Dagblaðið Vísir - DV - 12.04.1985, Blaðsíða 16

Dagblaðið Vísir - DV - 12.04.1985, Blaðsíða 16
16 DV. FÖSTUDAGUR12. APRlL 1985. Spurningin Hefur þú lesið Passíusálmana? Sveinn Jönsson bílstjöri: Eg hef nú ekki lesið þá en hlusta stundum á þá í útvarpinu. Mér fannst gaman að hlusta á Kiljan. Sævar Pétursson bifvélavirki: Já, ég hef lesið þá og hlusta líka á þá í útvarp- inu. Þeir standa alltaf fyrir sínu þó þeir séu komnir til ára sinna. Jóna Harðardóttir: Nei, ég hef ekki lesið Passíusálmana og ekki lagt eyrun við þegar þeir hafa verið lesnir í út- varpið. Hulda Pálsdóttir húsmóðir: Eg hef ekki lesið þá en hlusta á þá í útvarpinu. Þeir standa fyrir sínu og mér fannst Kiljan lesa þá frábærlega. Gunnar'Guðmundsson nemi: Nei, það hef ég ekki gert. Það eina sem ég hef heyrt er þegar spilaö var örlitið frá tónleikum Megasar í útvarpinu. Hann varágætur. Jónas Sigurðsson nemi: Eg hef ekki lesið einn einasta sálm. Halldór Lax- ness virtist lesa þá ágætlega en mér fannst Megas betri. HJÓLHESTUR ER ÞARFAÞING Leggur skrifar: Nýlega lét ég gera við hjólhestinn minn rg einsetti mér að fara ferða minna á þessum þarfa þjóni. Eg er staöfastur náungi og hef á undan- förnum dögum lagt ótalda kílómetra aö baki á reiðhjólinu. Vöxtur minn er allur að lagast og ég er hreystin uppmáluð. Þaö eitt spillir ánægjunni af hjól- reiðunum hve illa er búiö aö hjól- reiöamönnum. Hjólreiðabrautir eru fáar. Sumstaðar er heimilt að hjóla á gangstéttum en þær eru þaktar gler- brotum. Glerbrot sprengja dekk reiðhjóla. Mér leiðist að bæta. I framhaldi reynslu minnar síöustu vikur langar mig að bera upp tillögur um úrbætur í málefnum hjólreiða- manna. - Eg legg til aö lagðir verði fleiri hjólreiðastígar í Reykjavík, borgur- um til aukins öryggis. Lagður verði stígur um Fossvogsdalinn, niður að Hótel Loftleiðum. Annar stígur verði lagður meðfram Kleppsveginum niöur í miðbæ. Eg rnælist til þess að hjólreiða- brautir og gangstéttir verði sópaðar reglulega af hreinsunardeild borgar- innar. Eg ítreka að glerbrot eru eitur í lofti reiðhjóladekkja. Wh------------------► Það er ekki alltaf tekið út með sældinni að renna á hjóli gegnum lifið. Lesendur Lesendur Lesendur Lesendur Bifhjólasamtök lýðveldisins kasta mæðinni og kæla hjólin. NR. 13 ER FRÁBÆR Ein úr Kópavogi skrifar: til að hrósa þeim fyrir frábæra plötu. Svo að lokum: Þú sem kallar þig nr. I framhaldi greinar í DV um Bif- Eg vona að fleíri svona plötur komi frá 13 (Dýri): Þú ættir að fara út í að hjólasamtök lýðveldisins langar mig þeim í framtíðinni. syngja innáplötur. Þúertfrábær. Sjálfstæðismenn: Flytjið styttuna af Ólafi Thors að Valhöll Reykvíkingur hringdi: Undrandi var ég þegar ég las í NT 26." janúar um skoðanakönnun þar sem fólk var spurt hverja það teldi merki- legustu stjórnmálamenn þjóðarinnar, látna sem lifandi. Efstur af þeim látnu var Olafur Thors og í stíl við það var Albert efstur af þeim núbfandi. Eg fór að velta því fyrir mér hvernig á þessu stæði. Hvað geröi Olafur svona merkilegt? Hefði það ekki átt aö fylgja með fyrir hvaö hann væri svona merki- Iegur? Eg veit að hann var þekktur fyrir sniðug tilsvör eins og „hvar get ég pissað, strákar?” og annaö í þeim dúr. Unga kynslóðin heldur auövitaö að þetta hafi verið ofsa merkilegur maður: stytta var reist af honum í miöborg Reykjavíkur og gefin var út mikil og torlesin bók um hann. Já, stytta var reist hér í miðborginni aðeins vegna þess aö íhaldið réð ríkj- um hér í áratugi. Olafur á ekki að standa þarna frekar en einhver annar forsætisráöherra. Núna, þegar búið er að laga svo vel og snyrtilega í kringum Valhöll, hús sjálfstæðismanna, ættu þeir aö flytja sinn mann þangað. Þar á styttan heima og hvergi annars staðar. Ólæsi Ameríkana Lesandi hringdi: Fyrir nokkrum dögum kom í út- varpinu frétt frá Stefáni Jóni Hafstein þar sem sagði að þriöjungur Banda- ríkjamanna væri ólæs og óskrifandi. Mér finnst þessi frétt ákaflega ótrúleg og kysi aö þetta væri athugað nánar. Malagafanginn: Mannrétt- indamál að leysa hann út 3337-6995 hringdi: Mér finnst ábyrgðarlaust af íslensk- um stjórnvöldum aö frelsa ekki mann- inn sem er í haldi í Malaga. Hann er að niöurlotum kominn, taugakerfi hans er í rústum. Hér er um mannréttindamál að ræða. Maðurinn er íslenskur þegn og það þarf að koma honum út úr þessum vandræðum hið bráðasta. Eg hvet fólk til aö láta heyra í sér vegna þessamáls. Góða veislu gjöra skal. FRÁBÆRT ÁRSHÁTÍÐ- ARKVÖLD Tvær úr Hólabrekkuskóla höfðu sam- band: Við fórum tvær stöllur út að borða 28. mars sl. í tilefni af árshátíö Hóla- brekkuskólans. Viö skemmtum okkur einstaklega vel þetta kvöld og hjálpað- ist þar allt að. Okkur langar til að þakka starfsfólki á Svörtu pönnunni fyrir mjög góðan mat og einnig leigu- bílstjóranum á BSR fyrir góða þjón- ustu.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.