Dagblaðið Vísir - DV - 19.07.1985, Page 30

Dagblaðið Vísir - DV - 19.07.1985, Page 30
DV. FÖSTUDAGUR19. JUU1985. ICHINA CRISIS - FUUWT THE IMPERFECTION§ EYRNAKONFEKTA LA STEELYDAN Þegar hljómsveitin Steely Dan gaf upp öndina fyrir nokkrum árum grétu margir hátt og í hljóöi enda mikil eftirsjá í jafnfrábærri hljómsveit. Nú geta hins vegar allir syrgjendur Steely Dan tekiö gleði sína á ný því hljóm- sveitin er því sem næst endurfædd. Aö vísu er Steely Dan ekki endur- fædd sem slík en tónlistarlega má segja aö hún sé meðal vor á ný. Og hljómsveitin sem tekiö hefur að sér aö halda merki Steely Dan á lofti er breska hljómsveitin China Crisis. Skýringin á því hversu keimlik China Crisis er Steely Dan sálugu er sú aö þegar undirbúningur hófst fyrir þá plötu sem hér er til umfjöllunar — Flaunt The Imperfection — datt ein- hverjum í hug aö senda prufuupptökur til Walter Becker sem áöur var helm- ingurinn af Steely Dan á móti Donald Fagen. Becker, sem dvalist hefur í tón- listarlegri útlegö á Hawaii síöan Steely og Dan hætti, féll fyrir tónlist China Crisis og féllst á að koma til Englands og stjórna upptökum á plötunni. Afraksturinn er ekkert annað en meistarastykki enda hvemig má annað veröa þegar jafnmiklir hæfi- leikamenn og þeir Eddie Lundon, Garry Dalky og Walter Becker taka saman höndum? ÞráttfyriraöBeckerhafi greinilega haft algjörlega frjálsar hendur með sándiö á plötunni, sem er nauöalíkt sándinu á síöustu plötum Steely Dan hefur honum einnig tekist aö varðveita séreinkenni China Crisis á plötunni. Þannig mega báðir aöilar vel viö una og gott betur en þaö. Eg get ímyndað mér aö aðalástæöan fyrir því aö Becker tók aö sér upptöku- stjómina hjá China Crisis hafi verið sú aö hin mjúka melódíska tónlist China Crisis hafi hreinlega minnt hann á Steely Dan. Þegar maöur nefnir mjúka melódíska tónlist halda margir að um eitthvað væmið sé að ræða. Því er aldeilis ekki til aö dreifa hér. Þessi mjúka melódíska tónlist þarfnast hlustunar og aftur hlustunar til aö POPP m ■ CHINA CRISIS maöur uppgötvi töfra hennar til fullnustu. Flaunt The Imperfection er nefnilega ein af þeim fáu plötum sem maöur getur haft á fóninum hjá sér vikum saman án þess aö fá leiöa á henni og jafnframt alltaf veriö að upp- götvaeitthvaðnýttítónlistinni. -SþS- THE STYLE COUNSIL - OUR FAVOURITE SHOP: ROS FYRIR REIDAN MANN I THE STYLE COUNSIL | LOS LOBOS - HOW WILL THE WOLF SURVIVE? | GÓÐUR UÐSAUKI Sú hljómsveit sem valdiö hefur hvað mestu fjaðrafoki í fjölmiölum rokksins á þessu ári er vafalítiö bandarísk/mexikanska hljómsveitin Los Lobos. Um skeið var ekki hægt aö fletta neinum blööum eöa tímaritum inn rokk ööruvísi en aö reka augun í greinar og myndir af strákunum í Los Lobos — sem eru reyndar engir stráklingar lengur, komnir hátt á fertugsaidur, allir fjölskyldumenn og LOSLOBOS feöur. Ofmetin hljómsveit, segja sumir en ég tek ekki undir það. Los Lobos er aö minni hyggju einhver hressilegasta sendingin sem rokkinu hefur áskotnast um árabil. Margt hljómar að sönnu kunnug- lega á þessari plötu Los Lobos og rétt er aö taka skýrt fram í upphafi aö tón- listin er á engan hátt framsækin. Hér er fingrum smellt i einkar fjörlegum og glaðværum lögum sem mörg hver eiga rætur aö rekja til rokkabillí- tónlistar, auöveld til áheymar, ómót- stæðileg fyrir fætur og svipta burt fúl- lyndi á augabragði? Þessi sumpart heimatilbúna blanda af tónlist er stundum kölluö Tex-Mex, spiluð upphaflega nokkum veginn á landamærum Mexíkó og Texas og krydduð með áhrifum úr ýmsum áttum. Hér má greina blús, rokk og ról með gamla laginu ásamt mexíkönskum áhrifum í stíl og söng. Harmóníka spilar stóra rullu, drag- spiliö er þaniö af miklum móð í mörgum lögum og gefur vissulega tón- listinni dálítiö heillandi blæ. How Will the Wolf Survive er fyrsta breiðskífa Los Lobos en fyrir hartnær tveimur árum kom út svokölluö mini- lp, plata meö sjö lögum, sem heitir „ . .. and a Time to Dance”. Sú plata er stórum betri en breiðskífan aö mínu áliti, en báöar gullvægar fyrir þá sem hafa yndi af „Iéttum hljóöfæraleik og söng” eins og stundum er tekiðtil orða. Og spriklandi fjör aukinheldur. -Gsal. Þaö hefur veriö sagt um Paul Weller aö hann sé ámóta mikilvægur breska rokkinu eins og Bruce Springsteen því bandariska. Má til sanns vegar færa. Báöir eru dálitlir hugsjónamenn í tón- listarsköpun sinni, trúir rokkinu, og yrkja báöir út frá persónulegri reynslu sinni meðal lágstéttafólks. Springsteen lítur aö sönnu á misfeilur þjóðfélagsins útfrá persónulegu sjónarhomi meöan Weller er fremur í hlutverki gagn- rýnandans sem bendir reiöilega á þaö sem miður fer og hikar ekki viö aö kalla fram sökudólga meö nöfnum ef honum býður svo við aö horfa. Fyrir reiðan ungan mann er af mörgu aö taka í bresku þjóðlífi og við kynnumst því á þessari annarri plötu Style Counsil. Paul Weller hefur reyndar einlægt ort bitur ljóð allt frá því hann var fyrirliði í Jam og hann heldur sínu striki í Style Counsil þó hvassari pólítískan tón sé vart aö finna en einmitt á þessari nýju plötu. Lög Style Counsil eru flest mót- mælendasöngvar í þess orös bestu merkingu; á plötuumslaginu hvetur Weller hlustendur sína breska aö rísa upp gegn atvinnuleysinu nú á ári æskunnar undir kjöroröunum „get organised and start taking more' control of your lives”, — og eins má finna á umslagi hvatningu til fólks aö bindast samtökum gegn áfram- haldandi framleiöslu gereyðingar- vopna. Samanboriö við fyrri plötu Style Counsil, Café Blau, er tónlistin ekki eins djasskennd og þá en rætumar þó þær sömu: bandarísk sóltónlist og breskt rokk, gæöavara sem fyrr frá hendi Wellers og vörumerkiö gamal- dags orgelspil Mike Talbots, samherjans í hljómsveitinni. Reyndar mætti fjölga hljómsveitarmeðlimum í tvo, trymbilinn Steve White og söng- konuna D.C.Lee, en bæöi leika stórt hlutverk á plötunni svo og í hljómleika- ferð Style Counsil í sumar. Rétt er aö taka fram að þrátt fyrir nokkuð þunglamalega texta er tón- listin afar aögengileg og hrifandi, hlýleg á köflum og má til dæmis benda á lög eins og With Everything to Loose og ástaróöinn Down in the Seine þvi til staðfestu. Homebreakers er líka fantagott. Rós í hnappagat Style Counsil. -Gsal. HUÓMSVEIT BIRGIS GUNNLAUGSSONAR FJÖRKIPPIR: I PARTIPLATA PYRIR ELDRIKYNSLOBINA Birgir Gunnlaugsson hefur haldiö úti danshljómsveit í nokkur ár og ber ný plata hans þess greinileg merki eins og nafn og undirtitill ber með sér. Fjör- kippir, tíu stuölög með hljómsveit Birgis Gunnlaugssonar nefnist hún. Og þeir mörgu sem einhvem tíma hafa verið á dansleik, þar sem Birgir Gunn- laugsson leikur fyrir dansi, vita nákvæmlega aö hverju þeir ganga. Fyrir mína parta finnst mér hljóm- sveitinni takast best upp í hraöari lög- unum samanber syrpumar Valsa- syrpa og Eyjur og svo Vikivaki. Þetta eru lög sem allir Islendingar kunna, eru sungin í partíum og rútum og á fleiristöðum. Það eru nokkur róleg lög á plötunni, erlend og frumsamin. Erlendu lögin eru fengin að láni hjá amerískum sveitasöngvurum og em í heild nokkuð máttlaus i flutningi hljómsveitarinnar. Tvö frumsamin lög eru á plötunni. Annaö er Hetjan sem er eftir Nikulás Róbertsson við texta Birgis Gunn- laugssonar. Gott og grípandi lag sem stendur erlendu lögunum ekki að baki nemasíöursé. Hitt lagið er Sumarást eftir Gunnar Jónsson, einnig viö texta eftir Birgi en Birgir hefur samið flesta textana sem prýða erlendu lögin. Sumarást er ró- legt lag sem ekki sker sig neitt úr. Aö sjálfsögðu er Birgir Gunnlaugs- son mest áberandi á plötunni. Hann syngur flest lögin, auk þess sem hann spilar á gítar. Aðrir í hljómsveitinni eru þrautreyndir tónlistarmenn. Gunnar Bemburg, Olafur Garðarsson og Nikulás Róbertsson, allt tónlistar- menn er hafa komiö víöa viö á löngum ferli. | Fjörkippir eru partíplata fyrir eldri 1 kynslóöina. Hræddur er ég um aö yngstu hlustendunum þyki frekar h'tið til tónlistarinnar koma, en pabbi og mamma hafa ábyggilega gaman af. HK. SMÆLKI Sæl nú! Et' marka má ný- legar niðurstöður lesenda- kosninga í Melody Maker hafa Bretar þessa dagana einna mest dálæti á írsku hljómsveitinni U2. Hljóm- sveitin er talin hafa átt bestu plötu síðasta ár, bestu smá- skífuna (Pride), besta ‘ söngvarann og hljómsveitin er talin best á sviði. Pví stingur það dálítið t stúf við önnur úrslit kosninganna að hijómsveitin The Smiths hreppir efsta sætið sem besta hijómsveitin, U2 í öðru sæti. . . Svo áffam sé gluggað t Meikerinn: Alison Moyet er talin besta söng- konan, Relax með Frankie Goes to Hollywood besta danslagið og maður ársins: Bob Geldof.forsprakki Band Aid og Live Aid. . . Og hvað var verst? Agadoo með Black Lave var kosið versta lagið, Make it Big með Wham! versta breiðskífan, Wild Boys versta mynd- bandið (reyndar einnig það besta!) og verst klæddi ' tónlistarmaðurinn: Boy George. . . Komin er út ákaflega athyglisverð smá- sktfa í Bandartkjunum með söngkonu Pretenders, Chrissie Hynde og reggí- strákunum bresku í hljóm- sveirinni UB40. Saman syngja þau gamla Softny & Cher lagið: I Got You Babe. . . Og við lesum í breskum heimildum að Mezzoforte sé að gefa út í Bretlandi á nýjan leik gamla smellinn sinn, Garden Party, að þessu sinni t nýrri hljóðblöndun sem kallast: sólarblanda (sunshine mix). . . Pointer Sisters slógu heldur betur í gegn á síðasta án með plötunni: Break Out. Nú hefur ný plata systranna litið dagsins ljós, heitir Contakt og fyrsta lagið sem veðjað er á hefur þegar tekið á rás upp vin- sældalista: Dare. . . Morgunblaðinu, málgagni þungarokksaðdáenda, hefur láðst að geta mikillar upp- sveiflu þungarokksins síðustu vikur vestur í henni Amertku. Við tökum þvt fram fyrir hendur Moggans og segjum: plötur ttteð Ratt, Motley Crue og AC/DC eru á tljúgandi ferð upp banda- ríska listann. . . Stam-lög hafa verið nokkuð t brenni- depii vestra eftir að Sussudio með Phil Collins komst á toppinn um dag- inn. Eleiri topplög þar sem stamað hefur veríð í viðtali eru nefnd til sögunnar: M- m-my Sharona tneð Knacks, S-s-saturday Night nteð Bay City Rollers, B-b-Benny And the Jcts með Elton John og You Ain't Seen Nothing Yet með Backman Turner Overdrive. . . Búið í bili. . . -Gsal.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.