Dagblaðið Vísir - DV - 13.03.1985, Page 19

Dagblaðið Vísir - DV - 13.03.1985, Page 19
DV. MIÐVIKUDAGUR13. MARS1985. 19 Laufey Jónsdóttir, t.h„ bætir pappír í Xerox. Með þeim á myndinni eru Linda Ferguson og Malcom Irving sem komu með vélinni hingað til lands til að kenna Laufeyju á hana. DV-mynd Bj. Bj. Mikilvægasti þingfulltrúinn Þaö er óhætt aö fullyröa aö einn mikilvægasti fulltrúi á Noröurlanda- þingi hafi veriö náungi eöa réttara sagt vélmenniðXerox. Xerox er ákaflega stilltur en ógurlega afkastamikill. Hann tók ekki þátt í neinu samsæti en vann iðulega langt fram á nætur á meðan á þinginu stóö. Verkefnin létu aldrei á sér standa. Mikiö er sagt og margt þarf aö fjölrita. Allar ræöur, sem fluttar voru þessa fimm daga sem þingiö stóð yfir, varö aö fjölfalda dag hvem. Að loknu þinginu var búið aö taka um 210 þúsund ljósrit. Þess ber aö geta aö prentað er báðum megin á pappírs- arkimar þar sem því var komið viö. Tókum bara með okkur þrjú tonn En pappírinn sem spýttist út úr Xerox þessa daga var ekki nema lítill hluti af því pappírsf lóöi sem f læddi yfir fundarmenn á Norðurlandaráösþingi. Stig Stenberg, Noröurlandaráös, sagöi DV aö aðeins hefði veriö tekiö brot af því pappírsmagni sem tekið er venju- lega. „Viö tókum aðeins þrjú tonn með okkur frá Stokkhólmi,” sagöi Stig. Það sem er í þessum tonnum eru alls kyns skjöl sem tengjast starfi Noröurlanda- ráðs. Pappír tekur pláss. Tonnin fyrmefndu komu með flugi frá Svíþjóö. I sömu flugvél voru ráðherrar og aðrir mektarmenn. En þrengsli voru mikil í vélinni sökum pappírsins. Það var því ekki nema Palme og tveir aörir ráðherrar sem sátu á fyrsta far- rými og létu fara vel um sig. Hinir húktu aftur í og kvörtuöu sáran um þrengsli. -APH. Ekki vitum við hvað þeim Ragnhildi Helgadóttur og Eiði Guðna- syni fer á milli þarna en á milli þeirra eru reykingar bannaðár. Eiður er formaður menningarmálanefndar Norðurlandaráðs þannig að við getum okkur til að menningarmálin hafi verið til umræðu hjá formanninum og menntamálaráðherra. -ÞG/DV-mynd Bj. Bj. Forsetar Forseti Norðurlandaráðs er sem kunnugt er Páll Pétursson, formaöur þingflokks Framsóknar. Varaforsetar ráðsins eru Anker Jörgensen, sem bauð til næsta þing aö ári í Kaupmannahöfn. Aörir varafor- setar eru Elsi Hetemáki-Olander frá Finnlandi, Gunnar Berge frá Noregi og Karin Söder, fyrrverandi forseti Norö- urlandaráös, frá Svíþjóð. Varamenn forsetanna eru Margrete Auken (D), Peter Muurman (F), Ölaf- ur G. Einarsson, Jo Benkow (N) og Gunnar Nilsson (S). -ÞG Eva Bratholm, fróttamaður norska sjónvarpsins, hafði í mörgu að snúast á meðan hún dvaldi hér ó landi. DV-mynd Bj. Bj. Með viðtal í sundlaugunum Það var stundum þröng á þingi í orðsins fyllstu merkingu á meðan þing Norðurlandaráðs stóð yfir í Þjóðleikhúsinu. Erlendu blaða- mennirnir notuðu hverja smugu, þaö var ekki óalgengt að sjá þá við störf á gólfinu. Flestir blaðamennirnir hömruðu á ritvélarnar með „tveggjafingraaðferðinni" sem er alls óskyld fingrasetningu vélritunarkennarans. -ÞG/DV-mynd GVA „Mér finnst aö ég sé persónulega tengd Noröurlandasamstarfinu og ég hef trú á því. En þaö getur verið að þaö sé hálfgamaldags,” sagöi Eva Brat- holm, norskur fréttamaöur frá norska sjónvarpinu. Hún hefur fylgst með Norðurlandaráðsþingum frá 1977 og þekkir vel til þess sem er aö gerast á þingum sem þessum. Þegar DV hitti Evu aö máli var hún meö blautt hárið og haföi áhyggjur af því að myndin af henni yrði ekki nógu góðvegnaþess. „Eg var nefnilega aö koma úr „sundlaugar” rétt í þessu. Við erum nefnilega að gera viðtalsþátt við Gutt- ormHansen,” sagöiEva. Guttormur Hansen er þekktur þing- maður í Noregi og þykir ákaflega skemmtilegur. Hann hefur setið Norö- urlandaráösþing í 15 ár og ætlar nú aö hætta. Sjónvarpið norska notaöi því tækifæriö til aö ræöa viö Guttorm hér uppi á Islandi. I því tilefni var farið i sundmeðkappann. Aö sögn Evu var einnig margt annað en þingiö sem vakti athygli hennar. Þar á meðal var kennaramálið og verkfallsjómanna. Eva fylgdist reyndar ekki meö Norð- urlandaráðsþingi seinast þegar þaö var hér á Islandi. Hún hefur því ekki komiö hingað áöur. Eins og vænta mátti var hún ákaflega hrifin af landi og þjóð. Hún sagðist ætla aö reyna að komast út fyrir borgina og sjá aö minnsta kosti Gullf oss og Geysi. APH

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.