Dagblaðið Vísir - DV - 13.03.1985, Síða 21
DV. MIÐVIKUDAGUR13. MARS1985.
21
Iþróttir
íþróttir
íþróttir
gþróttir
árangur í sumar”
„Ég er mjög bjartsýnn á góðan
árangur hjá mér í sumar. Ég hef æft
mjög vel og öðruvísi en áður og hef
alveg komist hjá meiðslum,” sagði
Einar Vllhjálmsson spjðtkastari í
samtali við DV. Elnar getur hagað
æfingum sínum öðruvísi fyrir kom-
andi keppnistímabil vegna þess að
hann keppir ekki fyrir skólann sinn í
vor.
„Ég reikna með aö byrja að kasta
utanhúss nokkru síðar en í fyrra og
það gefur mér aukinn tíma í undir-
Lárus Guðmundsson — þýðingarmikið
mark.
>koraði
narkið
vellinum og skemmtu sér konunglega.
Spenna gífurleg enda leikur milli
tveggja af efstu liöunum í Bundes-
ligunni. Werder Bremen náöi forustu í
leiknum. Skoraöi í fyrri hálfleik. I
ibyrjun síöari hálfleiks tókst fyrirliöa
okkar, Herget, aö jafna í 1—1 og
skömmu síðar skoraöi ég sigurmarkið.
Fleiri uröu mörkin ekki,” sagöi Lárus.
Tveir leikir voru í Bundesligunni og
urðu úrslit þessi:
Schalke-Leverkusen 4—2
Kaiserslautem-Mannheim 1—1
Þýski landsliðsmaðurinn Pierre Litt-
barski var í gær dæmdur í fjögurra
leikja bann. Var rekinn af velli í leik
viö Uerdingen fyrir 11 dögum. -hsím.
st Hansen
indsliðið
>em keppiráHM
Siguröardóttur og Sigrúnu Bjarnadótt-
ur en þær eru báöar í UMSB.
Borðtennismenn binda miklar vonir
við landsliösþjálfarann danska, Steen
Kyst Hansen, en hann var landsliðs-
þjálfari Dana áður en hann kom hing-
að í haust. Hansen þessi lék áöur knatt-
spymu með 1. deildar liöi Brönshöj en
hefur nú snúiö sér alfarið aö þjálfun
borðtennismanna. Danir standa mjög
framarlega í borðtennis og leika í a-
riöli í HM í Svíþjóð. Hansen kann því
ýmislegt fyrir sér og hefur hann gert
tveggja ára samning við Borötennis-
sambandlslands. -SK.
búning. Ég er því bjartsýnn á mótin í
sumar og stefni aö góðum árangri,”
sagði Einar.
Oddur verður sterkur
Einar sagöi aö ljóst væri aö Oddur
Sigurðsson yröi mjög sterkur í sum-
ar. „Hann hefur æft vel strákurinn
og Islandsmet hans í 400 metra
hlaupí innanhúss um daginn þar sem
hann hljóp á 47,68 sekúndum ber vott
um framfarir. Hann hefur veriö að
smástytta vegalengdirnar og ég tel
að hann murti ná mjög góöum tíma
strax í fyrsta hlaupi utanhúss í vor.
Þaö má mikið vera ef Islandsmet
hans fellur ekki fljótiega,” sagði Ein-
ar.
Þórdís og Eggert
í framför
Einar sagði í samtalinu við DV aö
þau Þórdís Gísladóttir og Eggert
Bogason hefðu einnig æft mjög vel og
I
væri mikils af þeim að vænta í sum- I
ar. „Þórdís hefur átt mjög góöar til- ■
raunirviöl,90metraíhástökkinuog |
þaö virðist tímaspursmál hvenær .
hún fer yfir þá hæö. Nú Eggert hefur |
kastaö kúlunni 17,88 metra og í ■
kringlunni er hann í mikilli framför. I
Hann er byrjaður aö kasta utanhúss I
og hefur þrisvar kastaö yfir 56 ■
metra. Hann viröist öruggur meö 56 I
metrana þrátt fyrir aö langt sé í aö *
hann verði í toppæfingu,” sagði Ein- I
arVilhjálmsson. -SK.j
Deildin galopnaðist
við sigur Man. Utd.
sigraði Tottenham, 2:1, á White Hart Lane
„Man. Utd verðskuldaði fyllilega
sigurinn. Lék oft frábærlega vel. I fyrri
hálfleiknum réð liðið alveg gangi leiks-
ins og einnig langtimum saman í þeim
síðari,” sagði Frank McLintock,
fyrrum Arsenal-fyrirliði, eftir að Man.
Utd sigraði Tottenham, 2—1, á White
Hart Lane i gærkvöldi. Fyrsti heima-
leikur Tottenham í 1. deild á árinu og
fyrsti tapieikurinn i deildinni á
fimmta mánuð. Við sigurinn gal-
opnaðist 1. deildin á Englandi. Everton
efst með 56 stig, Tottenham íöðru sæti
með 54 stig. Þá Man. Utd með 52 stig,
Southampton og Liverpool 49. Éverton
hefur leikið færri leiki en hin liðiðn.
Leikurinn í gærkvöld var mjög
spennandi en knattspyrnan ekkert sér-
stök. Meöan á lýsingu á leiknum stóð
sagöi McLintock aö dómarinn heföi
sleppt jveimur vítaspyrnum á United
— eina mark Tottenham skoraö úr
rangstöðu.
Man. Utd náöi strax góðum tökum á
leiknum þrátt fyrir fjarveru Robson,
Moses og Moran. A 23. mín. fékk liðið
aukaspyrnu sem Albiston tók. Gaf inn í
teiginn. Stapieton skallaöi til Hughes
sem skoraöi fallegt mark. Hans 18. á
leiktímabilinu. I leiknum var Hughes
hreint frábær, langbesti framherjinn
og áttu miðverðir Tottenham í miklum
erfiöleikum með hann. I byrjun s.h.
var Gary Stevens borinn af velli, Mike
Hazzard kom í staö hans, og
Tottenham lék mun betur en í f.h.
Komst þó lítiö áleiöis gegn sterkari
vöm United. Paul McGrath afar
sterkur.
Tottenham reyndi mjög aö jafna og
McLintock vildi fá víti, þegar Brooke,
besti maöur Tottenham, spyrnti knett-
inum í hendi Hogg. Ekkert dæmt og
Brian Butler, fréttamaður BBC, var í
miklum vafa hvort dæma ætti víti. En
eftir því sem leiö á háifleikinn voru
sóknarlotur United stórhættulegar.
Ray Clemence bjargaði þá oft snilldar-
lega, einkum frá Oisen. Þá komst
Daninn eitt sinn frír í gegn en
Perrymann náöi aö draga hann niður.
Var bókaöur, sjötti leikmaöurinn sem
bókaöur var i leiknum. Auk þess
Roberts og Miller hjá Tottenham,
Hughes. Hogg og Whiteside hjá United.
Á 84. mín. fékk Man. Utd hornspyrnu,
sem Strachan tók. Gaf fyrir og White-
side skallaöi í mark. Aftur fyrir sig.
Urslit virtust ráöin en tveimur mín.
síðar skoraöi Falco eina mark
Tottenham. Leikurinn fór fjórar min.
fram yfir 90 min. og Man. Utd var nær
aö skora fleiri mörk en Tottenham að
jafna. Liðin voru þannig skipuö.
Tottenham. Clemence, Perryman,
Houghton, Miller, Roberts, Stevens
(Hazzard), Hoddle, Brooke, Galvin,
Galco og Crooks. Blökkumaðurinn
Chiedozie settur úr liðinu. Man. Utd,
Bailey. Gidman, McGrath, Hogg,
Albiston, Strachan, Duxbury, White-
side, Olsen, Hughes og Stapleton.
Úrslit í öðrum leikjum.
1. deild:
Stoke-WBA 0-0
Sunderland—Watford 1—1
Walker skoraöi fyrir Sunderland.
Blissett jafnaöi. Þeir Bennett og
Jimmy Nichols voru reknir af velli hjá
WBA, Keith Bertschin hjá Stoke.
2. deild:
Carlisle—Birmingham 2—1
Charlton — Wolves 1—0
Portsmouth—Leeds 3—1
Shrewsbury — Huddersf. 5—1
3. deild:
Burnley—Doncaster
Newport—Gillingham
4. deiid:
Darlington—Crewe
Scunthorpe—Chester
Swindon—Bury
Wrexham—Halifax
0-1
0-3
2-1
2-1
1-0
0-1
Bogdan Kowalczyk í Póllandi.
Bogdan
íPóllandi
Bogdan Kowalczyk, landsliðsþjálfari ts-
lands í handknattleiknum, er nú sennilega
staddur í Póllandi. Pólsk stjómvöld hafa enn
ekki tckið ákvörðun um hvort Bogdan fær
ieyfi til að starfa áfram á Islandi fram yfir
heimsmeistarakeppnina í Sviss 1986.
Araarflug ákvað að bjóða Bogdan fritt far
til Hollands og aðstoða við framhaldsflug til
PóUands til að hann gsti sjálf ur reynt að flýta
afgreiðslu landsliðsþjálfaramálsins í Pól-
landi. Hann hélt utan í gærmorgun til Amster-
dam og síðan beint til Póilands. Hann kemur
aftur sömu leið á fimmtudagskvöld eftir því
sem segir í fréttatilkynningu frá Araarfiugi í
gær. hsím.
Óopinbert íslandsmót eldri kappa:
Komu fljúgandi f rá Akureyri
og urðu sigurvegarar
KA frá Akurcyri varð sigurvegarl á
miklu knattspyrnumóti innanhúss í
Digranesi um helgina — nokkurs kon-
ar óopinbert íslandsmót leikmanna 30
ára og eldri. Ellefu llð frá átta félögum
tóku þátt í mótinu. Fyrst lelklð i tveim-
ur riðlum og tvö efstu lið úr hvorum
riðli léku tll úrslita. KA-menn komu
fljúgandi aö norðan og flugu í gegnum
mótið með glæsibrag.
Úrslitakeppnin var háð á sunnudag
og til úrslita léku KA; Akrancs,
Breiðablik og KR. ÚrsUt i leikjunum
urðu þessi:
KA—KR 4-2
Akranes-Breiðablik 1—4
KA-Breiðabllk 1—1
KR-Akranes 5—4
KA-Akranes 4—1
KR-BreiðabUk 4-5
1 úrsUtakeppninni hlutu KA og
Breiðablik því fimm stig hvort Uð en
KA vann á betri markatölu 9—4 gegn
10—6.KR hlaut tvö stig. Akurnesingar
ekkert.
Auk þessara liða kepptu þar Uð frá
FH, Val, Vikingi og Þrótti. BreiðabUk,
Valur og Víkingur sendu t^ö Uð hvert
félag.
hsím.
Sigurður Jónsson sló í gegn i sín-
um fyrsta leik á Englandi.
ÞegarSiggi
fékk sjö
Aðeins tveir leikmenn fengu
hærri einkunn en Sigurður Jóns-
son í Sunday People á sunnudag
eftir leik Leicester og Sheff. Wed.,
þeir Marwood hjá Wednesday og
Wilson hjá Lelcester. Þeir fengu
átta. Tveir lelkmenn Sheff. Wed.,
Sigurður og Shelton, fengu sjö,
aðrir minna. Flmm leikmenn
Leicester fengu sjö í einkunn.
Hér á eftir fer einkunnargjöf
blaðsins en rétt er að geta þess að
ekki er farið rétt með föðurnafn
Sigga — hann kallaður Johnson.
Einnig í grein blaðsins um leikinn
sem við sögðum frá i gær.
hsím.
LEICESTER: AndrCws 7—
Feelsy 6, Williams 7, O’Neill 6.
♦ WILSON 8—Ramscy 5 (w’dn>.
Peako 6, Banks 7—Lynex 7,
Smith 6, Lincker 7. Sub: Wright
6.
WEDNESDAY: Hodge G—*
Shirtliff 6, Smith 6, Lyons 6,
Madden 5, Worthington 6—
Johnson 7, ShMton 7—ikMAR-
WOOD 8. Chapman 6, Varadi G.
Ref.: I. Borrett (SufTotk) G.
„Leik ekki
íkvöld”
— segirTorfi
Magnússon, Val, en
Valsmenn leika gegn
Haukum í Hafnarfirði
íkvöld
„Það er öruggt að ég get ekki
leikið með. Þessi meiðsli eru ai-
varlegri en ég hélt í fyrstu,”
sagði Torfi Magnússon, þjálfari
og leikmaður með Val í körfu-
knattleik, en hann meiddist í leik
Vals og Hauka í Laugardais-
höllinni á mánudagskvöld. Torfi
sneri sig í síðari hálfleik og er illa
tognaður.
„Þetta þjappar okkur bara
saman. Við gerum allt til að sigra
í kvöld og berjumst til síðasta
blóðdropa,” sagðiTorfi.
Þetta er miklð áfall fyrir
Valsmenn sem verða að sigra
Haukana i kvöld ef þeir ætla sér
að sigra í Isiandsmótinu. Þessi
meiðsl auka á sigurlíkur Hauka í
kvöld. Þeir verða þó að taka á
honum stóra sinum ef þeir ætla
að sigra. Það lið sem sigrar í
kvöld mætir Njarðvíkingum í úr-
slitaleikjum um Islandsmeist-
aratitilinn. Lcikurinn hefst
klukkan átta í Iþróttahúsi Hafn-
arfjarðar.
-SK.