Dagblaðið Vísir - DV - 20.03.1985, Page 4

Dagblaðið Vísir - DV - 20.03.1985, Page 4
4 DV. MIÐVIKUDAGUR 20. MARS1985. Mikill mannfjöldi mœtti á útifundinn sem haldinn var á Austurvelli i gær til stuðnings baráttu kennara i framhaldskólunum Ef kennarar verða reknir: HEFJUM EKKISTÖRF AFTUR — nema allir verði endurráðnir „Viö bíöum eftir því hreinlega aö þaö veröi samið viö okkur,” sagöi Kristján Thorlacius, formaöur HIK, þegar DV hitti hann á fjölmennum fundi sem haldinn var á Austurvelli í gær. — Nú segja stjórnvöld að þaö veröi ekki samiö viö ykkur fyrr en kjara- dómurfellur. „Þeir segja þaö núna, en þeir kunna þó aö neyðast til þess,” sagöi Kristján. Nú er ljóst aö ríkisstjómin hefur ákveðiö aö fresta því aö leysa kenn- ara frá störfum. Hvemig bregöast kennarar viö því ef þeir verða leystir frástörfum? „Með því væri búiö aö lýsa því yfir aö aögerðir okkar væru löglegar. Það lýsti hver og einn því yfir í upphafi aö hann myndi ekki fara til starfa aftur fyrr en allir væm búnir að fá sín störf aftur, eöa þær sömu stöður eins og þær vom áður en viö sögöum upp. Við eram harðir á þessu að hvika hvergi frá þessari ákvöröun okkar að viö munum ekki koma inn fyrr en búið er að endurráða alla sem sögöu upp,” sagöi Kristján Thorlaci- us. Fundurinn á Austurvelli fór vel fram og fluttu fulltrúar kennara og nemenda ávörp. Nokkur þúsund manns mættu. Ekki hafa veriö boð- aöar nýjar aögeröir en búast má viö því að nemendur standi fyrir ein- hverjum aðgerðum í dag. APH BHM ogríkið: Sömu kröfumar fýrir Kjaradóm I gær skiluöu öll aöildarfélög BHM inn sinum kröfum til Kjaradóms. Bú- ist var viö að ríkið myndi einnig skila sinni kröfugerö. Þaö er ekki lengur launamálaráö BHM sem fer með samning fyrir hönd aöildarfélaganna. Hvert félag fyrir sig skilar því inn kröfum og greinargeröum. Kröfumar sem skil- að hefur verið inn era þær sömu og legið hafa áöur fyrir í deilunni eöa ,,að rikisstarfsmenn fái markaös- iaun fyrir dagvinnu”. Síöan era kennarar með sínar sérkröfur. Kjaradómur getur því tekið til óspilltra málanna. Dómurinn er skipaöur fimm einstaklingum. Hæstiréttur skipar þrjá menn. Þeir era: Benedikt Blöndal, sem jafn- framt er formaöur dómsins, Jón Finnsson og Olafur Nílsson. Þá skipa málsaðilar tvo fulltrúa. Fyrir hönd ríkisins situr Jón Tómasson og fyrir hönd BHM Pétur Ingólfsson. Kröfugerð ríkisins óbreytt „Eg reikna með því aö aö tilboð sem við höfum gert sé það sama og við höfum boðið áður,” sagði Indriöi H. Þorláksson, formaður samninga- nefndar ríkisins, í gær. Hann benti á aö hækkanir gætu veriö misjafnar eftir starfsheitum vegna þess að launastiginn er nú breyttur. Ríkið hefur boðiö 5 prósent meðaltals- hækkun á Iaun og að tillit verði tekið til sérkrafna, m.a. hjá kennurum. Samkvæmt Iögum á Kjaradómur að vera búinn aö skila niöurstööu í lok mánaöarins. Indriöi sagöist ekki vera bjartsýnn á aö það tækist því aö tíminn væri orðinn naumur. APH Hafnarkröfum Tölvubúðarinnar Lögbannsbeiðni Tölvubúöarinnar á hendur fyrirtækinu Islensk forrita- þróun var synjað í fógetarétti fyrir skömmu. Mál þetta kom upp í febrúar sl. þegar eigandi Tölvubúðarinnar kraföist þess aö sett yrði lögbann á sk. Plús forrit sem bæði fyrirtækin versla meö. Taldi Tölvubúöin að Is- lensk forritaþróun hefði ekki rétt á aö selja, dreifa eða nota Plús hug- búnaö. Málflutningur fyrir fógetarétti var mjög umfangsmikill og tók það lang- an tíma að komast að áður- greindri niöurstöður. Urskurðurinn hljóöar upp á að aðalkröfu og vara- kröfu er hafnað. Aukakrafa um að Is- lensk forritaþróun hætti að nota nafnið Plús á hugbúnaðinn var stað- fest gegn 80 þúsund króna tryggingu. Jón Baldvin hittir toppkrata Evrópu Jón Baldvin Hannibalsson, for- maður Alþýðuflokksins, hélt i gær utan til Portúgal til aö sitja fund leiö- toga krataflokka í Evrópu. Með i för er eiginkona hans, Bryndís Schram. Aö sögn Birgis Dýrfjörö, fram- kvæmdastjóra þingflokks Alþýöu- flokksins, munu nær allir krataleið- togar í Evrópu hittast í Portúgal og ræða um utanríkismál og fleira. Þarna verða meðal annarra allir for- menn sósíaldemókrataflokka á Norðurlöndum, þeir A^iker Jergen- sen, Kalevi Sonsa, Olof Palme, Gro Harlem Brundtland og Jón Baldvin. Jón Baldvin og Bryndís eru vænt- anlega heim næstkomandl þriðju- dag.______ -KMU. Breytingarhjá Iðntæknistofnun Nýr framkvæmdastjóri hefur ver- ið ráðinn til Iðntæknistofnunar. Þaö er örn Jónsson skipulagsfræöingur. öm hefur starfað um árabil sem fréttaritari DV í Kaupmannahöfn. Hann tekur við starfi Sigurðar Guö- mundssonar sem gegnt hefur fram- kvæmdastjórastöðu í stofnuninni um nokkurt skeiö. I samtali við öm kom fram aö leyfi væri fyrir því aö tveir framkvæmdastjórar væru viö stofn- unina. Iöntæknistofnun hafi vaxið ört og hafa margar stofnanir veriö sam- einaöar henni. Verkefnin hefðu auk- ist og þvi væri full þörf á tveimur framkvæmdastjórum. Ekki hefur enn verið ráðið í stööu hins framkvæmdastjórans. For- stöðumaöur stofnunarinnar er sem fyrrdr. IngjaldurHannibalsson. -JÞ I dag mælir Dagfari í dag mælir Pagfari I dag mælir Dagfari Heiðra skaltu skúrkinn Kennarar héldu útifund í gærdag. Þar var saman komið slangur af fólki, aöallega þó nemendur sem haföir voru í því aö bera kröfuspjöld með ærumeiðandi ummælum um ráöherra landsins. Ber þar nokkuö nýtt við aö þeir aöilar, sem verða helst fyrir barðinu á verkfallsaö- gerðum, skuli þannig gerast fót- gönguliðar hjá þeim sem fyrir upp- lausninni standa. Einu afleiðingar vinnustöðvunar kennara eru þær að skólahald er í lamasessi og fram- haldsskólanemendur fá ekki þá kennslu sem lögboðin er. Nemendur hafa annaðhvort gengið í lið með kennurum af évitaskap ellegar samkvæmt kenningunni um að heiðra skuli skúrkinn svo hann skaði ekki. Blessaöir nemendurnir vita sem er að einhvern timann kemur að endalokum þessarar deilu og þá er betra að hafa komið sér i mjúkinn hjá kennurunum sem útbýta ein- kunnum. Annars er þetta þref milli kennara og ráðuneyta orðið afar sérkenni- legt, einkum fyrir þá sök að kennar- ar hafa sagt upp störfum en eru þó í verkfalli. Þeir eru hættir kennslu en heimta samt hærri Iaun fyrir vinnu sem þeir eru hættir að stunda. Þeir heimta að stjórnvöld fari að lögum en neita þó sjálfir að gegna lögunum. Á hinn bóginn höfum viö mennta- málaráöherra og rikisstjórn sem hefur tekið við uppsögnum en neitar að taka þær gildar. Við höfum skóla sem segjast ekki geta haldið uppi fullri vinnu en gera þó ekkert í því að útvega sér nýja kennara í stað þeirra sem hafa sagt upp. Og svo erum við með samninganefnd ríkisins sem hamast við að bjóða fðlki launabætur sem hefur sagt upp og lagt niður vinnu. Staðan er sem sagt sú að kennarar segjast vera í launabaráttu á sama tima og þeir hafa sagt upp störfum sínum, en ríkissjóður heldur því aftur á móti fram að uppsagnirnar séu ólöglegar en býður samt lög- brjótunum upp á gull og græna skóga. Almenningi gengur illa að skllja þennan galskap sem ekki er nema von. Á tslandi hefur t-nginn verið þvingaður til að vinna síðan þræla- haldið var lagt niður og ef kennarar vUja snúa sér að öðrum störfum. er ástæðulaust fyrir ríkisvaldið aö am- ast við því. Eins er það ef kennarar leggja niður störf í skólum, án þess aö taka upp önnur störf, þá er það auðvitað þeirra prívatmál. Ekki verður séð hvað eigi að reka ráðherra og ráðu- neytismenn til langra og strangra funda við blessað fólkið eftir að það hefur á annað borð sagt upp og labbað út. Sannleikurinn er lika sá, eins og fyrr hefur verið bent á, að ekki tapar ríkið eða ríkissjóður á þessu stoppi. Þvert á móti hlýtur fjármálaráðherra að fagna því ef út- gjöld og launakostnaður við skóla- hald dregst saman við fækkun kenn- ara. Þeir einu sem skaðast á útgöngu kennaranna eru nemendurnir. Þeir hafa hins vegar kosið að fylkja liði með lögbrjótunum sem ekki vilja lengur kenna þeim. Nýjustu upplýsingar eru þær að kennarar vilja annaðhvort fá 70 til 100% hækkun á launum eða fá vinnu- vikuna stytta niður i átján stundir þannig að afgangurinn verði greidd- ur með eftirvinnutaxta. Þetta eru hressilegar kröfur en það verður að virða ríkisstjórninni til vorkunnar þótt hún sé ekki tilbúin til að ganga að slikum kröfum, og þaö allra síst gagnvart fólki sem búið er að segja upp. Og svo er það siöferðisspurning- in stóra hvort foreldrar nemendanna og þjóðféiagið allt hefur áhuga á kennaraliði sem hefur það fyrir nemendum sínum að sjálfsagt sé að brjóta lög og halda uppi ófrægingar- herferð gagnvart ráðherrum og lög- lega kjörnum stjórnvöldum. Eða hvernig verður mórallinn í kennslu- stofunum að þessari deilu lokinni? Eða fræðslan um hið rétta og ranga? Dagfari

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.