Dagblaðið Vísir - DV - 13.03.1985, Síða 22
22
DV. MIÐVIKUDAGUR13. MARS1985.
Útlönd Útlönd Útlönd Útlönd
Afghanistan allt lagt í rúst:
„EN STOLITÐ
HÖFUM VIÐ ÞÓ ENNÞÁ”
— afghanskir skæruliðaleiðtogar í viðtali
Asmat Mojadeddi er að ljúka læknis-
fræðinámi við Kaupmannahafnarhá-
skóla. Hann er senniletía ekki venju-
legasti neminn sem þar hefur numið.
Hann er sonur leiðtoga eins helsta
stjómarandstöðuflokksins í Afghanist-
an. Þegar hann fær tækifæri til tekur
hann sjálfur þátt í vopnabaráttunni í
heimalandi sínu eins og flestallir ungir
menn Afghanar sem í það komast.
Fréttaritarar DV ræddu við Asmat
Mojadeddi í Kaupmannahöfn.
Sameinuð andspyrna
er markmiðið
Fyrir hvaða samtök stendur þú og
h vert er eöii þeirra?
— Ég er fulltrúi fyrir Afghönsku
þjóðfrelsishreyfinguna (Afghan Liber-
ation Front) sem er ein stærsta and-
spyrnuhreyfingin í Afghanistan. Þessi
andspymuhreyfing var stofnuö
skömmu eftir aö kommúnistar tóku
völdin 1978. Þrem árum síðar vom
stofnuð samtök með tveimur öðrum
andspymuhreyfingum og heita þau
Einingarsamtök múhameðstniar-
manna — og starfa þau sem sameinað
afl. Markmiðið með þessari samfylk-
ingu andstöðuhreyfinganna er að
rey na að sameina sem flest öfl í barátt-
unni gegn innrásarUði Sovétríkjanna,
án tiUits til póUtískrar og trúarlegrar
afstöðu.
— Við þurfum að horfast í augu við
aö Sovétríkin eru stórveldi og það er
ekki möguleiki aö berjast við sUkt
ofurefli í smásamtökum. Hér er ekki
um flokk að ræöa í eiginlegri merkingu
heldur samfylkingu gegn ihlutun
Sovétríkjanna. Því miður hefur þetta
ekki tekist nema aö hluta tU en hug-
myndin var aðallega sú að samhæfa
andstöðuna og ræða síðan eftir á um
hvers konar samfélag ætti aö byggja
upp í Afghanistan. Sú ákvörðun á að
vera í höndum fólksins sjálfs. Það er
þó sjálfgefið aö homsteinn þess ríkis
verður múhameðstrúin. Það er aftur á
móti spurning hvað er átt viö meö
íslömsku ríki og það krefst ítarlegra
útskýringa.
Gengið brösuglega
— Þó samstarfið milli andstöðu-
lireyfinganna hafi hingað til gengiö
brösuglega og hvorki verið hægt að
koma á fót útlagastjórn fyrir Afghan-
istan, hvorki innan né utan landamær-
anna, þá eru andstöðusamtökin og
leiðtogar þeirra sammála um aö sam-
einast gegn sovésku innrásinni og
stofna íslamskt ríki.
— Fyrirmyndina að hinu íslamska
ríki sækjum við ekki til íran, því lang-
flestir fordæmum við harkalega
stjómarfarið í Iran og túlkun
Kohmeinis á Kóraninum. Túlkun hans
og þær aðgerðir sem hann hefur látið
framkvæma í nafni ritningarinnar em
langt frá því sem viö teljum aö
múhameðstrúin standi fyrir.
Getur þú sagt okkur frá aðdraganda
stjórnarbyltingarinnar?
Fyrir stjómarbyltingu 1973 var
Afghanistan konungsríki. Kon-
ungurinn var að flestra áliti
duglaus og metnaðarlítill fyrir hönd
Afghanistan og gerði nær ekkert til að
þróa landið. Það var mikii andstaða
gegn honum. Sérstaklega gagnrýndu
margir menntamenn stjómarfarið og
áhugaleysið á að þróa efnahag
landsins. M.a. var Mojadeddi, faðir
minn, sem nú er formaður andspymu-
samtaka okkar, í fangelsi í 5 ár í
stjórnartíð konungsins vegna gagnrýni
hans á stjómarfarið. Almennt hafði
gagnrýnin litil áhrif á þessum tíma.
Asmat Mojadeddi (sonur leiðtogans dr. Mojadeddi) sést Kér á ferð um bardagasvæði i Afghanistan, en
fréttaritarar DV í Kaupmannahöfn áttu við hann viðtal á dögunum, en þar nemur hann læknisfræði við
Hafnarháskóla.
(Öm Jónsson og Krístján Arí Arason,
fréttaritarar DV í Kaupmannahöfn, skrífa)
Daoud lítið vinsæll
— Það dró fyrst til tíðinda þegar
Daoud, frændi konungsins, gerði
stjórnarbyltingu með aðstoð hersins
1973. Ljóst er að þá þegar hafði
afghanski kommúnistaflokkurinn
mikil áhrif þó svo að flokkur þeirra
væri mjög lítill. Sovétmenn vissu aö
eina leiðin til að ná ítökum í Afghanist-
an væri að fá mann hiiðhollan sér viö
völdin. Líklega hafa þeir talið að
Daoud myndi tryggja hagsmuni Sovét-
ríkjanna án þess þó að líta út sem
beinn leppur. Daoud, sem hafði verið
forsætisráðherra á valdatíma kon-
ungsins naut hins vegar lítilla vinsælda
hjá almenningi. Þvert á móti hræddust
hann margir því stjórnarstefna hans
hafði verið mjög harðfengin. Styrkur
hans fólst í því að alkunna var að hann
var ekki meðlimur í kommúnista-
flokknum. Hann hélt sjálfstæði sínu, í
öllu falli á yfirborðinu. Þó var hann í
raun mjög hliðhollur Sovétríkjunum.
— Daoud var ekki mikill stjórn-
málamaður. Hann var menntaður sem
herforingi og geröi mörg verulega stór
mistök í stjórnartíð sinni. Það var
hann sem varð fyrstur til aö styrkja
tengslin við Sovétríkin og það var í
stjórnartíö hans sem kommúnista-
flokkurinn náði yfirráðum yfir helstu
lykilstööum stjórnkerfisins, en eins og
ég hef áður bent á var hann mjög lítill.
— I lok stjómartíðar sinnar gerði
Daoud sér grein fyrir að Sovétmenn
myndu reyna að ýta honum frá
völdum. Hann rak meölimi kommún-
istaflokksins úr áhrifastöðum og fang-
elsaöi þá valdamenn sem stóðu Sovét-
ríkjunum næst. Nokkrum dögum
síðar var honum steypt af stóli og hann
myrtur. Sovétríkin töldu hagsmunum
sínum ógnað.
Skipulögð frá Sovét
— Stjórnarbyltingin var ekki gerð
vegna sterkra ítaka afghanska
kommúnistaflokksins heldur var hún
skipulögö beint frá Sovétríkjunum.
Þetta hafa herforingjar sem síðar hafa
flúið stjómarherinn og gerst meðlimir
í andspymuhreyfingunni staðfest. T.d.
hafa þeir bent á aö sovéskar MIG-
flugvélar hafi kastaö sprengjum á
Kabúl. Hér er ég að tala um flugvélar
sem var flogið beint frá Sovét-
ríkjunum. Það var í þessari stjómar-
by ltingu sem Taraki náði völdum.
— Kommúnistaflokkurinn á þessum
tíma var klofinn og virtust miklar
deilur eiga sér staö í f lokknum.
Deilumar stóðu þó fremur um völd
og yfirráð en afstöðuna til Sovétríkj-
anna. Báðir hópamir voru mjög hlið-
holiir Sovétríkjun im.
— Því hefur oft verið haldið fram að
klofningurinn í kommúnistaflokknum
hafi veriö af trúariegum uppruna og
átt rætur aö rekja til ættflokkaerja.
Þessi skýring er þó ekki nema að hluta
til rétt. Ég er e'iki viss um út á hvað
deilumar gengu on margir þeirra sem
vom virkir í stjrmmálalíf inu á þessum
, tíma halda því fram að deilumar hafi
að stærstum hlita veriö leikur og yfir-
skyn. Þannig vildu Sovétríkin hafa tvo
valdapóla til aö styðjast viö ef annar
brygðist.
Ég held a<) þessi skýring sé rétt.
Taraki byltingin var blóðug og er tal-
ið að þónokkuð yfir 10 þúsund hafi
verið my rtir í átökunum.
Sovétríkin hafa sterk efnahagsleg
tengsl við Afghanistan, en hverjar
telur þú vera aðrar ástæður fyrir
innrásinni?
Meginástæðan er líklega sú að Sovét-
menn töldu hagsmunum sínum ógnað
þegar Daoud reyndi að draga úr
völdum kommúnista í lok valdatíma
síns. Þaö var líklega þess vegna sem
þeim lá svo mikiö á að gera innrás.
Það var eins víst að dyggustu
stuðningsmenn þeirra yrðu teknir af
lífi ef þeir gripu ekki í taumana strax.
— Onnur meginástæðan var áhrifin
frá írönsku stjómarbyltingunni. Sovét-
menn vom hræddir um að frelsis-
kröfur múhameðstrúarmanna myndu
ná inn fyrir landamæri þeirra, að
sovéskir múhameðstrúarmenn myndu
setja f ram sjálfstæðiskröf ur.
— Einnig vildu Sovétmenn tryggja
aö þeir misstu ekki þau ítök sem þeir
höfðu byggt upp á löngum tíma í
«Afghanistan. 1 þessu sambandi má t.d.
nefna menntun herforingjanna og
stuöning í efnahagsmálum. Þessi áhrif
voru þónokkur, jafnvel þótt kommún-
istaflokkurinn væri verulega lítill.
Meðlimir flokksins vom innan við 10
þúsund manns sem er hverfandi brot
af 20 milljón manna þjóð. Þetta er sú
— Við teljum að innrás Sovétríkj-
anna hafi átt sér stað á þessum tíma
þ.e. tveimur árum áöur en almennt er
talið.
Hverjar vom breytingarnar sem
fylgdu stjórnarháttum Tarakis?
Fyrsta verk þeirra var að skipta út
fólki í valdastööum og þeir þvinguðu
fólk til að veröa meðlimir í flokknum.
Einnig var reynt að framkvæma
ákveðnar endurbætur. Þaö er kald-
hæðnislegt aö hugsa til þess aö þeir
sögðust vera aö berjast gegn svoköll-
uðum kapítalisma en hegðuöu sér mun
verr en landeigendurnir sem verið var
að berjast gegn. T.d. gengu þeir inn í
búöir og tóku ránshendi þaö sem þeir
vildu. Þetta réttlættu þeir meö því aö
nú þegar þeir voru búnir aö ná völdum
fannst þeim þeir eiga rétt á að ná sér
niðri á fyrri kúgumm. Þaö er ekki
hægt að segja að þaö hafi verið sældar-
dagar á dögum konungsins en þó var
ástandið tíu sinnum skárra en eftir aö
kommúnistaflokkurinn tók völdin.
Almenn andstaða
— Hinir nýju valdhafar áttu viö
margvísleg vandamál aö stríöa og
höfðu t.d. fæstir þeirra nokkra
menntun til að takast á viö þau miklu
vandamál sem þeir stóðu frammi
fyrir. Þaö var mikil og almenn and-
staða meöal Afghana gegn þeim og þaö
var ekki einu sinni hlustaö á tilskipanir
stjómvalda. Þær endurbótatillögur
sem þeir komu fram meö vom langt
frá því aö vera raunhæfar við
afghanskar aðstæöur. Bændurnir
vildu t.d. ekkert með þá hafa m.a.
vegna þess aö það sem mestu máli
skiptir fyrir þá, sem aöra Afghani, er
sjálfstæðiö. Og afghanska alþýðan
vissi vel að flestar skipulagstil-
lögumarkomubeintfrá Moskvu.
— Efnislega var margt við tillögur
stjómvalda að athuga. Þær voru varla
pappírsins virði því þær höföu ekkert
með lífiö í Afghanistan að gera. Ég get
nefnt eitt dæmi um tvískinnungshátt-
' •*»'* í
Afghanskur skæruliði í ferjukláf yfir árgili.
tala sem kommúnistaflokkurinn
sjálfur hefur gefiö upp.
Biðu eftir rétta
tækifærinu
— Sovétmenn höfðu lengi haft hug á
að gera innrás í Afghanistan en þeir
biðu eftir rétta tækifærinu. Tíminn
sem þeir völdu tel ég þó að hafi verið
kiaufalegur. Þeir hafa með innrásinni
vakiö hatur á sér meðal Afghana. Þaö
var öllum Afghönum ljóst sem eitthvaö
skiptu sér af stjómmálum að stjórnar-
byltingu Tarakis var algerlega stýrt
frá Sovétríkjunum. Strax þá voru 15
þúsund hermenn og ráögjafar sendir
til Afghanistan.
inn. Þegar Taraki átti afmæli var
honum veitt aö gjöf afmælisterta sem
var hærri en hann sjálfur. Þetta sýndu
þeir sveltandi bændum í sjónvarpinu.
Ekki einu sinni konungurinn hefði vog-
að sér aö gera svona lagað. Afghanir
vita ekki einu sinni hvaö afmælisdagur
er.
— Annaö dasmi sem sýnir vel óraun-
sæiö í endurbótum stjómvalda er að
bændur fá 30 tunnur lands hver. Þeir
vildu þó ekkert með þetta land hafa.
Þeir vissu sem var aö þeir gætu aldrei
náð naegu vatni til að rækta svo stóra
landspildu. Þaö sem skiptir mestu
máli í afghönskum landbúnaöi er ekki
stærð landssvæðisins, sem bændur