Dagblaðið Vísir - DV - 19.07.1985, Blaðsíða 2

Dagblaðið Vísir - DV - 19.07.1985, Blaðsíða 2
2 Fiskvinnslufyrirtæki á Vestfjörðum: Býður nær tvöföld laun —að auki frítt fæði, húsnæði og ferðir „Þetta er í fyrsta skipti sem frysti- hús hefur samband við okkur vegna mannaráðninga. Það er greinilegt að það leggur mikla áherslu á að fá til sín fólk,” sagði Guðni Jónsson, en ráðn- ingaþjónusta, sem hann rekur, lét birta athyglisverða auglýsingu í Morgunblaðinu á þriðjudag. I auglýsingunni er óskað eftir fisk- verkunarfólki til starfa hjá fisk- vinnslufyrirtæki á Vestfjörðum. I boði eru fríar ferðir, fæði, húsnæði og dag- vinnukaup sem nemur 160 krónum á tímann. Byrjunarlaun í þessari starfs- grein eru tæpar 90 krónur samkvæmt launataxta. Guðni sagði að ekki væri Ijóst hvort eitthvað af þessari vinnu gæfi fólki tækifæri á bónusgreiöslum en ljóst væri að mikil atvinna er í boði. Veðja upp á fé lánadrottna? „Það er mjög óvenjulegt að fisk- vinnslufyrirtæki geti boðið aðkomufólki betri kjik- en heimamönnum, en þar er raunin í þessu tilviki ef í boði er frítt fæði og húsnæði,” sagði Þórarinn V. Þórarinsson hjá Vinnuveitendasam- bandinu þegar auglýsingin var borin undir hann. „Annars hefur oft komið í ljós í sambandi við umræðu um kjara- mál aö ein tala út úr kauptaxta segir ekki til um hver kjörin eru þó að tíma- kaup fisvinnslufólks sé tæpar 100 krón- ur, þá má auka tekjurnar mikið með bónusvinnu, allt að 40 til 50%. Munur- inn þarf því ekki að vera jafn mikill og hannsýnist.” Þórarinn sagði aö það hefði oft kom- ið fyrir að sama fyrirtækið hefði kom- ist í fréttir einn mánuöinn fyrir hátt kaup en þann næsta vegna þess aö þaö væri á hausnum og hefði þörf fyrir opinberan fjárstuðning. I þessu tilviki væri hugsanlegt að fyrirtækið væri að brúa eitthvað bil og sæi sér hag í að bjóða þessi kjör, en jafn líklegt væri að hér væri verið að veðja upp á fé lána- drottna. Sýnir að hægt er að borga meira Karvel Pálmason, varaformaður Al- þýðusambands Vestfjarða, sagðist telja þessa uglýsingu augljóst dæmi þess að fiskvinnslufyrirtækin gætu borgað meira en um er samið. „Það gleður mig að heyra þetta nú, þegar í hönd fara samningar um bónusgreiðsl- ur til fiskvinnslufólks. Þaö ætti ekki að vera vandamál að ná hagstæöum samningum,” sagði Karvel. „Það er augljóslega mikill skortur á góðu vinnuafli í frystihúsunum og hann er meiri núna en oft áður vegna þess hve launinerulág.” Karvel sagðist treysta því að fisk- vinnslufyrirtæki byðu heimafólki igildi- þeirra hlunninda sem aðkomufólki stendur til boða í formi launa, fæðis, ferða og húsnæðis. Vaxandi skattheimta: Sifellt meira af tekjum þjóðarinnar er hirt í skatta Háldardcatthamta rikis og svdtar- félaga hefiu- vaxið hröðum skrefum á undanfömum árum að því er segir í nýútkomnu fréttabréfi Verslunarráðs Islands. Verslunarráðið skoðar skatt- heimtuna bæði sem hlutfall af vegri þjóöarframleiðslu og vergum þjóðar- tekjum á þáttavirði. (Tekjur fram- Ieiðsluþátta: vinna og fjármagn). Vergar þjóðartekjur eru reiknaðar þannig að óbeinir skattar eru dregnir frá þjóðarframleiðslunni en fram- leiðslustyrkjum er bætt við. Heildarskattheimtan er mun meiri sem hlutfall af vergum þjóðartekjum en þjóðarframleiðslu. Fyrir síðasta ár, 1984, var hlutfallið 53% á móti 40%. En hvort hlutfallið á að nota? Hag- fræðingar spyrja sig sjálfir þeirri spumingu. Til frekari útskýringar búum við á DV til smáskýringardæmi. lmyndum okkur að vara kosti 100 krónur (þjóðartekjur). Við hana bætast 25 krónur í söluskatt (óbeinn skattur) þegar hún er seld. Varan er því komin upp i 125 krónur (þjóðar- framleiösla). Á að nota hlutfallið 25 krónur af 100, eða 25 af 125. Fyrra hlutfalliö gefur 25% söluskatt en þaö seinna 20%. Hér er dæmið einfaldað, aðeins verið með söluskatt. I „praksís” er það öll skatt- heimtan sem er tekin og borin saman við þjóðarframleiðslu og þjóðartekjur. Að mati Verslunarráösins gefur það réttari mynd að reikna skattheimtuna sem hlutfall af þjóðartekjum. Rökin eru þau að þjóðartekjumar séu jú þær tekjur sem nýtast til að greiða skatt- ana. Þá má geta þess að afskipti ríkis og sveita af efnahagslifinu eru oft skoðuö út frá heildarskattheimtunni. JGH Heildarskattheimta sem hlutfall af vergum þjóðartekjum. Heildarskattheimta sem hlutfall af vergri þjóðarf ramleiðslu. Ríkið tekur sitt hvemig sem ö stendur. Ofengreindar skýringa- myndir or afi finna í nýjasta hefti Verslunarráfis fslands. DV. FÖSTUDAGUR19. JULI1985. Margar hendur vinna lótt verk, stendur einhvers stafiar. Fatlaða fölkifi i hjólastólunum komst inn ó rófin- ingaskrifstofuna eftir að hjólpsamar hendur bóru fólkifi upp tröppurnar bröttu. Hór er hlustað ó Ástu Schram, til vinstri, eina starfsmann öryrkjadeildarinnar, lýsa starfi sinu. DV-mynd VHV. Hjólastólaf ólk kemst ekki inn á skrif stof una sem f er með atvinnumál þeirra: „Þetta er ekki gæfulegt” „Jæja krakkar, hvemig eigum við að komast héma upp? Em einhver heljarmeimi sem vinna héma?” Þessar og viðlika spumingar heyrðust fyrir utan öryrkjadeild ráðningaskrifstofu Reykjavíkurborg- ar í gærdag. Þar var samankominn hópur ungs fólks, fatlaðs fólks, flest bundið hjólastólum. Fólkið var að vekja athygli á að á skrifstofu þeirra, sem það þarf að koma á til að leita sér að vinnu, er því lífsins ómögulegt að komast inn. Astæðan er sú aö þar er alls ekki gert ráð fyrir ferðum hjóla- stólafólks, heldur einungis háar, brattar tröppur sem þarf að komast upp til aö komast inn í húsið. „Við viljum vekja athygli á því að við komumst ekki hjálparlaust inn í húsið sem öryrkjadeild ráðningar- skrifstofunnar er til húsa í,” sagði Jóhann Pétur Sveinsson lögfræðingur, einn úr hópnum, í samtali við DV. „Fatlaö skólafólk þarf aö fá sumar- vinnu eins og aðrir en Reykjavíkur- borg gerir ekkert til að leggja því lið. Á skrifstofunni er aðeins einn starfs- maður, Ásta Schram, og þótt hún sé öll af vilja gerð kemst hún ekki yfir að anna öllu þvi sem hún vildi. Þetta er þvíekkigæfulegt.” Jóhann Pétur sagði að þessi aðgerð væri liður í samnorrænu samstarfi, bræðrasamtökum Norðurlanda- þjóðanna, í málefnum fatlaðs fólks sem hygðist vekja athygli á sér á ári æskunnar. Hann sagði að í nóvember, nánar tiltekið vikuna 12. til 16., yrðu sérstakar aðgerðir af hálfu sam- takanna á öllum Norðurlöndunum. Þessi mótmælastaða í gær væri aðeins forsmekkurinn að því sem þá yrði gert, svona rétt til aö koma málunum á framfæri í fjölmiðlum. 90 á atvinnuleysisskrá Hjá ráöningaskrifstofunni eru 90 fatlaðir á atvinnuleysisskrá þessa stundina. Áð meöaltali tekst að útvega 8 til 9 manns vinnu á mánuði en alltaf bætast við jafnmargir eða fleiri á skrána mánaðarlega. Mannekla háir mjög starfi ráðningaskrifstofunnar þar sem mun meiri vinna fer í hverja atvinnuumsókn heldur en ef um heil- brigt fólk væri að ræða. Oft á tíðum þarf starfsmaöurinn að fara heim til viðkomandi umsækjanda þar sem um- sækjandinn kemst ekki til starfs- mannsins á skrifstofuna. Skrá þarf ýmislegt fleira á slíkri umsókn en öðrum, til dæmis heilsufar og hvað viðkomandi treystir sér til að gera. Nokkrum hefur verið útveguð sumarvinna viö skógrækt og á Múla- lundi. Hins vegar gengur mjög treg- lega aö útvega fólki þessu skrifstofu- störf. Starfsmaður skrifstofunnar ver miklum tíma í það að heimsækja fyrir- tæki en forstöðumenn þeirra eru ekki nógu minnugir á tilveru þessa fólks, að mati þeirra sem um þessi mál fjalla, þegar þá vantar fólk til vinnu. Þá kom fram í máli fólksins að ef til vill ætti það sjálft einhverja sök á hversu illa þetta gengi þar sem oft bilaði kjarkur fatlaöa fólksins þegar starfiö væri fengið. Það hefði sumt hvert aldrei komið á vinnumarkaöinn og þætti þaö ekki standa jafnfætis öðru fólki þegar á hólminn kæmi. Einnig kom fram að lengi hefði veriö reynt aö bæta aðstöðuna fyrir fatlað fólk við inngöngu skrifstofunnar. Athugaður heföi veriö möguleiki á að gera rennibraut fyrir hjólastóla, en það þætti ekki fýstilegur kostur þar sem tröppumar væru of brattar. Þá hefði og komið til tals að setja þar lyftu en ekkert orðið úr því. Þá hefur og lengi staðið til að fá betra húsnæði fyrir starfsemina. Ekki hefur orðið úr því enn. -KÞ. Samkomulagið um íslenska álfélagið: Hlutafjáraukning um 40 milljónir dollara? „Við höfum unniö á. Við erum öruggir um að þessi samningur skilar okkur því sem okkur ber,” sagöi Sverrir Hermannsson iðnaðar- ráöherra á fundi með blaðamönnum í gær. Þar kynnti hann nýundirrit- aöan samning á milli ríkisstjómar- innar og Alusuisse um skattamál Isal. Samningurinn var undinritaður með fyrirvara. Lögfrasðingar beggja aðila munu vinna áfram að end- anlegri gerð formlegs samnings sem verður síðan lagður fyrir ríkisstjóm ogAlþingiíhaust. Helstu niðurstöður sam- komulagsins era að í sambandi við ákvæðin um útreikning á nettóhagnaði Isal verða teknar upp nýjar reglur. Sérstök viðmiðunar- verð verða notuð til að ákvaröa sölu- verö á áli frá bræðslunni og kostnaðarverð á súráli og raf- skautum til bræðslunnar í skattalegu tilliti. Þessar reglur veröa endur- skoðaöar með vissu millibili. Ákvæöi um eignamat og afskriftir af fastafjórmunum Isal verða endur- skoðuö og hlutafé verður aukið. Nýtt endurmat á eignum fyrirtæk- isins mun vera um 89 milljónir dollara. Hlutafé verður aukiö um 30—40% af langtímaskuldum fyrir- tækisins sem gæti þýtt um 40 milljón dollara hlutafjáraukningu. Framleiðslugjaldi Isal veröur þannig háttað að félagið greiði áfram lágmarksskatt, sem svarar 20 dollurum á hvert áltonn frá bræöslunni, við útskipun og án tillits til hagnaðar. En skattur umfram þetta lágmark verður greiddur árlega með tilliti til hagnaðar á und- anfarandi ári samkvæmt ákveðnum skattstiga. Sverrir Hermannsson kvaö menn bjartsýna um hag fyrirtækisins og sagðist eygja hagnað af því strax á næsta ári. „Fyrirtækiö verður vel ó hryggnum reist, bæði tæknilega og fjárhagslega”. Varöandi viðræður um stækkun ólversins í Straumsvík eða nýja eignaraðila var ekkert að segja. En um þann þáttinn sagði ráðherra „Orkuverð fer lækkandi ogsamkeppninvaxandi”. -ÞG.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.