Dagblaðið Vísir - DV - 20.03.1985, Síða 8
8
DV. MIÐVIKUDAGUR 20. MARS1985.
Útlönd Útlönd Útlönd Útlönd
Harðar skær-
uríPerú
Vinstrisinna skæruliöar hafa sótt
mjög í sig veðrið fyrir kosningarnar í
Perú, og sprengdu þeir i gær sprengju
við heimili atvinnumálaráðherrans og
aðra við hús bróður landbúnaðarráð-
herrans. — En 65 uppreisnarmenn
féllu í þrennum skærum í suðaustur-
hluta landsins í síðustu viku.
I Lima handtók lögreglan um 1000
manns í kjölfar sprengitilræöanna, þar
sem engan mann haföi þó sakað. Lá
ekki ljóst fyrir, hvor skæruliðahreyf-
ingin hafði verið þar að verki, Tupac
Amaru eða Sendero Luminoso.
I Ayaoucho í suðausturhluta landsins
hefur æ ofan í æ slegið í brýnur milli
skæruliða og lögreglu eöa sjálfboðaðra
varðliða af indversku bergi. Hafa á
þessu ári 215 falliö í skærum í
Ayacucho en þar hóf Sendero-hreyfing-
in skæruhernaðsinn 1980.
Sendero-hreyfingin hefur haldið úti
skæruhemaði gegn stjórn Fernando
Belaunde Terry og hefur það stríð
kostaö um 4.300 manns lífið. — Hreyf-
ingin hvetur fólk til þess að taka ekki
þátt í kosningunum sem skæruliðar
kalla hreinan skrípaleik.
Nú hefur staðiö í tvær vikur í Perú
verkfall opinberra starfsmanna og örl-
ar ekki á sáttum, en kosningamar hafa
verið boðaðar 14. apríl.
Skjaldbökur
í eldhættu
Mikill skógareldur á stærstu eyjunni
í Galapagos eyjaklasanum stefnir ein-
stæðum dýrategundum í útrýmingar-
hættu. Embættismenn hafa gefið upp
aiia von um að geta stjórnað eldinum.
Breski náttúrufræðingurinn Charles
Darwin notaði Galapagos eyjarnar
sem bækistöð vegna hins f jölskrúðuga
dýra- og plöntulífs þar. Ein dýrateg-
undin sem þar lifir er risalandskjald-
bakan.
Stjómin hefur lýst yfir neyðar-
ástandi á eyjunni og hefur áartlanir um
að flytja hina 644 íbúa eyjunnar af
henni.
JÚNÍORINN HJÁ
IBM ER DAUÐUR
Tölvurisinn IBM hefur ákveðið að
stöðva framleiðslu á litlu einkatölv-
Veiddu lax
með blásýru
Þrír menn sem veiddu lax með
þvi að dæla blásým í eina bestu
laxveiðiá á Bretlandi hafa verið
daandir í eins árs fangelsi. Menn-
imir voru teknir þegar þeir voru að
fara í burtu með91 lax í kolapokum
f rá ánni Dovey í Mið-Wales.
Ákæruvaldið sagði að mennimir
hefðu eyðilagt lifriki fiska á um
eins kílómetra svæði í ánni. Kosta
mun þúsundir punda að koma líf-
ríki árinnar í samt horf.
unni sinni, PC-Junior. Þessi tölva er
ódýrasta tölva IBM en hún hefur ekki
staðist hina geysihöröu samkeppni í
tölvuiðnaðinum.
IBM hyggst áfram hafa þær Junior
tölvur sem til em enn á markaöinum
og útvega í þær varahluti og annað
slíkt en menn i tölvuheiminum segja aö
Juniorínn sé í raun dauöur.
Tölvusérfræðingum kom ákvörðun
IBM ekki á óvart. Þeir segja að Junior-
inn hafi selst illa síöan um jól og eng-
inn gróði hafi verið af honum í jólasöl-
unni vegna þess að verðið hafi verið
lækkaðsvo mikið.
Mörkin á milli taps og gróða em af-
skaplega lítil í hinni höröu samkeppni
tölvuheimsins og verða enn minni á
komandi mánuðum og árum, að sögn
tölvumanna.
Stjórnarerindrekar segja afl 11 manns hafi farist í mikilli sprengju sem sprakk i Bagdad um það bil sem
Hussein Jórdaniukonungur og Mubarak Egyptalandsforseti funduðu með Hussein, forseta iraks, þar i
borg. Sprengjan sprakk nólægt aðalstöðvum Baath stjórnmólaflokksins sem er við völd i Írak. Hún
sprakk ótta mínútum eftir að iranir skutu eldflaug að borginni en írakar segjast enga skýringu hafa ó
henni.
Öngþveiti á flug-
vellinum í Teheran
KGB-majór vitni í
réttarhöldunum
— hundruð reyndu að komastút áður en loftbannið gekk í gildi
Fyrrum majór í sovésku leyni-
þjónustunni, KGB, var leiddur í gær
fram sem vitni í réttarhöldunum yfir
ArneTreholtíOsló.
Stanislav Levtsjenko fór frá Osló
strax að loknum yfirheyrslunum en
þær fóru fram fýrir luktum dyrum. —
Norska blaðið „Aftenposten” segir að
vitnisburður Levtsjenko hafi ekki
snert beint meintar njósnir Treholts
fyrir Sovétmenn, heldur meira verið
lýsingar á starfsaðferðum njósnara
KGB.
Levtsjenko (44 ára) strauk til
Vesturlanda 1979, á meðan hann starf-
aði sem blaðamaður i Japan, en hann
býr núna í Bandaríkjunum undir
breyttu nafni.
Fyrrverandi foringi í KGB-leyni-
lögreglunni sovósku vitnaði gegn
Treholt i Moskvu í gær.
DV-mynd JEG.
Gífuriegt öngþveiti ríkti á flugvellin-
um í Teheran í gær þegar flugfélög
kepptust um að koma flugvélum sínum
á loft til að komast út úr lofthelgi Irans
áöur en loftbann Iraka á Iran gekk i
gildi klukkan fimm að íslenskum tíma.
Irakar hafa hótað að skjóta niður
flugvélar í lofthelgi Irans eftir þann
tíma hvort sem þar eru á ferð farþega-
vélar eða aðrar vélar.
Iranar svöruðu í gær meö þvi að hóta
að skjóta eldflaugum á flugvöllinn i
Bagdad. Khomeini forseti hefur sagt
aö ef bann sé sett á lofthelgi eins lands
þýöi þaö aö lofthlegi allra landanna á
svæðinu sé í hættu.
Iraksher virðist hafa hrint mikilli
árás um 100.000 hermanna Irans í vot-
lendi í Suður-Irak. Vestrænir frétta-
menn segja að í mýrarflákunum sé
krökkt af írönskum líkum. Irakar virð-
ist stjórna svæðinu aö mestu.
Irakar segjast hafa drepið 23.000
Irana en Iranar segjast hafa deytt
12.000 Iraka. Hvorugur aðilinn hefur
gefiö upplýsingar um eigið mannfall.
Farþegar, sem komust burt meö siö-
ustu vélinni sem fór frá Teheranflug-
velli, sögðu aö hundruð manna hefðu
reynt að komast um borð í flugvélar á
leið brott á síöustu stundu.
Starfsmenn flugfélaga segjast hafa
heyrt drunur í loftvamabyssum og
heyrt sprengjur falla á jörðina.
Enn er verið að reyna að binda enda
á striðið með samningum en lítiö geng-
ur.
Stórsigur MX áætlunar Reagans
öldungadeild bandaríska þingsins
lagði í gær blessun sína yfir MX eld-
flaugaáætlun Reagans forseta. Þar
með hefur forsetinn unnið lykilsigur í
vopnauppbyggingaráætlunum sínum.
Olíklegt er að hægt verði að stöðva MX
f laugina á þessu ári. Andstæöingar eld-
flaugarinnar lofuðu þó aö halda áfram
baráttu sinni gegn henni.
öldungadeildin samþykkti með 55
atkvæðum gegn 45 að veita 1,5
milljörðum dollara til að byggja 21
flaug, með 10 kjarnaodda hverja.
Enn þarf að samþykkja MX flaugina
i fulltrúadeildinni, en andstæðingar
hennar töldu vonir sínar bestar í
öldungadeildinni.
Reagan fagnaði niðurstöðunni úr
öldungadeildinni og sagði: „MX
flaugin mun styrkja þjóðaröryggi
okkar og samningsstööu okkar” í
Genf. Þaö er þessi röksemd Reagans,
að samningsstaöa Bandaríkjanna
myndi veikjast yrði flaugin ekki sam- sem höföu hugsaö sér aö greiða at-
þykkt, sem varð til þess að ýmsum kvæði á móti flauginni snerist hugur.
Umsjón: Guðmundur Pétursson og
ÞórirGuðmundsson