Dagblaðið Vísir - DV - 12.04.1985, Blaðsíða 11

Dagblaðið Vísir - DV - 12.04.1985, Blaðsíða 11
DV. FÖSTUDAGUR12. APRlL 1985. 11 Trillukarlar hafa afl undanförnu verifl afl snurfusa báta sína og búa þá til veiða. Þessi mynd var tekin við Granda í Reykjavík þar sem verifl var að leggja siðustu hönd á vormálunina. DV-mynd S Hveragerði: Stórkostleg sýning Frá Reginu Thorarensen, fréttaritara DV á Selfossi: Mikil og stórkostleg listaverkasýn- ing fór fram í félagsheimili ölfusinga í Hveragerði 4.-8. apríl síöastliðinn. Fjölmenni var á sýningunni enda mik- ið og sjaldgæft að sjá. Siguröur Sól- mundarson sýndi glæsileg verk sín sem hann eyðir ekki dýrmætum gjald- eyri í. 22 myndir, sem voru á sýningunni, voru flestallar til sölu. Eru flest iista- verkin unnin úr íslenskum jarðvegi, svo sem gosefnum hverasvæða og mis- litu grjóti, ásamt timbri, járni og fjöl- breyttumgróðri. Sigurður Sólmundarson, sem hefur lagt gjörva hönd á margt, er lærður húsgagnameistari og hefur haft marga menn í vinnu hjá sér, verið bóndi og verkstjóri. Síöastliðiö ár hefur hann veriö kennari í Hveragerði við góðan oröstír. Þetta er fimmta einkasýning Sigurðar en hann hefur haldiö áður samsýningu með öðrum í Reykjavík. A flestum sýningunjun hefur Sigurður selt 70 til 80% af listaverkum sínum og þarf enginn að vera hissa á því, því myndir hans eru stórkostlegar og mik- iö til þeirra vandað, enda eru myndirn- ar seingerðar úr íslenskum jarðvegi. Klessuverkin, sem okkur hefur ver- ið boðið upp á undanfarin ár, eru fljót- gerð sum hver. Sigurður Sólmundarson hefur sem betur fer aldrei notið listamannalauna og myndi hann ekki vilja þiggja þau ef svo ólíklega vildi til að honum yrði boð- ið upp á þau. Sigurður hefur aldrei far- ið á æskustöðvar sínar til að sníkja sér peninga. Oskandi er að allir sem kalla sig listafólk nú til dags líktust Sigurði sem mest. Þyrfti ríkiö þá ekki að styrkja listamennina eins og raun ber vitni. Velsótt málverkasýning Frá Regínu Thorarensen, fréttaritara DV á Selfossi: Jónas Guömundsson rithöfundur var með fjölbreytta myndlistarsýn- ingu í Eden í Hveragerði um páskana. Málverkasýning Jónasar var vel sótt að ég held því aldrei hafa verið önnur eins þrengsli í Eden, svo að fólk naut varla sýningarinnar. Flest málverkin eru ný, en nokkur frá 1974 frá því lista- maðurinn dvaldi í Þýskalandi. Myndirnar eru margar af gömlum húsum, er mér sýnist frá Eyrarbakka, og bryggjuefni eins og listamaðurinn kallar bátana. Einnig eru nokkrar myndir af blómi sem Jónasi tekst mjög vel uppmeð. Eg álit að unga fólkið sé mikið gefið fyrir gömlu húsin og geri góð kaup til að prýða heimili sín á sérkennilegan hátt. Jónas tók við skipherrastöðu á Landhelgisgæslunni þann fyrsta apríl síöastliöinn. Jafnframt birtast þriöju- dagsgreinar hans í DV. Umfangsmikil fjölmiðlakönnun Háskólans: Lesa krakkar dagblöð eða eyða þeir tfmanum í að góna á myndbönd? „Þetta er fjölmiðlakönnun. Og hún snýst að mestu um hvaða fjölmiðla krakkarnir nota, og þá ekki síður hvernig þeir nota þá,” sagði Þorbjörn Broddason, lektor í félagsvísindadeild Háskóla Islands. Könnun sú sem Þorbjörn var spurð- ur um var gerð nýverið. Hún nær til um 900 krakka á aldrinum 10 til 15 ára. Eingöngur krakkar í Reykjavík, Akur- eyri og Vestmannaeyjum taka þátt í könnuninni. Alls 46 spurningar voru lagðar fyrir þá. Niðurstaðna er aö vænta eftir nokkrar vikur. „Við fengum leyfi til að leggja spurn- ingar fyrir krakka í 4. til 9. bekk grunn- skólanna á þessum stöðum. Heimtur eru ágætar, um90% hafa svarað.” Félagsvísindadeildin hefur áður gert fjölmiðlakönnun á meðal barna á aldrinum 10 til 15 ára. Og í rauninni er könnunin nú hluti af þeim könnunum. „Fyrstu könnunina gerðum við árið 1968. Þá var úrtakiö um 600 krakkar. Aftur gerðum viö könnun áriö 1979. Urtakið þá var um 800 krakkar, auk þess sem við lögðum spurningar aftur fyrir hluta þeirra sem svöruðu í könnuninni árið 1968.” Þessu mun vera eins háttað að þessu sinni. Það er skýringin á því að fólk á aldrinum 16 til 21 árs hefur svarað spurningum félagsvísindadeildar að undanförnu, allt krakkar sem tóku þátt í ’79 könnuninni. Þorbjörn sagði aö einnig yrði lögð áhersla á að fá hluta þeirra sem svöruðu 1968 til að svara aftur núna. „Þannig sjáum við hvernig venjurnar breytast eftir því sem krakkarnir eld- ast.” Þrátt fyrir að könnunin eigi að sýna hvaða f jölmiðla krakkar noti og hvern- ig, þá sagði Þorbjörn að einnig fengj- ust fram viðhorf krakkanna og hver heimsmy nd þeirra væri. -JGH. Eyða krakkar miklum tima í afl sitja fyrir framan „imbann" og góna á glæpamyndir? Er myndbandstækið haft á allar helgar og langt fram á nótt? Háskólinn er þessa dagana afl gera mjög forvitnilega fjölmiðlakönnun. AUGLÝSING UM INNLAUSNARVERD VERDTRVGGÐRA SRARISKI'RTEINA Rl'KISSJÓDS FLOKKUR INNLAUSNARTÍMABIL INNLAUSNARVERÐA) 1.000 KR. SKÍRTEINI 1980-1. fl. 15.04.1985-15.04.1986 Kr. 8.380,35 *> Innlausnarverð er höfuðstóll, vextir, vaxtavextir og verðbót. Innlausn spariskírteina ríkissjóös fer fram í afgreiðslu Seölabanka Islands, Hafnarstræti 10, og liggja þar jafnframt frammi nánari uppiýsingar um skírteinin. Reykjavík, apríl 1985 SEÐLABANKI ÍSLANDS Stórkostlegt tilboð í lok vetrar 50—70% FÍ3E3 afsláttur á öllum svörtum fatnaði. Buxur— bolir—jakkar—skyrtur og jogging fatnaður. Aðeins á morgun. laugardag. Opið kl. 9-13. Laugavegi 41. Sími 22566.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.