Dagblaðið Vísir - DV - 19.07.1985, Qupperneq 11
DV. FÖSTUDAGUR19. JUU1985.
11
Harðorð mótmæli
kjúklingabænda
Félag kjúklingabænda hefur mót-
mælt harðlega þeiiri hækkun á kjam-
fóðurgjaldi sem gildi tók um síðustu
mánaðamót. Stjórnarfundur var hald-
inn í félaginu i gær.
I ályktun fundarins segir að fram-
leiðsla kjúklingabænda hafi verið
meira og minna skattlögð sl. fimm ár
og að það hafi valdið miklum erfiðleik-
um í framleiðslunni. Kjarnfóðurgjald
hafi orsakaö veröhækkanir á nauð-
synjavöru almennings og stuölað að
aukinni dýrtíð. I ályktuninni segir:
„Tollur á hráefni til framleiðslu á
nauðsynjavöru sem aflað er í landinu
sjálfu verður að teljast fráleit ráöstöf-
un, miðaö við þá pólitík sem stjómar-
flokkarnir boða til batnandi lífskjara
alls almennings. Þaö er skilyrðislaus
krafa að þessum álögum verði aflétt
nú þegar, þ.e. 80% fóðurskatti og 50%
tolli, samtals 130% hækkun á gjöld-
um.”
Einnig er vakin athygli á því að í 35.
grein nýsamþykktra laga um fram-
leiðsluráð o.fl. beri stjómvöldum að
hafa samráð við þá aðila sem hlut eiga
að máli um alla framkvæmd máia, áð-
ur en lögin verða virk.
-PÁ.
Flugleiðir
með DC-10
breiðþotu
Breiðþota af gerðinni DC-10 var í
þjónustu Flugleiða á leiðinni yfir
Norður-Atlantshaf fyrr í þessum
mánuði og í seinnihluta júni. Fór hún
fjórar ferðir, fram og til baka, milli
Evrópu og Bandaríkjanna.
„Hollenska flugfélagið Martinair
bauð okkur ákveðinn sætafjölda. Við
keyptum því 150 sæti í hverri ferð,”
sagði Sæmundur Guðvinsson, blaða-
fulltrúiFlugleiða.
Breiðþotan var í flugi milli Amster-
dam og Bandaríkjanna en miililenti
í Lúxemborg vegna Flugleiðafar-
þeganna. Tvær ferðir vom til New
York og tvær til Chicago. Siðasta ferð
breiðþotunnar fyrir Flugleiðir var
flogin í fyrradag.
-KMU.
Séra Bjarni Sigurðsson:
Varði doktors-
ritgerð
Séra Bjami Sigurðsson varði þann 3.
júlí sl. doktorsritgerð sína við lögfræði-
deild háskólans í Köln í Vestur-
Þýskalandi. Fjallar ritgerð séra
Bjama um íslenska kirkjuréttarsögu
frá upphafi til vorra tíma. Höfundur
hefur unnið að ritgerð sinni um
nokkurt skeið og dvaldi m.a. við fram-
haldsnám í Köln veturinn 1968—69.
Bjami er fæddur að Hnausi í Flóa 19.
maí 1920. Foreldrar hans voru
Sigurður Þorgilsson bóndi og fyrri
kona hans, Vilhelmina Eiríksdóttir.
Bjami varð stúdent frá MA 1942 og
lauk lögfræðiprófi frá Háskóla Islands
árið 1949. Hann lauk embættisprófi í
guðfræði árið 1954 og starfaði sem
blaðamaður á Morgunblaðinu á
árunum 1949—1954.
Strax að loknu guðfræðiprófi vígðist
Bjami til Mosfellsprestakalls Mos-
fellssveit og þjónaði því í 22 ár. Arið
1976 varð hann lektor við guðfræðideild
Háskóla Islands og seinna dósent við
sömu deild.
Séra Bjami hefur aila tíð tekið
mikinn þátt í félagsstörfum, sat t.d. í
stjóm Prestafélags Islands í sex ár og
á nú sæti í Siðareglunefnd Blaða-
mannafélags Islands. Eiginkona séra
Bjama Sigurðssonar er Aðalbjörg
Guðmundsdóttir frá Kirkjubóli í Norð-
firði og eiga þau fimm böm.
Stjórn Fólags kjúklingabœnda kom saman i Reykjavik f gmr
hækkun kjarnfóðurgjaldsins.
til að rœða
DV-mynd S.
Interferon bannað f Svíþjóð — talíð valda
ónæmistæringu: r
„KEMUR MER
EKKIA ÓVART”
- segir Helgi Valdimarsson læknir
„Þetta kemur mér ekki á óvart.
Interferon er búið til úr blóðfrumum.
Frumumar em svo örvaðar til
starfa. Ef ónæmistæringarveiran er
til staöar í blóðfrumunum örvast
framleiðsla hennar líka,” sagði
Helgi Valdimarsson læknir í samtali
viðDV.
Samkvæmt heimildum DV hefur
lyfið interferon verið bannað í Sví-
þjóð þar sem lyfið er talið geta valdið
ónæmistæringu.
„Hins vegar em til margar
tegundir af interferon,” sagði Helgi.
„Og hafa verður það í huga að lyfið
er mjög vel hreinsað áður en það er
notaö. Þá ber þess að geta að farið er
að framleiða interferon á nýjan hátt.
Þannig er erfðastofninn, sem geymir
interferon, einangraður og komið inn
í bakteríurnar og þær svo látnar
framleiða interferon. Með þessu er
engin hætta á að lyfið verði mengað
af veirunni sem veldur ónæmistær-
ingu.”
— Myndir þú telja ástæðu til aö
banna interferon hér á landi?
„Lyfiðerekkileyfthérálandi. Ef
lyfið er framleitt á þennan nýja hátt
og hreinsað vel er engin hætta. Þess
utan ber að geta þess aö interferon er
ekki notað samkvæmt lyfseðli.
Framleiðsla þess er enn á tilrauna-
stigi og notað í tengslum við rann-
sóknarvinnu. Þá er læknum hér-
lendis ekki leyft að nota lyfiö, nema í
alveg sérstökum tilfellum,” sagði
1 Helgi Valdimarsson. -KÞ.
.. :
■
\3WSAN
Á blaðsölustöðum
Spárnar eru
alltaf
að batna
— viðtal við
Trausta Jónsson
veðurfræðing
Rússnesk rúlletta
— garðveisla hjá Ármanni Réynissyni
Lífsreynsla:
Ef maður fær stuðning
— spjallað við einstaeða móður
Jökull, gullsandur og góður matur
punktar um ferðalag á sunnanverðu Snæfellsnesi
6000 kílómetra eftir
,,Gammelt rustent skrammel"
— vitnisburður um heiftarlega bíladellu
Fordkeppnin