Dagblaðið Vísir - DV - 20.03.1985, Blaðsíða 18
18
DV. MIÐVIKUDAGUR 20. MARS1985.
KOLBEINSEY SKULDAR
263 MILUÓNIR KRÓNA
eða 87 milljónir umfram húftryggingarverðmæti
Skuttogarinn Kolbeinsey ÞH 10 frá
Húsavík er líklega skuldugasta skipið
í öllum togaraflotanum. Gjaldfallnar
skuldir þess við Fiskveiðasjóð og
Byggðasjóð nema nú um 263 milljánunv
króna eða 87 milljónum meira en sem
nemur húftryggingarverðmæti þess.
Skipið verður væntanlega sett á upp-
boö í sumar þar sem vonlaust virðist
vera fyrir útgerðina að greiða þessar
skuldir.
Kolbeinsey er 430 lesta skip, smíöaö
á Akureyri árið 1981. Það er í eigu
Höfða hf., en stærstu hluthafar þar eru
Fiskiðjusamlag Húsavíkur, Húsa-
víkurkaupstaður, Kaupfélag Þing-
eyinga og Verkalýösfélag Húsavikur
og um 70 einstaklingar.
Fjárhagsvandi Kolbeinseyjar felst í
láni sem tekið var í Bandaríkja-
dollurum, eins og allra þeirra skipa
sem nú eiga yfir sér nauðungaruppboö.
Höfði hf. tók 5 milljón dollara smíðalán
í ágúst 1981. Þá var gengi dollarans
7,30 krónur. Nú er gengið 42,5 krónur
og eftirstöðvar lánsins 252 milljónir
króna. Aö auki hvílir á skipinu 11
milljón króna lán hjá Byggöasjóði.
„Við ætlum okkur að halda þessu
skipi og þurfum að halda því,” segir
Kristján Ásgeirsson, framkvæmda-
stjóri Höföa hf., í samtali viö DV. Hann
segir að eigendur séu nú að leita leiöa
til að halda skipinu í byggðarlaginu. A
Húsavík eru aöeins gerðir út tveir
togarar þannig aö það yröi mikiö áfall
fyrir atvinnulif á staönum ef Kolbeins-
ey færi. Skipiö skilaði 40% af þeim afla
sem unninn var í Fiskiðjusamlaginu á
síðasta ári.
Kristján segist ekki sjá neina
möguleika til að koma í veg fyrir að
skipið fari á uppboð. Hins vegar segir
hann að það séu engir möguleikar fyrir
aðra að halda þessu skipi meðan
þessar skuldir hvíli á því. „Þessi vandi
er ekki vegna rekstrarins eða þess sem
hægt er að rekja til útgerðarinnar,
heldur vegna þess gjaldmiðils sem
lániðertekiðí.” ÖEF.
Hlýr sjór lofar góðu
„Ástand sjávar á norður- og
austurmiðum var í vetur enn hag-
stæðara en á sama tíma 1984 og
munar um einni gráðu i hitastigi en
árið 1984 var aftur mikil breyting til
batnaðar frá því sem var svölu árin
1981 til 1983. Um framvinduna er það
aösegja aöætla má aðástandsjávar
í vor á norðurmiðum geti áfram
orðið gott og þá lífsskily rðin í sjónum
yfirleitt, þótt ekki sé unnt að fullyrða
umþaðfyrirvíst.”
Þessi ánægjulegu tíðindi komu frá
Hafrannsóknastofnuninni eftir sjó-
rannsóknaleiðangur Árna Friðriks-
sonar síðari hluta febrúar.
Rannsóknarskipið fór um miðin um-
hverfis landiö og geröi um leiö
mælingar á loönustofninum viö Suð-
austurland. Helstu niöurstöður hita-
og seltumælinga eru þessar:
Hlýsjórinn fyrir Vestfjörðum var
fjögurra til sex gráða heitur. Áhrifa
hans gætti fyrir Norðurlandi með
hitastigi þrjár til fjórar gráður og
seltu nær 35 prómill. Fyrir Aust-
f jörðum var sjávarhiti tvær tU þrjár
gráður og selta 34,8 prómiU.
. Kaldi sjórinn út af Norður- og
Norðausturlandi með hitastigi undir
núll gráðu var langt undan, en seltan
í Austur-Islandsstraumi djúpt út af
Langanesi var þó fremur lág. I köldu
árferði gæti það bent tU hafíshættu í
vor en það er þó ólíklegt eins og
veðurfari háttar.
SkiUð við Suöausturlandið voru að
venju við Lónsbug og hitastig á
loðnuslóð grunnt með Suðurlandi var
um sex gráður. Hiti og selta dýpra
fyrir Suðurlandi var í góðu meðaUagi
eða yfir sjö gráður og 35,15 prómUl.
Leiöangursmenn á Árna Friðriks-
syni voru Svend-Aage Malmberg,
sem var leiðangursstjóri, Hjálmar
ViUijálmsson, Sveinn Sveinbjörns-
son, Jón Olafsson, Olafur S. Ástþórs-
son, Gísli Olafsson og Stefán
Kristmannsson. Skipstjóri var Ingi
Lárusson.
-KMU.
Fimm togarar við hafrannsóknir umhverfis Island:
Ætla að læra meira um þorsk-
inn og aðra botnfiska
Hafrannsóknastofnun stendur um
þessar mundir fyrir umfangsmiklum
rannsóknum á helstu botnfiskategund-
um hér við land. Rannsóknimar fara
fram á fimm togurum sömu gerðar
sem stofnunin hefur leigt í þessu skyni.
Togað verður á 600 stöðum umhverfis
landiö frá gmnnslóö og út á 500 metra
dýpi.
Togararnir fimm eru Amar HU 1,
Drangey SK1, HoffeU SU 80, Páll Páls-
son IS 102 og Vestmannaey VE 54. Um
borð í hverjum togara eru fimm starfs-
menn Hafrannsóknastofnunar sem
annast gagnasöfnun. Upplýsingar em
jafnharðan settar inn á tölvu til að
flýta fyrir úrvinnslu þegar leiðöngrum
lýkur.
Rannsóknarsvæöinu er þannig skipt
að PáU Pálsson verður á svæðinu frá
SnæfeUsnesi norður að Strandagrunni,
Amar rannsakar Norðurlandsmið
austur á móts við Melrakkasléttu,
Drangey verður út af norðaustanverðu
landinu, Hoffell rannsakar miðin út af
sunnanverðum Austfjörðum og Suð-
austurlandi og Vestmannaey verður út
af Suðvesturlandi.
Undirbúningur hefur staðið yfir frá
því í október síðastUðnum. Þá var
skipuð sérstök verkefnisstjóm á Haf-
rannsóknastofnun undir forystu Olafs
K. Pálssonar f iskifræðings. Auk starfs-
manna stofnunarinnar hafa margir
skipstjórar úr öllum landshlutum tekið
þátt í undirbúningi rannsóknanna.
Tilgangurinn með þessu átaki er
meöal annars sá að fá meiri vitneskju
um þorskstofninn og aðrar botnfiska-
tegundir en nú er fyrir hendi. Slík
vinnubrögð gefa sjómönnum og út-
vegsmönnum kost á að fylgjast með og
taka beinan þátt í rannsóknarstarf-
seminni. ^
Leiöangursstjórar eru Viðar Helga-
son, Sigfús A. Schopka, Guðni Þor-
steinsson, Olafur K. Pálsson og Einar
Jónsson. Skipstjórar á togurunum eru
Birgir Þórbjarnarson, Kristján Ragn-
arsson, Högni Skaftason, Guðjón A.
Kristjánsson og Eyjólfur Pétursson.
Ef vel tekst til verða þessar rann-
sóknir endurteknar árlega með stöðl-
uöum veiðarfærum. Er þá vonast til að
breytingar í afla þessara togara
endurspegli breytingar á stærö fiski-
stofnanna. Gildi rannsóknanna eykst
því oftar sem þær era gerðar.
-KMU.
Akureyri:
ÞROSKAÞJÁLFAR
MEÐ NÁMSKEIÐ
Þroskaþjálfar á Akureyri gangast
fyrir námskeiði dagana 29. og 30. mars
á Endurhæfingarstöðinni Bjargi. Til
liðs við sig hafa þeir fengið NORPASS
en þaö er norræn stofnun sem vinnur
að þróun og skipulagningu félags-
legrar þjónustu. NORPASS er ný stofn-
un sem mun láta sig varða fram-
kvæmd félagslegrar þjónustu meö því
að gangast fyrir námskeiðum, útgáfu-
starfi og ráðgjöf.
Námskeiðiö á Akureyri er ætlað
þeim sem vilja auka þekkingu sína og
bæta þjónustu við fólk sem þarfnast
sérstakrar aðstoðar. Það eru meðal
annars skipuleggjendur og stjómend-
ur heilbrigðis- og félagsmála, þeir sem
starfa á þessum sviöum, neytendur
þjónustunnar, forystumenn sveitarfé-
laga og þeir aðrir sem hafa áhuga á
geðheilbrigöismálum, málefnum
aldraðra, vangefinna, líkamlega
hamlaðra og ofnotenda áfengis og
fíkniefna.
Fyrirlesarar verða dr. Kristjana
Kristjánsen, lektor við háskólann í
Þrándheimi, Dóra S. Bjamason, lektor
við KHl, og Rannveig Traustadóttir
þroskaþjálfi.
Hægt er aö skrá sig bréflega með því
að skrifa til Vistheimilisins Sólborgar
eða símleiðis hjá Þórhildi frá kl. 9 til 12
í síma 21756 eða Þórönnu eftir klukkan
19.00 ísíma 22784. JBH/Akureyri
FJÖR A SELFOSSI
Síöastliðinn fimmtudag kom Her-
mann Ragnar Stefánsson með þrjár
glæsilegar konur í opið hús á Selfossi
og voru þau að kynna eldri borguram
Mallorcaferö sem á að fara 17. apríl og
6. maí.
Kynnti Rebekka Kristjánsdóttir'
ferðimar. Rebekka er áhrifakona mik-
il og fylgir sínu máli af sannfæringu.
Það var mikið fjör í hinu aldna húsi,
Tryggvaskála.
Hermann og konumar þrjár hleyptu
miklu fjöri í niannskapinn og var dans-
aöur f ugladans af miklu fjöri sem f lest-
ir tóku þátt í. Fann ég sárt til þess að
eiga ekki myndavél til að taka mynd af
gamla fólkinu í dansinum. Það var
mikið ærslast og veit ég að fólk hefði
getaö grátiö af hlátri viö aö sjá þaö.
Hefði það getað skemmt sér betur en
við sjónvarpsleikritið í gærkvöldi. Vil
ég þakka kærlega fyrir þessa heim-
sókn.
Regína, Selfossi.
SKÓLASKEMMTUN
Á HÚSAVÍK
Fró Ingibjörgu Magnúsdóttur, Húsa-
vík:
Að undanförnu hefur verið mikið
annríki hjá kennurum og nemendum
Barnaskóla Húsavikur við aö undirbúa
árlega skólaskemmtun sem haldin er
til að fjármagna skólaferö sjöttubekk-
inga.
Árangur annríkisins varð hin vand-
Fyrstubekkingar sýna látbragðsleik.
aðasta dagskrá sem frumsýnd var ný-
lega. Þar var söngur, látbragösleikur,
leikfimi, breakdans og að lokum sýndu
sjöttubekkingar leikritið Gegn um holt
og hæðir eftir Herdísi Egilsdóttur.
Anna Jeppesen kennari leikstýrir
verkinu en því var vel tekiö af áhorf-
endum sem voru hinir ánægöustu með
sýninguna í heild. -EH
DV-mynd Ingibjörg.