og fjórir óákveðnir eða vilja ekki svara. I efri deild Alþingis eiga sæti tuttugu þingmenn, þannig að þar í gegn færi „bjórfrumvarpiö” með eins atkvæðis yfirburðum. Með millilinulestrarað- ferðinni er einn í hópi hinna óákveðnu mjög jákvæður. Þannig að við at- kvæðagreiðslu þar gæti ölið fengið tólf atkvæði. I neðri deild eru f jörutíu þingmenn. Þar eru „hrein já” sextán, „hrein nei” ellefu og þrettán óákveðnir eða svara ekki. Og enn og aftur með lestrarað- ferð Steingríms þá eru f jórir af þrettán mjög jákvæðir í afstöðu. Þannig að þá eru jákvæðu svörin komin í þrjátíu og tvö, tvö atkvæði um- framhelming. Þetta er staðan í sögunni endalausu um bjór eða ekki bjór. Hvort þessi staða verður sú endanlega þegar og ef til atkvæðagreiðslu kemur er svo önn- ur saga. -ÞG Tuttugu og sjö þingmenn eru ákveðnir með bjórnum og af þeim sautján sem eru óákveðnir eða svara ekki eru nokkrir liklegir stuðningsmenn. Flokkur mannsins á Noröurlandi vestra: „BYLTING ÁN OFBELDIS” Frá Júlíusi Guðna Antonssyni, Sauðár- króki. Sunnudaginn 3. mars sl. var stofnað kjördæmisráð Flokks mannsins á Norðurlandi vestra á Hótel Varmahlíð. Stofnfundinn sóttu 2 til 3 fulltrúar frá hverjum þéttbýlisstaðanna í kjördæm- inu. Að sögn Halldóru Jónsdóttur, sem á sæti í landsráði F.M., er ætlunin að stofna félagsdeildir í öllum sýslum og kaupstööum kjördæmisins. Ætlunin er aö bjóöa fram í öUum kjördæmum landsins við næstu Alþingiskosningar. HaUdóra sagði að erfitt reyndist að fá fólk til starfa með flokknum vegna pólitísks ofbeldis á litlum stöðum úti á landi en taldi að það væri eingöngu tímabundið ástand þar sem fólk væri yfirleitt sammáia um nauðsyn á upp- stokkun í valdakerfi landsins. Starf F.M. væri að vissu leyti bylting án of- beldis og er hún næöist hér á Islandi yrði haldið út fyrir landsteinana. -EH s Hvað er svona merkílegt víð það að mála stofuna fyrír páska? Ekkert mál - með kópal.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.