Dagblaðið Vísir - DV - 19.07.1985, Síða 32
44
DV. FÖSTUDAGUR19. JULI1985.
Tíðarandinn Tíðarandinn Tíðarandinn Tíðarandinn Tíðarandinn
Glenn Ásgrimur og Sveinn smiður sem sér um allt viðhald og viðgerðir á verkfœrum Vinnuskólans i Kópa-
vogj. DV-myndir S
Harpa að gera það sem henni finnst skemmtilegast i Vinnuskólanum,
nefnilega mála.
„Agætt aö vera í vinnu-
skólanum þó kaupiö mætti
vera betra”
sögðu unglingarnir
íKópavogi
„Sjáöu, éggerði þetta,” sagöi Gunn-
ar Guðnason galvaskur og benti blaða-
manni á málaða mynd af Hliðargarði,
en svo dró hann það til baka og sagði
að flokksstjórinn, hún Kristin, hefíá gert
þetta. Gunnar og flokkurinn sem hann
er í var einmitt að undirbúa Hlíðar-
garðshátíðina sem var haldin á föstu-
daginn. Hann getur þó ekki tekið þátt í
hátiðahöldunum vegna þess að um
helgina áttu þau að fara austur fyrir
fjall og vinna á bóndabæ. „Ofsa stuð
sagði Gunnar. „Annars erum við í hinu
og þessu, mest í garövinnu ýmiss konar.
Mér líkar vel hérna þó aö kaupið sé
ekkert spes. ” Þá kom vinur hans Ævar
aövífandi og vildi lika fá að komast aö,
hann var sammála Gunnari um aö í
vinnuskólanum væri ágætt að vera þó
kaupiö mætti vera betra. „Það er ekk-
ert mál að fara í sveit, bara fint finnst
mér, kannski skellum við okkur á
sveitabali,” sagði Ævar kotroskinn.
— Fer ekki flokksstjórinn með? „Jú,
hún fer með, en við reddum því,” bætti
Ævar við. Stelpurnar í flokknum voru
heldur rólegri og héldu áfram við
vinnu sína, en þær voru að mála á skilti
fyrir hátíðina. Þær heita Hanna og
Harpa og sögðu að þeim likaði æðis-
lega vel í vinnuskólanum. Þetta væri
ágæt vinna þegar veðrið væri gott. Þær
voru sammála um að skemmtilegast
væri að mála og var ekki annað að sjá
þeim færist það vel úr hendi.
Kristín Guömundsdóttir er flokks-
stjóri yfir þessum flokki sem hefur
greinilega fengið ýmis spennandi verk-
efiii í sumar. „Fyrst vorum við í ýmiss
konar garðvinnu en síðan fórum við i
útselda vinnu og gekk það ágætlega,”
sagði Kristín. En hún átti heiðurinn af
listaverkinu sem Gunnar benti blaða-
manni á til að láta vita af sér.
SJ
„ Verst aö hafa ekki skúr”
— sögðu strákarnir í grasagarðinum í Laugardal
Þaö var líf og f jör í grasagarðinum
í Laugardal þegar DV mætti á stað-
inn til að leita uppi flokk frá Vinnu-
skólanum í Reykjavík sem sér um
viöhald og fleira í garðinum.
Strákarnir voru hinir hressustu enda
var veðrið að batna og þeir notuöu
tækifærið og fóru í smávatnsslag
eins og það er kallaö þegar mcnn
skvetta vatni á vini sína.
En hvar var flokksstjórinn? Jú,
hann er þama hinum megin, var
svarið. Við fylgdum vísbendingum
strákanna og tókum Magnúsi
Sæmundsson flokksstjóra tali þar
sem hann var að leggja síðustu hönd
á stétt sem strákarnir voru að leggja
fyrir garðhús í garðinum. Fyrsta
spurningin var hvemig flokknum
líkaði að vinna í garðinum?
„Jú, bara vel, nema okkur
vantar tilfinnanlega betri að-
stööu til aö borða nestiö. I flokknum
eru núna 12 strákar og höfum við af-
kastað heilmiklu þó ég segi sjálfur
frá,” sagði Magnús. Við höfum verið
mest í því að leggja stéttir og búa til
og laga göngustiga. Þaö er yfirmað-
ur garðsins, Sigurður Albertsson,
sem segir til um verkefni sem við
framkvæmum síöan eftir bestu getu.
Núna erum við að klára þessa stétt
og aö hreinsa til í íslenska blóma-
reitnum,” sagði Magnús.
Við fórum þangaö, en þar voru
tveir strákar önnum kafnir við að
hreinsa steina og laga til í litlum
tjömum sem eru í steinabeðinu.
Strákarnir heita Þorvaldur Ingi-
mundarson og Vilhjálmur Þ. Þóris-
son og voru þeir samála um að það
væri ágætt að vera í vinnuskólanum
og þá sérstaklega þegar veðrið væri
gott. „I rigningu er þetta leiðinleg
vinna,” sagöi Þorvaldur. Hann var
frekar óhress með kaupið en virtist
samt líka vel við steinaþvottinn. Nú
kallaði Magnús flokksstjóri strákana
í kaffi og þeir hurfu skyndilega á
braut. Á meðan á þessu spjalli stóð í
steinabeðinu hafði ýmislegt gerst á
nýju stéttinni. Gusuganginum með
vatnið var ekki alveg lokið og
Magnús hafði tekið til sinna ráöa og
missti slönguna óvart að hans sögn í
áttina til strákanna. Enginn er verri
þó hann vökni, segir gamalt máltæki
og það var ekki aö sjá að strákunum í
grasagarðinum væri illa við að fá
smávætu frá yfirmanni sínum.
Kaffitíminn í vinnuskólanum er
fimmtán mínútur og þeir nýttu hann
vel, strákamir, hámuðu í sig nestið
og létu móðan mása um Magnús
flokksstjóra, kaupið og vinnuna. Þeir
sögöu Magnús finan, kaupiö of lágt
en vinnuna ágæta, verst væri að hafa
ekki skúr. Þessu er hér með komiö á
framfæri svo aö kannski fá þeir skúr
fyrir næsta sumar, en núna fá þeir
inni hjá starfsfólki í grasgarðinum
sem sér um beðin og plöntumar í
garðinum.
Sigurður Albertsson, umsjónar-
maður garösins, sagði að þessi
hressi hópur væri mjög samstilltur
og góður hópur sem ynni jafnvel og
fullorðnir menn. Við skulum vona að
þeir standi undir þessu hrósi Sigurð-
ar það sem eftir er sumars og er eng-
in ástæða til að ætla annað en að þeir
geri það.
SJ
Hressir strákar í garðinum i Laugardal á nýju stóttinni sem þeir voru
að klára þegar DV bar að garði. Sólin skein og það veitti vist ekki af að
bleyta aðeins í strákunum, þeir voru svo sveittir eftir allt puðið.