Dagblaðið Vísir - DV - 19.07.1985, Blaðsíða 33
DV. FÖSTUDAGUR19. JULl 1985.
45
Tíðarandinn Tíðarandinn Tlðarandinn Tíðarandinn Tíðarandinn
Vinnuhópur Tónabæjar:
NOG AF VERKEFNUM
Vinnuhópar á vegum Æskulýös-
ráös Reykjavíkur falla ekki undir
Vinnuskólann í Reykjavík þó aö
verkefnin sem þeir fá séu að mörgu
leyti lík þeim sem vinnuskólinn fær.
I vinnuhópunum eru unglingar á
aldrinum 15—17 ára og eru tveir
hópar starfandi í sumar. Annar er
gerður út frá Fellahelli, en hinn frá
Tónabæ. Verkefnum fyrir hópana
er aflaö meö tilboöum sem berast frá
einstaklingum, fyrirtækjum og stofn-
unum í Reykjavík.
Hluti af Tónabæjarhópnum hefur
undanfarinn hálfan mánuð veriö að
vinna í einkagarði við Sólvallagöt-
una og fórum viö í heimsókn til
þeirra. Fyrir utan garöinn mátti sjá
heilu haugana af mold og fyrir innan
giröinguna var allt á fullu, skóflur á
lofti og hakanum var sveiflaö fag-
mannlega. Okkur tókst að fá
strákana til aö taka sér smápásu og
spurðum fyrst hvort vinnuhópurinn
væri svona fámennur, bara þrír
strákar og einn verkstjóri? „Nei,
nei, stelpurnar eru aö vinna annars
staöar og hinn verkstjórinn er þar,”
svaraöi Kristinn Már Emilsson verk-
stjóri. „1 flokknum eru 12 unglingar
og þaö er jöfn skipting milli kynja,
sami fjöldi er í Fellahópnum,” sagöi
hann. — Hafið þiö haft nóg aö gera?
„Já, og vel þaö, viö höfum mest verið
hjá einstaklingum í alls kyns garð-
vinnu, þetta verkefni sem við erum í
núna er reyndar eitt fyrsta stórverk-
efniö okkar og eigum viö töluvert eft-
ir enn,” sagöi verkstjórinn.
En hvemig líkar strákunum
vinnan? Olfar Helgason var líka i
vinnuhóp Tónabæjar í fyrra og sagði
hann aö þetta væri alveg ágætt.
„Kaupiö er svo sem ekkert rosalegt
en bónusinn bjargar þessu, ef hann
væri ekki þá væri maður í einhverju
öðru,” sagði Ðlfar. Kristófer Péturs-
son hætti nýlega í byggingarvinnu
vegna þess aö það var verið aö fækka
fólki vegna verkefnaskorts. Hann
sagöi að kaupið í byggingarvinnunni
hefði veriö betra, en þessi vinna væri
svo sem ósköp svipuö. „Maöur er
alltaf á skóflunni,” sagöi Kristófer
og hélt áfram við moksturinn.
Magnús Þorsteinsson var líka í
annarri vinnu í byrjun sumars en
hætti þar og fékk vinnu í vinnu-
hópnum. „Eg var í fiski og þaö var
hundleiðinlegt, þetta er mikiö
betra,” sagði hann og spurði svo
Kristin verkstjóra hvort hann ætti
ekki að halda áfram . Já, þeir voru
vinnuglaðir strákamir, enda af nógu
aö taka.
Að lokum spurðum viö þá hvort
þeim þætti ekki verra aö stelpurnar
væru annars staðar aö vinna. „Nei,
þetta er alltof erfitt fyrir þær, en þær
koma seinna og snyrta til eftir okk-
ur,” sögðu þeir galvaskir og héldu
áframaömoka.
SJ.
Úlfar á flaygiferfl með skófluna.
DV-myndir S.
Vilhjálmur og Þorvaldur i steinabeflinu, en þar þurfti að hreinsa tjarnir
og snyrta til.
DV-myndir S
Magnús, Úlfar, Kristinn verkstjóri og Kristófer i örstuttri pásu sem þeir tóku sér rétt á meðan Sveinn
smellti af þeim mynd.
Unglingavinna, öðrunafni vinnuskóli
í flestum stærri sveitarfélögum
eru starfandi svokallaöir vinnu-
skólar á sumrin sem í daglegu taii
kailast unglingavinnan. Viö fórum í
heimsókn í tvo skóla og spjölluðum
viö nokkra unglinga sem þar vinna
og flokkstjórana þeirra. Vinnuskól-
arnir í Reykjavík og Kópavogi tóku
báöir til starfa í byrjun júní og starfa
Tjaldsvæðiö í Laugardalnum og
svæöiö þar í kring er í umsjá flokks
sem Huld Jónsdóttir og Ingibjörg
Eggertsdóttir veita forstööu. Okkur
gekk reyndar frekar illa aö koma auga
á flokkinn þar sem þær voru inni í trjá-
beðum á tjaldsvæðinu ásamt tveim
stelpum sem eru þær einu í flokknum
eftir hádegi.
„Þiö hefðu átt að koma í morgun, þá
voru um 20 stelpur, en flestar þeirra
sem voru eftir hádegi eru hættar eöa í
fríi í dag,” sagði Huld þar sem hún
ruddi sér braut úr trjábeðinu. Hún
sagöi aö margar af stelpunum hefðu
fariö í fiskvinnu á Kirkjusandi og aðr-
ar farið í aöra vinnu.
Anna Kristín Þorsteinsdóttir, sem
býr í Noregi, var aö reyta arfa meö
flokksstjórunum. Viö spurðum hana
hvernig henni líkaöi starfiö. „Agæt-
lega,” sagði hún. „Reyndar getur þaö
verið svolítiö þreytandi aö reyta arfa
allan daginn, maður veröur lúinn í
höndunum, en þetta er betra en aö hafa
tiljúlíloka.
I Reykjavík voru í upphafi um eitt
þúsund nemendur, en nú eru þeir um
níu hundruö því margir hafa farið í
aöra vinnu. Aöeins tveir árgangar
geta fengið vinnu hjá Vinnuskólan-
um í Reykjavik, það eru 14 og 15 ára
unglingar. Kaupiö hjá eldri krökk-
unum er 54 krónur á tímann, en hjá
ekkert aö gera,” sagöi hún. Anna
Kristín sagði aö í Noregi væri nánast
útilokaö fyrir krakka á hennar aldri að
fá vinnu vegna atvinnuleysis. Henni
fannst kaupið í vinnuskólanum frekar
lélegt en endurtók samt aö þaö væri
vissulega betra en ekki neitt.
Unnur Hólmfríður Heimisdóttir var
við sömu störf og Anna Kristín og
flokksstjóramir, þ.e. aö reyta arfa.Og
hvernig líkar henni svo starfinn?
(Gretta) „Bara vel,” svaraði hún
dræmt. Þá gripu flokksstjórarnir inn í,
sem greinilega þekkja sitt fólk, og
sögöu henni aö segja eins og er. „Já, ég
skal gera þaö, mér finnst leiðinlegt aö
reyta arfa allan daginn og er að reyna
aö fá mér aöra vinnu,” sagöi Unnur, en
hélt samt áfram viö vinnuna enda var
af nógu aö taka í beðunum við tjald-
svæðið í Laugardalnum.
Viðþökkuðumþeimfyrir spjalliöog
héldum í grasagaröinn þar sem við
höfðum heyrt af flokki vaskra stráka.
SJ.
þeim yngri er þaö 48 krónur á
timann. Eldri krakkarnir vinna
fullan vinnudag eöa 8 tíma, en þau
yngri 4 tíma. Verkefnin eru margs
konar og eru flokkar frá Vinnu-
skólanum um alla borg að snyrta og
hreinsa ýmis opin svæöi. Guðmund-
ur Guömundsson, aöstoöarmaöur
skólastjóra Vinnuskólans í Reykja-
vík, sagöi að hjá þeim væri í gangi
bónuskerfi þannig aö duglegir
krakkar ættu að geta náö töluverðri
uppbót á kaupiö ef þeir ynnu vel. En í
fyrra var nokkur óánægja meö kaup-
iö í Reykjavík sem var töluvert
lægra en í Kópavogi.
I Vinnuskólanum í Kópavogi eru
um 300 unglingar á aldrinum 13—17
ára sem skiptast í 20 flokka. Vinnu-
tíminn hjá tveim elstu árgöngunum
er 7 stundir á dag og fá þau sem eru
fædd 1969 63,60 á tímann, en þau sem
eru fædd 1970 fá 56,15 á tímann.
Yngri árgangamir tveir vinna þrjár
og hálfa klukkustund á dag og þau
sem eru fædd 1971 fá 49,90 krónur á
tímann en þau allra yngstu fá 37,45 á
tímann. Verkefnin sem Vinnuskólinn
fær eru margvísleg eins og t.d.
hreinsun bæjarlandsins, gerö og
viðhald opinna svæða og þjónusta viö
íbúa Kópavogs, þá sérstaklega
aldraða og öryrkja. T.d. tekur Vinnu-
skóhnn aö sér að slá fyrir aldraöa og
öryrkja en sláttur á opnum svæöum í
Kópavogi er hins vegar i höndum
bæjarvmnunnar. í sumar er í fyrsta
skipti sérstakur flokkur fyrir fötluö
ungmenni sem Vinnuskólinn sér um í
samvinnu við Tómstundaráð Kópa-
vogs. önnur nýjung hjá þeim í Kópa-
voginum er aö nú eru í fyrsta skipti
teknir inn 16 og 17 ára unglingar.
Félagslif hjá Vinnuskóla Kópavogs
er töluvert og sjá starfsmenn í
Félagsmiðstöðinni Agnarögn aö
mestu um þaö í samvinnu viö ungl-
ingana í Vinnuskólanum.
Þegar fer aö líöa á starfstíma skól-
anna i Reykjavík og Kópavogi gera
menn sér gjaman glaðan dag og
slegiö er upp miklum hátíöum. í
Reykjavík eru t.d. haldnar hverfis-
hátíðir og ér ætlunin að halda mikla
lokahátíö seinni partinn í júlí. I
Kópavogi var Hlíðargarðshátíðin sl.
föstudag en undirbúningur fyrir há-
tíðina var eínmitt í fullum gangi þeg-
ar okkur bar að garöi í gamla prests-
húsinu í Kópavogi þar sem Vinnu-
skólinn þar í bæ hefur aösetur sitt.
SJ.
Anna Kristín Þorsteinsdóttir og Unnur Hólmfriflur Heimisdóttir í arfatinslu
i trjábeðinu við tjaldsvæðið i Laugardal. Þær voru sammála um að það væri
ekki þafl skemmtilegasta sem þær hefðu komist í. DV-mynd S.
„Þreytandi að reyta
arfa allan daginn”
— sagði Anna Kristín Þorsteinsdóttir