Dagblaðið Vísir - DV - 19.07.1985, Qupperneq 14

Dagblaðið Vísir - DV - 19.07.1985, Qupperneq 14
14 Þessi völasamstaaða var i viðgerð og því opin og tðm. Og þama verður rafmagnið að öllu jöfnu til. Vatn bullar af miklum krafti inn i hreyfil sem er niðri f vélasamstœðunni og kemur honum af stað. Hreyfillinn er tengdur við rafal og það er einmitt rafallinn sem framleiðir rafmagnið. Vatnið heldur síðan áfram út úr stöðinni. Varúð! Þessar myndir eru... 570 megavött — DV skoðar „Edison-hraðlest” Landsvirkjunar „Er ekki bara rétt að kalla þetta svæði Edison-hraðlestina?” sagði ég við Bjamleif ljósmyndara, er við ókum framhjá Búrfellsvirkjun á leið heim, eftir að hafa skoðað virkjanasvæði Þjórsár og Tungnaár í fyrradag. Svæðið er með fjórum ótrúlegum mannvirkjum. Búrfellsvirkjun er fremsti vagn með Sultartangastíflu, Hrauneyjafossvirkjun og Sigöldu- virkjun í eftirdragi. Fimmti vagninn er að bætast við, Kvíslaveitan sem nú! er verið að koma upp. Og það er hægt að bæta mörgum vögnum við í lestina. Og Edison kallaði ég hana vegna þess að Thomas Edison, bandaríski, sjálfmenntaði snillingurinn, fann upp ljósaperuna. Það var þó ekki nóg, peran þurfti rafmagn og rafmagnið dreifilögn og dreifilögnin raforkuver. Edison átti þátt í öllum þessum uppfinningum. Virkjanasvæði Þjórsár og Tungnaár' hefur verið í uppbyggingu frá 1965. Fyrst var lokið við Búrfellsvirkjun, það var árið 1970. Næst kom Sigalda, þá Hrauneyjafossvirkjun og endað var á vagni númer 2 Sultartangastíflu, því ótrúlega mannvirki. Og orkumannvirkin hafa kostað sitt. I þau eru núna komnir um 16 til 18 milljarðar íslenskra króna. Það er mikið fé fyrir fámenna þjóð, þó gefi 750 megavött. Hægt hefur verið á fram- kvæmdum í bili; það þarf líka að selja allt þetta rafmagn. „Edison-hraðlestin” framleiðir um 80% alls þess rafmagns sem Lands- virkjun selur en stofnunin sú sér um 90% landsmanna fyrir rafmagni. Af- gangurinn á rafmagnsframleiðslu Landsvirkjunar kemur úr Soginu og Laxá. Og lestin er sannarlega samtengd. Búrfellsvirkjun er atkvæðamest, 210 megavattastöð. Ef Búrfell dettur út,. þá dettur landið út. Svo einfalt er það, svo samtengdar eru dreifilínurnar. Búrfellsvirkjun er að fullu nýtt. Um 225 af 320 rúmmetrum vatns sem renna til hennar eru virkjaðir. Það þýðir að hægt er að stækka virkjunina, Myndir: Bjarnleifur Bjarnleifsson Sigölduvirkjun í allri sinni dýrð. Fyrir ofan er stórt lón, Sigöldulón. Það sér virkjuninni fyrir vatni. Sigölduvirkjun ar 150 magavött. Full nýting er á ðlagstímum en meöalafköst eru um 75 megavött. og mun það vera góður kostur að sögn fróðra. Fyrir ofan Búrfell kemur Sultar- tangastífla. Meiriháttar mannvirki. En það er aðeins stífla, virkjunina vantar. Hún kemur seinna, það er allt tilbúið. Næst er það þriðji vagninn í lestinni, Hrauneyjafossvirkjun. Hún er fyrir ofan Sultartangann, stöð upp á 210 megavött. Stöðina vantar meira vatn og útkoman er því að það er ekki nægilegt vatn fyrir hendi til að hún gangi á fullu. Meðalframleiösla Hrauneyjáfoss- virkjunar er um 50% af afkastagetu. Á álagstimum er samt „gusaö í gegnum hana” og þá er hún fullnýtt. Hún mætir því toppunum í notkuninni af fullu afli. Fyrir ofan Hrauneyjafoss er það' Sigölduvirkjun, nú fjórða i lestinnien önnur i byggingaröðinni. Hana vantar líka vatn, þó Sigöldulónið sé stórt. Stöðin er 150 megavött og með áþekka raforkuframleiðslu og Hrauneyjafoss- virkjun. Ur Sigöldu er farið enn ofar, í Þóris- vatn. Þó það sé næststærsta vatn landsins dugir það ekki fyrir Sigöldu- lón og Hrauneyjalón. Þess vegna hafa menn ákveðið að bæta í Þórisvatnið og framkvæmdir eru hafnar. Framkvæmdimar ganga út á að stífla Kvíslaveitur, nokkrar ár. Við það myndast stórt lón sem rennur í Þóris- vatn — og úr Þórisvatni í Sigöldu — og Hrauneyjalón. Þar með verður „Edison-hraðlestin” enn hraðskreiðari, það verður ekið á fullu afli. Dregið hefur verið úr fram- kvæmdum í Kvíslaveitu. Hagvirki er þar með fjórða áfangann. En þetta byrjar ekki að renna fyrr en fimmti áfanginn kemur til að sjálf Þjórsá æði inn á svæðiö. Það var eins gott aö Edison kveikti á perunni forðum. Og hann sem var ekki einu sinni barnaskólagenginn, stundaði sjálfsnám. Svo fann hann líka upp hljómplötuna. „Er vann ég í Sigöldu, meyjamar...” -JGH DV. FÖSTUDAGUR19. JULl 1985. Hrauneyjafossvirkjun er 210 megavött. Meðalframleiðsla er þó aðeins um 110 megavött. Það er aðeins á álagstimum sem full afköst eru. Snyrtilegt er fyrir utan hjá Landsvirkjun, engir reykháfar, engir kolabingir, engin mengun, þetta er jú vatnsvirkjun. Sultartangastífla er sennflega mesta orkumannvirki á Islandi tð þessa. Við Sultartanga er aðeins komin stifla, virkjunina vantar. Stiflugarðurinn á myndinni er 6 1/2 kílómetri á lengd og um 12 metrar að hœð. Eöa eins og samfelld 3ja hæða blokk frá miðbæ Reykjavikur alla leiö i Garðabæ. Hrauneyjafossvirkjun á byggingartfma. Hrauneyjalón fyrir ofan og enn ofar má sjá Sigölduvirkjun og Sigöldulón. Fyrir ofan Sigöldulón er Þóris- vatn og fyrir ofan Þórisvatn eru Kvislaveitur. i framtíðinni Kvislaveitulón. Árni Benediktsson, stöðvarstjóri í Búrfeilsvirkjun, stendur inni f „vira- og mastravirki" Hrauneyjafossvirkjunar. i hverju hylki eru 220 þúsund volt en það er þúsund stnnum meira en f heimahúsum. Með þvf aö hafa spetmi- stöðina svona innanhúss er verið að loka fyrir truflanir af völdum veðurs. Innanhússtöð er um 10% ódýrari en hefðbundin spennistöð utanhúss.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.