Dagblaðið Vísir - DV - 20.03.1985, Page 32

Dagblaðið Vísir - DV - 20.03.1985, Page 32
32 DV. MIÐVIKUDAGUR 20. MARS1985. Andlát Sveinn Helgason fulltrúi lést 11. mars sl. Hann fæddíst í Reykjavík 14. nóvember 1924, sonur hjónanna Magn- eu G. Magnúsdóttur og Helga Kr. Helgasonar. Að loknu verslunarskóla- námi réðst hann fljótlega til bókara- starfa í Steindórsprenti þar sem hann vann í áratugi. En síöustu árin hefur hann verið starfsmaður Brunabótafé- lags Islands. Sveinn kvæntist Guðríði Guðmundsdóttur. Þau slitu samvistum fyrir nokkru. Utför Sveins var gerð frá Fossvogskirkju í morgun kl. 10.30. Þórður Þórðarson læknir lést 10. mars sl. Hann fæddist 6. nóvember 1904. Hann tók stúdentspróf árið 1923 og lauk prófi frá læknadeild Háskóla Is- lands 1929. Næstu árin stundaöi hann framhaldsnám bæöi hér á landi og i Þýskalandi en sérfræðiviðurkenningu í lyflækningum hlaut hann 1942. Frá ár- inu 1943 starfaöi hann viö lyflæknis- deild Landakotsspítala þar til hann lét af störfum fyrir aldurs sakir árið 1974. Eftirlifandi eiginkona Þórðar er Louise Peters. Utför Þórðar veröur gerð frá Dómkirkjunni í dag kl. 13.30. Guðný Jónsdóttir lést 9. mars sl. Guðný var fædd að Selkoti í Þingvalla- sveit 20. desember árið 1919, dóttir hjónanna Guðrúnar Einarsdóttur og Jóns Bjarnasonar. Hún giftist Guðmundi R. Jónatanssyni en þau slitu samvistum árið 1972. Þóm varð ekki barna auðið en ólu upp systkin sem misst höfðu móður sína ung aö ár- um. Utför Guðnýjar verður gerð frá Fossvogskirkju í dag kl. 13.30. Unnur Carlson fædd Gunnarsdóttir andaðist í Bandarikjunum 8. mars sl. Hertha Lárina Helena Jensen, Brá- vallagötu 42, er lést 10. mars sL, verð- ur jarðsungin í dag, miðvikudaginn 20.. mars,,fráFossvogskapellukL 15. ÞórhOdur Brynjólfsdóttir, Breiðvangi 14, verður jarðsungin frá Hafnarfjarð- arkirkju fimmtudaginn 21. mars kl. 13.30. Elín Sigurðardóttir, Mávahliö 33, and- aðist 4. mars í Hafnarbúöum. Utför hennar hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu. HaUdór Guðbjartsson lést i Kristian- sand, Noregi, mánudaginn 18. mars. HaUgrímur Guömundsson, Hrafnistu, lést aðfaranótt 19. þ.m. í Landspítalan- um. Jarðarförin verður auglýst síðar. Karl Björgúlfur Björnsson frá Reyðar- firði andaöist í Hrafnistu 17. þ.m. Kolbeinn Steingrímsson, fyrrverandi vörubístjóri Þrótti, frá Gljúfurá í Borgarfirði, Reykási 43 Reykjavík, lést 7. mars. Utförin hefur farið fram. Eðvald B. Malmquist, yfirmatsmaöur garðávaxta, verður jarösungmn fimmtudaginn 21. mars nk. kl. 15. frá Dómkirkjunni í Reykjavík. Jarðsett verður í Gufuneskirkjugaröi. Jósef LUjendal Sigurðsson frá Torfu- feUi, sem lést 14. mars, verður jarð- sunginn frá Akureyrarkirkju laugar- daginn 23. mars kl. 10.30. Ölafía Pálsdóttlr, Hverfisgötu 102A, verður jarðsungin frá Fossvogskirkju fimmtudaginn21. marskl. 10.30. Sigurður Olafsson skólastjóri, Sand- gerði, verður jarðsunginn frá Foss- vogskapeUu föstudaginn 22. mars kl. 10.30. 80 ára er i dag, 20. mars, Steinunn Jak- obsdóttir frá Aöalvík, til heimilis að Smyrlahrauni 45 i HafnarfiröL Hún verður ekki heima á afmælisdaginn en tekur á móti gestum laugardaginn 23. mars í Slysavamahúsinu, Hjaila- hrauni 9, Hafnarfirði, milli kL 16 og 19 þanndag. 80 ára er í dag, 20. mars, frú Sigur- björg Jónsdóttir, Hverfisgötu 92A Reykjavík. Hún ætlar aö taka á móti gestum á heimili sínu. Eiginmaöur hennar var Helgi J. Hafliðason bifvéla- virki sem er látinn fyrir allmörgum ár- um. Þau eignuðust 7 böm og eru 6 þeirra á lífi. Tilkynningar Samband lífeyrisþega ríkis og bæja heldur sinn árlega skemmtifund aö Hótel Sögu, Súlnasal, miövikudaginn 20. mars kl. 15. Húsiö opnað kl. 14. Skemmtiatriði og veit- ingar. Kvenfélag Hallgrímskirkju heldur sína árlegu kaffisölu og skyndi- happdrætti til styrktar Hallgrímskirkju í Reykjavík í Domus Medica sunnudaginn 24. mars kl. 15. Tckið verður á móti kökum og brauði í Domus Medica á sunnudag milli kl. 13 og 15. Þess er vænst að velunnarar kirkj- unnar komi og fái sér kaffisopa. í gærkvöldi í gærkvöldi Dr. Römer er dáinn, sagði Dr. Rotheim Dr. Derrick og Jón Baldvin Hanni- balsson vom sigurvegarar sjón- varpsins í gærkvöldi. Derrick óvenjuhress með tóma hvítsloppa í kringum sig, Jón Baldvin vel frískur og greinilega í miklu stuði, foringja- sonurinn sá. Byrjum á Dr. Derrick, þessum ást- kæra vini þjóðarinnar. Hann leysir öll mál vel af hendi, þrátt fyrir alls kyns brambolt í leikstjórum og hand- ritahöfundum. Höfundurinn í þættinum í gær- kvöldi forritaöi þáttinn að mestu inn á geösjúkrahúsi. Og þvílíkur hvít- sloppafans. Dr. Derrick og félagi hans aldeilis ekki í hvítsloppum, heldur í mokkajökkum frá Samband- inu, enda er hann enn á norðan í Þýskalandi. Dr. Römer heyröist nefndur 177 sinnum í gærkvöldi. Dr. Winter var nefndur 99 sinnum. Og síðan töluvert minnst á Dr. Rauh, Dr. Mundt, Dr. Rotheim og Dr. Schenk. Þátturinn gekk síðan út á hvort Dr. Römer væri dáinn eða ekki. „Dr. Römer er dáinn,” sagði Dr. Rot- heim. Balliö hélt áfram og minnst var á að tölva heföi verið kjörin „maður ársins”. Dr. Römer og Dr. Rotheim máttu ekki heyra minnst á tölvur. Og enn hélt ballið! áfram. Dr. Römer var skyndilega kominn í pill- urnar. Þá heyrðist sagt í kringum mig: „Hann át ekkert lítiö af pillum, biessaöur. Drepur hann sig ekki á þessu?” Góð spurning, eins og stjórnmálamennimir segja. Og þá erum við komin að þeim. Umræður í gær funheitar. Jón Bald- vin í joöinu sínu og essinu líka. Mun frískari en þau Páll, Guörún og Arni. Páll talaði mikið um kurteisi á Noröurlandaráðsþingum. Sagöi að það yrði að tala viö menn með kurt- eisi. Jón Baldvin vill kurteisi, en þó engin silkihansatök heldur. Kannski á að spyrja um Norður- landaráösþing eins og tölvuna: „Get- ur tölva elskað? Hún er hjartalaus.” Er þingið hjartalaust i allri kurteis- inni? JónG. Hauksson. Helgi Hallgrímsson, safnvörður á Akureyri: Hljóðvarpið ekki nógu sjálfstætt gagnvart ■ r sjonvarpi Eg horfi svo til ekkert á sjónvarp, hef aldrei vanið mig á það. Hins veg- ar hlusta ég dálítiö á rás 1. Mér finnst hún að mörgu leyti góð en stíla um of á sjónvarpið. Besta dagskráin er þannig yfirleitt utan kvöldanna og þau em lélegri fyrir vikiö. Helst eru það kvöldvökumar sem ég missi sjaldanaf. Mér list ágætlega á landsbyggða- útvarpið, stefnan hlýtur að vera sú að hvert hérað hafi eigið útvarp. Eg hlusta sama og ekkert á rás 2. Hún virðist koma alveg í staðinn fyrir Keflavíkurútvarpið og skipta þjóð- inni í tvennt, þá sem hlusta og hina. Hún er líka mjög keimlík Keflavíkur- útvarpinu og ég held að við séum þar með að viöurkenna vissa niöurlæg- ingu á þessum vettvangi. Sígild tónlist á rás 1 er að mínu mati mjög góð og ég efast um að hún sé nokkurs staðar betri en hér á landi. Fundur Aðgerðarannsókna- félags íslands Nýlega var haldinn stofnfundur félags áhuga- manna um aðgeröarannsóknir á Islandi. Helsti tilgangur félagsins er að efla aðgerða- rannsóknir og hagnýtmgu þeirra hérlendis, m.a. með fræðslu- og umræðufundum. Fyrsti slikur fundur veröur haldinn fimmtudaginn 21. mars nk. kl. 15.30 í kaffistofu verkfr. og raunvísindadeildar í VR II, Hjaröarhaga 4. Þar mun Guðmundur Jónsson verkfr. flytja erindi um spálíkön og umræður verða um notkunarmöguleika þeirra í íslenskum fyrir- tækjum. öllum er heimill aðgangur meðan húsrúm leyfir. Undirbúningsfundur vegna Heimsmóts æskunnar I kvöld, miðvikudaginn 20. mars, verður haldinn undirbúningsfundur vegna Heims- móts æskunnar '85 að Skólavörðustig 19, 2. hæðkl. 19.30. Heimsmót æskunnar verður haldið í Moskvu dagana 27. júlí til 3. ágúst 1985. A Heims- mótinu verða m.a. umræður um ýmis mál er varða ungt fólk; íþróttir, hljómleikar o.fl. Þau félög eða einstakhngar er áhuga hafa á að standa aö undirbúningi fyrir mótið, þar á meðal fjáröflun, eru hvattir til að mæta á stofnfund undirbúningsnefndar mótsins, þar /verður komið á skipulagi til undirbúnings Heimsmótsins. Æskulýðssamband Islands. Háteigskirkja Föstuguðsþjónusta í kvöld kl. 20.30. Prestur sr. Tómas Sveinsson. HÁR flytur um set Hársnyrtistofan HÁR í Hafnarfirði flutti nýveriö í nýtt og helmingi stærra húsnæði á horni Hjallabrautar og Dalshrauns en stofan hafði þá verið í liðlega fjögur ár við Strand- götu. Eigandi stofunnar er Hallberg Guömundsson hárskerameistari en með hon- um hafa starfað Þóra Eiríksdóttir hárskera- meistari og Hildur Hauksdóttir nemi. Eftir flutningana hefur svo Kristín Hákonardóttir bæst í hópinn en hún mun sjá um hárgreiösl- una. Kristín vann áöur hjá Dúdda og Matta. HAR er opiö frá mánudegi til föstudags frá klukkan níu til sex. Pantanir í hárgreiðslu eru teknar í síma 53955. Félagsvist í safnaðar- heimilinu Borgum í kvöld miðvikudag kl. 20.30. Þjónustudeildin. Fundarsköp Handbók um fundarstjórn 09 meöferð tiilagna Jón Böðvarsson aðhæfði og staðfærði Bókaútgéfan Öm og örlygur hefur endurút- gefið bókina Fundarsköp sem fyrst kom út árið 1979 og hefur verið ófáanleg um nokkurt skeið. Bókin er byggð á bók eftir O. Garfield Jonse, prófessor í oijornmáiairæðum við Toledo háskóla, en Jón Böðvarsson aðhæfði bókina og staðfærði. Félagsskapurinn Junior Chamber á Islandi átti allt frumkvæði að út- gáfu bókarinnar. Fundarsköp er handbók sem auðveldar fund- arstjóra að stjórna fundi og fundarmanni að taka þátt i fundarstörfum. Bókin skýrir afgreiðsluröð tillagna, flokkun þeirra, einkenni og réttarstööu. öll mál sem upp koma eru leyst í skynsamlegri röð, sem leiðir til auðveldrar lausnar og skjótrar afgreiðslu. Þessi bók er nauðsynleg öllum sem taka þátt í fundum félaga og samtaka, þingum og ráðstefnum, þar sem málin þarf að leysa á lýðræðislegan hátt; meirihlutinn ræður, en réttar minnihlutans er gætt. Fundarstjóri sem hefur Fundarsköp við höndina, þarf ekki aö kunna utanbókar allar reglur um meðferð tillagna. Miðkafli bókar- innar, sem er alger nýjung, veitir honum möguleika á að vera fljótur að fletta upp á þeirri tillögu sem fram hefur komið og afgreiða hana strax á réttan hátt. Dregið hefur verið í almanakshappdrætti Landssamtakanna Þroska- hjálpar fyrir mars Upp kom númerið 2249. IMámskeið í förðun og Ijósabeitingu Einn liður í starfsemi Bandalags íslenskra leikfélaga er námskeiöahald. Námskeiöin eru með ýmsu móti. Lengri námskeið eru jafnan haldin einhvars staðar fjarri höfuðborginni á afskekktum stað þar sem þátttakendur einangra sig frá hvunndeginum og helga sig viðfangsefninu óskiptir. önnur og þá styttri námskeið eru hins vegar haldin í Reykjavík. Tvö slík fóru fram helgina 23.-24. febrúar. Annað var grunnnámskeið í ljósabeitingu. Kennari á því var Daníel Williamsson, ljósa- meistari hjá Leikfélagi Reykjavíkur. Þátttak- endur voru 16. Fór kennslan fram í Iðnó. Hitt námskeiðið var í förðun og sóttu þaö 17 konur en kennarar voru þær Margrét Matthíasdóttir og Elsa Þórisdóttir sem báðar starfa hjá Þjóðleikhúsinu. Fékk Bandalagiö inni með námskeiðið í hinum nýju og stórglæsilegu húsakynnum Leíkfélags Kópavogs. Þar er mjög fullkomin aðstaða baksviðs. Að loknu náml var þátttakendum boðið að horfa á æfingu á leikritinu Vals eftir Jón Hjartarson sem um þessar munjlir er sýnt í Hjáleigunni en svo nefnist æfingasalur þeirra Kópavogs- manna þar sem þeir hafa komið sér upp litlu og aðlaðandi leikhúsi á meðan þeir bíða eftir því að Höfuðbólið rísi. Hárgreiðslustofan Inna flytur í vesturbæ Kópavogs Hárgreiðslustofan Inna hefur flutt í nýtt og rúmbetra húsnæði að Borgarholtsbraut 69, Kópavogi. Stofan var áður að Aratúni 1, Garðabæ. Eigandi stofunnar er Kristín Ottós- dóttir hárgreiðslumeistari. Einnig er snyrti- stofa á staönum meö andlitsböð, húðhreinsun, plokkun, litun, hársnyrtingu, föröun og vax meðferð. Stofan verður opin alla virka daga kl. 9—5 og á laugardögum. Tímapantanir í síma 44034. Franska sjónvarpið er hjá Alliance Francaise Videoklúbbur Alliance Francaise var opnaður þriðjudaginn 5. mars kl. 20.30 að Laufásvegi 12. Sýningar verða f jórum sinnum í viku þar sem sýnt verður nýtt efni hverju sinni. A þriðjudagskvöldum, kl. 20.30: Viðtal við André Malraux. Þessir þættir voru gerðir á árunum 1976 til 1979 og verða sýndir í sjö vikur frá 5. mars til 23. apríl. A miðvikudagskvöldum, kl. 20.30: Fréttir mánaðarins frá Frakklandi. Ymsar fregnir, menningarlífið, íþróttir.. . A fimmtudagskvöldum, kl. 20.30: Bók- mennta- og menningarþættir. A laugardögum, kl. 15: sögulegar heimilda- og landkynningarmyndir. — Aðgangur: — ókeypis fyrir nemendur Alliance Francaise. — þeir félagsmenn sem greitt hafa félagsgjaldið 1984—85, borga 20 kr. fyrir hverja sýningu. — Aðrir: 50 kr. fyrir sýninguna. Frá Ferðafélagi íslands Aðalfundur Ferðafélags Islands verður haldinn mánudaginn 25. mars í risinu á Hverfisgötu 105 og hefst kl. 20.30 stund- víslega. Venjuleg aðalfundarstörf. Lagðar fram tillögur til breytinga. ATH. Félagar sýni skírteini frá árinu 1984 við innganginn. Stjórnin. BELLA Ég er hvorki veik né hef ég frí í dag, ég veit bara ekki í hvaða föt- umégáaðkoma.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.