Dagblaðið Vísir - DV - 12.04.1985, Qupperneq 14

Dagblaðið Vísir - DV - 12.04.1985, Qupperneq 14
14 DV. FÖSTUDAGUR12. APRIL1985. Frjálst.óháð dagblað Útgáfufélag: FRJÁLS FJÖLMIÐLUN HF. StiórnarformaOur og útgáfustjóri: SVEINN R. EYJÓLFSSON. Framkvæmdastjóri og útgáfustjóri: HÖRÐUR EINARSSON. Ritstjórar: JÓNAS KRISTJÁNSSON og ELLERT B. SCHRAM. Aöstoðarritstjórar: HAUKUR HELGASON og ELÍAS SNÆLAND JÓNSSON. Fréttastjórar: JÓNAS HARALDSSON og ÓSKAR MAGNÚSSON. Auglýsingastjórar: PÁLL STEFÁNSSON og INGÓLFUR P.STEINSSON. Ritstjórn: SlÐUMÚLA 12—14. SlMI 686611. Auglýsingar: SlÐUMÚLA 33. SÍMI 27022. Afgreiðsla,áskriftir, smáauglýsingar,skrifstofa: ÞVERHOLTI ll.SfMI 27022. Sími ritstjórnar: 686611. Setning, umbrot, mynda-og plötugerð: HILMIR HF., SlÐUMÚLA 12. Prentun: Árvakur hf„ Skeifunni 19. Áskriftarveröá mánuði 330 kr. Verö í lausasölu 30 kr. Helgarblaö 35 kr. Er „sjálfstæðisstefnan” til? Landsfundur Sjálfstæöisflokksins hófst í gær. Fundur- inn hlýtur að taka mikilvægar ákvaröanir um stefnu flokksins. Ekki er búizt viö, að þær spár margra rætist, aö meö landsfundinum verði endi bundinn á núverandi stjórnarsamstarf. Ekki er gert ráð fyrir breytingum í æðsta forystuliði. Eitt hlýtur landsfundurinn að skoða sérstaklega: Er hin margumrædda „sjálfstæðisstefna” til? Forystumenn Sjálfstæðisflokksins hafa löngum fjallað um sjálfstæðisstefnuna og skilgreint hana. Viö stofnun Sjálfstæðisflokksins árið 1929 var mörkuð grundvallar- stefna hans. Þar segir meðal annars, að barátta flokksins sé á grundvelli einstaklingsfrelsis og atvinnufrelsis. Birg- ir Kjaran fjallaði um þetta í grein fyrir tuttugu og sjö ár- um og sagöi um þróun mála: „Að dómi sjálfstæðismanna hefur á síðari árum gætt mjög hættulegrar öfugþróunar varðandi hið íslenzka ríki, vald þess og verksvið. Afskipti ríkisvaldsins af högum einstaklinga hafa farið stöðugt vaxandi, og á mörgum sviðum hefur verið þrengt að frelsi þeirra, jafnframt því sem ríkið hefur í æ ríkari mæli gerzt beinn aðili að atvinnurekstri, ýmist með fríðindaaö- stööu í samkeppni við einstaklinga eða það hefur skammtað sér lögverndaða einokunaraðstöðu og þannig útilokaðeinkareksturinn. . .” Hversu gild eru þessi ummæli ekki enn í dag og jafnvel í ríkari mæli en þá var? Sjálfstæðisflokkurinn hefur fjar- lægzt markmiðin, sem sett voru í upphafi. Er hann ekki eins og hinir flokkarnir flokkur fyrirgreiöslupólítíkusa, sem hygla gæðingum í kjördæmi en stýrast ekki af hug- sjónum? Er Sjálfstæðisflokkurinn ekki í ýmsum málum „stærsti Framsóknarflokkur” landsins? Á þetta er bent hér, af því að ástæða er til að ætla, að landsmenn nytu góðs af auknu frjálsræði einstaklinganna. Sjálfstæðis- flokkurinn hefur í tímans rás orðið samdauna hinum flokkunum, kerfisflokkur ekki síður en þeir og stundum fremur en þeir, af því að hann hefur verið stærri og sterk- ari. Nú þegar sjálfstæðismenn koma saman til landsfundar blasir við þeim mikið fylgistap samkvæmt skoðanakönn- unum. Sams konar kannanir og nú gefa Sjálfstæðisflokkn- um 36—37 af hundraði atkvæða sögðu fylgi hans fyrir um ári vera nærri helming þeirra, sem á annað borð tóku af- stöðu. Sjálfstæðisforystan getur þó enn sagt, að fylgið sam- kvæmt skoðanakönnunum sé ekki svo langt undir kjör- fylgi í síðustu kosningum, að þann mun megi vinna upp. Það er rétt, en verður örðugt verk. Líklega munu sjálfstæðismenn á þessum landsfundi ekki kjósa að hlaupa fyrir borð á stjómarskútunni. En yrði þessi fundur með nógu lýðræðislegum brag, er tími til kominn, að þeir ræði málin í hreinskilni. Ætlar flokkur- inn að vera „Framsóknarflokkur” eða „frjálshyggju- flokkur”? Væntanlega verður forysta flokksins ekki sótt til saka fyrir minnkandi velgengni flokksins síðustu misseri. Þor- steinn Pálsson hefur verið valdalítill sem formaður. Ráö- herrasveitin hefur farið sínu fram. 1 þeirri sveit sýnist að vísu sitt hverjum, en útkoman hefur gjaman orðið, að framsóknarstefnan hefur orðið sjálfstæðisstefnunni yfir- sterkari, þegar á reyndi, þó með nokkrum undantekning- um. Ungir framsóknarmenn eru um þessar mundir að setja fram kröfur, sem sumar stefna í frjálshyggjuátt. Ætla sjálfstæðismenn að vera meiri framsóknarmenn en ungir f ramsóknarmenn ? Haukur Helgason. H vað er til ráða í húsnæðismálunum? NÝTUM EINKA- FJÁRMAGNK)! Þaö er rétt sem þeir Haukur Helgason og Jónas Kristjánsson hafa sagt í leiöurum DV. Umræðan um húsnæðismálin er botnlaus tunna. Hún snýst öll um leiðir til ráðstöfun- ar á peningum sem ekki eru til. Vandinn í húsnæðismálunum er ekki að finna nýjar leiðir til þess aö lána peninga. Samt er þaö alfa og omega allrar umræðunnar. Menn skiptast á upphrópunum um Búseta- kerfi, verkamannabústaðakerfi og aörar mismunandi útfærslur á sjálfs- eignarkaupleigu- eða leigukerfum í húsnæðisöflun og lánveitingaleiöum til þeirra. Þessi umræöa sniðgengur sjálfan kjama málsins — þann að peningarnir til lánveitinganna eru einfaldlega ekki til. Það er til lítils aö opna nýjar lánaleiðir ef engir peningar eru til þess aö lána. Létta leiðin Ijúfa Eignalaus fjölskylda. leysir ekki fjárhagsvanda sinn með því aö opna fleiri innlánsreikninga sé ekkert til að leggja inn. Húsbyggjendur leysa ekki fjárhagsvanda sinn með því að fjárvana húsnæðislánakerfi fjölgi heitum umsóknareyöublaða. Slikar „lausnir” eru samt sem áður dæmigerðar fyrir íslenska umræðu. „Létta leiðin ljúfa”. Þessi dæmigerði veruleikaflótti frá óþægilegum staðreyndum. Þessi eilífa árátta að hægt sé að leysa allra vanda án þess að nokkur þurfi nokkum tíma nokkuö á sig að leggja. Félagsmálaráðherra er síður en svo öfundsverður í þessari stöðu. Honum dugar ekki „létta leiðin ljúfa”. Hann verður að finna peninga. Hvar? Skattar og skyldusparnaður I því máli eru allir ósköp hlédræg- ir. Einna helst er verið að hvislast á um skattlagningarleið eða skyldu- sparnaðarleið. Engar „hreyfingar” eru þó stofnaðar um hvernig á að út- vega peningana með sama hætti og „hreyfingar” eru stofnaðar um hvernig sé best að brúka þá. Þrátt fyrir fjárvöntunina í íbúðabyggingunum er samt sem áður mikið fé í umferð sem fest er í fasteignum. Stórhýsi Islenskra aðal- verktaka viö Höfðabakka í Reykja- vík eitt út af fyrir sig er ígildi 70 íbúða húss. Fjölmargir slíkir stórir steinsteypukastalar eru úti um allar þorpagrundir þar sem einstaklingar og félög hafa verið að fjárfesta aflögufé sitt í fasteignum sem síðan hafa verið leigðar undir vaming og vélar eða standa auöar. Hér stœðu nú 70—100 ibúðir ef aðeins vœri gert eftirsóknarverðara að festa fó i húsnœði fyrir fólk fremur en i steinsteyptum umbúðum utan um skrifstofur. SIGHVATUR BJÖRGVINSSON FYRRVERANDI ALÞINGISMAÐUR aðgerðum sem tryggja að f járfesting í húsnæði utan um fólk sé arðvæn- legri en fjárfesting í húsnæði utan um skrifstofur, húsbúnaö og bíla. En það er fleira hægt að gera á svipuðum vettvangi. Risinn er í landinu mjög öflugur verktakaiðnað- ur sem m.a. byggir á stórvirkum og afkstamiklum vinnuvélum. Sérstak- lega hvað alla jarðvinnu varðar hefur reynslan sýnt að vérk eru unnin fyrir tilboðsverð sem er langt undir kostnaöaráætlunum opinberra aðila sem byggja útreikninga sína á hefðbundnum vinnubrögðum. Sama myndi gerast í byggingariðnaðinum ef menn aöeins leyföu því að gerast. A.m.k. í Reykjavík og öllum stærstu bæjunum á að vera grund- völlur fyrir sameiginlegu útboði ríkis og sveitarfélags, ekki aðeins á byggingum nokkurra tuga íbúöa heldur á fuilnaðarframkvæmdum við heilu íbúðahverfin; þ.e. auk £ „Umræöan um húsnæðismálin er botnlaus tunna. Hún snýst öll um nýjar leiðir til að lána peninga sem ekki eru til.” „Banna, banna"! Þegar á þessa hluti er minnst eru menn fljótir aö rjúka til og hoppa á billegustu lausnina eins og alltaf. „Bara banna þetta,” er viðkvæðið. Hverju væru menn nær? Kjami málsins er auðvitað sá aö þeir sem eiga peninga festa þá frekar í svona fasteignum en t.d. í íbúöarhúsnæði tii sölu eða leigu af því þeir telja hið fyrmefnda hag- kvæmara. Það er því sem þarf að breyta. Meö ívilnunum á sviði skattamála, afskrifta o.fl., á að laða þetta fjár- magn frá skrifstofuhöllunum yfir í íbúðarhúsnæðið. Sjái einstaklingar og félög, sem eiga fé aflögu, sér meiri hag í að festa það í mannvirkj- um utan um fólk fremur en í stein- steyptum umbúöum utan um lagera, skrifstofur og bíla þá veröur það auövitaö gert. Þangaö leita fjármunimir sem mests arös er von. Islendingum hefur gengið ákaflega ilia að skilja þaö einfalda lögmál. Hér vilja menn „absalútt” að ár renni upp í móti og þykir ekki áhorfs- mál að setja um siíkt lög ef það ger- ist ekki með góðu. Væri meiri fjárhagslegur ávinn- ingur fyrir Islenska aöalverktaka að festa fé sitt í íbúöarhúsnæði en skrif- stofuhöll þá stæði nú sjötíu íbúða hús á lóðinni við Höföabakka í staö þess hrikalega mammútaskrifstofukom- plex sem gnæf ir þar við himin. Notum einkafjármagnið Auðvitaö eigum viö að nota einka- fjármagnið í miklu ríkari mæli til íbúöamálanna en viö nú gerum. Ekki með boðum og bönnum, sem ávallt verða sniögengin, heldur með byggingar ibúöa, af ýmsum stæröum og geröum, frágangur lagna, gatna- kerfis, lýsingar, þjónustu- og félags- miðstöðva o.þ.h. Þrír til fjórir slíkir framkvæmdaaðilar ættu t.d. aö vera að byggja upp Grafarvoginn og myndu gera það miklu fljótar og ódýrar bæði fyrir einstaklingana og þjóðarheildina en þau hundruö hús- byggjenda sem þar hamast nú í aukavinnu nótt meö degi. Á þessum vettvangi liggja stóru tækifærin til mikilla umskipta en bollaleggingarnar um viðbótar- skatta og skyldusparnað, sem með hreinum hörmungum gætu e.t.v. gefið nokkra tugi milljóna, eru í fyrsta lagi um tittiingaskit og í öðru lagi úrelt gamaldags rugl sem ætti aðskrínleggjast. Sighvatur Björgvinsson.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.